Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2009, Qupperneq 17
CB Holding, félag í meirihlutaeigu
Straums-Burðaráss, tók í gær yfir
eignarhaldsfélagið WH Holding
Ltd. og dótturfyrirtæki þess en eitt
þeirra var enska úrvalsdeildarlið-
ið West Ham United. Eignarhalds-
félagið Hansa, í eigu útrásarvíkings-
ins Björgólfs Guðmundssonar, var
stærsti eigandi West Ham með 75%
hlut. Straumur var hins vegar stærsti
kröfuhafi Hansa sem hefur verið í
greiðslustöðvun en hún átti að renna
út í gær.
Björgólfur steig því af stóli sem
stjórnarformaður félagsins, starfi
sem hann hafði sinnt síðan hann rak
Eggert Magnússon úr starfi. Ásgeir
Friðgeirsson lét einnig af störfum
sem varaformaður. CB Holding mun
þó halda áfram að styðja núverandi
framkvæmdastjórn til áframhaldandi
starfa og verður Andrew Bernhardt,
framkvæmdastjóri hjá Straumi,
stjórnarformaður West Ham. Ævin-
týrum Björgólfs sem knattspyrnu-
frömuður er því lokið í bili.
Lofuðu öllu fögru
„Ég geri mér að fullu grein fyrir þeirri
persónulegu ábyrgð sem fylgir stöðu
stjórnarformanns West Ham og ég
heiti starfsfólki og leikmönnum að
ég sé hér til að þjóna og gera allt sem
ég get til þess að ná árangri, bæði
innan og utan vallar,“ voru orð
Eggerts Magnússonar, sem
keypti West Ham
ásamt Björgólfi
á 85 milljónir
punda, eða
þrett-
án milljarða króna í nóvember árið
2006. Tekið skal strax fram að krónu-
tölur sem eftir fylgja miða við gengi
pundsins á þeim tímum sem kaup og
sölur voru gerð.
Eggert var gerður að stjórnarfor-
manni og sá um daglegan rekstur á
meðan Björgólfur átti peninginn og
fékk titilinn heiðursformaður. Strax
varð Eggert með sitt keppnisskap og
vilja til að gera vel mjög vinsæll hjá
stuðningsmönnum félagsins. Vant-
aði heldur ekkert upp á metnað Egg-
erts sem reyndi að fá alla bestu mögu-
legu leikmenn til félagsins. Kappið
varð hins vegar eiginlega alltaf meira
en forsjáin og urðu ákvarðanir hans
West Ham dýrar að lokum.
Tveir stjórar á brott
Þrátt fyrir að hafa peningamenn á
bak við sig gekk hvorki neitt né rak
hjá Alan Pardew, þáverandi stjóra
liðsins, og var liðið komið í þriðja
neðsta sæti um miðbik móts eftir 4-
0 tap gegn Bolton og verðandi Eng-
landsmeistarar Manchester United á
leiðinni í heimsókn. Eggerti var nóg
boðið og rak Pardew. Eftir það rifust
þeir í fjölmiðlum en Pardew var afar
ósáttur við brottrekstur sinn. Nú síð-
ast seint á síðasta ári sat hann fyrir
svörum í morgunþætti um fótbolta
á Sky-sjónvarpsstöðinni og vægast
sagt hraunaði yfir Eggert. Sagði það
hreint út að allt slæmt sem hefði
gerst hjá félaginu væri honum og
hans ákvörðunum að kenna.
Uppaldi West Ham-maðurinn
Alan Curbishley tók
við liðinu en
hann hafði
áður náð
mögnuðum
árangri með
Charlton
og gert það að stabílu úrvalsdeild-
arliði svo um munaði. Hann yfirgaf
þó einnig West Ham eftir deilur við
stjórnina. Var hann afar ósáttur við
að leikmenn væru seldir án hans
vitneskju en í raun þurfti og þarf
West Ham að gera hvað það getur í
þeim málum til þess að rétta við fjár-
haginn, meðal annars eftir kaupæði
Eggerts.
Ofborgaðir meðalmenn
Eins og áður segir vantaði ekkert upp
á metnað Eggerts í að semja við leik-
menn. Suma leikmenn hirti hann
meðal annars fyrir framan nefið á
stórliðum ensku úrvalsdeildarinnar
sem höfðu ekki roð í peningana sem
Eggert var með á bak við sig. Má líka
segja að skynsemi annarra liða hafi
þar ráðið ferðinni. Besta dæmið um
þetta er ástralski varnarmaðurinn
Lucas Neill sem Liverpool ætlaði sér.
Liverpool er sagt hafa boðið honum
mjög eðlilegan samning miðað við
aldur, getu og fyrri störf en Eggert yf-
irbauð það svo um munaði. Fær Neill
um 250 milljónir króna í árslaun en
annað eins borgaði West Ham fyrir
hann.
Ótrúlegustu menn hafa fengið
ótrúlegustu upphæðir fyrir störf sín
hjá West Ham. Hinn arfadapri Nig-
el Quashi var keyptur fyrir 250 millj-
ónir króna og fékk aðrar 200 milljón-
ir í laun. Framherjinn Carlton Cole
sem aldrei hafði neitt gert kost-
aði 300 milljónir og fékk fær tæpar
200 milljónir í laun á ári. Luis Boa
Morte var keyptur á 750 milljónir
og fær á fjórða hundrað milljón-
ir í laun á ári. Vandræðagemsinn
Craig Bellamy var einnig keyptur
á tæpan milljarð króna og fékk vel
á fimmta hundrað milljóna króna
í laun á ári. Quashie lék aðeins
nokkra leiki fyrir félagið, Boa Morte
hefur verið gagnslaus, Bellamy var
meira og minna meiddur og svona
hefur sagan meira og minna verið.
Dýr.
Rándýr fyrirsæta
Þau kaup sem eru sérkapítuli út af
fyrir sig er þegar Eggert Magnússon
ætlaði heldur betur að slá um sig á
leikmannamarkaðinum. Fékk hann
Freddie Ljungberg til liðsins frá Ars-
enal fyrir 450 milljónir en Arsen-
al-menn voru meira en ánægðir að
losna við hann fyrir þá fjárhæð enda
Svíinn sæti farinn að dala. Rökstuddi
Eggert meðal annars kaupin með því
að hann væri svo góð fyrirsæta. Með
örfáa leiki á bakinu var gerður starfs-
lokasamningur við Ljungberg svo
hann myndi ekki kosta West Ham
meira en hann gerði. Starfslokasamn-
ingur upp á einn milljarð króna. Það
er vægt til orða tekið þegar sagt er að
Ljungberg borgaði sig ekki.
Coke-skiltið rekið
Eggert Magnússon naut sín mikils
í stjörnudýrkuninni og glamúrnum
í kringum enska boltann. Í grein í
Mannlífi á síðasta ári er sagt frá ein-
um leik þar sem Björgólfi ofbauð
peningaeyðsla Eggerts. Björgólfur
bauð þá félögum sínum úr KR á leik
á Emirates-vellinum þar sem West
Ham lagði Arsenal, 1-0. Björgólfur
leigði rútu fyrir sig og sína en þeg-
ar rútan yfirgaf leikvanginn sá hann
þrjá svarta eðalvanga yfirgefa leik-
vanginn á sama tíma. Í þeim fyrsta
sat Eggert Magnússon sem hafði leigt
alla þrjá eðalvagnana á kostnað West
Ham. Sjálfur var hann, aðaleigand-
inn, í rútu.
Björgólfur hafði haft það á orði að
Eggert væri meira sem tákn félags-
ins og ein frægustu orðin voru lát-
in falla þegar hann líkti Eggerti við
Coke-skilti. Þetta og annað varð til
þess að Eggert var látinn fara. Egg-
ert vildi vel en svo má alveg telja að
ein mestu mistök Björgólfs hafi ver-
ið að láta Eggert fara mun fyrr. Það er
þó eflaust alltaf erfitt að losa sig við
vini sína.
Tapið mikið
West Ham gekk ágætlega peninga-
lega áður en peningamennirnir frá
Íslandi komu til skjalanna svo skrýt-
ið sem það hljómar. Á síðasta starfs-
ári félagsins fyrir komu Björgólfs og
Eggerts græddi félagið um milljarð
en tapaði þremur og hálfum árið eftir
undir forystu Íslendinganna. Launa-
kostnaður í umsjón Eggerts hækkaði
um tvo milljarða og annar kostnað-
ur um aðra tvo. Var þar dýrast 750
milljóna króna greiðslan vegna Tev-
ezar-málsins fræga sem var kannski
eina vandamálið sem Íslendingarnir
ullu ekki. Félagið er áfram í íslenskri
eign CB Holding en með Breta sem
stjórnarformann.
Þriðjudagur 9. júní 2009 17Sport
Framtíðarliðið leikur gegn austurríki B-landslið karla í handbolta, hið svo-
kallaða 2012-landslið, leikur æfingaleik gegn austurríki í Vodafone-höll Valsmanna að Hlíðarenda
í kvöld. Kristján Halldórsson, íþróttastjóri HSí og þjálfari 2012-liðsins, valdi fimmtán leikmenn
til þess að taka þátt í hópnum. Tveir óþekktir markverðir eru í liðinu, þeir arnór Stefánsson sem
leikur með 1. deildarliði ír og aron Eðvarsson sem er þriðji markvörður Hauka og hefur leikið
með ungmennaliði félagsins, einnig í 1. deild. Silfurmeistarinn úr sænsku úrvalsdeildinni,
Haukur andrésson, var einnig valinn en hann leikur undir stjórn bróður síns, Kristjáns, hjá
guif í Svíþjóð. í liðinu má einnig finna þekkt nöfn úr n1-deildinni á borð við Kára Kristján
Kristjánsson úr Haukum, arnór gunnarsson úr Val og samherja hans Elvar Friðriksson.
umSjón: TómaS Þór ÞórðarSon, tomas@dv.is
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Björgólfur Guðmundsson lét í gær af störfum sem stjórnarformaður West Ham og Ásgeir Friðgeirsson sem
varaformaður. Félag í eigu Straums-Burðaráss tók yfir félag Björgólfs sem átti West Ham og verður hann að
láta sér nægja að fylgjast með West Ham úr fjarlægð eftir ríflega tvö ár sem peningamaður félagsins.
úti e Ævi týri
Ein versta ákvörðunin Eggert magn-
ússon ofborgaði Freddie Ljungberg svo
um munaði. MYND GETTY
Góðærið endanlega búið
Björgólfur missti West Ham í gær
endanlega og lét af störfum sem
stjórnarformaður. MYND AFP
Carlos Tevez
Bjargaði liðinu en
var því dýr.
Alan Curbishley
Yfirgaf West Ham
ósáttur.
Alan Pardew Var
rekinn og þolir
ekki Eggert.