Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2009, Blaðsíða 26
Föstudagur 15. maí 200926 Helgarblað
Föstudagur 15. maí
Hönnunarsýning
á Kjarvalsstöðum
sýningunni er ætlað að kynna brot af því besta sem
er að gerast í íslenskri hönnun í dag með áherslu á
húsgagna- og vöruhönnun og arkitektúr. sýnd verða
verk frá um tuttugu hönnuðum sem eru valin með
það í huga að eiga erindi ytra til frekari kynningar,
sölu eða framleiðslu. sýningin stendur til 9. ágúst.
Laugardagur 16. maí
Hulda HáKon
sýnir á aKureyri
sýning Huldu Hákon í Listasafninu á akureyri veitir
einstaka innsýn í skrautlegan hugmyndaheim hennar
undanfarna tvo áratugi þar sem hún hendir gaman
að heimóttarlegum veruleika okkar, snýr upp á hann
og kitlar ímyndunaraflið um leið. í tengslum við
sýninguna gefur Listasafnið á akureyri út bók um
Huldu með texta eftir auði Jónsdóttur rithöfund.
suNNudagur 17. maí
víKingur Heiðar
í HásKólabíói
Píanósnillingurinn Víkingur Heiðar Ólafsson heldur
einleikstónleika í Háskólabíói á þriðja degi Listahá-
tíðar. Víkingur hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir leik
sinn, meðal annars íslensku tónlistarverðlaunin í
flokknum Flytjandi ársins árið 2007. Á tónleikunum
flytur Víkingur eigin sönglagaumskrifanir eftir
þjóðþekkt tónskáld eins og sigvalda Kaldalóns,
Emil thoroddsen og Pál ísólfsson, í bland við Bach,
debussy, Ligeti, Bartok og Chopin.
mIÐVIKudagur 20. maí
stríð í Þjóð-
menningarHúsinu
margrét Vilhjálmsdóttir, leikkona og listrænn
stjórnandi, fer fyrir hópi listamanna sem leiðir gesti
Þjóðmenningarhússins um gjörning um landamæri
og skrifræði og leiksýningu um stríðsmenningu.
Hópurinn flytur þetta eldfima efni inn í Þjóðmenn-
ingarhúsið, tákn fyrir íslenskt lýðræði og sjálfstæði.
Föstudagur 22. maí
tónleiKar Heima
Hljómsveitirnar retro stefson og Fm Belfast
koma saman og spila í Ingólfsstræti 21a en það er
heimili Þorbjargar, annars hljómborðsleikara retro
stefson. Þeim til halds og traust verður svo hinn
bráðefnilegi mC Plútó. athugið að miðar verða ekki
seldir á staðnum.
Föstudagur 22. maí
FæreysK ópera
í Óðamansgarði, fyrsta færeyska óperan, var
frumsýnd í Þórshöfn haustið 2006 og verður sett upp
í nýrri sviðsetningu á Listahátíð í reykjavík. Verkið er
eftir hið þekkta, færeyska tónskáld sunleif rasmuss-
en, sem hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs
árið 2002. söngvarar eru Eyjólfur Eyjólfsson, Þóra
Einarsdóttir og Bjarni thor Kristinsson.
Laugardagur 23. maí
lHasa de sela á nasa
amerísk-kanadíska söngkonan Lhasa de sela ólst upp
á flakki um mexíkó og Bandaríkin og drakk í sig áhrif
mismunandi menningarheima og tónlistarstrauma.
í tónlist hennar má heyra blöndu af hefðbundinni
suður-amerískri tónlist og frumlegum tónsmíðum þar
sem gætir sterkra áhrifa frá mexíkóskri tónlist, austur-
evrópskri sígaunatónlist og óhefðbundnu rokki.
suNNudagur 24. maí
Felix bergsson Heima
Felix Bergsson, leikari og söngvari, opnar heimili
sitt fyrir gestum og býður upp á tónleika fyrir alla
fjölskylduna á Listahátíð. Á tónleikunum mun Felix
syngja lög sem hann hefur flutt undanfarin ár fyrir
börn og fjölskyldur og segja sögur af tilurð laganna.
meðflytjandi á tónleikunum er Jón Ólafsson tónlist-
armaður en flest lögin á tónleikunum eru samin af
þeim félögum.
mIÐVIKudagur 27. maí
stærstu tónleiKar Hjaltalín
Hljómsveitin Hjaltalín stendur fyrir sínum stærstu
tónleikum frá upphafi sem fram fara í íslensku óp-
erunni. sérstök kammersveit hefur verið sett saman
og kemur hún fram með Hjaltalín á tónleikunum.
Kammersveitina leiðir daníel Bjarnason sem stjórnaði
nýlega sinfóníuhljómsveit íslands og fékk mikið lof
fyrir. samtals munu tuttugu manns sjá um að flytja
tónlist Hjaltalín á sviðinu.
Föstudagur 29. maí
tiger lillies í
íslensKu óperunni
Heimur tiger Lilles er skuggalegur, skrýtinn og
margslunginn og þar má upplifa jafnt óbærilega
sorg, nístandi svartan húmor og unaðslega fegurð.
Þetta einstaka anarkíska óperutríó í anda Brechts
leikur ekki tónlist sem inniheldur „fallegar, ljóshærðar
stúlkur á hlaupum undan strákum á engjum“, svo
vitnað sé beint í höfuðpaur tríósins.
suNNudagur 31. maí
deboraH voigt í HásKólabíói
Hin heimsþekkta sópransöngkona deborah Voigt
syngur í Háskólabíói þar sem hún býður upp á
efnisskrá sem samanstendur af sönglögum eftir amy
Beach, sönglögum eftir Verdi og strauss, þremur
sönglögum eftir Ottorino respighi og fjórum söng-
lögum ameríska samtímatónskáldsins Bens moore.
tónleikunum lýkur svo á nokkrum þekktum og
vinsælum lögum úr söngleikjum Leonards Bernstein.
Listahátíð h finListahátíð í Reykjavík hefst um helgina með blysum og bravúr. Hátíðin var fyrst hald-
in árið 1970 og annað
hvert ár frá þeim tíma
til ársins 2004 en árlega
eftir það. Hér er tæpt á
því helsta sem í boði er
á hátíðinni í ár.
Tiger Lillies Þetta stórskemmti-
lega breska tríó sem spilar á
Listahátíð átti tónlistina í íslensku
myndinni sveitabrúðkaupi.