Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2009, Blaðsíða 8
Föstudagur 15. maí 20098 Helgarblað
Verktakar sem vinna við byggingu Hljómahallarinnar í Reykjanesbæ hafa ekki fengið greitt frá eignarhalds-
félaginu Fasteign síðan í mars síðast liðnum. Vinna við bygginguna hefur legið niðri síðan. Fasteign vinnur
nú að því að endurfjármagna víxil upp á rúman milljarð króna sem gjaldfellur síðar í mánuðinum. Einn
verktakinn segist vera orðinn svo þreyttur á að bíða eftir greiðslum frá Fasteign að hann hafi hætt að spyrj-
ast fyrir um þær.
FASTEIGN Í TUGMILLJÓNA
VANSKILUM VIÐ VERKTAKA
Verktakafyrirtæki sem vinna við
byggingu Hljómahallarinnar í
Reykjanesbæ hafa ekki fengið greitt
frá Fasteignafélaginu Fasteign síð-
an í mars. Vinna við Hljómahöllina,
sem verður í eigu Fasteignar, hef-
ur legið niðri vegna þessa. Fasteign
skuldar verktakafyrirtækjunum nú í
heildina meira en hundrað milljón-
ir króna, samkvæmt heimildum. Fyr-
irtækið hefur síðustu vikurnar lofað
verktakafyrirtækjunum að þau fái
greitt en ekki hefur verið staðið við
það. Ástæðan er meðal annars sú að
Fasteign hefur unnið að því síðustu
mánuði að fjármagna víxil upp á sjö
milljónir evra, rúmlega einn millj-
arð króna, sem félagið á að greiða 22.
maí.
Framtíð Fasteignar veltur á því
að fyrirtækið nái að tryggja sér fyrir-
greiðslu til að fjármagna víxilinn, ef
það gengur ekki liggur ekki ljóst fyrir
hvað kröfuhafar fyrirtækisins geri til
að eiga upp í kröfur sínar en ein leið
væri að leysa til sín eignir félagsins.
Fasteign er eignarhaldsfélag sem
sérhæfir sig í því að kaupa fasteignir
af sveitar- og bæjarfélögum og fram-
leigja þær svo aftur til þeirra. Reykja-
nesbær er stærsti einstaki hluthafi
Fasteignar, ásamt Íslandsbanka, með
tæplega 25 prósenta eignarhluta en
allar opinberar eignir bæjarins voru
seldar inn í eignarhaldsfélagið á sín-
um tíma. Aðrir stærstu hluthafarnir
í Fasteign eru Álftanes, Vestmanna-
eyjabær og Garðabær en hlutafjár-
eignin í félaginu ræðst af verðmæti
þeirra eigna sem hluthafinn hefur
selt inn í félagið.
Búast við að fjármögnun
víxilsins gangi upp
Hulda Björk Pálsdóttir, fjármálastjóri
Fasteignar, segir að verktakarnir við
Hljómahöllina hafi ekki fengið greitt
frá félaginu vegna þess að unnið sé
að því að fjármagna umræddan víxil
og að ekki verði hægt að greiða þeim
fyrr en búið verði að því. Hún vill að-
spurð ekki greina frá því hversu háar
upphæðir eru í vanskilum við verk-
takana.
Að sögn Huldu vinna starfsmenn
félagsins nú að því hörðum höndum
að fjármagna víxilinn. „Við erum að
vinna í þessu á fullu. Við erum ennþá
vongóð um að það gangi upp,“ seg-
ir hún. Aðspurð segir Hulda að ekki
liggi endanlega ljóst fyrir hver muni
veita félaginu lánafyrirgreiðslu til
að standa skil á víxlinum en að hún
reikni með að það verði innlend-
ur aðili. „Hvernig sem þetta verður
leyst má reikna með að það verði
hér innanlands,“ segir Hulda og
bætir því við að verktakarnir muni
fá greitt að fullu eftir að lokið hefur
verið við fjármögnun víxilsins.
Hún segir að forsvarsmenn Fast-
eignar séu ekki orðnir stressaðir
vegna fjármögnunar víxilsins en að
fyrirtækið sé með varaáætlun ef það
gengur ekki eftir. Aðspurð vill Hulda
ekki greina frá því hvað felst í þessari
varaáætlun.
Vinnu við Hljómahöllina á að
ljúka í ágúst en mun dragast eitt-
hvað á langinn vegna fjármögnun-
arerfiðleika Fasteignar.
Verktakarnir orðnir
langþreyttir
Einn verktaki við Hljómahöllina,
sem vill ekki láta nafns síns get-
ið, segist vera orðinn langþreyttur
á að krefjast greiðslna frá félaginu,
en hann á útistandandi um fimmtíu
milljónir króna hjá Fasteign. „Það
stendur ekkert sem þetta fyrirtæki
segir. Fasteign stuðlar núna að því
að fyrirtækin sem vinna að bygg-
ingu Hljómahallarinnar lifi ekki
kreppuna af. Maður getur ekki stað-
ið í skilum lengur út af þessu. Ég er
hættur að hringja til að spyrjast fyrir
um hvort peningurinn komi í þess-
ari viku,“ segir verktakinn og bætir
því við að hann hafi talið tryggt að
Fasteign stæði í skilum þar sem fé-
lagið er í eigu sveitar- og bæjarfé-
laga en annað hafi hins vegar komið
á daginn.
Annar ónafngreindur verktaki,
sem ekki hefur fengið greiðslur frá
Fasteign í langan tíma, segist vonast
til þess að Fasteign geti greitt honum
útistandandi skuldir á næstu dög-
um. „Það hefur bara verið stífla...
Þetta auðvitað þrengir að rekstrin-
um hjá okkur,“ segir verktakinn en
framtíð Fasteignar mun væntanlega
skýrast á næstu dögum og þá einnig
hvort verktakafyrirtækin fái greiddar
þær skuldir sem þau eiga útistand-
andi hjá félaginu.
IngI F. VIlhjálmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
„Fasteign stuðlar núna
að því að fyrirtækin
sem vinna að byggingu
Hljómahallarinnar lifi
ekki kreppuna af.“
Aðili Virkt hlutafé í %
Íslandsbanki hf. 24,63
Reykjanesbær 24,62
sveitarfélagið álftanes 14,67
Vestmannaeyjabær 8,48
garðabær 5,53
sandgerðisbær 4,12
grímsnes- og grafningshreppur 3,45
hluthAFARnIR Í FAsteIgn sAmkVæmt áRsReIknIngI 2008:
Fá ekki greitt Verktakafyrirtæki
sem vinna við byggingu Hljóma-
hallarinnar í reykjanesbæ hafa ekki
fengið greitt frá eignarhaldsfélaginu
Fasteign síðan í mars. Vinna við
bygginguna hefur legið niðri síðan.
Verktakarnir eru orðnir vonlitlir um
að fá greitt frá félaginu.
stærsti hluthafinn reykjanesbær
er stærsti hluthafinn í Fasteign ásamt
íslandsbanka en báðir aðilarnir
eiga tæplega 25 prósenta hlut í
félaginu. Árni sigfússon er bæjarstjóri
reykjanesbæjar en allar opinberar
eignir bæjarfélagsins voru seldar
inn í félagið sem vinnur nú að því að
fjármagna víxil upp á rúman milljarð
króna sem gjaldfellur 22. maí.