Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2009, Blaðsíða 32
Föstudagur 15. maí 200932 Helgarblað
Þ
egar ég lít til baka spyr
ég mig stundum hvern-
ig í ósköpunum ég hafi
komist í gegnum þetta
allt saman; banka-
hrunið, mynda nýja
ríkisstjórn, halda landsfund, fara
í kosningabaráttu og sinna tveim-
ur ráðuneytum. En þetta hafðist og
nú eru að skapast ögn viðráðanlegri
vinnuaðstæður. En á sama tíma blasa
við risavaxin verkefni í fjármálaráðu-
neytinu.Þannig að ég sé ekki fram
á neitt sumarfrí á næstunni og fjöl-
skylda mín sér varla mikið af mér. En
þetta verður kannski aðeins mann-
eskjulegra.“
Söguleg tímamót
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstri hreyfingarinnar - græns
framboðs (VG), er fjármálaráðherra
í fyrstu hreinræktuðu vinstristjórn-
inni sem mynduð hefur verið frá
upphafi íslenska flokkakerfisins um
miðjan annan áratug síðustu ald-
ar. Það eitt og sér eru mikil tíðindi í
stjórnmálasögunni að mynduð hafi
verið tveggja flokka stjórn án þátt-
töku Sjálfstæðisflokks og Framsókn-
arflokks. Steingrímur segir að rík-
isstjórn VG og Samfylkingarinnar
tjaldi ekki til einnar nætur og ætli sér
að sitja út kjörtímabilið þótt hugs-
anlega verði efnt til þjóðaratkvæða-
greiðslu á næstu misserum.
Steingrímur er mikill ferðagarp-
ur en það er að sumu leyti liður í lífs-
máta hans þar sem útivist og átök við
íslenska náttúru skipa stóran sess.
Hann segist hafa náð sér vel eftir al-
varlegt bílslys í janúarmánuði 2006 í
einni af óteljandi ferðum sínum um
Norðurland. En bíllinn er ekki hans
eini ferðamáti. Sumarið 2005 gekk
hann skáhallt lengstu beinu leið sem
hægt er að fara landshorna á milli,
frá Reykjanestá yfir á Langanes.
Heilbrigð sál í hraustum líkama
Í erli bankahruns og miðjum klíðum
endurreisnar efnahagslífs og upp-
stokkunar stjórnmála hefur hann
ekki gefið sér nægan tíma til að sinna
líkamlegri heilsu. „Ég skokka, fer í
blak, geng á Esjuna og hamast svo
þegar ég kemst í sveitina. Þá tek ég til
hendi og geri mig þreyttan með lík-
amlegu erfiði. Ég fæ mikið út úr lík-
amlegu púli. Ég verð að gera þá játn-
ingu að ég hef vanrækt skokkið og
fjallgöngurnar síðustu mánuðina. Ég
ætla að lofa mér því að þar verði nú
bót á vegna þess að það er stór hluti
af mínu lífi og heldur mér gangandi.
Þrekið sem ég hef er einmitt þannig
til komið að ég hef haldið mér í góðu
líkamlegu formi um leið og það lyft-
ir andlegu hliðinni. Í góðu líkamlegu
formi er maður hressari og líður vel.
Það er nauðsynlegt að vera hraust-
ur og hafa sterkar taugar. Ég er nú
að verða ýmsu vanur. Hér skjóta stór
mál upp kollinum þar sem vandinn
er mikill. Menn tala um milljarða og
tugmilljarða og ég er að verða býsna
sterkur á taugum gagnvart slíku.
Enda hefur það komið sér vel und-
anfarna mánuði. Ég er nú búinn að
sjá ýmislegt hér á borði fjármála-
ráðherra sem ekki er alltaf gaman
að sjá. Hér sést svart á hvítu hvernig
menn hafa farið að ráði sínu og eru
að fara að ráði sínu. Enn dúkka upp
mál þar sem maður fær sannanirn-
ar upp í hendurnar um það hversu
geysilega sjúkt ástandið var orð-
ið. Hversu mengað hugarfarið var.
Hversu græðgin hafði algerlega tekið
völdin. Menn voru komnir óravegu
í burtu frá almennu og heilbrigðu
siðgæði og réttlætiskennd. Nú fara
þessi mál sína leið til rannsóknar.
Þegar svona tilvik koma á mitt borð
spyr ég hvort þau fari ekki örugglega
í rannsókn. En það verður að fylgja
leikreglum réttarríkisins. Enginn er
sekur fyrr en sekt er sönnuð. En mér
er fullkunnugt um að fjöldi mála fer
til rannsóknar.“
Pabbinn og mamman
Kunngert var í vikunni að áratuga
venja karlkyns þingmanna til þess að
bera bindi hafi verið afnumin. Stein-
grímur var róttækur vinstrimaður
þegar hann var fyrst kjörinn á þing
1983, þá aðeins 27 ára gamall.
„Ég var bindislaus fyrstu misser-
in á þingi. Málið var eiginlega verra
en það því ég átti það til að vera með
bindi en kannski í peysu með v-háls-
máli. Ég held að ég hafi átt ein gömul
jakkaföt þegar ég var kosinn á þing.
Ég var ekki tilbúinn að breyta mínum
háttum. En kerfið var það öflugt að
það braut mig niður á einu og hálfu
ári. Ég nennti ekki að standa í þessu
röfli og setti upp bindi smátt og
smátt og hætti að ganga í peysu. Ég
féll á því lúalega bragði andstæðing-
anna að þeir fóru að bera það upp á
mig að ég væri með þennan mótþróa
til að vekja á mér athygli. Ég fagna
því að þetta fer nú í frjálsræðisátt. Ég
hef hef margoft sagt á undanförn-
um árum að menn ættu að hætta að
þrjóskast með þetta. Nú þegar koma
svona margir nýir á þing er ágætt að
breyta þessu. Þegar ég kom fyrst á
þing þótti mér þetta ákaflega forn-
fálegur og gamaldags staður. Það tók
mig tíma að kynnast þessari form-
festu og gamaldags karlaklúbbi sem
þingið var. Þingið hefur þróast og
tæknivæðst og að mörgu leyti fylgt
tímanum vel. Hér koma margir nýir
þingmenn inn við erfiðar aðstæður.
Það kemur sér vel að við Jóhanna
Sigurðardóttir, sem höfum nú lengst
setið á þingi, erum ýmsu vön. Eða
eins og ég hef áður sagt í vinahópi:
Við erum sem mamman og pabb-
inn. Við búum meira að segja svo vel
að hafa einu sinni áður tekið til eftir
íhaldið. Það var í ríkisstjórninni 1988
til 1991. Sú ríkisstjórn kom landinu á
rétt spor aftur þótt þeir sem við tóku
hafi þanið sig endalaust um fortíð-
arvandann. Viðeyjarstjórnin fékk til
dæmis þjóðarsáttina í arf. Erfiðleik-
arnir 1988 eru bara brot af því sem
blasir við núna. Vandinn er ekki bara
hrunið heldur þær ískyggilegu að-
stæður sem upp voru komnar fyrir
hrunið. Við vorum orðin skuldugust
OECD-ríkjanna fyrir hrunið. Síðan
þá hefur hallað á ógæfuhliðina. Ég
varaði við því að við hefðum tekið
góðærið að láni.
Táknræn skilaboð
til þjóðarinnar
Athygli vakti að forysta Samfylking-
arinnar og VG valdi sér Norræna
húsið sem miðstöð stjórnarmyndun-
arviðræðna. Þá var fyrsti ríkisstjórn-
arfundurinn haldinn í kjördæmi
Steingríms á Akureyri í vikunni.
„Þetta er ekki gert hugsunarlaust.
Öllum fannst það fín hugmynd þeg-
Leiðin undan vaLdi
græðginnar
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG og fjármálaráðherra, gerir sér engar vonir um að
verða vinsæll stjórnmálamaður um næstu áramót. Yfirvofandi er niðurskurður og skatta-
hækkanir. Hann segist ekki hlaupa frá því sem hann hafi samið um og þannig geti menn
ályktað um hvernig atkvæði hans falli í ESB-málinu á þingi. Steingrímur segir í viðtali við
Jóhann Hauksson frá óformlegum leyniviðræðum við Samfylkinguna í janúar, gjánni milli
þjóðarinnar og stjórnmálaforingja með lífverði, stríði sínu við þingið um klæðaburð í upphafi
níunda áratugarins, ógnvekjandi upplýsingum um græðgi og siðspillingu á borði fjármála-
ráðherra og uppskriftinni að sálarþreki til að takast á við erfið og langvinn vandamál.
Fjármálaráðherrann „Þegar svona
tilvik koma á mitt borð spyr ég hvort
þau fari ekki örugglega í rannsókn.
En það verður að fylgja leikreglum
réttarríkisins. Enginn er sekur fyrr en
sekt er sönnuð. En mér er fullkunnugt
um að fjöldi mála fer til rannsóknar.“