Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2009, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 7. júlí 2009 15Umræða
Hver er maðurinn?
„andri Örn gunnarsson.“
Hvað drífur þig áfram?
„Ástríða.“
Hvar ertu uppalinn?
„Seljahverfinu.“
Hver eru helstu áhugamál þín?
„allt sem snýst um að vinna og
tapa hvort sem það eru íþróttir eða
tölvuleikir.“
Hvað er Counterstrike fyrir þá sem
ekki vita?
„Það er byssuleikur þar sem fimm
keppa á móti fimm í löggu og bófa.“
Hvað gerir þú annað en að spila
Counterstrike?
„Ég vinn, fer í skóla og geri eitthvað
skemmtilegt með kærustnni. Er bara
ósköp venjulegur náungi.“
Hvert er draumastarfið í framtíð-
inni?
„Ekkert ákveðið.“
Er þetta sami leikurinn eftir öll
þessi ár eða kemur hann reglulega
endurbættur út?
„Hann hefur nokkrum sinnum verið
endurbættur en hann hefur sjaldan
verið endurútgefin miðað við hvað
hann er gamall.“
Hvers vegna er leikurinn svona
lífseigur?
„Hann er fjölbreytilegur vegna þess
að leikurinn breytist svo eftir því
hvernig óvinurinn spilar.“
Hvað spilið þið vanalega marga
tíma á dag?
„Vanalega einn til tvo tíma en rétt
fyrir mót fer það alveg upp í sex til
sjö tíma.“
Hvert er markmið ykkar á mótinu?
„að ná topp fjórum.“
Ertu svona góður í einhverjum
öðrum leikjum?
„já, er ógeðslega góður í FiFa. Ég
spila hann mér til skemmtunar en lít
meira á Counterstrike sem vinnu.“
Hver er lykillinn að því að ná
góðum árangri í Counterstrike?
„Æfa mikið og læra og fylgjast með
hvernig aðrir spila.“
Hvernig á að ráðstafa verðlauna-
fénu ef þið vinnið?
„Við höfum ekkert rætt um það en
allt verðlaunafé yrði bara bónus.“
Hvað finnst þér um kúlulán starfsmanna kaupþings?
„Mér finnst þetta hryllilegt. Þetta er sið-
laust.“
Egill Örlygssson
42 Ára SMiður
„Mér finnst þetta siðlaust og alveg
ömurlegt.“
Jakob sturlaugsson
42 Ára SMiður og SjóMaður.
„Þetta er óréttlát því lánin hjá fólkinu í
landinu halda áfram að hækka svo að
fólk getur ekki borgað af þeim.“
Ásta Haraldsdóttir
47 Ára tónliStarMaður.
„Mér finnst þetta glæpur gegn
þjóðfélaginu.“
arnHildur Valgarðsdóttir
42 Ára tónliStarMaður.
Dómstóll götunnar
andri Örn gunnarsson
keppir á tölvuleikjamóti á Spáni
ásamt liðsfélögum sínum í Seven 23.
júlí þar sem verðlaunafé hleypur á
milljónum. andri og félagar keppa
þar á meðal bestu Counterstrike-
spilenda heims en sumir þeirra hafa
atvinnu af því að spila leikinn.
Lítur á þetta
sem vinnu
„Þeir eiga að borga þessi lán.“
Elmar Þór bEnEdiktsson
36 Ára bílStjóri.
maður Dagsins
Víða kreppir að á Íslandi og ekki
bjart framundan hjá þjóðinni. En
í kreppu eru líka tækifæri. Það er
undir stjórnvöldum komið að skapa
aðstæður fyrir ný fyrirtæki sem
staðið geta undir rekstri íslenska
velferðarsamfélagsins.
Á Suðurlandi og Suðurnesjum er
löng hefð fyrir veiðum og vinnslu á
flatfisktegundum. Gríðarleg verð-
mæti búa í mannauði á svæðinu þar
sem þekking, reynsla og verkkunn-
átta á þessu sviði er mikil. Hins veg-
ar eru því takmörk sett hvernig fólk
getur stuðlað að uppbyggingu at-
vinnutækifæra á
svæðinu.
Það lýsir sér í því að flatfisktegund-
ir eru kvótasettar og úthlutað til að-
ila á grundvelli aflahlutdeildar. Það
er mjög sérstakt þar sem engin rök
mæla með því að sumar flatfiskteg-
undir séu bundnar í kvóta þar sem
mikið af kvótanum brennur inni
óveitt. Auk þess er braskað
með þennan kvóta.
Dæmi um það
er þegar
sand-
kola
er
breytt
í aðra fisk-
tegund af þeim
sem ráða yfir slíkum
kvóta. Þetta veldur því að menn
sitja á kvóta og nota hann þess í
stað í brask. Það torveldar nýliðun
og það er óhagkvæmt fyrir þjóðar-
búið og brýtur gegn fiskverndunar-
markmiðum þar sem braskið leiðir
til umframveiða til dæmis á steinbít.
Núverandi kerfi er því óhagkvæmt,
óréttlátt og ósjálfbært.
braskað í skjóli laga
Máli mínu til rökstuðnings vil ég
benda á að 71% (6.000 tonn) af sand-
kolakvótanum og 85% (5.700 tonn)
af skrápflúrukvótanum hafa verið
óveidd síðustu 3 fiskveiðiár. Á síðasta
fiskveiðiári voru 42% (1.000 tonn) af
langlúrukvótanum óveidd. Þetta eru
tæp 13.000 tonn af óveiddum afla-
heimildum í viðkomandi flatfiskteg-
undum. Það er algjör óþarfi að vera
með þessar tegundir bundnar í kvóta
þegar úthlutaður kvóti er ekki veidd-
ur nema að mjög takmörkuðu leyti.
Það er enda skýrt í lögum að aðeins
skal setja kvóta á tegundir sem talið
er að takmarka þurfi veiðar á, en af
því leiðir að ekki þarf að setja kvóta
á tegundir sem eru vannýttar.
Þessu getur sjávarútvegs-
ráðherra breytt við næstu
kvótaúthlutun.
Auk þess vil ég
benda á að mikið af
kvótanum í viðkom-
andi flatfisktegundum
hefur verið notaður í teg-
undatilfærslur. Það þýðir að
einni fisktegund er breytt yfir í aðra
fisktegund!
Frá fiskveiðiárinu 2000/2001 hef-
ur 15.580 tonnum af skrápflúru verið
breytt í aðrar fisktegundir með tilfærsl-
um eða 49% af leyfilegu aflamarki.
Tæpum 14.000 tonnum af sandkola-
kvótanum hefur verið ráðstafað með
sama hætti og breytt í aðrar fiskteg-
undir eða 37% af leyfilegu aflamarki!
Þetta eru tæplega 30.000 tonn af sand-
kola og skrápflúru sem hefur verið
ráðstafað með slíkum hætti! Þá var
tæpum 300 tonnum af langlúru breytt
í aðrar fisktegundir með tegundatil-
færslum á síðasta fiskveiðiári eða 12%
af útgefnu aflamarki.
Einföld leið til réttlætis
Ég legg því til við Jón Bjarnason,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, að hann beiti sér fyrir því að
þessar tegundir verði teknar út úr
aflamarkskerfinu og þar með felld-
ar niður aflahlutdeildir til einstakra
útgerða. Til þess hefur ráðherra
heimild í lögum. Síðan á að gefa út
leyfilegan frjálsan heildarkvóta til
veiða og leyfa veiðar á þessum teg-
undum gegn aflagjaldi á landaðan
afla. Vinstri græn, sem vilja aukin
kraft í atvinnuuppbyggingu á Suð-
urlandi og Suðurnesjum, hljóta að
sjá að þetta er góð leið til að hleypa
auknum krafti í atvinnulífið. Þessi
aðgerð mun skapa atvinnu, tekjur
fyrir þjóðarbúið og mæta réttlætis-
þörf þjóðarinnar gagnvart óréttlátu
fiskveiðistjórnunarkerfi. Því fyrr, því
betra og ekki má missa neinn tíma
því þörfin hefur aldrei verið meiri.
Ég legg einnig til við Jón Bjarna-
son að hann og VG beiti sér fyrir því
fyrir því að tegundatilfærslur verði
þrengdar til muna í núverandi kerfi.
Ég bendi í því samhengi á að stein-
bítur hefur verið veiddur langt um-
fram tillögur Hafrannsóknastofn-
unar og útgefið aflamark síðustu ár
vegna þessara tegundatilfærslna.
Opið bréf til sjávarútvegsráðherra
kjallari
mynDin
1 afdrifarík salernisferð
nýgift hjón frá Sádi arabíu ætluðu til
Malasíu í rómantíska ferð, á leiðinni heim
þurfti konan á salernið. Konan var svo
lengi á klósettinu að maðurinn flaug heim
á undan.
2 stærsti viðburður í beinni frá
upphafi
nú styttist í jarðarför poppkóngsins
Michaelsjackson sem haldin verður í
Staple Center í los angeles.
3 lambert lítill í sér
idol-stjarnan adam lambert er loksins
búinn að taka sjálfan sig í sátt og öðlast
sjálfstraust.
4 djörf rihanna með stjörnur á
brjóstunum-myndir
Söngfuglinn rihanna fagnaði
þjóðhátíðardegi bandaríkjamanna með
því að djamma fáklædd.
5 karen lind er fundin
Karen lind Sigurpálsdóttir, 13 ára stúlka,
sem hefur verið týnd síðan á föstudag er
fundin.
6 14 ára dreng líður vel eftir fall af
húsþaki
Vakthafandi læknir segir drenginn sem féll
niður af húsþaki á Vestfjörðum, vera
ótrúlega sprækan.
7 reyndi að selja nektarmyndir af
móður sinni
Átján ára gamall unglingspiltur frá nýja
Sjálandi brá á það ráð á dögunum að
bjóða nektarmyndar af móður sinni til
sölu á uppboðsvefnum tradeMe.
mest lesið á dV.is
Finnbogi
Vikar
laganemi við
Háskólann á Bifröst
„Máli mínu til rökstuðnings
vil ég benda að 71% af
sandkolakvótanum
og 85% af skrápflúrukvót-
anum hefur verið
óveiddur síðustu
3 fiskveiðiár.“
svíar í sveitasælu Þessir sænsku ferðamenn tóku lífinu með ró í blíðunni á lyngdalsheiði í gær. Mynd María.