Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2009, Blaðsíða 6
Föstudagur 15. maí 20096 Fréttir
Sandkorn
n Hjá Pennanum er starfsfólk
með brattara móti eftir kenni-
töluhoppið í boði ríkisins. Fjöldi
bókaútgáfna er í sárum eftir
að fyrirtækinu tókst að svíða af
þeim stóran hluta umboðssöl-
unnar. Engan bilbug er þó að
finna á Bryndísi Loftsdóttur,
talsmanni Pennans, sem fer á
kostum eins og fyrir kennitölu-
flakk. Við kynningu á metsölu-
lista vikunnar upplýsti hún rík-
isstjórnina um að kynjaskipting
á topp 10 metsölulistanum væri
jöfn þessa vikuna. Hins vegar
sæti karlmaður í fyrsta sæti list-
ans og þannig hefði það verið í
17 af 19 vikum þessa árs.
n Hinar ýmsu samsæriskenning-
ar vegna stjórnarskiptanna láta
ekki á sér standa. Vefritið Press-
an vekur á því athygli að Katrín
Jakobsdóttir menntamálaráð-
herra var fjarverandi þegar fram
fór sérstök sýning í Þjóðleik-
húsinu á leikriti Jökuls Jakobs-
sonar, Hart
í bak. Um
var að ræða
sýningu sem
tekin var
upp til sýn-
ingar í Ríkis-
sjónvarpinu
um næstu
jól. Rjómi
valdastéttarinnar var mættur
í boði Tinnu Gunnlaugsdótt-
ur þjóðleikhússtjóra. Fjarvera
menntamálaráðherra þótti vís-
bending um að Tinna yrði ekki
endurráðin sem leikhússtjóri.
n Flipp Moggans með gerviís-
björninn í Skagafirði er með því
neyðarlegra sem sést hefur í
fjölmiðlum og hafa hlátrasköll-
in vegna einfeldninnar glumið
milli fjalls og fjöru. Sjálfir eru
Moggamenn talsvert uppteknir
af ísbjörnum ef marka má frétt
sem kom í kjölfarið um að ólík-
legt væri með tilliti til stöðu haf-
íss að ísbirnir þvældust hingað
um Grænlandssund. Guðmund-
ur Magnússon, ritstjóri Eyj-
unnar, þykir hafa undirliggjandi
húmor en hann tengdi á frétt
Moggans með orðunum „Mogg-
inn enn á ísbjarnavakt“.
n Landsbankinn, hinn nýi,
keppist nú við að tjasla saman
ímynd sinni eftir bankahrun-
ið og hefur kostað til ófáum
milljónum í auglýsingaherferð
í þeim tilgangi. Upplýsingasvið
bankans lætur heldur ekki sitt
eftir liggja en þaðan hafa þau
Páll Benediktsson og Tinna
Molphy sent fjölmiðlum ítar-
legar leiðbeiningar um hvernig
fjalla skuli um Landsbankann í
fjölmiðlum.
Þeim er, að
því er virð-
ist, kapps-
mál að fjar-
lægja nýja
Landsbank-
ann þeim
gamla, en
þar starfaði
Tinna áður við markaðsmál, og
leggja nú á og mæla um að ekki
megi kalla gamla Landsbank-
ann „gamla“ og þann nýja ekki
„nýja“.
n Nýi Landsbankinn skal hér
eftir nefnast „Landsbankinn“ í
fréttum og sá gamli „LBI“ eða
„skilanefnd LBI“ samkvæmt
leiðbeiningum Tinnu og Páls.
Þau láta þess þó getið í leiðar-
vísi sínum að þau séu „meðvit-
uð um að þetta er kannski ekki
einfaldasta og skýrasta lausnin í
boði“. Flestir hljóta að geta verið
sammála því og því má spyrja
sig hvaða tilgangi það þjóni að
hrófla við góðri og gildri skil-
greiningu á gömlu og nýju sem
virðist ekki vefjast sérstaklega
fyrir almenningi þótt hún fari
í taugar markaðsdeildar Nýja
Landsbankans eða þess gamla
væntanlega líka.
Útgáfufyrirtæki í eigu Brynhildar
Gunnarsdóttur, dóttur Gunnars
Birgissonar, bæjarstjóra í Kópa-
vogi, og eiginmanns hennar, Guð-
jóns Gísla Guðmundssonar, fékk
tæpar 3,5 milljónir króna fyrir að
vinna afmælisrit fyrir Kópavogs-
bæ árið 2005 sem svo var aldrei
gefið út. Fyrirtækið, sem heitir
Frjáls miðlun, fékk auk þess rúma
hálfa milljón króna til að vinna
gagnvirkt götukort fyrir vefsvæði
Kópavogsbæjar sem aldrei hefur
verið birt á vefsvæði bæjarins.Í
heildina hefur Frjáls miðlun feng-
ið 50 milljónir króna frá Kópa-
vogsbæ vegna verka sem unnin
hafa verið fyrir bæinn á síðustu
tíu árum.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í skýrslu frá Kópavogsbæ við
fyrirspurn tveggja bæjarfulltrúa
Samfylkingarinnar í Kópavogi,
þeim Guðríði Arnardóttur og Haf-
steini Karlssyni, sem lagt var fram
á bæjarráðsfundi í Kópavogsbæ í
gær.
DV fjallaði um greiðslur til
Frjálsrar miðlunar í síðasta mán-
uði og sagði þá frá því að greiðsl-
urnar síðustu sex árin næmu tæp-
um 40 milljónum króna. Þegar DV
innti Gunnar Birgisson eftir svör-
um um hvort eitthvað óeðlilegt
væri við viðskipti Kópavogsbæjar
við Frjálsa miðlun sagði hann að
ekki ætti að refsa dóttur hans fyrir
að hann væri faðir hennar, verk-
in sem fyrirtækið fékk hefðu verið
boðin út og Samfylkingin í Kópa-
vogi stundaði „skítapólitík“ með
fyrirspurninni um greiðslurnar til
félagsins.
Veit ekki af hverju
ritið kom ekki út
Brynhildur segir að Frjáls miðl-
un hafi skilað afmælisritinu til
Kópavogsbæjar árið 2005 en að
það hafi ekki verið gefið út af ein-
hverjum ástæðum sem henni sé
ekki kunnugt um. „Bærinn er með
handritið að afmælisritinu, við
skiluðum því fullunnu með fullt
af myndum tilbúnu til prentunar.
En ég veit ekki af hverju það var
ekki gefið út,“
segir Bryn-
hildur en
vinnan við
þetta afmæl-
isrit var ekki
boðin út,
samkvæmt
heimildum
DV, og það er
ekki nefnt í
skýrslunni að
það hafi ver-
ið gert. Bryn-
hildur segir að
síðustu ár hafi Frjáls miðlun ein-
ungis fengið greitt fyrir verk sem
félagið vann en bærinn verði að
svara fyrir það af hverju þjónusta
þess skilaði sér ekki til Kópavogs-
búa.
Hún segir, spurð um mikil við-
skipti Frjálsrar miðlunar við Kópa-
vogsbæ á liðnum árum, að eng-
ir óeðlilegir viðskiptahættir hafi
verið þarna á ferðinni. „Ég myndi
hafa áhyggjur ef svo væri en ég
hef ekkert að fela,“ segir Bryn-
hildur. Hún segir að félagið hafi í
nokkrum tilfellum fengið útboðs-
skyld verk eftir þátttöku í útboði
en þegar um smærri verk hafi ver-
ið að ræða hafi bærinn stundum
haft samband við Frjálsa miðl-
un og beðið félagið um að vinna
verkin.
Hún telur að umræðan um
Frjálsa miðlun sé pólitísk og
stjórnist af því að hún sé dóttir
Gunnars Birgissonar bæjarstjóra.
Bærinn mun rannsaka
viðskiptin
Á bæjarráðsfundinum í gær var
samþykkt, einróma, tillaga um
að fela endurskoðendum Kópa-
vogsbæjar að fara yfir öll viðskipti
bæjarins við Frjálsa miðlun, hvort
farið hafi verið eftir innkauparegl-
um bæjarins og hvort ákvarðanir
sem snúi að félaginu hafi verið í
samræmi við góða stjórnsýslu.
Guðríður Arnardóttir segir
að það hafi komið henni á óvart
hversu háar fjárhæðir fyrirtæki
dóttur Gunnars hafi fengið á liðn-
um árum og hversu háar greiðsl-
urnar hafi verið fyrir ýmis verk
sem ekki virðast mjög veigamik-
il. En í því sambandi nefnir hún
sérstaklega að Frjáls miðlun hafi
á síðastliðnum sex árum fengið
tæpar 2,5 milljónir fyrir að gera
umhverfisviðurkenningar sem ár-
lega eru veittar fimm aðilum og
rúmlega hálfa milljón fyrir gerð
gagnvirks götukorts fyrir vefsvæði
Kópavogsbæjar sem aldrei hafi
verið látið þangað inn. „Þessar
umhverfisviðurkenningar eru við-
urkenningarskjöl, A-4 blöð inni í
ramma, og fyrir þetta fær félagið
greitt allt að 750 þúsund krónur
á ári,“ segir Guðríður en í skýrsl-
unni segir einnig að Frjáls miðlun
hafi fengið rúmlega
sex milljónir króna
vegna ljósmynda-
vinnu fyrir bæinn á
síðustu sex árum.
Hún segir að hún
muni á næstunni
fara ítarlega yfir
skýrsluna frá Kópa-
vogsbæ og athuga
fyrir hvaða verk fyr-
irtækið fékk greitt og
hvort þau hafi skilað
sér til bæjarins og til
Kópavogsbúa.
MILLJÓNIR FYRIR RIT
SEM ALDREI KOM ÚT
Útgáfufyrirtæki í eigu Brynhildar Gunnarsdóttur, dóttur Gunnars Birgissonar,
bæjarstjóra í Kópavogi, hefur fengið 50 milljónir frá Kópavogsbæ á síðustu 10 árum.
Félagið hefur meðal annars fengið greitt fyrir afmælisrit sem aldrei hefur verið
gefið út. Dóttir Gunnars hafnar því að viðskipti félagsins við Kópavogsbæ séu óeðli-
leg. Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar segir að upphæðirnar hafi komið á óvart.
InGI F. VIlhjálmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
segir viðskiptin eðlileg gunnar
Birgisson neitar því staðfastlega að
óeðlilegir viðskiptahættir hafi legið
á bak við viðskipti við dóttur hans.
Greiðslur
KópavoGsbæjar
til Frjálsrar miðlunar síðastliðin
sex ár:
ár Upphæð
Árið 2003 6.636.422
Árið 2004 4.979.510
Árið 2005 8.094.225
Árið 2006 6.668.755
Árið 2007 6.044.625
Árið 2008 6.990.725
Alls 39.414.262
miðvikudagur 22. apríl 2009
6
Fréttir
Á þeim tíma sem Gunnar Birgis-son, bæjarstjóri í Kópavogi, var stjórnarformaður Lánasjóðs ís-lenskra námsmanna (LÍN) fékk út-gáfufélag dóttur hans, Frjáls miðl-un, rúmar ellefu milljónir króna greiddar frá sjóðnum vegna ým-iss konar þjónustu sem tengist útgáfustarfsemi. Ekki eru nánari upplýsingar um eðli verkefnanna í bókhaldi Lánasjóðsins. Þetta kem-ur fram í upplýsingum sem starfs-menn Lánasjóðsins hafa tekið saman að beiðni DV.
Starfsmenn Lánasjóðsins fóru yfir bókhald sjóðsins allt frá árinu 1992 þegar Gunnar tók við sem stjórnarformaður LÍN og fram til ársins 2009 þegar Katrín Jakobs-dóttir, nýskipaður menntamála-ráðherra, vék stjórninni frá og skipaði nýja.
Ekki útboðsskylda
Frjáls miðlun er útgáfufélag sem dóttir Gunnars, Brynhildur Gunn-arsdóttir, á og rekur ásamt eigin-manni sínum, Guðjóni Gísla Guð-
mundssyni. Félagið sérhæfir sig meðal annars í auglýsingagerð, tölvuvinnslu og útgáfustarfsemi hvers konar, samkvæmt hlutafé-lagaskrá.
Samkvæmt upplýsingum frá Guðmundi Hannessyni, forstöðu-manni ráðgjafasviðs hjá Ríkis-kaupum, er ríkisstofnunum ekki skylt að bjóða út verk sem kosta innan við fimm milljónir króna og er því ólíklegt að verkin sem Frjáls miðlun fékk frá LÍN hafi verið boð-in út. Upplýsingar frá Lánasjóðn-um koma heim og saman við þetta en samkvæmt þeim er sjóðnum ekki skylt að bjóða út öll verk sem keypt eru.
Í flestum tilfellum er það fram-kvæmdastjóri LÍN sem tekur ákvörðun um við hvaða fyrirtæki eigi að skipta. Núverandi fram-kvæmdastjóri lánasjóðsins heit-ir Guðrún Ragnarsdóttir og tók hún við stöðunni í byrjun febrú-ar. Greiðslurnar til dóttur Gunn-ars áttu sér því stað áður en hún kom að sjóðnum. Framkvæmda-stjóri LÍN á undan Guðrúnu var Steingrímur Ari Arason, núverandi forstjóri Sjúkratryggingastofnun-ar, sem gegndi starfinu frá árinu 1999.
Gunnar neitar aðkomuAðspurður um hvort hann hafi átt þátt í að veita Frjálsri miðlun verk-efni sem það fékk greiddar fyr-ir rúmar ellefu milljónir króna á umræddu tímabili segir Gunnar Birgisson að það hafi alfarið verið framkvæmdastjóri Lánasjóðsins sem tók ákvarðanir um við hvaða fyrirtæki ætti að skipta. „Ég hafði ekki milligöngu um það. Ég var bara formaður stjórnarinnar. Það þarf bara að spyrja framkvæmda-stjórana að þessu,“ segir Gunnar og bætir því við að hann hafi ekki einu sinni haft hugmynd um að Frjáls miðlun hefði unnið fyrir Lánasjóð-inn.
Ekki náðist í Steingrím Ara Ara-son við vinnslu fréttarinnar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Rúmar 50 milljónir til dóttur-innar
Upplýsingarnar um greiðslur LÍN til félagsins koma fram í kjölfar fréttar DV frá því í síðustu viku um að Frjáls miðlun hafi samkvæmt heimildum fengið greiddar rúm-ar 40 milljónir frá Kópavogsbæ á síðustu sex árum fyrir alls kyns út-gáfustarfsemi. Frjáls miðlun hefur í flestum tilfellum fengið þau verk sem félagið hefur unnið fyrir Kópa-vogsbæ án útboðs en meðal ann-ars er um að ræða gerð ársskýrslu fyrir Kópavogsbæ sem dreift hefur verið inn á heimili Kópavogsbúa á liðnum árum.
Tengsl Frjálsrar miðlunar við Kópavogsbæ hafa löngum verið tortryggð og meðal annars birtist frétt í DV í janúar árið 2005 um að minnihlutinn í bæjarstjórn væri ósáttur við að félagið fengi verk-efni frá bænum án útboðs. Þessi óánægja minnihlutans náði svo há-marki fyrir tæpum tveimur vikum þegar bæjarfulltrúar Samfylking-arinnar, þau Guðríður Arnardótt-ir og Hafsteinn Karlsson, lögðu fram fyrirspurn á bæjarráðs-fundi þar sem þau óskuðu eft-ir upplýsingum um greiðslur frá Kópavogsbæ til Frjálsrar miðlunar tíu ár aftur í tím-ann og eins hvort verkefn-
in hefðu farið í útboð áður en þeim var úthlutað til félagsins.
Gunnar hefur neitað því að nokkuð óeðlilegt hafi átt sér stað í viðskiptum Frjálsrar miðlunar og Kópavogsbæjar. Hann segir að þau verk sem Frjáls miðlun fékk hjá Kópavopsbæ hafi verið boðin út og að dóttir hans eigi ekki að líða fyrir það að faðir hennar sé bæjarstjóri.Samkvæmt Þór Jónssyni, for-stöðumanni almannatengsla hjá Kópavogsbæ, er unnið að því að safna umbeðnum
upplýsingum um
Frjálsa miðlun
saman og
munu þær
liggja fyrir
eins fljótt
og auðið
er að hans
sögn.
InGI F. VIlhjálmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Gunnars Birgissonar Brynhildur Gunn-
arsdóttir
DÓTTIR GUNNARS FÉKK 11 MILLJÓNIR FRÁ LÍN
líka greiðslur frá lÍn guðríður arnardóttir, bæjarfulltrúi Samfylking-arinnar í kópvogi, lagði fyrr í mánuð-inum fram fyrirspurn um greiðslur frá kópavogsbæ til útgáfufélagsins Frjálsrar miðlunar. Nú hefur það fengist staðfest að félagið fékk rúmar 11 milljónir frá lánasjóði íslenskra námsmanna.
milljónagreiðslur til dótturinnar dóttir gunnars Birgissonar, Brynhildur gunnarsdóttir, fékk greiddar rúmar 11 milljónir króna frá lánasjóði íslenskra námsmanna meðan faðir hennar var stjórnarformaður sjóðsins.
neitar aðkomu að greiðslum gunnarBirgisson neitar því að hafa haft milligöngu um að dóttir hans fengi verkefni sem skiluðu útgáfufélagi hennar 11 milljónum króna meðan hann var stjórnarformaður líN.
Össur fer mikinn
gegn Bjarna BenÖssur Skarphéðinsson tekur Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, á beinið í færslu á bloggsíðu sinni. Hann segir að Bjarni hafi einkum getið sér orð fyrir einstakan hæfi-leika til að skipta oft um skoðun. Össur gerir það sem hann kallar hringlandahátt Bjarna varðandi skattahækkanir og ESB að um-talsefni. „Honum hefur tekist að fara tvo heila hringi varðandi skattahækkanir. Frá landsfundi hefur hann verið jafnoft á móti skattahækkunum, og með þeim. [...] Sami hringlandaháttur birt-ist um ESB. Þar er Sjálfstæðis-flokkurinn einsog vönkuð kvíga, sem veit ekki hvað snýr upp eða niður.“
Eignaspjöll og
þjófnaðir á
Akranesi
Töluvert var um eignaspjöll í umdæmi lögreglunnar á Akra-nesi í síðustu viku. Krotað var utan á íbúðarhús í bænum en þeir sem þar voru að verki þekkt-ust og telst það mál upplýst. Einnig var farið um borð í skip í Akraneshöfn og neyðarbauja eyðilögð ásamt því sem gerð var tilraun til innbrots í skipið. Á föstudagskvöld voru brotnar rúður í nýju verknámshúsi Fjöl-brautaskóla Vesturlands.
Stjórnin sprung-
in, segir GuðniGuðni Ágústsson segir að rík-isstjórn Samfylkingar og VG hafi sprungið á opnum fundi á Selfossi í fyrrakvöld. Þetta segir Guðni í samtali við vefinn sunn-lendingur.is. „Hún sprakk á opn-um fundi á Selfossi í gærkvöldi, allt járn í járn,“ segir Guðni við Sunnlending og vísaði í skoðana-ágreining milli Björgvins G. Sig-urðssonar og Atla Gíslasonar um aðild að Evrópusambandinu.
Hátekjufólk
með stóra sneið615 tekjuhæstu fjölskyldurn-ar á Íslandi fengu í sinn hlut 4,2 prósent af heildartekj-um fjölskyldna í landinu árið 1993, en árið 2007 var hlutur þeirra af tekjum allra fjöl-skyldna orðinn 19,8 prósent. Þetta kemur fram í skýrslu sem þeir Arnaldur Sölvi
Kristjánsson og Stefán Ólafs-son frá Háskóla Íslands unnu um þróun tekjuskiptingar á Íslandi frá 1993 til 2004. Þá segir í skýrslunni að á sama tíma og tekjur hátekjuhóp-anna jukust langt umfram tekjur annarra á Íslandi hafi stjórnvöld bætt um betur og lækkað stórlega skattbyrði hátekjuhópanna, með inn-leiðingu hins nýja fjármagns-tekjuskatts.
Þorsteinn m. jónsson
Tók ekki út arðinnÍ DV í gær var Þorsteinn M. Jónsson, jafnan kenndur við Kók, sagður hafa látið Sólstafi ehf, móðurfélag Vífil-fells, greiða sér 250 milljóna króna arð árið 2007 þrátt fyrir að félagið hefði tapað hálfum milljarði á árinu. Samþykkt var fyrir því hjá félaginu að hann fengi arð sem umræddri upp-hæð nemur en á það reyndi aldrei. Í frétt blaðsins var tap félagsins sagt nema 521 milljón króna. Þorsteinn gerir athugasemdir við þessi atriði og segir þessa fjárhæð eiga við inn-leyst tap en tap ársins sem fært var á eigið fé hafi numið 245,2 milljónum króna sem sé hið eiginlega tap. Þá segir einnig í fréttinni að á félaginu hafi, samkvæmt ársreikningi 2007, verið lán upp á rúmlega einn og hálf-an milljarð í erlendri mynt. Lánið var í fréttinni uppreiknað með tilliti til gengisbreytinga og sagt standa í 3,2 milljörðum íslenskra króna. Þor-steinn segir þessa fullyrðingu frétta-rinnar ekki standast þar sem öllum erlendum lánum félagsins hafi ver- ið breytt í íslenskar krónur í byrjun ársins 2008 og félaginu hafi þannig verið forðað frá verulegu gengistapi. Samkvæmt upplýsingum Þorsteins var ofsagt í DV að hann hefði fengið arðinn. Hið rétta er að samþykkt var að hann fengi greiddan arð en hann nýtti sér ekki þá heimild.
Þorsteinn m. jónsson
Öllum erlendum lánum
Sólstafa var breytt í íslenskar krónur í byrjun ársins 2008 .
miðvikudagur 15. apríl 20096
Fréttir
Dóttir Gunnars Birgissonar, Bryn-
hildur Gunnarsdóttir, hefur fengið
greiddar rúmar 40 milljónir króna
frá Kópavogsbæ á síðustu sex árum,
samkvæmt heimildum DV. Gunn-
ar er bæjarstjóri Kópavogs. Bryn-
hildur rekur útgáfufélagið Frjálsa
miðlun ásamt eiginmanni sínum
Guðjóni Gísla Guðmundssyni sem
jafnframt er framkvæmdastjóri
þess.
Útgáfufélagið hefur fengið þessi
verkefni án útboðs samkvæmt
heimildum og hefur Brynhildur
fengið greiðslurnar fyrir ýmiss kon-
ar útgáfustarfsemi á vegum bæjar-
ins. Meðal annars hefur útgáfufélag-
ið séð um gerð ársskýrslu bæjarins
sem dreift hefur verið á hvert heim-
ili í bænum undanfarin ár.
Samkvæmt heimildum DV fékk
félagið 7 milljónir króna frá Kópa-
vogsbæ árið 2008 fyrir hin ýmsu
verk og hefur fengið 700 þúsund
krónur það sem af er þessu ári.
Jafnframt mun fyrirtæki Bryn-
hildar hafa fengið rúmar tvær millj-
ónir króna frá bænum árið 2005 til
þess að vinna afmælisrit fyrir hönd
bæjarins í tilefni af 50 ára afmæli
Kópavogsbæjar. Þetta afmælisrit
kom þó aldrei út en Frjáls miðlun
hélt greiðslunni samt sem áður eft-
ir samkvæmt heimildum.
Krefjast svara
um greiðslurnar
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar,
þau Guðríður Arnardóttir og Haf-
steinn Karlsson, lögðu fram fyrir-
spurn fyrir bæjarráð Kópavogsbæj-
ar á miðvikudaginn í síðustu viku
þar sem þau krefja bæjarstjórann
svara um viðskipti og greiðslur til
félagsins tíu ár aftur í tímann.
Guðríður segir að þau hafi
ákveðið að leggja fyrirspurnina
fram á bæjarráðsfundi vegna þess
að þeim hafi síendurtekið bor-
ist það til eyrna að Frjáls miðlun
hafi fengið verkefni hjá Kópavogs-
bæ án þess að útboð færi fram á
þessum verkum. „Við höfum feng-
ið ábendingar um að þetta fyrir-
tæki hafi fengið fjölmörg verk án
útboðs og að viðskipti bæjarins
við þetta fyrirtæki hafi verið mik-
il á liðnum árum,“ segir Guðríður
Arnardóttir.
Hún segir að það sé sjálfsagt og
eðlilegt að þau sem kjörnir fulltrú-
ar í bæjarstjórn spyrjist fyrir um
þetta. „Okkur langar að vita hversu
stór og mikil viðskipti þetta hafa
verið við fyrirtækið og hvort það
hefði ekki verið eðlilegt að bjóða
þau út,“ segir Guðríður.
Verkin boðin út, segir Gunnar
Gunnar Birgisson segir að verkin
sem félag dóttur hans hafi fengið í
gegnum tíðina hafi verið boðin út
en að félag hennar hafi boðið lægst
og því hafi það fengið verkin. Hann
segir aðspurður að Kópavogsbær
bjóði út öll stærri verk sem unn-
in séu fyrir bæinn. „Við bjóðum út
ársskýrslur og öll stærri verk og allt
það,“ segir Gunnar og bætir því við
að Samfylkingin stundi „skítapólit-
ík“ með fyrirspurninni um félagið.
„Það eru engir óeðlilegir viðskipta-
hættir þarna og þó að hún sé dóttir
mín á ekki að refsa henni fyrir það,“
segir Gunnar.
Aðspurður segir Gunnar að
hann viti ekki hvort þær upphæð-
ir sem DV hefur heimildir fyrir að
Frjáls miðlun hafi fengið séu réttar
eða ekki.
Bæjarstjórinn segir að fyrir-
spurn bæjarfulltrúanna verði
svarað eftir bestu getu. „Menn
hafa ekkert að fela í þessu, þetta
er allt uppi á borðum hjá okkur
og mun allt koma í ljós væntan-
lega,“ segir Gunnar og bætir því
við að fyrirspurninni verði svar-
að fljótlega.
InGI F. VIlhjálmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Gunnars Birgissonar Brynhildur Gunnar
sdóttir
Krefjast svara um Frjálsa miðlu
guðríður arnardóttir, bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar í kópavogi, segir að
Samfylkingin vilji fá að vita hvort Frjáls
miðlun hafi fengið verk án útboðs frá
kópavogsbæ.
MILLJÓNAGREIÐSLUR
TIL DÓTTUR GUNNARS
„skítapólitík“ samfylkingarinnar gunn-
ar Birgisson, bæjarstjóri í kópavogi, segir a
ð
fyrirspurn Samfylkingarinnar sé dæmi um
„skítapólitík“. Hann neitar ásökununum og
segir kópavogsbæ bjóða út öll „stærri“ ver
k.
sverrir Pétur Pétursson
Ákærður fyrir 60 milljóna skattsvik
Sverrir Pétur Pétursson málara-
meistari hefur verið ákærður fyrir
meiriháttar skattalagabrot. Ríkis-
lögreglustjóri ákærði Sverri Pétur
fyrir að svíkja rúmar 60 milljón-
ir undan skatti á árunum 2006 og
2007. Að því er kemur fram í ákæru
framdi Sverrir Pétur brotin ýmist
með því að standa skil á röngum
virðisaukaskattsskýrslum, skila
ekki slíkum skýrslum eða með því
að standa ríkissjóði ekki skil á inn-
heimtum virðisaukaskatti.
Málið verður þingfest í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í dag.
Samkvæmt ákæru byrjaði
Sverrir Pétur smátt, en frá janúar
til febrúar 2006 sleppti hann að
greiða virðisaukaskatt að upphæð
fjórtán þúsund krónur. Á næstu
tveimur mánuðum fór upphæð-
in skjótt upp í rúmar fimm millj-
ónir.
Í hegningarlögum er gert ráð
fyrir að þeir sem brjóta af sér á
þennan hátt geti átt von á allt að
sex ára fangelsi auk fjársekta. Sam-
kvæmt lögum um virðisaukaskatt
þarf Sverrir Pétur, verði hann sak-
felldur, að endurgreiða minnst
tvöfalda þá upphæð sem svikin var
undan skatti, rúmar 120 milljónir.
Hins vegar er heimild til að inn-
heimta fjársektir sem nema allt að
tífaldri upphæðinni, eða 600 millj-
ónir króna.
Sverrir Pétur er 45 ára og fékk
löggildingu sem málarameistari
fyrir tæpum átta árum.
Hann vildi ekki tjá sig um málið
þegar DV náði tali af honum í gær.
erla@dv.is
Tíföld sekt Sverrir pétur pétursson þarf
að greiða minnst 120 milljónir í sekt verði
hann sakfelldur en getur þó verið sektaðu
r
um allt að 600 milljónir. mynd PhoTos.com
Stjórnvöldum
hefur mistekist
Bjarni Benediktsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, segir að
stjórnvöldum hafi algerlega mis-
tekist að halda uppi gengi krón-
unnar. Gengi hennar hafi fallið
um heil 16 prósent frá 1. febrúar.
„Það stefnir í nýja verðbólgu-
bylgju sem kemur í veg fyrir að
Seðlabankinn geti lækkað vexti,“
sagði Bjarni í upphafi þingfundar
á Alþingi í gær.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra spurði Bjarna hvort
hann væri að mælast til þess að
gjaldeyrisforðinn yrði notaður til
að halda uppi gengi krónunnar.
Steingrímur viðurkenndi að
glíman við að halda uppi gengi
krónunnar hefði reynst erfiðari
en menn hefðu vonað.
Sverrir í
sprengjuárás
„Ég sat inni á tuskulegum veit-
i gastað og var að panta mér
kokkteil, bankokkteil, þegar
molotovkokkteill kom allt í einu
fljúgandi inn um gluggann. Ekki
alveg það sem ég var að biðja
um,“ skrifar tónlistarmaðurinn
Sverrir Stormsker á bloggsíðu
sína. Hann var svo óheppinn að
vera staddur í Bangkok þegar
óeirðir brutust út í höfuðborg
Taílands.
Mótmælendur hafa krafist
þess að Abbhisit Veijajivi, for-
sætisráðherra landsins, segi af
sér.
Sverrir segir að á svipstundu
hafi annars lítt vinsæll veitinga-
staður breyst í einn þann heit-
asta í bænum, í orðsins fyllstu
merkingu.
Enn springur
meirihluti
Meirihlutinn í bæjarstjórn
Grindavíkur er sprunginn
eftir að deila kom upp milli
Samfylkingarinnar og Fram-
sóknar sem fóru með meiri-
hluta í bæjarstjórninni.
Deilan sem varð meiri-
hlutanum að falli er rak-
in til þess að bæjarfulltrú-
ar Samfylkingarinnar lögðu
fram bókun þess efnis að þeir
vildu ráða Garðar Pál Vignis-
son í stöðu skólastjóra Hóps-
kóla. Garðar Páll hefur verið
bæjarfulltrúi fyrir Samfylk-
inguna frá árinu 2001 og er
forseti bæjarstjórnar.
Þetta er í annað skiptið á
kjörtímabilinu sem meiri-
hluti springur í Grindavík. Sá
fyrri sprakk á síðasta ári.
Leiðinlegt á
Selfossi
Lögregla og sjúkralið var kallað
að verslun Krónunnar á Selfossi
aðfaranótt laugardags vegna
manns sem kviknað hafði í. Þeg-
ar lögregla kom á staðinn var
enginn eldur en í ljós kom að
piltur á nítjánda ári hafði hellt
bensíni í fatnað sinn og borið eld
að. Félagi hans var til staðar með
slökkvitæki og slökkti eldinn.
Pilturinn útskýrði tiltækið
með þeim hætti að hann hefði
gert þetta sér til gamans þar sem
svo leiðinlegt væri á Selfossi. Pilt-
urinn hlaut ekki skaða af en hann
hafði borið vaselín á fætur sína til
að fyrirbyggja bruna.
15. apríl 22. apríl
„Bærinn er með
handritið að afmæl-
isritinu, við skiluðum
því fullunnu með fullt
af myndum tilbúnu til
prentunar. En ég veit
ekki af hverju það var
ekki gefið út“