Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2009, Síða 2
„Nýju netreikningar Landsbankans
sem heita Icesave, hafa farið eins
og stormsveipur um Bretland, síð-
an þeir voru opnaðir 10. október síð-
astliðinn. Ekki aðeins hafa viðtök-
urnar farið langt fram úr björtustu
vonum, heldur hefur fjölmiðlaum-
fjöllun í Bretlandi verið jákvæð, sem
er líklegt að ýti undir frekari áhuga á
reikningunum,“ með þessum orðum
var sagt frá fyrstu viðtökunum við
Icesave-netreikningum í Bretlandi
í tímaritinu Moment, sem Lands-
bankinn sjálfur gaf út. Á mynd með
greininni mátti sjá Sigurjón Árnason,
bankastjóra Landsbankans, útskýra
Icesave en magnþrungnar myndir af
íslenskum fossum, jöklum og norð-
urljósum voru notaðar sem mynd-
efni með. Markmiðið var augljóslega
að tengja hina sterku ímynd Íslands á
þeim tíma við Icesave-ævintýrið.
Sigurjón Árnason og Halldór
Kristjánsson, bankastjórar Lands-
bankans, sögðu við tímarit bank-
ans að „hin ágenga vaxtaprósenta“
sem væri í boði hjá netreikningun-
um, væri aðalaðdráttaraflið fyrir
viðskiptavini. Bjartsýnin var mikil,
enda áttu hávaxta innlánsreikningar
að tryggja fjármögnun bankans sem
fram að þessu hafði verið of háður al-
þjóðlegum lánamörkuðum.
Ísland notað
Í hverju tölublaði Landsbankans á
fætur öðru er markaðssetningu og
velgengni Icesave óspart hrósað.
Einfaldleikinn, góð almannatengsl
og árangursríkar auglýsingaherferð-
ir virkuðu frábærlega. Tengingin við
ímynd Íslands og hin miklu náttúru-
öfl hér á landi var greinileg. Sigurjón
Árnason útskýrði þessa hugmynda-
fræði í viðtali við Viðskiptablaðið
árið 2007, þar sem hann sagði meðal
annars: „Hjá almenningi er ímynd-
in sú - sem ég held að sé hin rétta
ímynd - að Íslendingar eru spyrtir
við Skandinava og Bretar hafa traust
á þeim sökum heiðarleika og lítill-
ar spillingar. Í öðru lagi komumst
við að því að jákvæð stemning rík-
ir gagnvart Íslendingum sökum ým-
issa hluta. Fjárfestingar íslenskra at-
hafnamanna hafa vakið forvitni og
svo eru ýmsir menningarlegir þætt-
ir sem gera að verkum að Bretar hafa
jákvæða ímynd af Íslendingum. Þess
vegna blasti við að við myndum nota
Íslandstenginuna í markaðssetningu
á vöru sem seld er í gegnum netið.“
Í tölublaði Moment frá 2007,
kemur Þórlindur Kjartansson, sem
kom að uppbyggingu Icesave, inn á
það sama og Sigurjón. Hann sá kosti
þess að tengja reikningana við Ís-
land. „Við viljum að fólk upplifi ein-
faldleika, gagnsæi og ferskleika þeg-
ar það notar Icesave. Við viljum að
viðskiptavinir okkar eigi vandræða-
laus viðskipti með Icesave og áhersla
okkar á að tengja reikningana við Ís-
land styrkir þessa ímynd,“ er haft eftir
honum í Moment.
Hraður vöxtur
Sem fyrr segir voru Icesave-reikn-
ingarnir fyrst kynntir í Bretlandi 10.
október 2006. Í maí árið 2007 voru
viðskiptavinir Icesave orðnir um
80 þúsund talsins og innlánin alls 3
milljarðar punda. Í maí á síðasta ári
opnaði Icesave í Hollandi og á þeim
fimm mánuðum sem liðu fram að
falli bankans, komu um 125 þúsund
viðskiptavinir sem lögðu inn alls 1,7
milljarða evra. Icesave var áberandi
á síðum tímarits Landsbankans og í
tölublaðinu sem kom út á sama tíma
og Icesave opnaði í Hollandi, var
fjallað um reikningana á nokkrum
stöðum. Meðal annars var að finna
frétt með fyrirsögninni: „Icesave í
sjöunda himni“ þar sem ágæti reikn-
inganna var enn og aftur reifað.
Í ágúst á síðasta ári, nokkrum
mánuðum áður en bankinn hrundi,
voru viðskiptavinir Icesave í Evrópu
orðnir 350 þúsund talsins. Óveð-
ursskýin voru farin að hrannast upp
Þriðjudagur 9. júní 20092 Fréttir
ICESAVE STEFNDI Á STÓRSÓKN
Tímaritið Moment, sem Landsbankinn gaf út, fjallaði hvað eftir annað um velgengni
Icesave og jafnvel undir það síðasta var ekki annað að sjá en stórsókn væri fram undan.
Þekja átti 80 leigubíla í London að innan og utan með Icesave-auglýsingum. Ímynd
íslenskrar náttúru var óspart notuð til þess að kynna Icesave. Verkefnastjóri Icesave
ræddi í viðtali við blað bankans um draum sinn um sólareyjar, bikiní og margarítur.
valgeir örn ragnarsson
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Björgólfur guðmundsson var einn
aðaleigenda Landsbankans fyrir hrun.
Björgólfur var mað-
urinn sem ásamt syni
sínum og viðskipta-
félaganum Magnúsi
Þorsteinssyni kom
einkavæðingu
bankanna í gang á
ný og hreppti Lands-
bankann. Bankinn
fór í kappmikla útrás
og virtist í fyrstu ætla
að leggja heiminn að
fótum sér. Það brást
og hefur Björgólfur
séð á eftir hverri eign sinni á fætur
annarri upp í skuldir.
Björgólfur Thor Björgólfsson,
annar aðaleigenda Landsbankans fyrir
hrun. Það kom í hlut
Björgólfs Thors að
mæla fyrir munn
helstu eigenda
Landsbankans þegar
menn reyndu að
forða honum frá
þroti. Sagði breska
fjármálaeftirlitið vera
reiðubúið að taka
icesave undir breska
lögsögu en svör
eftirlitsins við fyrirspurnum Friðriks
Þórs guðmundssonar virðast ekki
styðja það. Sagðist í frægu Kompás-
viðtali vera reiðubúinn að hjálpa við
endurreisn íslands en ekki með því að
koma hingað með peninga.
sigurjón Árnason,
annar bankastjóra
Landsbankans fyrir
hrun og hafði mikið
um mótun icesave-
stefnunnar að gera.
Sigurjón lýsti mikilli
ánægju með upp-
byggingu icesave-
reikninganna sem
voru viðbrögð við
því að þrengdist um
lánalínur til íslenskra banka og stefndi
að enn frekari útþenslu þeirra víða í
Evrópu.
Halldór J. Kristjánsson, annar
bankastjóra bankans fyrir hrun og einn
þeirra sem mótuðu icesave-stefnuna.
„Þetta var skynsamleg stefnumörkun
og það áttu margir góðir menn þátt í
að móta þá stefnu. Ég er sannarlega
einn þeirra og hún
var alveg hárrétt,“
sagði Halldór í
viðtali við dV í nóv-
ember. „Ég er mjög
stoltur af aðkomu
minni að alþjóðlegri
töku innlána.“
Brynjólfur
Helgason var
framkvæmdastjóri
alþjóðasviðs
Landsbankans.
Hann starfar nú
sem yfirmaður innri
endurskoðunar
Landsbankans. icesa-
ve var sérverkefni undir alþjóðasviði
og því ber Brynjólfur mikla ábyrgð sem
yfirmaður þess.
Tryggvi Tryggva-
son var aðstoðar-
framkvæmdastjóri
alþjóðasviðs.
Tryggvi tók við sem
framkvæmdastjóri
Landsvaka, rekstrar-
félags verðbréfa- og
fjárfestingasjóða í skamman tíma en
var ráðinn sem framkvæmdastjóri
Fjárstýringar hjá Saga Capital fyrir
stuttu. Hann starfaði líka á sínum tíma
sem framkvæmdastjóri Landsbankans í
Lúxemborg.
Þórlindur Kjart-
ansson, formaður
SuS, er deildarstjóri
í markaðsdeild
bankans og sinnti
alþjóðlegum
markaðsmálum
fyrir bankahrun.
Hefur sagt frá því í samtali við dV að
hann hafi verið að vinna við að skoða
möguleika á að opna icesave á fleiri
stöðum í Evrópu þar á meðal í noregi.
Þessir rÉÐU FerÐinni
icesave hits the streets of london.
Mikill hugur var í Landsbankamönnum sem skömmu fyrir hrun
bankans ætluðu að nota 80 leigubíla til að ná í fleiri viðskiptavini
icesave. Þetta var kynnt í tímaritinu Moment síðasta haust.
Frábær árangur Sigurjón
Árnason kynnti icesave og
notaði magnþrungna íslenska
náttúru til þess að styrkja
ímynd reikninganna.
Á góðri stund Sigurjón
Árnason, fyrrverandi
bankastjóri, og Björgólfur
guðmundsson, fyrrverandi
aðaleigandi bankans.