Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2009, Blaðsíða 51
Föstudagur 15. maí 2009 51Helgarblað
Það snýst allt um gallaefnið
gallaefnið kemur sterkt inn í sumar og þá erum
við ekki einungis að tala um gallabuxur, heldur
gallaskyrtur, gallasamfestinga, gallastuttbuxur,
gallavesti og -toppa. Það eru engar reglur, allt
er leyfilegt. rifið gallaefni er að koma sterkt inn
sem og snjóþvegið. Hver hefði trúað því? snjó-
þvegnar gallabuxur fást í gylla kettinum.
Tímaritið Glamour valdi á
dögunum glæsilegustu konu
ársins og breska leikkonan
Kate Winslet var þar efst á
lista.
Þessi hæfileikaríka leikkona
er enginn tískufrömuður. Á
síðustu misserum hefur leik-
konan þokkafulla virkilega
tekið sig til á rauða dreglin-
um. Hún klæðist kjólum sem
sýna kvenlegar línur hennar
og það fer henni vel.
Þegar hún er ekki í vinnunni
er Kate ávallt afar kasjúal
en passar upp á það að vera
glæsileg þegar svp ber undir.
Þessi titill er þá kannski bara
vel við hæfi.
Leikkonan Kate Winslet valin sú glæsilegasta af tímaritinu Glamour:
Veit hVað fer henni Vel
umsjón: kolbrún pálína Helgadóttir, kolbrun@dv.is
Önnur nærfata-
lína frá Ditu
burlesque-dansarinn dita Von teese
hannaði í fyrra undirfatalínu fyrir
Wonderbra sem sló heldur betur í
gegn. aðstandendur Wonderbra
voru svo ánægðir með hönnun ditu
að þeir hafa fengið hana til þess að
hanna aðra línu sem væntanleg er
innan skamms. nýja línan er sögð
vera afar glæsileg og enn kvenlegri
en sú fyrri. „markmið mitt er að
hanna fallega línu af nærfatnaði fyrir
fólk sem hefur auga fyrir fegurðinni
og glæsileika fyrri tíma,“ segir dita
Von teese sem var himinlifandi yfir
góðum viðbrögðum kvenna við fyrri
línu.
Chanel
í síkjunum
karl lagerfeld mun á laugardaginn
sýna „Cruise Collection“ sitt 09/10 í
Feneyjum. lagerfeld fannst við hæfi
að halda sýninguna í borginni
sökkvandi, en línan er innblásin af
hástéttarfólki í Feneyjum á fjórða
áratugnum. skútulínan, ef kalla má
hana það, hefur áður verið sýnd í
monte Carlo, miami og los angeles.
að sögn fréttamanna hefur
lagerfeld lagt borgina undir sig og
má búast við glæsilegri sýningu.
trenDið í haust
tískuspekúlantar eru nú þegar farnir
að huga að haustinu og sumarið er
ekki enn komið til íslands. eitt af
trendum haustins er hálfi hanskinn.
á sýningarpöllunum voru þetta
oftast leðurhanskar. Þetta eru þó
engar grifflur og það þýðir ekkert að
klippa ofan af gömlu fingravettling-
unum. Hanskarnir breyta heildar-
lúkkinu til muna. Þeir gera það mun
djarfara. Hanskarnir gera mann að
svolitlum töffara og geta menn þá
tekið sér rihönnu til fyrirmyndar.
sniðugt er að setja á sig flott
armbönd til að fínisera lúkkið.
Skemmtistaðurinn Q-bar tók upp á því nýlega að opna dyr sínar öllum þeim sem hafa
áhuga á því að halda fatamarkað þar um helgar. Að sögn Óla Hjartar Ólasonar rekstr-
arstjóra hefur aðsóknin verið gríðarlega góð.
Eftir hrun íslensku bankanna í októ-
ber á síðasta ári hækkaði verð á öllu
í þjóðfélaginu, þar á meðal verð á
fatnaði. Á síðustu mánuðum hefur
það færst í aukana að íslenskar kon-
ur taki sig saman um að halda fata-
markaði víðs vegar um borgina.
„Það hafa allir gott af því að
hreinsa út úr fataskápnum og lofta
út heima hjá sér. Af hverju að geyma
fjögurra ára gamla flík í skápnum ef
þú ert löngu hætt að nota hana?“ spyr
Óli Hjörtur Ólason, rekstrarstjóri á Q-
Bar sem opnað hefur dyr sínar öllum
þeim sem áhuga hafa á því að halda
fatamarkað og hefur aðsóknin verið
gríðarlega góð. „Við erum bara ný-
byrjuð á þessu, við auglýsum mark-
aðina vel fyrir seljendur og mér skilst
að þeir sem hafa haldið markaði hér
hafi haft vel upp úr þessu.“
Aðspurður segist Óli vera hand-
viss um að kreppan spili stærsta
hlutverkið í þessu fatamarkaðaæði.
„Kreppan hefur vissulega sitt að
segja. Það vilja allir hafa einhvern
pening á milli handanna í sumar,“
segir Óli.
Óli segir andrúmsloftið allt annað
á fatamörkuðum en í hefðbundnum
verslunum. „Það er mikil stemning
í kringum það að halda fatamarkað
hérna. Hér er tónlist og þetta er miklu
meiri upplifun en að fara í fatabúð og
versla,“ segir Óli, en nýlega var tekið
upp á því að hafa Q-Bar opinn á dag-
inn. „Þetta er lifandi umhverfi, það
skiptir máli. Hingað getur fólk kom-
ið, fengið sér kaffi og bjór og skoðað
föt í leiðinni.“
Um helgina verður heljarinnar
fatamarkaður á Q-Bar, með fallega
kjóla, jakka, skart og skó. Markaður-
inn byrjar klukkan 13 og stendur til
17. Skemmtistaðurinn Q-Bar er í Ing-
ólfsstræti.
fatamarkaðir
slá í gegn
Góð stemning Fata-
markaðirnir á Q-bar
hafa verið vel sóttir og
seljendur græða á tá
og fingri.
Kolaportið Hefur lengi
verið vinsæll staður til þess
að selja notuð föt. en nú þykir
vinsælt að halda fatamarkaði á
kaffhúsum borgarinnar.
Óskarsverðlaunakjóllinn
menn voru ekki á einu máli
um þennan kjól.
Í gallabuxum og
flatbotnaskóm.
Geislandi flott kate
íturvaxin og gullfalleg.