Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2009, Qupperneq 8
Þriðjudagur 9. júní 20098 Fréttir
Forsætisnefnd Alþingis hefur gert rannsóknarnefnd Alþingis að ráða sjálfri fram úr trúnaðarbresti sem
virðist kominn upp milli Páls Hreinssonar, formanns nefndarinnar, og Sigríðar Benediktsdóttur, sem
á sæti í nefndinni, ásamt Tryggva Gunnarssyni, umboðsmanni Alþingis. Starf nefndarinnar er í húfi og
vandséð að Páll og Sigríður geti bæði setið í henni áfram.
Trúnaðarbrestur er kominn upp
í rannsóknarnefnd Alþingis sem
fæst við að rannsaka aðdraganda
og orsakir bankahrunsins og hef-
ur málið komið til kasta forsætis-
nefndar Alþingis sem í gær vísaði
því aftur til rannsóknarnefndar-
innar.
Málið tengist athugasemdum
frá Jónasi Friðriki Jónssyni, fyrr-
verandi forstjóra Fjármálaeftir-
litsins, sem í síðustu viku gekk á
fund Páls Hreinssonar, formanns
rannsóknarnefndarinnar, og kvart-
aði yfir ummælum Sigríðar Bene-
diktsdóttur hagfræðings í viðtali
við bandarískt háskólablað. Eftir
því sem næst verður komist lagði
Jónas Friðrik fram lögfræðilegt álit
máli sínu til stuðnings sem hann
afhenti Páli.
Svo virðist sem mjög sé þrengt
að Sigríði eftir afgreiðslu forsætis-
nefndarinnar í dag, því með af-
stöðu og viðbrögðum formanns
nefndarinnar, verður ekki séð að
Sigríður og Páll geti bæði setið
áfram í nefndinni.
Viðtal í stúdentablaði
Í viðtali við stúdentablað Yale-há-
skóla, sem birtist 31. mars er Sig-
ríður meðal annars spurð um
persónulega skoðun sína á á
bankahruninu og hvort hún sjái
lausn á vandanum í fyrirsjáanlegri
framtíð.
Sigríður svaraði að hún væri með
ugg í brjósti vegna bankahrunsins:
„Mér finnst sem þetta sé niðurstað-
an af öfgakenndri græðgi margra
sem hlut eiga að máli og tómlátu
andvaraleysi þeirra stofnana sem
hafa áttu eftirlit með fjármálakerf-
inu og sjá áttu um fjármálalegan
stöðugleika í landinu. Ísland mun
af þessum sökum standa uppi með
gríðarlegar skuldir, sem kannski er
ekki það versta, því orðspor okk-
ar er algerlega í tætlum. Það mun
taka komandi kynslóðir talsverðan
tíma að vinna úr þessu. Hins vegar
eigum við miklar náttúruauðlindir
auk þess sem við erum vel mennt-
uð og óbuguð þjóð.“
Sigríður bætir síðar við að það
versta sé að Ísland sé nú þekkt fyr-
ir bankahrunið en ekki lengur fyrir
náttúrufegurð, ferskar fiskafurðir
og notkun á sjálfbærum orkulind-
um. „Við erum ekki þekkt fyrir
Geysi, Björk eða Sigur Rós heldur
fyrir bankahrun.“ Hún bætir við að
mörgum líði eins og þeir hafi ver-
ið plataðir og krefjist þess réttilega
að þeir sem komu landinu í slík-
ar ógöngur svari til saka fyrir það.
„Þeir vilja vita sannleikann um það
sem gerðist.“
Bauð Sigríði að
hætta hljóðalaust
Eftir því sem næst verður komist
eru það orð Sigríðar um kæruleysi
og andvaraleysi eftirlitsstofnana
með fjármálakerfinu og fjármála-
legum stöðugleika, sem veldur
uppnámi. Í síðustu viku mun Jónas
Friðrik Jónsson, fyrrverandi for-
stjóri Fjármálaeftirlitsins, hafa bent
Páli Hreinssyni, formanni rann-
sóknarnefndarinnar, og Tryggva
Gunnarssyni á þessi ummæli Sig-
ríðar í viðtalinu við Yale Daily
News og vefengt hæfi hennar til að
sitja í nefndinni. Mun Jónas Friðrik
hafa lagt fram lögfræðilegt álit máli
sínu til stuðnings.
Sjálfur á Jónas Friðrik um sárt
að binda vegna bankahrunsins, en
Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi
bankamálaráðherra, leysti hann
frá embætti hjá FME seint í janúar
um leið og hann sagði sjálfur af sér
ráðherradómi.
DV hefur heimildir fyrir því að
viðbrögð Páls Hreinssonar, for-
manns rannsóknarnenfdarinnar,
hafi verið á þá leið að bjóða Sig-
ríði að segja sig úr nefndinni á per-
sónulegum forsendum og án eftir-
mála.
Við slíkt hafi Sigríður ekki get-
að sætt sig. Enda sé rannsóknar-
nefndin ekki dómstóll heldur sé
henni ætlað að draga fram sann-
leikann um aðdraganda og orsakir
bankahrunsins og skyldra atburða.
Því geti ofangreindur hluti úr við-
tali hennar við Yale Daily ekki verið
vanhæfisástæða.
Pattstaða
Upp var því komin pattstaða úr
því að Sigríður vildi ekki víkja úr
nefndinni þegjandi og hljóða-
laust. Páll Hreinsson brá því á
það ráð að senda málið til for-
sætisnefndar Alþingis en rann-
sóknarnefndin heyrir undir
Alþingi líkt og umboðsmaður Al-
þingis og Ríkisendurskoðun.
Málið var síðan tekið fyrir og
afgreitt á fundi forsætisnefndar í
dag. Samkvæmt heimildum DV
var málið sent aftur til rannsókn-
arnefndarinnar til ákvörðunar.
Þetta er gert á þeirri forsendu að
rannsóknarnefndin hafi sérstaka
stöðu sem sannleiksnefnd og eigi
að starfa sjálfstætt óháð afskipt-
um pólitískt kjörinna fulltrúa.
Fyrir þessu eru fordæmi frá ná-
lægum löndum þar sem líkt hefur
verið farið að varðandi vanhæfis-
mál í sambærilegum nefndum.
Óráðin framtíð
Um lyktir málsins er ekkert unnt
að segja ennþá. Bent er á að allt
starf rannsóknarnefndarinnar og
trúverðugleiki hennar séu í húfi,
ekki síst ef svo fer að einhver segi
sig úr henni. Úr því sem komið er
virðist enginn kostur góður, en
vafa er undirorpið hvort Sigríður
og Páll geti unnið saman úr því
Páll brást við erindi Jónasar Frið-
riks sem áður greinir.
Rannsóknarnefnd Alþingis var
skipuð með lögum eftir banka-
hrunið og starfar sem sannleiks-
nefnd. Meginhlutverk hennar er
að safna upplýsingum og draga
upp heildarmynd af aðdrag-
anda að falli bankanna og svara
þeirri spurningu hverjar hafi ver-
ið orsakir þess. „Þá skal nefnd-
in leggja mat á hvort um mistök
eða vanrækslu hafi verið að ræða
við framkvæmd laga og reglna
um fjármálastarfsemi á Íslandi
og eftirlit með henni og hverjir
kunni að bera ábyrgð á því.“
JÓHann HaukSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
TrúnaðarbresTur í
rannsóknarnefndinni
„Mér finnst sem þetta sé niðurstaðan af öfga-
kenndri græðgi margra sem hlut eiga að máli
og tómlátu andvaraleysi þeirra stofnana sem
hafa áttu eftirlit með fjármálakerfinu og sjá
áttu um fjármálalegan stöðugleika í landinu.“
Jónas Fr. Jónsson Fyrrverandi
forstjóri vakti athygli formanns
nefndarinnar á ummælum Sigríðar í
skólablaði Yale sem hann telur gera
hana vanhæfa.
Óvissa um nefndina Sigríði Benediktsdóttur var
samkvæmt heimildum dV boðið að segja sig úr
nefndinni á persónulegum forsendum og án eftirmála.