Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2009, Síða 4
Þriðjudagur 7. júlí 20094 Fréttir
Mörg mál til
saksóknara
Fjármálaeftirlitið hefur sent
hátt í tuttugu mál sem tengjast
bankahruninu til sérstaks sak-
sóknara og hefur fjölmörg önnur
mál til rannsóknar. Sum þessara
mála eru mjög umfangsmikil og
getur rannsókn þeirra tekið allt
þetta ár og megnið af því næsta.
Í samtali við RÚV í gær-
kvöldi sagði Gunnar Andersen,
forstjóri Fjármálaeftirlitsins, að
málin séu mjög mismunandi.
Málin sem nú séu til skoðunar
snerti meðal annars innherja-
viðskipti, markaðsmisnotk-
un, óeðlilega viðskiptahætti og
óábyrga viðskiptahætti.
Drengurinn
á batavegi
„Hann er ótrúlega sprækur
og það er ekkert sem bendir
til þess að hann sé alvarlega
slasaður,“ segir vakthafandi
læknir á barnadeild Land-
spítalans Í Fossvogi um 14
ára dreng sem féll af húsþaki
á Barðaströnd á Vestfjörðum
á sunnudag. Hann var með-
vitundarlaus þegar læknir
kom á staðinn um hálftíma
eftir slysið. Að sögn lögregl-
unnar á Vestfjörðum er málið
í rannsókn og ekki var frekari
upplýsingar að fá.
Fögnuðu með
Litháum
Forsetahjónin Ólafur Ragnar
Grímsson og Dorrit Moussaieff
tóku í gær þátt í hátíðarhöldum
í Litháen í tilefni þess að þjóðin
heldur upp á þúsund ára afmæli
sitt. Valdas Adamkus, forseti
Litháens, bauð forseta Íslands
að taka þátt í hátíðarhöldunum.
Auk Ólafs og Dorritar voru einn-
ig viðstaddir aðrir þjóðhöfðingj-
ar Norðurlanda, þjóðhöfðingjar
Eystrasaltslanda, Póllands og
Úkraínu auk ýmissa annarra for-
ystumanna.
EIGENDUR KAUPÞINGS
STÆRSTU SKULDARARNIR
Samkvæmt lánabók Kaupþings frá sumrinu 2006 voru fimm af fjórtán stærstu skuld-
urum Kaupþings eigendur bankans og fjárhagslega tengdir aðilar. Baugur var stærsti
einstaki skuldari bankans með tæplega 48 milljarða skuld. Lýður og Ágúst Guðmunds-
synir voru meirihlutaeigendur í fjórum félögum af fimm. Vilhjálmur Bjarnason segir
að þessar upplýsingar sýni fram á að besta leiðin til að ræna banka sé að eiga hann.
Af fjórtán stærstu skuldurum Kaup-
þings, á listanum yfir lánveiting-
ar til félaga, um mitt ár 2006 voru
að minnsta kosti fimm þeirra fé-
laga meðal stærstu eigenda bank-
ans sjálfs og tengdra aðila. Stærsti
einstaki skuldari bankans var Baug-
ur með tæplega 48 milljarða króna
skuld en þar á eftir komu tvö félög í
eigu bræðranna Lýðs og Ágústs Guð-
mundssona, Síminn og Vátrygginga-
félag Íslands (VÍS). Síminn skuldaði
bankanum tæpa 32 milljarða en VÍS
skuldaði bankanum tæpan 31.
Þetta kemur fram í lánabók Kaup-
þings frá því í lok júní 2006 sem DV
hefur undir höndum.
Meira en 120 milljarðar
til Ágústs og Lýðs
Lýður og Ágúst voru á þessum tíma
stærstu eigendur eignarhaldsfélags-
ins Exista í gegnum eignarhaldsfélag
sitt Bakkabræður BV. Lánabókin er
dagsettt 31. júní 2006 og höfðu þeir
bræður þá nýverið tekið þátt í kaup-
unum á VÍS í gegnum Exista. Exista
hafði sömuleiðis nýverið keypt Sím-
ann af íslenska ríkinu. Kaupþing var
næststærsti hluthafi í Exista með
rúmlega 20 prósent eignarhluta.
Samkvæmt hluthafalista Kaup-
þings frá því í febrúar 2006 var Exista
langstærsti hluthafinn í Kaupþingi
með um 21 prósent eignarhluta. Egla,
eignarhaldsfélag Ólafs Ólafssonar,
kom þar næst á eftir með tæp 11 pró-
sent en annað eignarhaldsfélag tengt
Ólafi, Ker, var í fjórtánda sæti á list-
anum yfir stærstu skuldara Kaup-
þings með rúma 12,5
milljarða.
Bakka-
vör, fé- lag
í eigu Ág-
ústs og
Lýðs, var
svo þar fyr-
ir ofan
með rúma 12,7 milljarða og enn ofar
á listanum var svo Exista sjálft með
tæplega 18,5 milljarða króna lán.
Samanlagt námu lánveitingarnar
á listanum til þessara tengdu aðila,
Bakkabræðra og Ólafs, því rúmum
106 milljörðum króna. Heildarlán-
veitingarnar til fjórtán stærstu skuld-
aranna á listanum námu rúmum 290
milljörðum. Í lánabókinni er einnig
að finna lánveitingu til eignarleigu-
fyrirtækisins Lýsingar, sem einnig
var í eigu Exista, upp á tæpa 29 millj-
arða króna, en það lán er skráð á öðr-
um lista en lánveitingar til félaga.
Samtals námu lánveitingar til fé-
laga í eigu Bakkabræðra því rúmlega
122,5 milljörðum króna hið minnsta
á þessum tíma.
Lánveitingarnar til Bakka-
bræðranna áttu svo eftir að aukast
til muna á næstu tveimur árum og
fram að hruninu því samkvæmt frétt
Morgunblaðsins frá því fyrr á árinu,
sem byggð var á lánabók Kaupþings
frá árinu 2008, námu lánin til þeirra
169 milljörðum við fall bankans. Þá
var íransk/ íraski kaupsýslumaður-
inn, Robert Tchenguiz, orðinn stærsti
skuldarinn af tengdum aðilum með
um 230 milljarða króna. Tchenguiz
þessi sat í stjórn Exista. Samkvæmt
frétt Morgunblaðs-
ins námu lán-
veitingarnar
til eigenda og
tengdra aðila
tæpum 500
milljörðum
við fall bank-
ans.
Bankarán segir Vilhjálmur
Vilhjálmur Bjarnason, lektor í Há-
skóla Íslands og formaður Félags fjár-
festa, segir að lánveitingarnar til eig-
enda og tengdra aðila Kaupþings sýni
fram á það að besta leiðin til að ræna
banka sé að eiga hann: „Ég held að
til að útskýra það að helstu eigendur
bankans séu einnig helstu skuldarar
sé bara best að vitna til orða Williams
Black og segja að „besta leiðin til að
ræna banka er að eiga hann“,“ segir
Vilhjálmur sem undirstrikar að þess-
ar lánveitingar bankanna til tengdra
aðila hafi aukist mikið eftir þetta og
fram að efnahagshruninu en þær séu
marktækar eins langt og þær nái.
Vilhjálmur segir að þessar miklu
lánveitingar til tengdra aðila sýni
fram á að nánast ekkert eigið fé hafi
verið til í íslensku bönkunum fyrir
hrunið. „Bankarnir voru bara að gera
þetta af því að það var ekkert eigið fé
í þeim en með þessum lánveitingum
leit út fyrir að að svo væri. Bankarnir
lána þessa peninga til að fjármagna
eigið fé bankans; ergo: Það er ekk-
ert eigið fé í bankanum,“ segir Vil-
hjálmur en líklegt þykir að þessi
viðskipti með lánsfé í bönkunum geti
flokkast sem markaðsmisnotkun.
Vilhjálmur segir að þessi tilhneig-
ing íslensku bankanna til að lána
tengdum aðilum hafi gert bankana
mjög viðkvæma gagnvart félögum
sem þeir lánuðu og að þeir hafi því
hrunið þegar síga tók á ógæfuhlið-
ina hjá félögunum sem voru stærstu
skuldarar þeirra.
„Bankarnir lána þessa
peninga til að fjár-
magna eigið fé bank-
ans; ergo: Það er ekkert
eigið fé í bankanum“
Bakkabræðurnir stærstir Samkvæmt lánabók Kaup-
þings frá sumrinu 2006 voru Bakkabræðurnir lýður
og Ágúst guðmundssynir stærstu skuldarar bankans í
gegnum nokkur af eignarhaldsfélögum sínum.
InGI F. VILhjÁLMsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
stærstu skuldararnir
listinn sýnir 14 stærstu skuldara Kaupþings á listanum yfir skuldir félaga. Félög í eigu
Bakkabræðra eru stærst á listanum.
Bankarán Vilhjálmur Bjarnason telur að
upplýsingarnar úr lánabók Kaupþings
sýni fram á að eigendur hans hafi rænt
bankann innan frá.
Lilja Pálmadóttir og Baltasar Kormákur fá ekki landspildu:
Baltasar tapaði dómsmáli
Hjónin Lilja Pálmadóttir athafna-
kona og Baltasar Kormákur kvik-
myndagerðarmaður, töpuðu í gær
dómsmáli fyrir Héraðsdómi Norð-
urlands vestra, sem þau höfðuðu til
þess að fá viðurkenndan eignarétt
sinn á landspildu sem þau töldu að
tilheyrði jörðinni Hofi í Skagafirði,
þar sem hjónin búa. Deilurnar um
landspilduna eiga rætur marga ára-
tugi aftur í tímann og eru gríðarlega
flóknar. Meðal málsgagna sem stuðst
var við voru landamerki samkvæmt
landamerkjabréfi þinglesnu árið
1882. Í málinu var einnig stuðst við
þinglýst gögn frá árinu 1922.
Lilja og Baltasar keyptu jörðina í
gegnum félagið Hofstorfan slf. sum-
arið 2003 og hafa núverandi ábúend-
ur talið spilduna sem um ræðir vera
í sinni eigu. Í dómnum kemur fram
að Lilja hafi við kaupin á Hofi geng-
ið á landamerki með fyrrverandi
eiganda jarðarinnar og að ekki hafi
komið fram nein óvissa um merk-
in. Síðar hafi hún hitt eiganda jarð-
arinnar Þrastarstaða, af tilviljun hafi
hún nefnt einhvers konar deilu um
landamerkin.
Í niðurstöðu dómsins segir að
spildan hafi verið skilin frá landi
Hofs árið 1922, ósannað hafi verið að
þessi ráðstöfun hafi gengið til baka.
Mistök við færslu í þinglýsingarbók,
sem voru leiðrétt árið 2008, leiddu til
þess að réttur eigandi spildunnar var
ekki skráður í þinglýsingarbók. Voru
stefndu því sýknuð af kröfum Lilju og
Baltasars. Málskostnaður var þó lát-
inn falla niður.
valgeir@dv.is
Lilja og Baltasar Töpuðu dómsmáli
vegna landspildu sem þau töldu að
tilheyrði jörðinni Hofi í Skagafirði.