Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2009, Blaðsíða 44
Föstudagur 15. maí 200944 Helgarblað
Þetta er bara
María Björk Sverrisdóttir, umboðsmaður Jóhönnu Guðrúnar, uppgötvaði hana að-
eins átta ára gamla. Nú tíu árum síðar takast þær á við stærsta verkefni sitt til þessa,
Eurovision-keppnina. Blaðamaður DV náði tali af Maríu Björk sem stödd er í Moskvu og fékk að vita
meira um þetta einstaka samstarf.
„Ég var alltaf mjög ákveðin og ein-
beitt. Ég var mikill dundari og var
alltaf skapandi,“ segir María Björk
Sverrisdóttir, umboðsmaður Jó-
hönnu Guðrúnar Jónsdóttur sem
keppir fyrir Íslands hönd í Euro-
vision á laugardagskvöldið.
María Björk er fædd og uppalin í
Reykjavík, en segist hvergi hafa fest
rætur. Hún er ein sex systkina, þó
ekki alsystkina. „Ég flutti mikið sem
barn svo það er enginn einn staður
sem ég lít á sem mínar heimaslóð-
ir.“
Hún hóf nám í Söngskólanum
í Reykjavík árið 1985 og lauk þar
sex stigum í klassískum söng, eftir
það fór hún í eitt ár í FÍH þar sem
hún nam djasssöng. Hún var einnig
lengi vel í einkatímum hjá Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur. „Þegar ég var tólf
ára gömul var ég harðákveðin í því
að verða söngkona, en ég var alveg
ofboðslega feimin og því gat þetta
stundum reynst mér svolítið erfitt.“
María segir hvorki mikið um tón-
listarfólk í fjölskyldunni né að hún
hafi alist sérstaklega upp við mikla
tónlist á heimili sínu. „Þetta var
bara eitthvað sem ég fann hjá sjálfri
mér.“
Losnaði loks við feimnina
Árið 1987 stofnaði María plötu-
útgáfuna Hljóðsmiðjan-Útgáfa.
Hljóðsmiðjan hefur gefið út yfir 20
titla, má þar helst nefna Barnaborg,
Barnabros, Barnajól, Minningar 1,
2 og 3, Óskalög sjómanna 1 og 2,
Jabadabadúú, Jólaperlur og marga
fleiri. „Ég byrjaði að pródúsera
plötur og gefa út en söng líka eitt og
eitt lag inn á milli,“ segir söngkonan
sem heillaðist strax af gerð barna-
platna.
Árið 1994 lá leið þessarar
ákveðnu ungu konu til Los Angeles-
borgar þar sem hún lagði stund á
framhaldsnám í Musik Institude of
Hollywood í djasstónlist. „Þetta var
árs nám og án efa besti skóli sem ég
hef farið í. Þarna fyrst rann af mér
feimnin,“ rifjar hún upp. „Nemend-
ur voru brotnir niður og svo byggð-
ir upp aftur með krafti.“ Þessi aðferð
hentaði Maríu Björk vel því heim
kom hún full sjálfstrausts og opn-
aði Söngskóla Maríu Bjarkar sem
hefur starfað við miklar vinsældir
síðan. „Markmið mitt með þessum
skóla er einmitt það að byggja upp
feimin börn og draga fram í þeim
það besta.“
Uppgötvar stjörnu
Árið 1998 kom fyrsta sólóplata
Maríu Bjarkar út og notaði hún
listamannsnafnið Aria. Öll platan
var frumsamin af henni og Bigga
Bix. „Það vita eflaust ekki margir
Íslendingar af þessari plötu minni,
ég gerði plötusamning í Bandaríkj-
unum og fékk mjög góða dóma fyrir
plötuna.“
Ári síðar efndi María Björk til
mikillar söngvarakeppni í Perl-
unni. „Þetta var söngvarakeppni
fyrir börn og var þema keppninn-
ar barnaplatan Jabadabadúú sem
ég hafði nýlega gefið út. Öll börn-
in tóku sem sagt lag af plötunni,
mörg þeirra voru í skólanum hjá
mér á þessum tíma.“ Einn kepp-
endanna var hin átta ára gamla Jó-
hanna Guðrún Jónsdóttir. „Jóhanna
lenti að mig minnir í sjöunda sæti
sem var auðvitað algjör skandall,“
segir María Björk og skellir upp úr.
Þrátt fyrir það sá María Björk að Jó-
hanna Guðrún hafði eitthvað fram
yfir hina keppendurna. „Ég sá strax
hvaða efni ég hafði þarna í hönd-
unum og gerði því við hana plötu-
samning og gerðist umboðsmaður
hennar um leið.“ Upphófst þá ein-
stakt samstarf á milli Maríu Bjarkar
og Jóhönnu sem stendur enn.
Tíu ára samstarf
Þar sem Jóhanna Guðrún var að-
eins átta ára þegar plötusamning-
urinn var gerður þurfti eðlilega
að vera mjög gott samband á milli
Maríu Bjarkar og foreldra Guðrún-
ar. „Þetta samstarf okkar hefur alla
tíð gengið mjög vel, vissulega hafa
komið upp einhver smávægileg
vandamál eða niðursveiflur eins
og gengur og gerist enda um tíu ára
samstarf að ræða.“ Þær María Björk
og Jóhanna eru miklar vinkonur í
dag enda gengið í gegnum margt
saman. „Þetta er búinn að vera frá-
bær tími hjá okkur.“
Fyrsta plata Jóhönnu leit dagsins
ljós árið 2000 og var hún söluhæsta
platan það árið, eftir það komu út
tvær plötur til viðbótar, Ég sjálf og
Jól með Jóhönnu.
María Björk og Jóhanna hafa eytt
miklum tíma í Bandaríkjunum sam-
an undanfarin ár þar sem þær hafa
unnið hörðum höndum við tónlist,
plötugerð og unnið með mörgum
virtum tónlistarmönnum.
Erfitt tímabil
María Björk segir að það sé vanda-
samt verk fyrir barnastjörnu að
verða fullorðin. „Þegar unglings-
árin brustu á hjá Jóhönnu, eða um
tólf ára aldurinn, ákvað ég að taka
smá pásu. Ég kippti henni nánast af
toppnum hér heima og hún hvarf
af sjónarsviðinu um tíma.“ María
Björk segir þessa ákvörðun hafa
verið mjög meðvitaða því að Jó-
hanna hafi þurft tíma til að þrosk-
ast og breytast, úr barninu í ungl-
inginn. „Þetta reyndist Jóhönnu
Guðrúnu erfið raun þar sem áhug-
inn fyrir söngnum var gríðarlegur.“
Á þessu tímabili viðurkenn-
ir María Björk að hún hafi fundið
fyrir því að fólki fyndist þeim hafa
mistekist eða að ævintýri þessarar
ungu stjörnu væri úti eins og svo oft
vill verða með barnastjörnur. „Ég
hef aldrei misst sjónar á markmið-
um okkar eða efast um hæfileika
Jóhönnu. Ég hef haft trú á henni frá
upphafi.“
María Björk segir að þolinmæði
og þrautseigja þeirra hafi borgað sig
og að því miður hafi allt of fáir þann
eiginleika í bransanum. „Það er allt
of algengt að barnastjörnur hverfi
fyrir fullt og allt þegar fer að halla
undan fæti.“
Bara byrjunin
Eftir nokkurra ára fjarveru úr sviðs-
ljósinu hér á landi og dvölina í
Bandaríkjunum kom söngkonan
unga aftur fram á sjónarsviðið. Hún
gaf út plötu, lék sjálfa Madonnu í
söngleik á Brodway og er nú glæsi-
legur fulltrúi þjóðarinnar í Euro-
vision. „Það tók landsmenn smá
tíma að venjast tilhugsuninni um
að Jóhanna Guðrún væri ekki barn
lengur en nú er ekki aftur snúið. Hún
er búin að bræða hjörtu okkar enda
stórkostleg söngkona.“ Maríu Björk
hlýtur að hlýna um hjartarætur við
að fylgjast með þessari litlu stelpu
sem hún fann aðeins átta ára gamla
blómstra eins og hún gerir í Moskvu
þessa dagana. „Mér líður eins og við
séum loksins að fá verðlaunin, upp-
skera eftir alla vinnuna. Ég er alveg
svakalega stolt.“ María Björk seg-
ir þetta þó enga endastöð. „Þetta
er bara byrjunin. Hún fær einstak-
lega góða kynningu í Evrópu með
þátttöku sinni í Eurovision-keppn-
inni. Hér náum við til margra eyrna.“
Þær stöllur eru tilbúnar með plötu
og gæti tímasetningin eflaust ekki
verið betri. „Þetta var allt skipulagt,
Eurovision-lagið bætist svo við plöt-
una enda passar það einstaklega vel
inn á hana. Svo er bara bjartur veg-
ur fram undan,“ segir þessi stolti
umboðsmaður að lokum enda full
ástæða til. kolbrun@dv.is
by junin
Ákveðinn umbi maría Björk gerði plötusamning við Jóhönnu guðrúnu aðeins
átta ára gamla.
Saman í Moskvu Það
hefur verið mikið stuð hjá
þeim vinkonum í ferðinni.