Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2009, Blaðsíða 30
Föstudagur 15. maí 200930 Helgarblað
StærSta Sviðið í Sögunni
Aldrei hefur verið lagt meira í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva en nú. Sviðið er sérstaklega
glæsilegt en á því eru jafn mörg LCD-sjónvörp og í öllum keppnunum frá 2001 til 2008. Ljósadýrðin er alls-
ráðandi og atriðin eru eftir því skrautleg. DV tók saman upplýsingar yfir keppinauta Íslands í Moskvu.
1. Litháen
Flytjandi: sasha son
Lag: Love
sasha er einn vinsælasti tónlistamaður í heimalandi sínu. Þetta
er dramatískt r&b lag með mikilbægum skilaboðum: stöðvum
ofbeldi gegn börnum. Hann syngur vel og lagið myndi án komast á
vinsældarlista í Bandaríkjunum.
2. ÍsraeL
Flytjandi: Noa & mira awad
Lag: there must be another Way
ísrael er greinilega að hafa pólítískan réttrúnað í hávegu með því að
senda söngkonu frá ísrael og Palenstínu þetta árið í Eurovision. Hvað
annað gátu þeir gert?
3. FrakkLand
Flytjandi: Patricia Kaas
Lag: Et s’il Fallait Le Faire
Líkt og spánn hafa Frakkar ekki verið að gera gott mót í keppninni
undanfarin ár. Frakkar senda því stórstjörnuna Patriciu Kaas að þessu
sinni en hún er einn vinsælasti frönskumælandi tónlistarmaður
heims og ehfur selt yfir 16 milljón plötur.
4. svÍþjóð
Flytjandi: malena Ernman
Lag: La Voix
Poppóperulag í anda söruh Brightman. svíar njóta yfirleitt góðs
gengis í þessari keppni en í ár gæti verið einhver breyting þar á. Það
má samt aldrei vanmeta svíana í þessari keppni, við þekkjum það
aðeins of vel.
5. króatÍa
Flytjandi: Igor Cukrov feat. andrea
Lag: Lijepa tena
Króötum er ekki spáð góðu gengi með þjóðlagapoppi sínu. Ef að
teknar eru saman spár flestra helstu veðbanka eru þeir nánast á
botninum. Króatar hafa best náð 4.sæti og bæta það sennilega ekki
í ár.
6. PortúgaL
Flytjandi: Flor-di-lis
Lag: todas as ruas do amor
sykursætt hippalag frá Portúgal. góð tilbreyting frá öllu poppinu
sem er alltaf svo ríkjandi í keppninni. Lagið er einnig sungið á
móðurmálinu. Það fær plús fyrir það.
7. ÍsLand
Flytjandi: Jóhanna guðrún
Lag: Is It true?
íslenska framlagið að þessu sinni er sungið af Jóhönnu guðrúnu.
Hún er ung, glæsileg og var mikið fagnað í salnum þegar hún söng
íslenska lagið með miklum glæsibrag í forkeppninni.
8. grikkLand
Flytjandi: sakis rouvas
Lag: this is Our Night
margir bíða spenntir eftir að sjá þennan gríska guð á sviðinu. Hann
sakis rouvas var kynnir keppninnar fyrir þremur árum og nú er
hann mættur aftur, flottari sem aldrei fyrr. sakis er spáð góðu gengi
keppninni, öðru sæti og þykir ekki ólíklegt að þessi fjölhæfi maður
eigi eftir að hala inn 12 stigunum. Óhætt er að segja að sakis verði
með „performance“ ársins. Hann er blanda af Zoolander og Beyoncé
og fer á kostum. gott eða ekki gott, það má enginn missa af þessu
atriði.
9. armenÍa
Flytjandi: Inga & anush
Lag: Jan Jan
Klassískt popplag með þjóðlegu yfirbragði. Lagið er sungið á ensku
af tveimur þekktum söngkonum frá armeníu. Það er pínu shakiru-
blær yfir þessu lagi.
10. rússLand
Flytjandi: anastasia Prikhodko
Lag: mamo
Hin glæsilega anastasia er Úkraínsk en keppir að þessu sinni fyrir
hönd sigurvegaranna frá því í fyrra og gestgjafanna í ár, rússlands.
Þétt balkanpopp sem er sungið á rússnensku. Veðbankarnir ekkert
sérlega hrifnir. spá laginu fyrir miðju.
11. aserbaÍdsjan
Flytjandi: aysel & arash
Lag: always
Það hafa margir heyrt þetta lag án þess að hafa nokkurn áhuga á
því. aserbaídsjan-menn voru sniðugir að auglýsa lag sitt í pop-upp
glugga á vinsælum vefsíðum. Lagið er rosa ófrumlegt, danslag með
þjóðlegum takti. aysel og arash eru bæði með útlitið með sér og
eiga án efa eftir að gera góða hluti.