Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2009, Síða 6
Þriðjudagur 9. júní 20096 Fréttir
PRESTUR HÆTTIR
FYRIRVARALAUST
Skyndilegt brotthvarf séra Þóreyjar Guðmundsdóttur fyrir austan hefur vakið um-
tal meðal íbúanna. Þórey ætlar að snúa sér að námi og á eftir að sakna sóknarbarna
sinna. Þórey segist hafa átt nokkra óvini fyrir austan sem hafi viljað henni illt.
„Það er alltaf þannig að ef prest-
ar hætta snögglega finnst einhverj-
um tilefni til að gera mál úr því. Ég
sagði ekki mörgum frá þessu og fólk
smjattar á hlutunum,“ segir Þórey og
bætir við að hún hafi ekki nennt að
svara áskorunum um að hún héldi
áfram. „Því kaus ég að gera þetta
svona. Það voru í rauninni bara tveir
í sóknarnefndinni sem vissu hvað til
stóð,“ segir Þórey.
Söðlar um
Skyndilegt brotthvarf séra Þóreyj-
ar Guðmundsdóttur, sóknarprests
á Kolfreyjustað, hefur vakið athygli
íbúa Austurlands. Þórey ákvað
að söðla um og snúa sér að námi
en lét fáa vita af þessari ákvörðun
sinni.
Síðasta embættisverk hennar
var á hvítasunnudag og við störf-
um hennar tekur Gunnlaugur Stef-
ánsson frá Breiðdalsvík.
„Ég byrjaði í doktorsnámi í
september í fyrra og ætlaði að at-
huga hvort ég gæti þetta því ég er
komin svona til ára minna. Svo
kom það í ljós að þetta gekk vel og
þá ákvað ég að láta af störfum og
halda áfram.“
Á óvini
Þórey segist vissulega eiga eftir að
sakna sóknarinnar þótt hún sé vön
að flakka á milli staða.
„Ég er aðkomukona og ég er vön
að koma og fara. Hér er mikið af góðu
fólki sem ég á eftir að sakna. En ein-
hvern veginn er það þannig að ef
maður hefur vit í höfðinu og sér að
maður hefur möguleika á að halda
áfram að læra þá gerir maður það.
Ég fór í frí eftir páskana og þá komu
þrjár litlar stelpur sem ég fermdi og
hringdu bjöllunni og sögðust sakna
mín. Ein þeirra sagði að ég væri sú
eina sem kynni á unglinga. Ég var
svo upp með mér og montin að það
hefði enginn getað hælt mér meira,“
segir Þórey en viðurkennir einnig
að ekki hafi öllum líkað jafn vel við
hana á meðan hún gegndi embætti
sóknarprests. DV hefur einnig borist
til eyrna að sum ummæli sem Þórey
hefur látið falla hafi farið fyrir brjóst-
ið á íbúum Austfjarða í gegnum tíð-
ina.
„Það líkar ekki öllum vel við alla
presta. Ég á mína óvini eins og hver
annar. Það hvarflar ekki að mér að
það sé ekki svoleiðis. Það eru alltaf
einhverjir sem vilja manni illt.“
Byggir brú
Hljóðið í Þóreyju er gott og virð-
ist hún ánægð með þessa ákvörð-
un sína. Hún getur líka verið stolt af
doktorsnámi sínu sem er afar áhuga-
vert.
„Það gengur rosalega vel í náminu.
Ég er að skrifa um sjálfsmynd músl-
ímakvenna annars vegar og kristinna
kvenna hins vegar. Mér finnst þetta
æðislegt. Ég er að byggja brú á milli
félagsvísinda og guðfræði.“
LiLja Katrín GunnarSdóttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
„Það líkar ekki öllum
vel við alla presta. Ég á
mína óvini eins og hver
annar.“
Gengur vel Þóreyju gengur vel í
doktorsnáminu og því baðst hún
lausnar frá prestsembættinu.
Kirkjan á Kolfreyjustað dV hefur heyrt frá
íbúum fyrir austan að ummæli sem Þórey lét
falla í þessari kirkju hafi farið fyrir brjóstið á
einhverjum.
Á annan tug mótmælenda kom sér fyrir í Fríkirkjuvegi 11:
Brutust inn í hús Björgólfs
Á annan tug aðgerðasinna ruddi sér
í gærkvöld leið inn í Fríkirkjuveg 11,
húsið sem Björgólfur Thor Björgólfs-
son keypti af Reykjavíkurborg og var
áður í eigu Thors Jensen, forföður
hans. Með þessu vildi fólk lýsa andúð
sinni á því að skuldir vegna Icesave-
reikninga Landsbankans lentu á al-
menningi.
Fólk safnaðist saman fyrir utan
húsið rétt fyrir níu og stóð þar uns
einn maður, klæddur leðurgalla,
hljóp inn og hrópaði: „Þetta er inn-
brot.“ Nokkur hópur fólks fylgdi hon-
um eftir.
Á tímabili virtist sem ákveðin
hringiða væri að myndast í húsinu.
Mótmælendur fóru inn, lögreglu-
menn vísuðu þeim út og síðan fóru
mótmælendur inn aftur til þess eins
að vera vísað út aftur af lögreglu.
Þessu virtist þó ljúka upp úr klukk-
an tíu í gærkvöldi, tæpum hálfum
öðrum klukkutíma eftir að fyrsti að-
gerðasinninn ruddist inn, með því
að mótmælendur höfðu sig á brott.
Þá hafði fólkið sem hreiðraði um sig í
húsinu metið stöðuna þannig að lög-
reglan væri að fara að ráðast í hand-
tökur og niðurstaðan því orðið sú að
fólkið færi friðsamlega út.
Þó virðist sem eitthvað hafi komið
til handalögmála á milli lögreglu og
mótmælenda fyrr um kvöldið. Mót-
mælendur höfðu komið sér fyrir í
kjallara hússins þar sem þeir klöpp-
uðu, sungu og dönsuðu á meðan lög-
reglan horfði á inni í húsinu. „Hverjir
eiga borgina?“ öskruðu mótmælend-
ur í kjallaranum.
Mótmælendur komust inn í húsið
eftir að hafa brotið rúðu. Þaspjöldum
fyrir framan húsið sem stendur á Ice-
slave. Húsið er í eigu Novators, fjár-
festingafélags Björgólfs Thors Björg-
ólfssonar.
Framkvæmdir í
morgunumferð
Borgarstarfsmenn hófust í nótt
handa við að fræsa malbikið á
Kringlumýrarbraut. Stefnt var að
því að þeir héldu því áfram alveg
þar til morgunumferðin hæfist
á áttunda tímanum, þá átti að
gera hlé á framkvæmdum með-
an umferðarþunginn væri hvað
mestur.
Miðakrein Kringlumýrar-
brautar verður fræst frá Bú-
staðavegi að bensínstöð N1 í
Fossvogi. Gert er ráð fyrir að ak-
reininni verði lokað fyrir umferð
klukkan níu, eftir að mesta um-
ferðin er farin í gegn og verður
akreinin þá malbikuð. Stefnt er
að því að opna hana aftur áður
en síðdegisumferðin skellur á
götunni af fullum krafti.
Kona féll í
gegnum þak
Kona á miðjum aldri datt í
gegnum húsþak á gömlu húsi
í Mývatnssveit þegar hún var
að gera við þakið undir kvöld
í gær. Að sögn lögreglunnar
á Húsavík er konan ekki talin
í lífshættu en var flutt með
sjúkrabifreið á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri til að-
hlynningar. Ekki er vitað frek-
ar um líðan konunnar.
Þá féll kona á besta aldri,
eins og lögreglan á Akureyri
orðaði það, af hestbaki í gær.
Hún slapp þó við alvarlega
meiðsli og er viðbeinsbrotin.
Okrið dregið
til baka
Forsvarsmenn Skeljungs hafa
ákveðið að endurgreiða 12,50
krónur af hverjum bensín-
lítra sem þeir ofrukkuðu við-
skiptavini sína um frá föstu-
dagsmorgninum 29. maí til
hádegis í dag, að því tilskildu
að viðskiptavinirnir eigi enn
kvittunina fyrir viðskiptum
sínum.
Olíufélögin hækkuðu öll
eldsneytisverð því sem næst
um leið og Alþingi samþykkti
að hækka olíugjald. Þetta
gerðu þau þrátt fyrir að olíu-
gjald leggist á eldsneyti þegar
það er tollafgreitt en verið var
að selja bensín og dísilolíu
sem var afgreidd fyrir laga-
breytinguna.
Fram kom í fréttum Stöðv-
ar 2 í gærkvöld að N1 hefði
ákveðið að láta ofrukkunina
renna til góðgerðarmála.
Verðlaunuð fyrir
hjálparstarf
Ulla Magnússon, stofnandi
og formaður SOS-barnaþorp-
anna á Íslandi, var sæmd heið-
ursorðu alþjóðasamtakanna
SOS-Kinderdorf International.
Orðuna, sem er æðsta viður-
kenning samtakanna, fær hún
fyrir framúrskarandi störf í þágu
samtakanna og munaðarlausra
og yfirgefinna barna um allan
heim.
Helmut Kutin, alþjóðafor-
seti SOS-samtakanna, veitti Ullu
viðurkenninguna á afmælishátíð
SOS-barnaþorpanna í Ráðhúsi
Reykjavíkur um helgina.
ósátt við Björgólfana Ekki fór á milli mála hvað það var sem fór fyrir brjóstið á
þessari stúlku. Mynd SiGtryGGur ari