Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2009, Blaðsíða 12
Að minnsta kosti eitt hundrað og
fjörutíu manns voru drepnir í upp-
þotum í Urumqi, höfuðborg Xinji-
ang-héraðs í norðvesturhluta Kína.
Yfirvöld í Kína skella skuldinni af
uppþotunum á útlæga múslímska
aðskilnaðarsinna, en uppþotin eru
hin verstu af toga þjóðernistogstreitu
í fjölda ára.
Samkvæmt opinberu fréttastof-
unni Xinhua voru hundruð óeirða-
seggja handtekin í kjölfar þess að úig-
úar flykktust út á götur borgarinnar
með grjótkasti. Einnig var eitthvað
um að kveikt væri í bifreiðum eða
þær eyðilagðar með öðrum hætti og
lét óeirðalögreglan til sín taka. Hátt í
þúsund manns hafa særst.
Áfall fyrir ímynd stjórnvalda
Uppþotin eru talin vera til merkis um
hina miklu þjóðernisspennu sem fylgt
hefur hröðum hagvexti í Kína, en að
sögn óháðra greina er ólíklegt að ólg-
an í héraðinu, sem er auðugt af nátt-
úruauðlindum, komi til með að hafa
áhrif á efnahag landsins, enda hérað-
ið afskekkt og sætir aðgangstakmörk-
unum, en ímynd stjórnvalda í Peking
kann hins vegar að hafa beðið hnekki
sem yfirvalda.
Arthur Kröber, forstjóri rannsókn-
ar- og ráðgjafarfyrirtækisins Drag-
onomics í Peking, sagði í viðtali við
fréttaveitu Reuters að þess væru eng-
in merki að yfirvöld í Peking væru að
missa tökin.
Við upphaf sunnu-
dagsmarkaðar
Nokkrum dögum fyrir uppþotin höfðu
átt sér stað árekstrar á milli úigúa og
Han-Kínverja í leikfangaverksmiðju í
Guangdong-héraði sem kostuðu tvö
mannslíf auk þess sem um tvö hundr-
uð manns lágu sárir eftir.
Ekki liggur ljóst fyrir hvað varð
kveikjan að uppþotunum núna en
leiddar hafa verið að því líkur að þau
hafi hafist um svipað leyti og vinsæl-
ir sunnudagsmarkaðir hófust en þá
koma þúsundir úigúa til bæja og fal-
bjóða ær, geitur og hross.
„Lykilmenn“ handteknir
Það var ekki fyrr en eftir að uppþotin
höfðu staðið í nokkrar klukkustund-
ir að óeirðalögreglan náði tökum á
ástandinu með fulltingi táragass og
skotvopna.
Á meðal hinna handteknu eru
fleiri en „tíu lykilmenn sem kyntu
undir ólgunni“, sagði á Xinhua, og
leitaði lögreglan níutíu lykilmanna að
auki sem grunaðir eru um að standa
að baki óeirðunum, sem eru þau
verstu síðan herinn braut á bak aftur
mótmælin á Torgi hins himneska frið-
ar árið 1989.
Fréttastofa Reuters hefur eftir hátt-
settum embættismanni að ólgan sé
runnin undan rifjum öfgasinnaðra
afla á erlendri grundu og um sé að
ræða skipulagðan og fyrirfram ákveð-
inn ofbeldisglæp.
Spá meira mannfalli
Sem fyrr segir höfðu í gær í það
minnsta eitt hundrað og fjörutíu látið
lífið vegna uppþotanna og spáir lög-
regla að sú tala eigi eftir að hækka.
Ekki liggur ljóst fyrir með hvaða hætti
dauða flestra fórnarlambanna bar að
höndum.
Samkvæmt fregnum frá einu
sjúkrahúsi er stærstur hluti þeirra sem
þangað hafa leitað Han-Kínverjar.
Úigúa-múslímar eru stærsti þjóð-
flokkurinn sem borinn er og barn-
fæddur í Xinjiang, en fjöldi Han-Kín-
verja hefur flutt til héraðsins í von um
hagnað vegna olíu- og gasauðlinda
þess og hefur það valdið gremju á
meðal úigúa. Úigúar í Xinjiang-héraði
telja um 20 milljónir, en Han-Kínverj-
ar eru stærsti hluti íbúa höfuðborgar-
innar, Urumqi.
Raðmorðingi leikur lausum hala í
Cherokee-sýslu í Suður-Karólínu í
Bandaríkjunum og var síðasta fórn-
arlambið fimmtán ára stúlka, Abbey
Leigh Tyler. Abbey, sem lést á laugar-
dagsmorgni, tveimur sólarhringum
eftir að hún særðist, og faðir hennar
voru skotin til ólífis þegar þau voru
að loka fjölskyldufyrirtækinu í smá-
bænum Gaffney.
Lögreglan hefur tengt dauða
feðginanna við þrjár aðrar skotárás-
ir sem allar áttu sér stað innan sex-
tán kílómetra radíuss í Cherokee-
sýslu.
Að sögn Bills Bolanton, lög-
reglustjóra Cherokee-sýslu, er
nú talið öruggt að um raðmorð-
ingja sé að ræða og er leit hagað
samkvæmt því. Morðhrinan hófst
laugardaginn 27. júní, þegar Kline
Cash, sextíu og þriggja ára ferskju-
bóndi, fannst skotinn til bana á af-
skekktu býli sínu í Cherokee-sýslu.
Það var eiginkona hans sem fann
líkið af honum.
Á miðvikudaginn fundust Gena
Linder Parker, fimmtug, og Hazel
Linder, áttatíu og þriggja ára móðir
Genu, bundnar og skotnar til bana
á heimili Hazel í örfárra kílómetra
fjarlægð frá býli Cash.
Skotvopnasala í sýslunni hefur
tekið kipp er skelkaðir og tauga-
óstyrkir íbúar vopnast, en Cher-
okee-sýsla er allajafna friðsamlegt
samfélag.
Þrátt fyrir að lögreglan hafi
tengt morðin hefur hún ekki viljað
segja með hvaða hætti þau tengsl
eru og hefur ekki viljað fullyrða um
ástæður morðanna.
þriðjudagur 7. júlí 20096 Fréttir
KoLbeinn þorSteinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Lögregluteikning Svona lítur morðinginn út að mati lögreglunnar.
Mynd: LögregLueMbætti CheroKee-SýSLu
Íbúar Cherokee-sýslu í Bandaríkjunum vopnvæðast:
raðmorðingi leikur lausum hala
Varar við
„krepptum
hnefa“
Ali Khamenei, æðsti klerkur
Írans, segir að Vesturlönd muni
finna fyrir „krepptum hnefa“ ef
þau „blandi sér í“ innanríkismál
landsins.
„Leiðtogar hrokafullra þjóða,
sem blanda sér í málefni hins
íslamska lýðveldis, skulu vita
að burtséð frá því hvort íranska
þjóðin glími við eigin ágrein-
ingsmál mun hún, þegar þið
blandið ykkur í þau, verða eins
og harður hnefi,“ sagði Khamen-
ei í sjónvarpsútsendingu.
Khamenei varar erlend öfl
við því að reyna að nýta sér
ástandið. „Takið ykkur tak.
Íranska þjóðin mun bregðast
við,“ sagði Khamenei.
Forsetinn fékk
ekki að lenda
Tilraun Manuels Zelaya, brott-
rekins forseta Hondúras, til að
snúa aftur heim gekk ekki eftir
og þurfti að snúa flugvél hans
frá Tegucigalpa-flugvellinum
eftir að hún hafði hringsólað þar,
en búið var að setja hindranir á
flugbrautina.
Zelaya er nú í nágrannaríkinu
El Salvador þar sem hann hyggst
hitta aðra leiðtoga Suður-Amer-
íku sem styðja hann.
Her landsins, með stuðningi
þingsins og dómstóla, velti Zel-
aya úr sessi í lok síðasta mánað-
ar í óþökk nálægra ríkja.
Obama gerir
mistök
Stjórnmálaskýrendur sumir
hverjir eru þeirrar skoðunar að
Barack Obama Bandaríkjaforseti
hafi gert alvarleg mistök áður en
hann steig fæti á rússneska jörð
í gær. Tilraunir hans til að lýsa
Vladimír Pútín forsætisráðherra
sem manni gærdagsins og reka
fleyg á milli hans og Dmitrys
Medvedev, forseta landsins, eru
taldar til marks um misskilning
Obama á samkomulagi innan
Kremlar.
Medvedev er forseti lands-
ins en flestir telja yfir allan vafa
hafið að Pútín haldi um stjórn-
artaumana og telja skýrendur
að ásýnd Medvedevs í embætti
byggist að mestu leyti á vilja
Pútíns.
Á götu í urumqi
Blóðug og mannskæð
þjóðernisátök brutust út
á sunnudaginn.
Mynd: AFP
Uppþot í Xinjiang-héraði í Kína á sunnudaginn kostuðu að minnsta kosti eitt hundrað
og fjörutíu manns lífið. Um var að ræða átök á milli úigúa og Han-Kínverja og höfðu
þau staðið í nokkrar klukkustundir áður en óðeirðalögreglu tókst að ná tökum á að-
stæðum. Talið er að tala látinna eigi eftir að hækka.
Mannskæð
uppþOt í kína
Það var ekki fyrr en eftir að uppþotin höfðu stað-
ið í nokkrar klukkustundir að óeirðalögreglan
náði tökum á ástandinu með fulltingi táragass og
skotvopna.
Alblóðugt fórnarlamb
Kyrrmynd úr útsendingu ríkissjónvarps
Kína.
Mynd: CCtV-SjónVArPSStöðin