Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2009, Qupperneq 10
Mjög miklu munar á því hversu hátt
lántökugjald bankarnir innheimta
fyrir fasteignalán og langtímalán. Ef
húsnæðiskaupendur taka 10 milljóna
króna fasteignalán hjá Íslandsbanka,
er lántökugjaldið 100 þúsund krón-
ur, eða sem svarar 1 prósenti. Sé lán-
ið hins vegar helmingi hærra, eða 20
milljónir, er lántökugjaldið komið upp
í 200 þúsund krónur. Sömu sögu er að
segja hjá öðrum útlánastofnunum og
telur Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna, eðlilegt að
lántökugjald eigi frekar að vera föst
krónutala sem miðast af kostnaði út-
lánastofnunarinnar við að veita lán-
ið. Hæpið sé að það sé helmingi meiri
lántökukostnaður við 20 milljóna
króna lán en 10 milljóna króna lán.
Þriðjudagur 9. júní 200910 Neytendur
Harðfiskur-
inn Holli
Í stað þess að falla í freistingar og
kaupa óhollt snakk á milli mála,
er kjörið að kaupa litla harðfisk-
poka sem duga fyrir einn. Algengt
er að í hverjum 100 grömm-
um af harðfiski séu um það bil
80 grömm af prótíni. Jafnvel þó
harðfiskurin sé ekki ódýrasta
varan í búðum er hann gríðar-
lega hollur og getur vel komið
í staðinn fyrir innflutta prótín-
drykki. Svo styður þú íslenska
framleiðslu með því að kaupa
harðfisk.
kaupið
bakkatré
Sumarhúsaeigendur sem vilja
gróðursetja tré á lóðareign sinni,
ættu að vera ráðagóðir og kaupa
kassa með litlum birkiplönt-
um. Algengt verð á kassa með
40 trjám er um það bil fjögur
þúsund krónur. Setjið birkiplönt-
urnar í poka með mold og áburði
og leyfið þeim að vera í pokan-
um í tvö sumur. Á þriðja sumri
hafa trén stækkað svo mikið að ef
þau væru keypt í þessari stærð í
verslun væru þau margfalt dýrari.
Með þessu geta þeir, sem hafa
hug á að rækta skóg, sparað sér
mikinn pening.
n Venjulegur Daim-
íspinni kostaði 428
krónur í verslun 10/11 í
Austurstræti á laugar-
daginn. Vegfarendur í
miðborginni, sem
höfðu verið að sóla sig á
Austurvelli í blíðunni, ætluðu að
svala sér með íspinna, en þegar
þeir sáu að tveir íspinnar
kostuðu tæpar 900 krónur hættu
þeir við.
n Starfsfólk ÁTVR í Austurstræti fær
lofið að þessu sinni fyrir mikla og góða
þjónustulund. Jafnvel þótt það
væri augljóslega álag á
starfsfólkinu í mannmergðinni
í miðbænum á laugardag gaf
það sér tíma til þess að sinna
viðskiptavinum sínum svo eftir
var tekið.
SEndið LOF Eða LaST Á nEYTEndur@dV.iS
Dísilolía
algengt verð verð á lítra 181,3 kr. verð á lítra 171,6 kr.
skeifunni verð á lítra 179,8 kr. verð á lítra 170,2 kr.
algengt verð verð á lítra 168,3 kr. verð á lítra 171,7 kr.
bensín
Dalvegi verð á lítra 172,6 kr. verð á lítra 163,0 kr.
fjarðarkaupum verð á lítra 172,0 kr. verð á lítra 162,3 kr.
algengt verð verð á lítra 177,8 kr. verð á lítra 168,1 kr.
umSjón: VaLgEir örn ragnarSSOn, valgeir@dv.is / neytendur@dv.is
el
d
sn
ey
t
i
„Lántökugjaldið
endurspegli kostnað“
„Fjármálafyrirtækin hafa af þessu
verulegar tekjur. Það sér það hver
maður í hendi sér að ef aðili tekur 1
milljón í lán og svo 10 milljónir í lán,
er lántökugjaldið tífallt hærra. Þetta
dregst svo frá þeirri upphæð sem fólk
fær greitt út,“ segir Jóhannes.
„Krafa okkar er að lántökugjald-
ið endurspegli þann kostnað sem
fellur á fjármálafyrirtæki við lánveit-
ingu,“ segir Jóhannes og bendir á að
í flestum tilfellum sé vinna fjármála-
fyrirtækisins við lánveitingu sú sama,
hversu hátt sem lánið er. „Þarna er
um að ræða sömu vinnu fyrir fjár-
málafyrirtækið. Verið er að að meta
greiðslugetu lántakanada og síðan
er þetta frágangur á skjölum. Það er
jafnmikil vinna ef tekin er að láni ein
milljón og hins vegar 10 milljónir.
það er að sjálfsögðu ósanngjarnt að
gera þetta á þennan máta, þetta á að
vera föst krónutala sem endurspegl-
ast í raunverulegum kostnaði,“ segir
Jóhannes.
200 þúsund strax dregnar frá
Hjá Landsbankanum er lántökugjald
á fasteignaláni 1,0 prósent. Þannig
dragast 200 þúsund krónur beint frá
höfuðstóli 20 milljóna króna láns, en
100 þúsund krónur af höfuðstóli 10
milljóna króna láns.
Hjá S:24 er lántökugjald á lang-
tímaláni alls 1,5 prósent, sem þýðir
að ef tekið er 20 milljóna króna lang-
tímalán, þá dragast strax 300 þúsund
krónur frá höfuðstól lánsins. Eins og
hjá öðrum útlánastofnunum, lækkar
lántökugjaldið eftir því sem höfuð-
stóll lánsins er lægri. Hjá Kaupþingi
er málum háttað þannig að fast-
eignalán undir 8 milljónum króna
ber 65 þúsund króna lántökugjald,
en enga prósentutölu af höfuðstóli
lánsins.
Þegar tekið er 10 milljóna króna
fasteignalán, er lántökugjaldið 0,25
prósent af þeirri upphæð, auk föstu
65 þúsund króna greiðslunnar.
Þannig dragast beint frá höfuðstóln-
um 90 þúsund krónur í lántökugjald.
Ef tekið er 20 milljóna króna lán er
lántökukostnaðurinn kominn upp
í 0,5 prósent auk 65 þúsund króna
greiðslunnar. Þannig greiðast 165
þúsund krónur í lántökugjald.
Útilokar ekki málsókn
Í Svíþjóð hefur sama fyrirkomu-
lag verið á lántökugjöldum og hér á
landi. Umboðsmaður neytenda þar í
landi taldi hins vegar að þessi háttur
væri ósanngjarn og því óréttmætur.
Hann höfðaði því mál gegn sænsku
bönkunum fyrir sérstökum mark-
aðsdómstóli. Umboðsmaðurinn
vann málið og varð niðurstaðan sú
að ólöglegt væri að reikna lántöku-
gjald sem fasta prósentutölu.
Aðspurður hvort Neytendasam-
tökin hyggist láta á það reyna fyr-
ir dómstólum hvort fyrirkomu-
laginu verði breytt hér á landi,
svarar Jóhannes Gunnarsson:
„Við áskiljum okkur allan rétt,
ef fjármálafyrirtækin sjá ekki
að sér í þessum efnum munum við
að sjálfsögðu skoða hvaða leiðir eru
færar.“
Íþyngjandi
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra,
segir að ráðuneytið hafi ekki far-
ið yfir málið, en sjálfsagt verði þetta
skoðað. „Ég vil ekki lofa neinu hver
niðurstaðan verði úr þessari skoðun,
en þetta er eitt af því sem skiptir máli,
þegar mikið er um að menn eru að
breyta lánafyrirkomulagi sínu er það
íþyngjandi að lántökugjaldið fari eft-
ir því hversu hátt lánið er. Ég treysti
mér ekki til að fullyrða um hvort það
sé lagaleg óvissa um þetta hér á landi
líkt og var í Svíþjóð,“ segir hann.
LÁNTÖKUGJALD GETUR
MARGFALDAST „Ég vil ekki lofa neinu hver niður-staðan verði úr þessari skoðun, en þetta er eitt af því sem skiptir máli...“
LántökugjaLd vegna 20
miLLjóna króna fast-
eigna- eða LangtÍmaLáns:
s:24: 300.000 krónur
Landsbanki: 200.000 krónur
kaupþing: 165.000 krónur
Íslandsbanki 200.000 krónur
vaLgeir örn ragnarssOn
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
gylfi magnússon Viðskiptaráðuneytið
mun fara yfir málið. gylfi viðurkennir að
þetta fyrirkomulag sé íþyngjandi.
jóhannes gunnarsson Vill
óréttlátt lántökugjaldakerfi burt.
vandræði Lántökugjald á 20 millj-
óna króna fasteignaláni getur verið
helmingi hærra en á 10 milljóna
króna fasteignaláni. mynd rakeL
Lántökugjald á 20 milljóna króna fasteignaláni er helmingi hærra en á 10 milljóna
króna láni, jafnvel þó sama vinna liggi að baki hjá fjármálafyrirtækinu sem lánar.
jóhannes gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, vill afnema þetta kerfi og
vísar til nýfallins dóms í Svíþjóð. Viðskiptaráðherra segir þessar reglur íþyngjandi.
Lántökugjald á 10 milljóna króna láni getur verið tífalt hærra en lántökugjald á 1
milljónar króna láni.