Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2009, Side 22
Þriðjudagur 9. júní 200922 Fólkið
Þeir Sigmar Vilhjálmsson og
Jóhannes Ásbjörnsson betur
þekktir sem Simmi og Jói hafa
gefið frá sér lagið Ferðalagið og á
Facebook er lagið kallað óður til
allra þeirra Íslendinga sem ætla
að verja sumarfríinu heima á
Íslandi í sumar. Textinn er sung-
inn við norska Eurovision-lag-
ið Fairytale og hljómar viðlagið
svona: „Ég ætla að ferðast inn-
anlands þó það komi snjór. Með
fellihýsi og klappstóla og kæli-
boxið fullt af bjór.“ Simmi og Jói
hittu naglann beint á höfuðið.
Sumarið 2009 í hnotskurn.
Blanco dregur
hana í vinnuna
„Mér fannst þörf á útvarpsþætti þar sem talað er
um alla þá jákvæðu hluti sem eru að gerast og
þá jákvæðu hluti sem þurfa að gerast, nú þegar
við erum að verða búin að sökkva okkur allt of
langt í svartagallsrausið,“ segir Dofri Hermanns-
son, leikari og varaborgarfulltrúi, sem á fimmtu-
daginn byrjar með nýjan útvarpsþátt á Útvarpi
Sögu. Þátturinn heitir Fimmtudagssíðdegi með
Dofra Hermannssyni og verður á dagskrá á milli
klukkan 17 og 18 í sumar.
Dofri ætlar bæði að fá til sín gesti og opna
fyrir símann. Fyrst neikvæðni er alls ekki í fyr-
irrúmi í þáttunum má velta fyrir sér hvort skellt
verði umsvifalaust á þá innhringjendur sem
byrja með einhvern barlóm. Dofri segir svo ekki
vera. „En þeir verða kannski spurður hvað þeir
ætli að gera í málunum. Það er eiginlega ástæð-
an fyrir því að ég fór út í pólitík. Ég var að halda
neikvæða ræðu í matarboði fyrir nokkrum árum
og þegar henni lauk var stungið hressilega upp í
mig þegar ég var spurður hvað ég ætlaði svo að
gera í málinu. Í kjölfarið tók ég þátt í prófkjöri
Samfylkingarinnar.“
Í þættinum verður talað um allt milli himins
og jarðar en einkum um atvinnulífið, umhverfis-
málin og velferð karla. Síðasttalda viðfangsefn-
ið er ekki síst tilkomið vegna þeirrar staðreyndar
að strákar lenda frekar í vandræðum en stelpur.
„Einhver önnur ástæða en bara hormónar hlýt-
ur að liggja þar að baki. Konur hafa verið mjög
duglegar að vinna í sínum málum en ég held að
við karlar höfum ekki verið duglegir að vinna í
okkar málum,“ segir Dofri sem vonast til að þátt-
urinn verði að minnsta kosti innlegg í að koma
þeim málum í ögn betri farveg, sem og í fleiri að-
kallandi málum sem snerta þjóðina.
kristjanh@dv.is
Sumarið í
hnotSkurn
Leikarinn og varaborgarfuLLtrúinn Dofri Hermannsson gerist útvarpsmaður:
Óvenjulegur fararskjÓti dýralæknis:
„Landsliðsmenn á fylliríi,“ er yf-
irskrift pistils Steingríms Sævarrs
Ólafssonar, fyrrverandi frétta-
stjóra á Stöð 2, í pistli sínum á
fréttavefnum pressan.is. Lýsir
hann þar yfir óánægju sinni
með drykkjuskap landsliðs-
manna Íslands eftir tapleikinn
gegn Hollandi og hefur hann
miklar áhyggjur af standi manna
í næsta leik á miðvikudaginn
kemur í Makedóníu. „Samt var
bærinn fullur af landsliðsmönn-
um í gær,“ skrifar Steingrímur en
tekur þó fram engin nöfn. Vissu-
lega sást til Hermanns Hreiðars-
sonar og Arons Einars Gunnars-
sonar á knæpum bæjarins en
þeir eru í banni í næsta leik og
því komnir í verðskuldað sumar-
frí. Alls eru þrír leikmenn í banni
og aðrir tveir meiddir þannig að
nóg af landsliðsmönnum voru
löglega afsakaðir á laugardags-
kvöldið.
löglegir
á djamminu
hvað ætlar þú að gera í málinu?
„Hann dregur mig bara út um allar
trissur,“ segir Kolbrún Arna Sigurðar-
dóttir, hundaeigandi í Kópavoginum.
Hún og husky-hundurinn hennar
Múla Blanco Islandus eru miklir vin-
ir og segir Kolbrún að honum finnist
fátt skemmtilegra en að draga hana
út um allan bæ. Blanco er þriggja ára
og hefur stundað þetta sport frá eins
árs aldri.
„Síðasta sumar fórum við frá
Kópavogi í Garðinn á Suðurnesjum í
einum rikk, þetta voru einhverjir tæp-
ir 70 kílómetrar. Ég sat bara á hjólinu
en varð reyndar pínu þreytt í úlnlið-
unum eftir að ýta á bremsurnar, en
hann blés ekki úr nös,“ segir Kolbrún.
Hún setur Blanco í dráttarbeisli sem
hún bindur svo við reiðhjólið sitt og
svo dregur hann hana. „Þegar hann
var yngri byrjaði ég á því að kenna
honum skipanir, svo hann vissi hvert
hann ætti að fara og hvað hann ætti
að gera.“ Hún segir að Blanco hafi
byrjað ungur að draga hluti. „Hann
byrjaði sem smá patti að draga spýt-
ur og aðra hluti. En á sumrin læt ég
hann oft draga dekk, stór bíladekk, til
að halda honum í formi.“
Kolbrún segir að Blanco finnist
fátt skemmtilegra en að fara út að
draga hana, enda sé hann sleðahund-
ur frá Síberíu. „Honum finnst þetta
skemmtilegast í heimi. Hann fær
rosalega mikla útrás og hann er vel
þreyttur eftir átökin.“ Kolbrún á ann-
an hund af rottweiler-tegund sem
leggur Blanco stundum lið í styttri
ferðum. En er rottweiler-hundurinn
ekkert öfundsjúkur út í Blanco að fá
að draga húsmóðurina á heimil-
inu? „Nei, hann er aðallega
bara móðursjúkur, hann er
svo passasamur og finnst
þetta stundum svolítið
hættulegt þegar Blanco
er að þeysast um
með mig á
mikl-
um hraða,“ segir Kolbrún hlæjandi.
Eftir að bensínverðið rauk upp síð-
asta sumar fannst henni hagkvæmt
að slá tvær flugur í höggi, láta hann
draga sig í vinnuna og um leið spara
pening í bensín.
Aðspurð hvort fólki úti á götu finn-
ist eðlilegt að sjá hund draga hana og
aðra hluti á eftir sér segir hún að fólk
hafi látið í sér heyra. „Fólk hefur oft
miskilið þetta. Ég hef oft ver-
ið stöðvuð af smáhunda-
eigendum úti á götu
sem vilja kæra mig
fyrir dýraníð, þetta
lítur kannski ekki
skemmtilega út, en
honum finnst þetta
alveg skemmtilegast
í heimi.“ Blanco étur
hundafóður dags-
daglega en þarf sér-
stakt fóður vegna þess
að hvutti er í gífurlegri
þjálfun. „Honum er svo
verðlaunað eftir hvern
hjólatúr með lifrar-
pylsu. Hann verður
að vita að þegar
hann er búinn
að vinna fyr-
ir sínu fær
hann verð-
laun,“ seg-
ir Kolbrún
kát.
Kol-
brún
segir
hundinn ekki vera svipaðan þeim
sem lifa á Grænlandi. Þeir hund-
ar séu miklu stærri og sterkari og
ekki eins miklir mannvinir, einung-
is vinnuhundar. Husky-tegundin
er komin frá Síberíu og getur dreg-
ið byrðar dögum saman með lítinn
forða. Hér áður fyrr voru hundarnir
alltaf inni hjá indíánunum sem settu
stundum hundana ofan í svefnpok-
ann hjá börnunum og notuðu þá
sem hitapoka. „Þannig að þeir eru
alveg rosalega barngóðir og gæf-
ir hundar,“ segir Kolbrún og
bendir á að í kringum 200
hundar séu hér á landi.
„Það eru margir sem
lenda í vandræðum
með hundana sína
vegna
þess þeir hafa ekki réttu kunnátt-
una til að láta þá draga og svoleiðs,
þá verða þeir oft ómögulegir inni
á heimilinu.“ En hún segir þó að
ákveðinn hópur sé byrjaður að láta
hundana draga sig og vonar að fleiri
fylgi í kjölfarið.
bodi@dv.is
sæt saman Kolbrún og Blanco eru
góðir vinir og finnst fátt skemmtilegra
en að fara hjólreiðatúr saman
mynD rakel ósk
Dofri Hermannsson Leikari, varaborg-
arfulltrúi og núna útvarpsmaður. dofri er
jafnframt hjólreiðakappi mikill.