Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2009, Qupperneq 3
Þriðjudagur 7. júlí 2009 3Fréttir
Tveir af fyrrverandi starfsmönnum Kaupþings, sem fengu lán til að kaupa hluta-
bréf í bankanum, vilja endurgreiða arðinn sem þeir fengu af hlutabréfunum. Tugir
starfsmanna skrifuðu undir viljayfirlýsingu um uppgjör lánsins í október. Kristján
Arason vill aðspurður ekki tjá sig um hvort hann vilji endurgreiða arðinn.
Nokkrir af þeim lykilstarfsmönnum
Kaupþings sem fengu lán í bank-
anum til að kaupa hlutabréf í hon-
um fengu greiddan arð upp á meira
en milljarð króna á síðustu tveimur
árum án þess að hafa greitt nokkru
sinni fyrir bréfin. 17 af þeim 22
sem DV greindi frá í síðustu viku
að hefðu fengið lán frá bankan-
um til að kaupa hlutabréf í honum
fengu samtals rúma 1,2 milljarða í
arðgreiðslur. Lánveitingar til allra
starfsmannanna 22 námu samtals
um 23,5 milljörðum samtals sam-
kvæmt lánabókinni.
Persónulegar ábyrgðir starfs-
mannanna fyrir lánunum, að upp-
hæð rúmlega tíu milljarðar króna,
voru felldar úr gildi á stjórnarfundi
hjá Kaupþingi í lok september á síð-
asta ári. Heildarlánveitingarnar til
130 starfsmanna bankans námu þá
rúmum 47 milljörðum króna.
Starfsmennirnir sitja því eftir
með arðgreiðslur upp á að minnsta
kosti vel á annan milljarð króna eða
meira fyrir árin 2007 og 2008 vegna
hlutabréfaeignar sem þeir greiddu
aldrei fyrir.
DV leitaði því svara hjá nokkrum
af starfsmönnunum fyrrverandi og
spurði þá hvort þeir væru reiðubún-
ir að endurgreiða arðinn sem þeir
fengu vegna hlutabréfanna. Erfið-
lega gekk að ná í starfsmennina en
tveir af þeim sem blaðið náði tali af
segjast vilja greiða arðinn til baka og
gera upp lánin.
Helgi og Bjarki
til í að ganga til
samninga
Helgi Sigurðsson,
fyrrverandi yfir-
lögfræðingur
Kaupþings, seg-
ir að í október
hafi tugir þeirra
starfsmanna
Kaupþings sem
áttu úti-
standandi skuldir í bankanum
vegna hlutabréfakaupa í honum
lagt það til við stjórn Nýja Kaup-
þings að gengið yrði til samninga og
lánin gerð upp: „Það tilboð stendur
enn.“ Aðspurður vill Helgi ekki fara
nánar út í hvað hann á við með því
að gera lánin upp en af orðum hans
að dæma virðist hann meðal ann-
ars eiga við að arðgreiðslur starfs-
mannanna vegna hlutabréfaeign-
arinnar í bankanum gangi til baka:
„...að gengið yrði frá lánunum með
sambærilegum hætti og annarra
viðskiptavina... Ég ætla ekki að tjá
mig ítarlega við blaðamenn Dag-
blaðsins,“ segir Helgi þegar hann
er inntur eftir frekari svörum. Helgi
fékk um 24 milljónir í arðgreiðsl-
ur vegna hlutabréfaeignar sinni í
Kaupþingi á síðustu tveimur árum.
Aðspurður hvort hann sé reiðu-
búinn að endurgreiða arðinn af
hlutabréfaeigninni til baka seg-
ir Bjarki Diego, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri útlána hjá Kaupþingi:
„Ég hef nú ekkert hugsað út í það...
Það fer allt eftir því hvernig þetta fer.
En ef ég gæti látið þetta allt ganga
til baka væri ég mjög sáttur; ef ég
myndi fá að gera upp við alla að-
ila og fengi að byrja upp á nýtt. Svo
er hins vegar spurning hvert þessir
peningar ættu að fara: til kröfuhafa
eða kannski í ríkissjóð?“ segir Bjarki
en ákvörðun stjórnarinnar um nið-
urfellingu ábyrgðanna er til rann-
sóknar hjá sérstökum saksóknara.
Bjarki segir að hann hafi ver-
ið einn þeirra starfsmanna Kaup-
þings sem vildu að lánin yrðu gerð
upp í október og að hann sé enn á
þeirri skoðun: „Ég skrifaði undir yf-
irlýsingu til stjórnarformanns Nýja
Kaupþings þar sem ég óskaði eftir
því að ganga til samninga um upp-
gjör skuldarinnar. Það hefur í raun
og veru ekkert breyst síðan þá... Ég
er tilbúinn að láta þetta allt ganga til
baka; það er sjálfsagt,“ segir Bjarki
sem fékk um 34 milljónir króna í
arðgreiðslur 2007 og 2008.
Neita að tjá sig um málið
Þórarinn Sveinsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri eignastýring-
ar hjá Kaupþingi, neitar að tjá sig
um það hvort hann hyggist skila
arðgreiðslunum sem hann fékk
frá Kaupþingi út af hlutabréfaeign
sinni í bankanum: „Ég er upptek-
inn; ég hef engan áhuga á að tjá mig
um neitt.“ Samkvæmt útreikning-
um DV út frá hlutabréfaeign starfs-
mannanna í bankanum í lánabók-
inni árið 2006 fékk Þórarinn rúmar
40 milljónir króna í arðgreiðslur út
af hlutabréfaeign sinni.
Kristján Arason, fyrrverandi
framkvæmdastjóri viðskiptabanka-
sviðs, vill heldur ekki tjá sig um
málið: „Ég vil ekki tjá mig meira um
neitt.“ Samkvæmt útreikningum
DV fékk Kristján 48 milljónir króna
í arðgreiðslur á árunum 2007 og
2008 en lán hans nam 893 milljón-
um króna.
Guðný Arna Sveinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri fjármála- og rekstr-
arsviðs, vildi heldur ekki tjá sig um
málið þegar DV leitaði eftir því; hún
sagðist vera á fundi. Arðgreiðslurn-
ar til Guðnýjar námu 31 milljón
króna á árunum 2007 og 2008 sam-
kvæmt útreikningum DV.
Lánveitingarnar til starfs-
mannanna eru til rannsóknar hjá
embætti sérstaks saksóknara, Ól-
afi Haukssyni, eins og áður segir.
Hann segir aðspurður að embætt-
ið sé að vinna í málinu en að nið-
urstöðu sé ekki að vænta á næst-
unni.
Eitt af því sem væntanlega er
verið að skoða hjá embættinu er
lögmæti lánanna og eins hvort hægt
sé að rifta þeirri ákvörðun stjórn-
ar gamla Kaupþings að fella niður
ábyrgðir starfsmannanna fyrir lán-
unum. Tveir lögfræðingar, Viðar
Már Matthíasson og Hörður Felix
Harðarson, hafa unnið lögfræðiálit
fyrir stjórn Nýja Kaupþings þar sem
komist er að þeirri niðurstöðu að
ekki sé hægt að rifta niðurfellingu
ábyrgðanna. Annað sem sérstakur
saksóknari mun væntanlega skoða
er hvort tilgangur lánveitinganna
til starfsmannanna fyrir hlutabréf-
unum hafi verið að falsa eiginfjár-
stöðu bankans og þar af leiðandi
að misnota markaðinn með blekk-
ingum en stjórn Kaupþings hafði
leyfi til að lána allt að 9 prósentum
af eigin fé bankans til starfsmanna
sinna: Eiginfjárstaða bankans jókst
svo eftir því sem starfsmenn og
tengdir aðilar fengu meira lánað til
hlutabréfakaupa í bankanum.
INgI F. VIlHjálmssoN
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
VILJA ENDURGREIÐA
KAUPÞINGSARÐINN
2007 2008
Sigurður Einarsson 90 milljónir 144 milljónir
Hreiðar Már Sigurðsson 61 milljón 124 milljónir
Magnús guðmundsson 50 milljónir 72 milljónir
ingólfur Helgason 38 milljónir 74 milljónir
ingvar Vilhjálmsson 37 milljónir 83 milljónir
Þorvaldur lúðvík Sigurjónsson 36 milljónir
Ármann Þorvaldsson 32 milljónir 46 milljónir
Steingrímur Kárason 23 milljónir 32 milljónir
Kristján arason 20 milljónir 28 milljónir
Þórarinn Sveinsson 17 milljónir 24 milljónir
Bjarki H. diego 14 milljónir 20 milljónir
guðný arna Sveinsdóttir 13 milljónir 18 milljónir
Frosti reyr rúnarsson 11 milljónir 15 milljónir
Helgi Sigurðsson 10 milljónir 14 milljónir
guðni Níels aðalsteinsson 9 milljónir 13 milljónir
Hannes Frímann Hrólfsson 9 milljónir 13 milljónir
Svali Björgvinsson 8 milljónir 12 milljónir
Samtals hjá þessum 17: 477 milljónir 732 milljónir
MEIRA EN MILLJARÐUR í ARÐGREIÐSLUR
ArðgreIðslur KAupþINgs tIl NoKKurrA stArFsmANNA á
lIstANum úr láNABóKINNI árIN 2007 og 2008:
*Tölur fyrir árið 2007 voru áætlaðar út frá lánabókinni 2006. Fyrirvari í tölum fyrir 2008
er að flestir hafi ekki aukið hlut sinn frá 2006.
Vitað var út frá hluthafalista frá Kauphöllinni 2008 hverjir höfðu aukið hlut sinn. Þeir
voru: Sigurður Einarsson, Hreiðar Már Sigurðsson og ingvar Vilhjálmsson þar sem
þeir voru á lista yfir 20 stærstu hluthafa Kaupþings. Á aðra er áætlaður sami eignar-
hlutur og 2006 að undanskildum Þorvaldi lúðvík Sigurjónssyni.
Tafla unnin af: as@dv.is
„Ég er tilbúinn að láta
þetta allt ganga til
baka; það er sjálfsagt.“
Vill að lánin verði gerð upp Helgi
Sigurðsson, fyrrverandi yfirlögfræðingur
Kaupþings, vill að gengið verði til samninga
og starfsmannalánin gerð upp líkt og lán
annarra viðskiptavina bankans.
tjáir sig ekki Kristján arason vill
ekki tjá sig um hvort hann hyggist
endurgreiða arðinn .
gefið út í desember árið 2006. At-
hygli vekur að láninu er ekki þing-
lýst. Lánið virðist hafa verið inn-
kallað til Kaupþings til að gera
breytingar á því og því hefur ekki
verið þinglýst aftur.
Yfirlögfræðingurinn
færði húsið 2006
Helgi Sigurðsson, fyrrverandi yfir-
lögfræðingur Kaupþings, færði fast-
eign sína í Haðalandi 16 í Reykjavík
yfir á Ólöfu Finnsdóttur í febrúar
2006. Áður voru þau bæði skráð fyr-
ir henni. Á húsinu er áhvílandi 14,5
milljóna króna lán frá Kaupþingi.
Helgi sagði upp starfi sínu í síðustu
viku etir að DV greindi frá 450 millj-
óna króna hlutabréfaláni sem Kaup-
þing veitti honum.
Keyptu verðbréfafyrirtæki
Frosti Reyr Rúnarsson, fyrrverandi
forstöðumaður verðbréfamiðlun-
ar Kaupþings, fékk 19 og 12 millj-
óna króna íslensk verðtryggð lán frá
Kaupþingi fyrir fasteign í Faxahvarfi
12. Hann færði fasteignina yfir á Guð-
mundu Ósk Kristjánsdóttur 13. okt-
óber 2008. Frosti, Hannes Frímann
Hrólfsson og Þorlákur Runólfsson,
fyrrverandi forstöðumaður einka-
bankaþjónustu Kaupþings, keyptu
verðbréfafyrirtækið NordVest af
Sparisjóði Mýrasýslu í byrjun apr-
íl. Kaupin voru háð samþykki Fjár-
málaeftirlitsins. Samkvæmt heimild-
um DV hefur Fjármálaeftirilitið ekki
enn samþykkt kaup þeirra.
lítið um erlend lán
Athygli vekur að svo virðist sem fáir af
fyrrverandi stjórnendum Kaupþings
hafi tekið erlend fasteignalán. Eini
sem gerði það var Guðni Níels Aðal-
steinsson, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri fjárstýringar Kaupþings banka
sem nú situr í skilanefnd Kaupþings.
Hann fékk 21 milljónar króna lán í
svissneskum frönkum hjá Kaupþingi
fyrir fasteign á Blikaási 17 í Hafnar-
firði.
Fasteignin yfir á
tengdamömmu
Ingvar Vilhjálmsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri markaðsvið-
skipta Kaupþings, hefur ekkert
áhvílandi á fasteigninni á Skild-
inganesi 12 í Reykjavík. Það vek-
ur hins vegar athygli að 27. júlí
árið 2007 varð tengdamóðir hans
meðeigandi að fasteigninni ásamt
Ingvari og Helgu Maríu Garðars-
dóttur. 19. júlí 2007 stóð úrvals-
vísitalan í 9.000 stigum. Vikuna
sem tengdamóðir Ingvars varð
meðeigandi lækkaði úrvalsvísital-
an vegna slæmra frétta um afkomu
lánastofnana í Bandaríkjunum
vegna svokallaðra undirmálslána.
Ingvar færði fasteignina síðan al-
farið yfir á eiginkonu sína Helgu
Maríu Garðarsdóttur og tengda-
móðurina 13. október 2008 nokkr-
um dögum eftir bankahrunið.
KúLULáNAfóLK foRÐAR
fAStEIGNUM SíNUM