Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2009, Page 4
Þriðjudagur 9. júní 20094 Fréttir
ÍSLANDSBANKI MÓTFALLINN
RÁÐNINGU EINARS ARNAR
Fulltrúar Íslandsbanka í stjórn Skeljungs voru ekki hlynntir því að ráða Einar Örn
Ólafsson sem forstjóra félagsins í lok maí. Hann hafði hætt í bankanum mánuði áður
vegna trúnaðarbrests. Í fyrra hafði Einar Örn umsjón með sölunni á meirihluta í
Skeljungi til núverandi eigenda fyrir hönd Glitnis, nú Íslandsbanka.
Fulltrúar Íslandsbanka í stjórn
Skeljungs, þeir Ríkharð Ottó Rík-
harðsson og Hörður Felixson,
greiddu ekki atkvæði með því að
ráða Einar Örn Ólafsson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóra fyrirtækja-
sviðs Íslandsbanka, sem nýjan for-
stjóra félagsins í lok maí. Einar var
ráðinn sem forstjóri fyrirtækisins en
hafði látið snögglega af störfum hjá
Íslandsbanka í lok apríl.
Í fyrrahaust sá Einar Örn um söl-
una á Skeljungi frá Glitni, nú Ís-
landsbanka, til núverandi eigenda
fyrirtækisins, Guðmundar Arnar
Þórðarsonar, Birgis Þórs Bieltvelt og
Svanhildar Nönnu Vigfúsdóttur, sem
sitja í stjórn félagsins ásamt Ríkharði
og Herði. Eigandi Skeljungs fyrir söl-
una til núverandi eigenda var eign-
arhaldsfélag Pálma Haraldssonar,
Fons.
Guðmundur, Birgir og Svanhildur
eiga 51 prósent í félaginu á móti 49
prósentum Íslandsbanka. Samkvæmt
heimildum DV voru forsvarsmenn
Íslandsbanka ósáttir við að eigend-
ur Skeljungs, sem mynda meirihluta
í stjórninni, höfðu ekkert samráð við
bankann áður en lagt var til á
stjórnarfundi að Einar
Örn yrði ráðinn. Ákvörðunin um að
leggja til við stjórnina að Einar yrði
ráðinn var eingöngu tekin af meiri-
hlutanum.
Trúnaðarbrestur
orsök starfsloka
DV greindi frá því eftir að Einar Örn
var ráðinn forstjóri Skeljungs að
hann hefði hætt hjá Íslandsbanka
vegna trúnaðarbrests við forsvars-
menn bankans. Einar hafði um
nokkurt skeið hugsað sér að finna sér
aðra vinnu og var farinn að ræða við
eigendur Skeljungs um að taka við
félaginu meðan hann starfaði enn
í bankanum, samkvæmt heimild-
um. Forsvarsmenn bankans komust
á snoðir um þetta og mátu það svo
að óheppilegt væri að hann héldi
áfram að vinna í bankanum af
þeim sökum, meðal annars
vegna þess að hann
hafði aðgang að
trúnaðar-
upplýsingum í bankanum. Einari
Erni var því gert að hætta með mjög
litlum fyrirvara og var það fyrst og
fremst fyrirbyggjandi aðgerð til að
verja hagsmuni bankans.
Íslandsbanki lætur rannsaka
söluna á Skeljungi
Samkvæmt heimildum DV lætur
Íslandsbanki nú óháðan aðila rann-
saka sölu bankans á Skeljungi sem
Einar Örn sá um því bankinn
vill ganga úr skugga um
að eðlilega hafi ver-
ið staðið að
henni.
Þegar
Glitnir seldi núverandi eigendum
Skeljungs félagið í fyrra var komist
að samkomulagi um að greitt yrði að
hluta til fyrir félagið með fasteignum
í Danmörku. Glitnir átti að eiga lítinn
hlut í fyrirtækinu til bráðabirgða. Eft-
ir efnahagshrunið í haust gátu kaup-
endur Skeljungs hins vegar ekki lok-
ið við fjármögnunina, meðal annars
út af því að fasteignamarkaðurinn
í Danmörku hrundi, og því þurfti
bankinn að halda eftir stærri eignar-
hluta í félaginu en ráðgert hafði ver-
ið og situr nú uppi með 49 prósent í
félaginu.
Það hefur verið gagnrýnt við söl-
una á Skeljungi að stór hluti kaup-
verðsins var fasteignir í útlöndum
sem síðar kom í ljós að dugðu ekki
til að standa skil á kaupunum á
olíufélaginu. Eitt af því sem
rannsakað verður er hvort
eðlilegt hafi verið að taka
við greiðslu fyrir Skeljung á
þessu formi.
„Samkvæmt heimildum
DV lætur Íslandsbanki
nú óháðan aðila rann-
saka sölu bankans á
Skeljungi sem Einar Örn
sá um því bankinn vill
ganga úr skugga um að
eðlilega hafi verið stað-
ið að henni.“
IngI F. VIlhjálmSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Annaðist sölu; tók við forstjórastöðunni Einar Örn annaðist söluna á Skeljungi
til núverandi eigenda í fyrra. Hann hætti hjá bankanum í lok apríl því hann var talinn
hafa átt í samkrulli við Skeljung en tók svo við sem forstjóri þar tæpum mánuði síðar.
Íslandsbanki rannsakar söluna
Samkvæmt heimildum dV lætur íslands-
banki nú rannsaka söluna á Skeljungi
til núverandi eigenda fyrirtækisins en
núverandi forstjóri Skeljungs, Einar Örn
Ólafsson, sá um hana á meðan hann var
enn starfsmaður bankans.
Ragnar Erling hermansson hefur það bærilegt í fangelsi í brasilísku borginni Recife:
Brasilíufangi bíður úrskurðar
Ragnar Erling Hermannsson, sem
situr í fangelsi í borginni Recife í
Brasilíu, bíður enn eftir að mál hans
verið tekið fyrir hjá þarlendum dóm-
stólum. Ragnar Erling var handtek-
inn á flugvellinum í borginni með
mikið magn af kókaíni í ferðatösku
sinni. Hann var í kjölfarið færður í
hið alræmda Cotel-fangelsi í borg-
inni, þar sem honum var fyrst um
sinn haldið við hrikalegar aðstæður.
Hermann Þór Erlingsson, faðir
Ragnars, hefur rætt nokkrum sinn-
um við son sinn í síma, en erfiðlega
gengur að ná reglulegu sambandi
við hann. Dómsúrskurð þarf til þess
að Ragnar fái að hafa samband við
fjölskyldu sína í gegnum síma einu
sinni í viku.
Eins og fram hefur komið hef-
ur Ragnar verið fluttur í annan
klefa innan Cotel þar sem aðbún-
aður fanga er betri. Hermann seg-
ir að Ragnar sé í þokkalegu yfirlæti
í fangelsinu, hann er ekki í oftroðn-
um fangaklefa lengur og sé farinn að
venjast mataræðinu, sem mun vera
fremur lélegt.
Fastlega er búist við því að Ragn-
ar Erling verði að minnsta kosti í
nokkra mánuði til viðbótar í fangels-
inu, áður en málið fer fyrir dómstóla.
Verði hann fundinn sekur og dæmd-
ur til þyngstu refsingar, getur hann
átt yfir höfði sér allt að 20 ára fang-
elsi. Fram hefur komið að enginn
samningur er í gildi á milli íslenskra
og brasilískra yfirvalda um að Ragn-
ar Erling fái að afplána dóm sinn á
Íslandi.
Ragnar Erling hermannsson
Situr í fangelsi fyrir kókaínsmygl.
Ögmundur fetar
í fótspor Davíðs
Ögmundur Jónasson er nú kom-
inn í sama gír og Davíð Oddsson
var í þegar Ögmundur gagn-
rýndi hann fyrir að leggja niður
ríkisstofnun sem hann reiddist.
Þetta má lesa úr orðum Kristins
H. Gunnarssonar sem á blogg-
síðu sinni líkir orðum Ögmund-
ar um Seðlabankann við þá
ákvörðun Davíðs að leggja Þjóð-
hagsstofnun niður.
Ögmundur lýsti í viðtali við
Fréttablaðið um helgina vilja
til að breyta skipulagi bankans
þannig að stjórn hans félli undir
framkvæmdavaldið. Ögmundur
er ósáttur við hve hægt geng-
ur að lækka stýrivexti bankans.
„Enn er komið fram á sviðið hið
yfirþyrmandi framkvæmdavald
sem vill stjórna með tilskipun-
um stofnunum sem sýna tilburði
til sjálfstæðis,“ segir Kristinn.
70 milljónir í
tómstundir
Velferðarsjóður barna hef-
ur ákveðið að leggja sjötíu
milljónir króna til styrktar
tómstundastarfi fyrir börn
á Íslandi í sumar. Velferð-
arsjóðurinn hyggst þannig
leggja sín lóð á vogarskálarn-
ar til að börn og unglingar
þurfi ekki að líða fyrir slæma
fjárhagsstöðu foreldra sinna.
Styrkurinn nær til um það
bil fimmtán þúsund barna
og unglinga um allt land. 57
félagasamtök á þrjátíu stöð-
um á landinu hlutu styrk,
sem notaður verður til að
niðurgreiða námskeið og
tómstundastarf fyrir börn og
greiða fyrir máltíðir á meðan
á námskeiðum stendur.
Flugeldar vöktu
þingmann
Birgitta Jónsdóttir, þingkona
Borgarahreyfingarinnar, er
einn þeirra Vesturbæinga sem
hrukku upp við flugeldaspreng-
ingar í fyrrinótt. „Ég segi nú bara
skammist ykkar fyrir að vekja
ugg í brjósti barna og dýra,“
skrifaði þingmaðurinn á blogg
sitt og þótti miður að hafa verið
of svifasein að ná ljósmynd-
um af svartklæddum sprengju-
mönnunum sem hún telur vera
á milli tvítugs og þrítugs.
Lögreglunni barst tilkynning
um flugeldana um fimmleytið
um nóttina en telur hverfandi
líkur á að hægt verði að hafa
hendur í hári mannanna sem
röskuðu svefnró þingkonunnar
og fleiri Vesturbæinga.
Krónan í
lágmarki
Raungengi krónu hefur ekki
verið lægra síðan það náði
sögulegu lágmarki í nóvem-
ber á síðasta ári – skömmu
eftir bankahrunið. Þegar
gengið var lægst var vísitala
raungengis 64 stig en er nú
68,2 stig. Á vef Greiningar
Íslandsbanka kemur fram að
raungengi krónunnar sé nú
30 prósent undir langtíma-
meðaltali.