Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2009, Side 2
Þriðjudagur 7. júlí 20092 Fréttir
Margir af fyrrverandi stjórnendum
Kaupþings, sem fengu stór lán til
hlutabréfakaupa í bankanum, fengu
líka fasteignalán hjá Kaupþingi.
Nokkur fjöldi þeirra færði fasteign-
ir sínar yfir á maka sína nokkru fyr-
ir bankahrunið og aðrir nokkrum
dögum eftir bankahrunið. Eins og
fram hefur komið voru persónuleg-
ar ábyrgðir starfsmanna Kaupþings
vegna hlutabréfalána felldar niður
25. september 2008.
Ekki er vitað til þess að beiðni um
gjaldþrotaskipti einstakra starfs-
manna Kaupþings, sem DV hef-
ur fjallað um að undanförnu, hafi
farið fram. Ef slík væri raunin væri
hægt að ganga að fasteignum starfs-
manna. Auk þess væri hægt að rifta
svokölluðum gjafagjörningum sem
virðast hafa átt sér stað hjá nokkr-
um af stjórnendum Kaupþings eft-
ir bankahrunið. Ekki hefur fengist
staðfest hvort einhver af þessum lán-
um séu svokölluð kúlulán. Sigurjón
Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri
Landsbankans, fékk sem kunnugt
er tvö kúlulán úr eigin lífeyrissjóði
annað upp á 40 milljónir króna og
hitt upp á 30 milljónir króna.
47 milljóna lán
Hannes Frímann Hrólfsson, fyrr-
verandi aðstoðarframkvæmdastjóri
fjárstýringar- og markaðsviðskipta
Kaupþings, færði fasteign sína í
Kvistalandi 5 yfir á Hörpu Guðjóns-
dóttur 13. október 2008. Fyrir þann
tíma var hún skráð á þau bæði. Á
húsinu hvíla tvö lán frá Kaupþingi.
Eitt upp á 30 milljónir og annað upp
á 17 milljónir. Enginn gjalddagi er
gefinn upp á lánunum líkt og hjá
flestum af fyrrverandi stjórnendum
Kaupþings. Það hefur hins vegar
ekki fengist staðfest hvort um kúlu-
lán sé að ræða eða ekki. Á þinglýstu
bréfi á Bjarka H. Diego fyrir fasteign
í Lálandi 5 í Reykjavík kemur held-
ur ekki fram hver lánstími og vext-
ir eru. Bjarki færði fasteignina yfir
á Svanhvíti Birnu Hrólfsdóttur 16.
október 2008. Hins vegar færði hann
hana yfir á sjálfan sig aftur 3. febrúar
2009. Í samtali við DV í febrúar sagði
Bjarki að hann og eiginkona hans
væru aftur bæði skráð fyrir eigninni
eftir að hann fékk staðfest að hann
væri ekki berskjaldaður fyrir kröfum
vegna starfa hans í skilanefnd Kaup-
þings.
Lán Kristjáns innkallað
Kristján Arason og Þorgerður Katr-
ín Gunnarsdóttir fluttu nýverið í
nýtt húsnæði í Mávahrauni 7 í Hafn-
arfirði. Áður bjuggu þau á Tjarnar-
braut 7 í Hafnarfirði en FM-hús ehf.
er í dag skráð fyrir eigninni. Á Máva-
hrauni 7 er áhvílandi 30 milljóna
króna lán frá Kaupþingi. Lánið var
annas sigmundsson
blaðamaður skrifar: as @dv.is
Flestir af fyrrverandi stjórnendum Kaupþings fengu fasteignalán hjá Kaupþingi auk
lána til hlutabréfakaupa. Ekki hefur fengist staðfest hvort einhver þeirra hafi fengið
kúlulán fyrir fasteignakaupum. 30 milljóna króna fasteignalán Kristjáns arasonar frá
2006 var innkallað af Kaupþingi og hefur ekki verið sent aftur til þinglýsingar. ingvar
Vilhjálmsson gerði tengdamóður sína að meðeiganda þegar úrvalsvísitalan fór að falla.
Hannes Frímann Hrólfsson, fyrrverandi
aðstoðarframkvæmdastjóri fjárstýringar- og
markaðsviðskipta Kaupþings:
30 og 17 milljóna króna lán frá Kaupþingi fyrir
fasteign að Kvistalandi 5 í reykjavík.
Færði fasteignina yfir á Hörpu guðjónsdóttur 13.
október 2008.
Kristján arason, fyrrverandi framkvæmdastjóri
einkabankaþjónustu í Kaupþingi:
30 milljóna króna lán frá Kaupþingi fyrir fasteign að
Tjarnarbraut 7 í Hafnarfirði. Síðar fært yfir á Máva-
hraun 7 í Hafnarfiði.
steingrímur Páll Kárason, fyrrverandi yfirmað-
ur áhættustýringar Kaupþings:
30 milljóna króna íslenskt verðtryggt lán frá Kaup-
þingi fyrir fasteign í Hamravík 66 í reykjavík.
Frosti Reyr Rúnarsson, fyrrverandi forstöðu-
maður verðbréfamiðlunar Kaupþings:
19 og 12 milljóna króna íslensk verðtryggð lán frá
Kaupþingi fyrir fasteign í Faxahvarfi 12.
Færði fasteignina yfir á guðmundu Ósk Kristjánsdótt-
ur 13. október 2008.
ingólfur Helgason, fyrrverandi forstjóri
Kaupþings á Íslandi:
25 milljóna króna íslenskt verðtryggt lán frá Kaup-
þingi fyrir fasteign í Fákahvarfi 12 í Kópavogi.
Bjarki H. diego, fyrrverandi framkvæmdastjóri
fyrirtækjasviðs Kaupþings. sat í skilanefnd
Kaupþings:
24,5 milljón króna lán frá Kaupþingi fyrir fasteign í
lálandi 5 í reykjavík.
Færði fasteignina yfir á Svanhvíti Birnu Hrólfsdóttur
16. október 2008. Fært aftur yfir á Bjarka 3. febrúar
2009.
guðni níels aðalsteinsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri fjárstýringar Kaupþings banka.
situr í skilanefnd Kaupþings:
Fékk 21 milljónar króna lán í svissneskum frönkum
hjá Kaupþingi fyrir fasteign á Blikaási 17 í Hafnarfirði.
Helgi sigurðsson, fyrrverandi yfirlögfræðingur
Kaupþings:
14,5 milljóna króna verðtryggt íslenskt lán frá
Kaupþingi fyrir fasteign í Haðalandi 16 í reykjavík.
Skráð yfir á Ólöfu Finnsdóttur 31. janúar 2006.
svali Björgvinsson, fyrrverandi starfsmanna-
stjóri Kaupþings:
13,5 milljóna króna verðtryggt íslenskt lán frá
Kaupþingi fyrir fasteign að Kringlunni 25.
Skráð yfir á ingu Sigrúnu jónsdóttur 11. júlí 2006.
ingvar Vilhjálmsson, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri markaðsviðskipta Kaupþings:
Ekkert er áhvílandi á fasteigninni á Skildinganesi 12 í
reykjavík.
Birna geirsdóttir, tengdamóðir ingvars varð skráður
meðeigandi 27. júlí 2007. ingvar færði fasteignina 13.
október 2008 yfir á eiginkonu sína Helgu Maríu garð-
arsdóttur og tengdamóður sína Birnu geirsdóttur.
Þórarinn sveinsson, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri eignastýringar Kaupþings:
Þriggja milljóna lán frá SPrON og sex milljóna króna
lán frá íbúðalánasjóði.
Fasteignin á Sæbraut 21 á Seltjarnarnesi var keypt af
eiginkonu hans 13. ágúst 2008. Þórarinn hefur aldrei
verið skráður fyrir henni.
KúlulánafólK forðar
fasteignum sínum
lán
aB
óK
Ka
uP
Þin
gs
4. h
lu
ti