Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2009, Blaðsíða 3
á fjármálamörkuðum, en ef lestur
Moment væri eina heimildin var ekki
annað sjá en bankinn stæði mjög
styrkum fótum og að áframhaldandi
vöxtur Icesave væri fram undan. Í
þriðja tölublaði síðasta árs, sem kom
út í lok síðasta sumars, rituðu Sigur-
jón og Halldór leiðara í sameiningu.
Þar sögðu þeir að markmiðið væri að
halda áfram að sýna fram á fjárhags-
legan styrk bankans með aðaláherslu
á Icesave í völdum Evrópulöndum.
Icesave átti að taka yfir London
Kreppan virtist ekki bíta á Lands-
bankann og Icesave. Í lok síðasta
sumars kynnti bankinn fyrir starfs-
mönnum sínum nýja auglýsingaher-
ferð, sem átti að draga að enn fleiri
viðskiptavini Icesave í Bretlandi.
Bankinn ætlaði að þekja áttatíu hefð-
bundna leigubíla í London - bæði að
innan og utan - með Icesave-auglýs-
ingum í sex mánuði. Jafnvel kvittan-
ir frá leigubílstjórunum áttu að vera
merktar Icesave í bak og fyrir.
Greinilegt var að þrátt fyrir erf-
iðleikana ætlaði bankinn að gefa í.
Þessi áform urðu þó skammlíf.
Heritable og markaðsdeild
eignaður heiðurinn
Í Moment segir að heiðurinn að Ic-
eSave eigi hópur sérfræðinga hjá
Heritable Bank, sem var í eigu Lands-
bankans. Að auki hafi markaðsdeild
og viðskiptaþróun Landsbankans
komið að þróun Icesave.
Dagleg starfsemi var rekin af Her-
itable og bakvinnsla úthýst til New-
castle Building Society. Heritable
er rúmlega 130 ára gamall skoskur
banki sem féll með Landsbankanum
síðasta haust. Í sömu grein er viðtal
við Mark Sismey-Durrant, forstjóra
Heritable, þar sem hann ber sér á
brjóst vegna þess að keppinautar Ic-
eSave hafa ekki stækkað jafnhratt.
Vöxturinn endurspeglaði styrk bank-
ans.
Í einu tölublaði Moment er létt
viðtal við Bretann Simon Healy, yf-
irmann innlána hjá Heratible. Hann
var verkefnastjóri yfir Icesave-reikn-
ingunum. Það lýsir kannski tíðarand-
anum að í viðtalinu var hann ekkert
spurður út í starfsemi Icesave. Í síð-
ustu spurningunni var hann spurð-
ur hvað hann myndi gera ef hann
myndi vinna í lottó. Hann sagðist
ekki vera viss. „En það myndi tengj-
ast eyju, bikiníum og alveg hellingi af
margarítum!“
Þriðjudagur 9. júní 2009 3Fréttir
ICESAVE STEFNDI Á STÓRSÓKN
RIs og HRun Icesave
10. október 2006 icesave sett á fót í Bretlandi og fyrstu reikning-
arnir stofnaðir.
Maí 2007 80 þúsund viðskiptavinir eiga þrjá milljarða
punda á icesave-reikningum.
Maí 2008 icesave flutt út til Hollands.
Ágúst 2008 Viðskiptavinir icesave eru orðnir 350 þúsund
talsins í Evrópu.
október 2008 Áhlaup á reikningana, lokað fyrir úttektir og
icesave hrynur. Ljóst verður að stórar fjárhæðir
geta lent á íslenskum skattgreiðendum.
Júní 2009 Samninganefnd íslands undirritar samning
við Breta um að ísland ábyrgist andvirði 650
milljarða króna. Eignir Landsbanka í Bretlandi
ganga upp á móti en óvíst hversu langt þær
duga. útlit er fyrir að tugir og jafnvel milljarðar
lendi á íslenskum skattgreiðendum.
„...komumst við að því
að jákvæð stemning
ríkir gagnvart Íslend-
ingum sökum ýmissa
hluta.“
aðalmennirnir Tímaritið Moment
birti mynd af bankastjórum Lands-
bankans, þeim Sigurjóni Árnasyni,
Halldóri j. Kristjánssyni og Mark Sam-
sey-durant, bankastjóra Heritable-
bankans. Þeir stilltu sér hróðugir upp
fyrir framan icesave-skilti.
GRÝTTU KRÓNUM
Í ALÞINGISHÚSIÐ
„Er það ekki alveg augljóst mál?
Þetta er svo mikið óréttlæti að það
hálfa væri nóg,“ svaraði Hulda Eyj-
ólfsdóttir, mótmælandi á Austur-
velli, aðspurð hvers vegna hún sló
í pönnu fyrir framan Alþingishús-
ið í gær. Á milli 400 og 500 manns
mættu á Austurvöll í gær, að mati
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu, að mótmæla Icesave-sam-
komulaginu sem fjármálaráðherra
kynnti fyrir þingheimi í gær.
Andrúmsloftið var ekki ósvip-
að og þegar mótmælin stóðu sem
hæst í byrjun janúar á þessu ári,
nema örlítið hlýrra í veðri, eins og
Guðlaugur Þór Þórðarson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, orðaði
það við blaðamann DV á Austur-
velli í gær.
Köstuðu krónum í alþingi
„Ég er algjörlega búin að fá nóg,
þetta eru önnur mótmælin sem ég
mæti í á þessu ári, og mun halda
áfram að koma hingað næstu
daga,“ segir Hulda sem er afar
ósátt með ríkisstjórnina þessa dag-
ana. Lögreglan var með viðbúnað
í kringum Alþingishúsið og pass-
aði að mótmælin færu friðsamlega
fram. Fimm voru þó handteknir
fyrir að fara ekki eftir fyrirmælum
lögreglu. Mótmælendur sprengdu
púðurkerlingar, kveikt var á neyð-
arblysum og þá var einnig kastað
einnar krónu myntum í húsið sem
áttu að fara upp í Icesave-skuldina
að sögn þeirra sem köstuðu krón-
unum.
vill Davíð oddsson aftur
Tveir menn tóku sér stöðu fyr-
ir framan Alþingishúsið í gær og
kölluðu hástöfum „Davíð aftur“.
Annar þeirra er Örn Úlriksson sem
segir að Davíð Oddsson geti komið
Íslandi aftur á rétta braut.
„Já, ég vil fá Davíð Oddsson aft-
ur. Hann er eini maðurinn sem
hefur kjark til að þora að glíma við
þetta vandamál. Hann tæki þetta á
sex mánuðum.“ Örn er mikill sjálf-
stæðismaður og hefur látið húð-
flúra sjálfstæðisfálkann á handar-
bakið á sér af því tilefni.
Í kringum 500 manns voru á svæð-
inu, eins og fyrr segir, og létu flest-
ir í sér heyra með búsáhöldum eða
slógu í þakrennur hússins.
Þessu er ekki hægt að breyta
Yfir 16 þúsund manns hafa
skráð sig í hóp á samskiptasíð-
unni Facebook og segjast ekki
ætla að borga Icesave-skuldirn-
ar. Í athugasemdakerfi á síðunni
segir fólk sínar skoðanir og segir
fólk að erfitt sé að mótmæla þeg-
ar það búi úti á landi. „Við skulum
ekki gleyma að lýðræðislega kos-
in stjórn landsins samþykkti fyr-
ir hönd þjóðarinnar að borga ætti
þessa reikninga og það yrði ekki
farið með þetta í dómstóla. Þessu
er bara ekki hægt að breyta,“ skrif-
ar Heiðar Heiðarsson á síðuna. Þá
kemur einnig fram að mótmælin
muni halda áfram næstu daga eða
„þar til samningurinn hefur ver-
ið felldur“ eins og það er orðað á
síðunni.
BoðI Logason
blaðamaður skrifar bodi@dv.is
„Ég er algjörlega búin
að fá nóg, þetta eru
önnur mótmælin sem
ég mæti í á þessu ári
og mun halda áfram
að koma hingað næstu
daga.“
Fimm handtekin Lögreglan handtók
fimm manns fyrir að fara ekki eftir
fyrirmælum lögreglunnar.
MYnDIR HeIða HeLgaDÓTTIR
Hulda eyjólfsdóttir Ætlar ekki að
borga icesave-skuldirnar og segir
samninginn vera óréttlátan.
Örn Úlriksson Vill fá davíð
Oddsson aftur í stjórnarstól-
inn og segir hann geta lagað
ástandið á sex mánuðum.
Björgunarbátur Mótmæl-
endur stilltu upp björgunarbáti
með neyðarblysi fyrir framan
alþingishúsið sem búið var að
skrifa á iceslave.