Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2009, Síða 14
Þriðjudagur 9. júní 200914 Umræða
Spurningin
„Ef þeir eru að reyna
að vernda
tennurnar þurfa þeir
að komast að því
hvað það er sem
skemmir tennur í
litlum 2 ára
börnum, sem eru
ekki farin að fara út í
búð,“ segir Helgi
Vilhjálmsson, forstjóri góu.
Stjórnvöld áforma að leggja sykurskatt
til að afla fjár í ríkissjóð.
Hvað finnst þér
um sykurskattinn?
Sandkorn
n Egill Helgason er ekki í tómri
afslöppun þó svo hann sé horf-
inn af skjám landsmanna í bili.
Nú spyrst síðast af honum í
Helsinki, höfuðborg Finnlands,
þar sem
hann stýrði
pallborð-
sumræðum
á ráðstefnu
á vegum
Internation-
al Press
Institute.
Þar var rætt
um norrænt lýðræði og velferð
með þátttöku Andrews Brown
frá breska blaðinu The Guardi-
an, Sixten Korkman frá finnskri
rannsóknarmiðstöð um efna-
hagsmál og Pär Nuder sem var
eitt sinn fjármálaráðherra Sví-
þjóðar. Annars eru margar kan-
ónur heimsfjölmiðlanna á þess-
ari alþjóðlegu ráðstefnu.
n Katrín Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra tók í gær til við
að kenna námskeiðið „Íslenskir
dægurlagatextar - Hver er boð-
skapur dægurtónlistarmanna?“
í Háskóla Íslands. Víst er að
ýmsir hafa haft áhuga á að læra
hjá henni um „sögu og þróun
íslenskra dægurlagatexta“. Ekki
eru þó allir á eitt sáttir. „Hvað
mun ráðherrann fá greitt fyr-
ir þessa aukavinnu sína? Eru
launakjör ráðherra ríkisstjórn-
ar Jóhönnu Sigurðardóttur svo
léleg að þeir þurfi að taka að
sér aukavinnu?“ spyr Guðbjörg
Hildur Kolbeins á bloggi sínu og
finnst betra að aðrir en ráðherrar
fái aukastörf.
n Óhætt er að segja að gærdagur-
inn hafi verið slæmur dagur fyrir
Björgólf Guðmundsson. Tvö af
helstu fyrirtækjunum sem hann
átti mikið í voru í fréttunum og
bæði fyrir allt annað en jákvæðar
fréttir. Þannig varð endanlega
ljóst að Björ-
gólfur missti
West Ham
úr hönd-
unum. Svo
lék íslenskt
þjóðfélag því
sem næst á
reiðiskjálfi út
af Icesave-
reikningunum, allavega miðað
við hitann sem var í þingmönn-
um og slagorðin sem marg-
ir mótmælendur höfðu ritað á
spjöld sín.
n Sigurjón Árnason, fyrrverandi
bankastjóri Landsbankans og
einn af höfuðsmiðum Icesave,
hefur sagt, síðast í Útvarpinu í
gær, að eignir Landsbankans
ættu að standa undir skuldbind-
ingum. Þessi orð hans virðast
þó falla í grýttan jarðveg. Þannig
hefur Illugi Jökulsson kvartað
undan því á bloggi sínu að Sigur-
jón hafi aldrei beðist afsökunar
á því í hvaða stöðu Íslendingar
eru komnir. Jónas Kristjánsson,
fyrrverandi ritstjóri, er ekki síð-
ur ósáttur við Sigurjón. „Ég skil
ekki, að fjölmiðlar skuli draga
versta sökudólg íslenzka hruns-
ins fram í dagsljósið hvað eftir
annað. Sigurjón Árnason á að
vera í fangelsi, en ekki á síðum
og skjáum fjölmiðla.“
LyngháLS 5, 110 reykjavík
Útgáfufélag: útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dv.iS
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Fyrst voru það
pottarnir, nú
verða það
golfkylfurnar.“
n Kristján B. Jónasson um borgaralegu byltingu
hægrimanna sem tekur við af búsáhaldabyltingu
síðasta vetrar. – kristjanb.blog.is
„[É]g er bara að
hugsa um sjálfan
mig og þetta er
ákvörðun sem ég
tók og verð að
standa með.“
n Theódór Elmar Bjarnason knattspyrnumaður
sem gefur ekki kost á sér í landsliðið á næstunni
eftir að hafa ekki verið í hópnum sem mætti
Hollendingum á laugardaginn. – Morgunblaðið
„Síðan fer ég
með ákveðna
reynslu úr þessu
fyrir mig.“
n Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari í
knattspyrnu, um leikinn gegn Hollandi á
laugardaginn. – Morgunblaðið
„Ég eiginlega
hálffraus í smá
tíma af því að ég
hafði svo inni-
lega ekki gert ráð
fyrir þessu.“
n Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra um það
þegar henni varð ljóst að hún væri að verða
ráðherra. – DV
„Við eigum ekki að taka
geðþóttaákvarðanir eins
og Einar K. Guðfinnsson
tók rétt fyrir stjórnarslit.“
n Atli Gíslason, formaður sjávarútvegs- og
landbúnaðarnefndar, um ákvarðanir í
fiskveiðimálum. – Fréttablaðið
Þeir seldu Ísland
Leiðari
Þegar leitað er í íslenskum fjölmiðlum árin 2006 til 2008 finnst varla snefill af gagnrýni á Icesave-
tilraun Landsbankans. Svo virð-
ist sem það hafi verið hernað-
arleyndarmál að ábyrgðin fyrir
Icesave lægi hjá íslenska ríkinu
og þar með almenningi.
Hernaðaráætlun Landsbank-
ans var eitursnjöll. Þegar bank-
inn fór að eiga erfitt með að fjár-
magna sig, vegna þess að trú
á íslenska viðskiptaundrinu
var þverrandi erlendis, ákváðu
stjórnendur bankans að selja Ís-
land. Þeir ákváðu að notfæra sér
trausta ímynd landsins og þá
óskiljanlegu aðstöðu að Íslend-
ingar sem þjóð myndu ábyrgjast
innlánin sem þeir spiluðu síðan
út í áhættuviðskiptum.
„Fótfesta fyrir frekara land-
nám“ var fyrirsögn í Viðskipta-
blaðinu 12. ágúst 2007, þar sem
ágæti Icesave var tíundað án þess
að minnast einu orði á ábyrgð ís-
lensku þjóðarinnar. Eini heim-
ildarmaður greinarinnar virtist
vera Sigurjón Árnason, banka-
stjóri Landsbankans. Þar sagði
hann frá því hvernig gera ætti út
á orðspor íslensku þjóðarinnar.
„Hjá almenningi er ímyndin sú –
sem ég held að sé hin rétta ímynd
– að Íslendingar eru spyrtir sam-
an við Skandinava og Bretar hafa
traust á þeim sökum heiðarleika
og lítillar spillingar, ... Bretar hafa
jákvæða ímynd af Íslending-
um. Þess vegna blasti við að við
myndum nota Íslandstenging-
una í markaðssetningu á vöru
sem fékk síðan nafnið Icesave.“
Rúmlega ári síðar var Icesave
hrunið, sem og orðspor íslensku
þjóðarinnar. Íslendingar verða
nú fyrir aðkasti erlendis fyrir það
eitt að vera Íslendingar, auk þess
sem íslenskir skattgreiðendur
þurfa að endurgreiða tugi eða
hundruð milljarða króna.
Það er fyrst á vormánuðum
2008 sem fréttir birtast af ábyrgð
íslensku þjóðarinnar á Icesave,
en þá í gegnum Bretland. 1. apríl
í fyrra var minnst á ábyrgð Trygg-
ingasjóðs innistæðueigenda
í Fréttablaðinu, þá í sérstakri
frétt um að erlend-
ir blaðamenn
hefðu spurst
fyrir um
hana!
Aðr-
ar frétt-
ir fram
að hruni voru jákvæðar og gagn-
rýnislausar, í það minnsta í garð
bankanna, en gagnrýnar á er-
lendar greiningardeildir.
Í fríblaðinu 24 stundum, sem
Björgólfur Guðmundsson, eig-
andi Landsbankans, niðurgreiddi
í útgáfu meðal annars með lánum
frá Landsbankanum, talar blaða-
maður við meðlim greiningar-
deildar Landsbankans og kemst
að því að meintur vandi Lands-
bankans sé í raun lítill. Hver var
ástæðan? Icesave Landsbank-
ans.
Upphafsorð greinarinnar,
sem birtist 12. október 2007, ári
fyrir hrun, voru á þá leið að gott
væri að alvarlegar veilur hefðu
fundist á Landsbankanum árið
áður: „Vegna réttra viðbragða
við gagnrýni á íslensku bank-
ana og efnahagskerfi síðasta vor
voru íslensku bankarnir betur í
stakk búnir en aðrir til að takast
á við þann óróa sem verið hefur
á alþjóðlegum fjármálamarkaði
undanfarna mánuði.“
Í öðru blaði sem Björgólfur
niðurgreiddi í útgáfu birtist grein
nokkrum dögum fyrr með niður-
stöðuna í upphafsorðunum: „Ís-
lensku viðskiptabankarnir munu
ekki lenda í neinum vandræðum
með fjármögnun sína fyrir næsta
ár.“ Sama blað hélt áfram að taka
afstöðu gegn greiningardeildum
árið 2008. Þegar greiningardeild
Moodys varaði við vanda bank-
anna í janúar það ár sagði í fyrir-
sögnum: „Um misskilning sé að
ræða hjá Moodys“ og „Vangavelt-
ur Moodys koma á óvart“.
Nánast alla umfjöllun bar
að sama brunni. Ef fram kom
gagnrýni í íslensku fjölmiðlun-
um beindist hún gegn þeim sem
gagnrýndu íslensku bankana.
Svona hélt þetta áfram allt fram
í apríl í fyrra, þegar Viðskipta-
blaðið birti harðorða varnargrein
fyrir íslenska banka undir fyrir-
sögninni „Erlendir vogunarsjóð-
ir vega að íslensku fjármálakerfi“,
þar sem vandinn var einfaldaður
í nítjándu aldar þjóðernishyggju-
stíl: „Mörgum finnst sem svo að
hagkerfi okkar hafi orðið fórnar-
lamb árásar sem enginn átti von
á. Ekki er laust við að
sumum
þyki
að
gestrisni okkar hafi verið mis-
notuð, þó undir niðri kraumi
sjálfsásökun vegna þess að þegar
allt kom til alls vorum við dálít-
ið barnaleg.“ Halda mætti að þar
væri vísað til misnotkunar inn-
lendra bankamanna á þjóðinni,
en boðskapurinn var þvert á móti
að erlendir greiningaraðilar og
vogunarsjóðir hefðu gert árás á
þjóðina.
Verk fjölmiðlanna sýna að þeir
tóku markvisst afstöðu með þeim
sem áttu fjölmiðlana eða þeim
sem auglýstu í fjölmiðlunum.
Stjórnmálamennirnir tóku líka
markvisst afstöðu með þeim sem
styrktu þá. Útrásarvíkingar seldu
Ísland ekki einir. Þeir fengu hjálp
frá útrásargrúppíum viðskipta-
blaða og stjórnmála.
Það kann að hafa verið tilviljun
að stjórnmálamennirnir studdu
svo dyggilega við bakið á þeim
sem seldu Ísland, beint í kjölfar
þess að sömu aðilar dældu tugum
milljóna á laun í vasa flokkanna
sem áttu að passa upp á þjóð-
ina. Það kann líka að hafa verið
tilviljun að ungum og efnilegum
meðlimum Sjálfstæðisflokksins
var raðað inn í Landsbankann.
Kannski var það líka tilviljun að
ráðuneytisstjóri fjármálaráðu-
neytisins, Baldur Guðlaugsson,
átti hlutabréf í Landsbankanum.
Hann seldi að vísu bréfin eftir að
hafa átt fund með Alasdair Dar-
ling, fjármálaráðherra Bretlands,
um erfiðleika bankans, því hon-
um þótti „óheppilegt starfs síns
vegna að eiga bréf í Landsbank-
anum“. Aðrir myndu segja að það
hafi verið mjög heppilegt fyrir
Baldur að selja bréfin tveimur
vikum fyrir hrun bankans. Til að
bæta gráu ofan á svart hefur ann-
aðhvort hann eða Björgvin G. Sig-
urðsson viðskiptaráðherra sagt
ósatt um efni fundarins með Dar-
ling. Björgvin sagði allan fundinn
hafa snúist um Landsbankann,
Baldur sagði þvert á móti ekki. Í
það minnsta annar þeirra hafði
mikla hagsmuni af því að segja
ósatt.
Ísland var hvorki traust né
laust við spillingu. Það var þvert
á móti ótraust og spillt. Seðla-
bankinn hélt stýrivöxtum
háum og gagnrýni í lág-
marki. Fjármálaeftir-
litið var eftirlitslaust.
Ríkisstjórnin breytt-
ist í útrásargrúpp-
íu og fjölmiðlarn-
ir með. Hver ber
ekki ábyrgð á Ic-
esave væri réttast
að spyrja. Eins kald-
hæðnislegt og það
er bera þeir
einir byrðina
vegna Icesave, sem bera enga
ábyrgð á því hvernig fór, það er
fólkið í landinu. Formaður Sjálf-
stæðisflokksins og fleiri sem reið-
ast Versalasamningunum nú
mættu hins vegar athuga hverj-
ir fleiri bera ekki ábyrgð á Icesa-
ve. Meðal þeirra er Steingrímur J.
Sigfússon, sem fékk það hlutverk
að innsigla fjárnámið í þjóðinni.
Hins vegar má þjóðin ekki tapa
því sem hún hefur þrátt fyrir allt
öðlast við það að vera framseld:
Efinn gagnvart yfirvöldum, fjöl-
miðlum, bankamönnum og öðr-
um valdaaðilum, hvort sem þeir
heita Geir Haarde eða Steingrím-
ur J. Fólk ætti að varðveita efann
og gagnrýnina til að láta ekki
blekkjast aftur af þeim sem selja
frelsið, því þegar allt kemur til alls
verndar enginn hagsmuni fólks
betur en það sjálft.
Jón trausti reynisson ritstJóri skrifar. Þeir fengu hjálp frá útrásargrúppíum viðskiptablaða og stjórnmála.
bókStafLega