Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2009, Blaðsíða 6
Brynjar Dagbjartsson, sumarbú-
staðaeigandi í landi Efri Reykja í Blá-
skógabyggð, segist ekki enn búinn að
ná sér eftir áfallið við að vakna við
reyk og óhljóð í reykskynjara í sum-
arbústað sínum enda sé þessi tilfinn-
ing vægast sagt óþægileg. Eldurinn
kviknaði í uppþvottavél um nóttina
og litlu mátti muna að illa færi.
Sprautaði með garðslöngu
„Við settum vélina í gang þegar
við fórum að sofa um kvöldið. Svo
hrukkum við upp við reykskynjarann
og þegar ég opna svefnherbergis-
dyrnar er bara allt svart af reyk,“ segir
Brynjar. Eiginkona hans vaknaði við
reykskynjarann og hún ýtti við bónda
sínum sem vaknaði upp við vond-
an draum. Brynjar segir að sér hafi
brugðið mjög við að vakna við þessar
aðstæður en það hafi lítið annað ver-
ið í stöðunni en að slökkva eldinn þar
sem langt sé í næstu slökkvistöð. „Ég
byrjaði á því að slá út rafmagnið og
náði svo í garðslönguna til að sprauta
á vélina og innréttinguna sem logaði
líka,“ segir Brynjar. Hann segir að það
hafi ekki tekið langan tíma að slökkva
eldinn. Að því loknu hringdi hann á
lögregluna sem kom stuttu síðar.
Reykskynjarinn bjargaði
Brynjar segist alltaf hafa verið með
reykskynjara í sumarbústaðnum
hjá sér enda sé mikið öryggi að hafa
slíka skynjara í bústöðum. Hann
segist vera heppinn að hafa slopp-
ið út úr þessu enda hafi þetta getað
endað mun verr. „Ég endurnýjaði þá
núna í vor og fjölgaði þeim. Reyk-
skynjarinn bjargaði okkur, alveg tví-
mælalaust.“ Talsvert tjón varð vegna
sóts sem barst um bústaðinn frá eld-
inum í eldhúsinnréttingunni. „Þetta
er þó nokkurt tjón og það liggur við
að þeir þurfi að rífa hann fokheldan.
Það var mikið af plasti sem brann
sem gefur frá sér mikið sót.“ Upp-
þvottavélin sem kviknaði í er þriggja
ára gömul og hefur ekki verið til
vandræða fyrr en nú, með heldur
leiðinlegum afleiðingum. Brynjar
segist ekkert vera búinn að aðhafast
í rústunum heldur ætli hann að láta
menn frá tryggingunum sjá innrétt-
inguna fyrst.
Sumarhús geta verið
mjög eldfim
Guðmundur Guðbjarnarson, for-
maður Landssambands sumarhúsa-
eigenda, segir það mjög mikilvægt
að hafa reykskynjara í sumarhúsum.
„Ég tel það vera forsendu fyrir því að
dvelja í slíkum húsum að hafa reyk-
skynjara vegna þess að þetta eru tré-
hús og geta verið mjög eldfim. Það er
tvennt sem eykur öryggi manna í bú-
stöðum, annars vegar að fólk sé með
öryggisnúmer sem hægt er þá að
segja slökkviliði og lögreglu í svona
tilviki og hins vegar eru það reyk-
skynjarar,“ segir Guðmundur og seg-
ist ekki vita betur en að flestir hugi að
því að hafa reykskynjara í bústöðun-
um sínum.
Þriðjudagur 7. júlí 20096 Fréttir
Nethyl 2, sími 587-0600, www.tomstundahusid.is
Fjarstýrðir bensínbílar
í miklu úrvali.
Hjón á sextugsaldri vöknuðu við hávaða frá reykskynjara í sumarbústað sínum í Blá-
skógabyggð aðfaranótt mánudags. Eldur hafði komið upp í uppþvottavél og náð að læsa
sig í innréttingu. Brynjar Dagbjartsson, eigandi bústaðarins, segist vera heppinn að
hafa vaknað í tæka tíð.
Vöknuðu í
sVörtum reyk
Boði logaSon
blaðamaður skrifar bodi@dv.is
Brynjar Dagbjartsson Slapp með skrekkinn þegar kviknaði í eldhúsinnréttingunni
í sumarbústað hans út frá uppþvottavél. Hann prísar sig sælan að hafa vaknað í tæka
tíð.
Svarthol uppþvottavélin, sem hingað til hefur verið til friðs, skilur eftir sig sótsvart
gat og eldhúsinnréttingin má muna sinn fífil fegurri.
Fjögurra mánaða fangelsi fyrir að sparka í löggu og húsbrot:
Hótaði lögreglumanni lífláti
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi
í gær Eyjamanninn Gerhard Guð-
mundsson í fjögurra mánaða fang-
elsi fyrir húsbrot, líkamsárás og brot
gegn valdstjórninni. Gerhard var
jafnframt gert að greiða 410 þús-
und krónur í sakarkostnað og fórn-
arlambi sínu 300 þúsund krónur
ásamt vöxtum og verðbótum.
Gerhard var ákærður fyrir hús-
brot, hótanir og líkamsárás með því
að hafa ruðst í heimildarleysi inn
á heimili, ýtt við konu sem þar var
innandyra, og hótað henni lífláti.
Þá var hann ákærður fyrir að grípa
um háls konunnar með þeim afleið-
ingum að hún hlaut meiðsli. Þá var
hann ákærður fyrir eignarspjöll með
því að hafa skömmu síðar stigið ofan
á síma hennar svo hann brotnaði.
Gerhard játaði sök í þessum ákæru-
liðum. Hann var ennfremur ákærð-
ur fyrir brot gegn valdstjórninni,
með því að hafa ráðist á tvo lög-
reglumenn við skyldustörf, sparkað í
fótinn á öðrum og hótað þeim báð-
um lífláti. Þá var hann ákærður fyrir
að hafa ráðist með ofbeldi og hót-
unum um ofbeldi að öðrum þeirra á
lögreglustöðinni í Vestmannaeyjum
sama kvöld.
Gerhard sagðist ekki muna eftir
því að hafa ráðist á lögreglumennina,
en dómurinn tók framburð lögreglu-
mannanna trúverðugan. Gerhard hef-
ur frá árinu 1990 margoft verið dæmd-
ur fyrir ýmis brot.
Frá Vestmannaeyjum gerhard ruddist inn á heimili konu og tók hana hálstaki.
Hent niður stiga
Tíu líkamsárásir voru tilkynntar
til lögreglunnar á Akranesi um
helgina vegna bæjarhátíðarinn-
ar Írskir dagar. Í dagbók lögreglu
segir að tvær af líkamsárásun-
um hafi verið alvarlegar. Í öðru
tilfellinu gengu þrír í skrokk á
einum og köstuðu honum svo
niður stiga.
Í hinu tilfellinu var maður
barinn í höfuðið með flösku.
Lögreglan hafði í nógu að snúast
og voru um 170 verkefni og mál
bókuð. Mikil ölvun var í bænum
bæði aðfaranótt laugardags og
sunnudags og fylltust fanga-
geymslur um tíma.
100 sinnum
minni velta
Velta á innlendum gjaldeyris-
markaði nam 6,2 milljörðum
króna í júní og var hlutdeild
Seðlabanka Íslands 40 prósent í
þeim viðskiptum, eða 2,5 millj-
arðar króna. Það er mesta sala
Seðlabankans á gjaldeyri í ein-
um mánuði það sem af er ári, en
í maí seldi bankinn gjaldeyri fyr-
ir rétt rúma tvo milljarða.
Þetta kemur fram í Hagsjá
Landsbankans. Veltan í júní í
fyrra var ríflega 600 milljarðar
eða tæplega 100 sinnum meiri
en í síðasta mánuði.
Fullur stal
prentara
Þjófur í heldur annarlegu
ástandi braust inn í mannlausa
íbúð á Akureyri í fyrrakvöld og
stal meðal annars dvd-spilara
og tölvuprentara. Nágrannar
urðu varir við ferðir mannsins
og hringdu á lögregluna og leið-
beindu henni í gegnum síma
þar til hún hafði uppi á þjófnum
sem var skammt á veg kominn
frá húsinu.
Hann var handtekinn og
færður í fangaklefa lögreglunnar.
„Ég byrjaði á því að slá
út rafmagnið og náði
svo í garðslönguna til
að sprauta á vélina og
innréttinguna sem log-
aði líka,“