Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2009, Qupperneq 10
Verðmunur á sundlaugarferð fyrir
fimm manna fjölskyldu getur numið
allt að 138 prósentum eftir því hvar
farið er í sund. Verðkönnun á 22 af
helstu sundstöðum á Íslandi leiðir í
ljós að ferð í sund fyrir tvo fullorðna
og þrjú börn kostar á bilinu 500 til
1.190 krónur eftir því hvaða laug verð-
ur fyrir valinu.
Börn synda á hálfvirði
Stakt gjald í sund fyrir fullorðinn
einstakling er á bilinu 230 til 450 krón-
ur víðs vegar um landið. Sums staðar
er frítt fyrir börn á grunnskólaaldri
en algengast er að börn eldri en 5 ára
greiði um það bil hálft gjald fyrir staka
ferð í sund, yfirleitt á bilinu 100 til
170 krónur. DV kannaði verð í helstu
sundlaugum landsins og reiknaði út
hvað fimm manna fjölskylda þarf að
greiða fyrir að fara í sund. Fjölskyld-
an samanstendur af tveimur fullorðn-
um og þremur börnum. Börnin eru 5,
8 og 15 ára gömul í því dæmi sem DV
leggur upp. Algengast er að fjölskyld-
an greiði á bilinu 700 til 1.000 krónur
fyrir ferðina en taka ber fram að þjón-
usta og gæði sundlauga eru auðvitað
misjöfn.
Ódýrt á Reykjanesi
Vatnaveröldin í Reykjanesbæ ber
af í verði af þeim sundlaugum sem
kannaðar voru. Þar hefur verið frítt
fyrir börn á grunnskólaaldri frá árs-
byrjun 2006 en fullorðnir greiða að-
eins 250 krónur fyrir aðgang að
garðinum. Fimm manna fjölskyld-
an greiðir þar aðeins 500 krónur fyr-
ir sundferðina. Næstódýrasti sund-
staðurinn, sem til athugunar var, er
í Grindavík. Þar borga fullorðnir 300
krónur en börn á grunnskólaaldri fá
frítt. Í Sundhöllina á Seyðisfirði borgar
fjölskyldan 640 krónur en 680 kostar í
Sundlaug Garðabæjar. Þessar laugar
eru ódýrastar.
Taka skal fram að við öflun upplýs-
inga um verð var stuðst við heimasíð-
ur sveitarfélaga, vefinn sundlaugar.-
is, auk þess sem hringt var á nokkra
staði. Verðið er birt með þeim fyrir-
vara að réttar upplýsingar hafi feng-
ist. Í sumum tilvikum er á heimasíð-
um sundlauga ekki skilgreint hversu
gömul börn þurfa að vera til að greiða
fullt gjald. Í þeim tilvikum er miðað
við að 17 ára einstaklingur sé barn en
18 ára fullorðinn. Þá er einnig gert ráð
fyrir að börn á leikskólaaldri fái frítt
nema annað sé tekið fram.
Dýrast á Eskifirði
Samkvæmt könnuninni er dýr-
ast fyrir áðurnefnda fimm manna
fjölskyldu að fara í sund á Eskifirði.
Ferðin kostar 1.190 krónur. Fullorðn-
ir greiða 340, sem er í meðallagi, en
börn 5 til 15 ára greiða 170 krónur. Ef
yngsta barnið væri 4 ára, í stað 5 ára,
myndi sundferðin kosta 1.020 krón-
ur, sem er sama verð og fjölskyldan
þyrfti að greiða í Sundlaug Akureyr-
ar. Í Stykkishólmi og á Selfossi kost-
ar einnig meira en 1.000 krónur fyrir
þessa fimm manna fjölskyldu að fara
í sund.
Þess skal að lokum getið að líklega
er víða hægt að finna minni sund-
laugar þar sem verð er lægra og þjón-
usta minni. Í þessari könnun var reynt
að velja flestar af stærri sundlaugum
landsins.
Þriðjudagur 7. júlí 200910 Neytendur
Johnson‘s
BaBy
Ung kona með fallega húð vildi
koma því heilræði áleiðis til
þeirra sem vilja hugsa vel um
húðina að nota Johnson‘s Baby-
sjampó til að þvo farða af húð-
inni. Hún sagði að þessi háttur
væri gjarnan hafður á í leikhús-
um, með góðum árangri. Fyrir
vikið má komast hjá því að kaupa
dýr krem sem skila sama árangri.
„Johnson‘s Baby-sjampóið er
silkimjúkt og lyktar vel,“ sagði
konan.
LítiL hækkun
augndropa
Þrátt fyrir gríðarlega gengislækk-
un hefur verið á Livostin-augn-
dropum í apótekum ekki hækkað
mikið. Þetta leiðir verðkönn-
un Neytendasamtakanna í ljós.
Droparnir eru notaðir við óþæg-
indum í augum vegna frjókorna-
ofnæmis. Munur á hæsta og
lægsta verði er 34 prósent. Lægst
er verðið í Apótekaranum og
Skipholtsapóteki en hæst í Lyfju.
Droparnir kosta á bilinu 2.213 til
2.972 krónur.
n Hið víðfræga reðasafn á
Húsavík vekur gjarnan
mikla athygli fyrir
sérstöðu sína. Íslenskir
ferðamenn áttu leið
um Húsavík á
dögunum og hugðust
skoða safnið, þó tími
væri knappur. Þegar
þau komu á safnið kom í ljós
að ekki var hægt að greiða með
greiðslukorti, aðeins reiðufé.
Það varð til þess að ferðamenn-
irnir
urðu að
fresta því að
skoða safnið.
n Lofið fær veitingastaðurinn Greifinn
á Akureyri fyrir hraða þjónusu og
frábæran mat. Svangir ferðalangar
fóru á staðinn á sunnudagskvöldi fyrir
rúmri viku. Fullt var út úr dyrum og bið
eftir borðum. Um hálftíma síðar
voru ferðalangarnir orðnir
saddir og sælir eftir frábæra
máltíð. Nóg af þjónum og góð
stjórn á öllu.
SENdið lOF Eða laST Á NEYTENdur@dV.iS
Dísilolía
algengt verð verð á lítra 182,8 kr. verð á lítra 185,8 kr.
skeifunni verð á lítra 184,3 kr. verð á lítra 178,2 kr.
algengt verð verð á lítra 185,8 kr. verð á lítra 179,6 kr.
bensín
dalvegi verð á lítra 182,2 kr. verð á lítra 176,1 kr.
Fjarðarkaupum verð á lítra 184,3 kr. verð á lítra 178,1 kr.
algengt verð verð á lítra 185,8 kr. verð á lítra 179,6 kr.
umSjóN: Baldur guðmuNdSSON, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
el
d
sn
ey
t
i
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Vatnaveröld Reykjanesbæ
Fullorðnir 250 kr.
Börn 0-16 0 kr.
Samtals: 500 kr.
Sundlaugin Grindavík
Fullorðnir 300 kr.
Börn 0-16 0 kr.
Samtals: 600 kr.
Sundhöllin Seyðisfirði
Fullorðnir 320 kr.
Börn 0-16 0 kr.
Samtals: 640 kr.
Sundlaug Garðabæjar
Fullorðnir 230 kr.
Börn 110 kr.
Samtals: 680 kr.
Sundlaugin á Flúðum
Fullorðnir 250 kr.
Börn 100 kr.
Samtals: 700 kr.
Sundlaugin Laugaskarði
Fullorðnir 270 kr.
Börn 100 kr.
Samtals: 740 kr.
Sundlaug Þórshafnar
Fulloðrnir 250 kr.
Börn 120 kr.
Samtals: 740 kr.
Kópavogslaug
Fullorðnir 280 kr.
Börn 120 kr.
Samtals: 800 kr.
Sundlaugin á Suðureyri
Fullorðnir 400 kr.
Börn 0-15 ára 0 kr.
Samtals: 800 kr.
Sundlaug Dalvíkur
Fullorðnir 450 kr.
Börn 0 kr.
Samtals: 900 kr.
Sundlaugin á Patreksfirði
Fullorðnir 300 kr.
Börn 150 kr.
Samtals: 900 kr.
Sundlaugin á Egilsstöðum
Fullorðnir 300 kr.
Börn 150 kr.
Samtals: 900 kr.
Laugar í Reykjadal
Fullorðnir 300 kr.
Börn 6-14 ára 150 kr.
Samtals: 900 kr.
Sundlaugarnar í Reykjavík
Fullorðnir 360 kr.
Börn 6-16 ára 110 kr.
Samtals: 940 kr.
Sundlaugar Seltjarnarness
Fullorðnir 300 kr.
Börn 5-18 ára 120 kr.
Samtals: 960 kr.
Sundlaug Hafnar
Fullorðnir 350 kr.
Börn 150 kr.
Samtals: 1.000 kr.
Sundlaugin í Varmahlíð
Fullorðnir 350 kr.
Börn 6-16 ára 150 kr.
Samtals: 1.000 kr.
Grettislaug Reykhólum
Fullorðnir 350 kr.
Börn 6-15 ára 150 kr.
Samtals: 1.000 kr.
Sundlaug Akureyrar
Fullorðnir 410 kr.
Börn 100 kr.
Samtals: 1.020 kr.
Sundhöll Selfoss
Fullorðnir 370 kr.
Börn 150 kr.
Samtals: 1.040 kr.
Sundlaugin Stykkishólmi
Fullorðnir 380 kr.
Börn 6-16 ára 150 kr.
Samtals: 1.060 kr.
Sundlaugin á Eskifirði
Fullorðnir 340 kr.
Börn 5-15 ára 170 kr.
Samtals: 1.190 kr.
– Yfirleitt er frítt fyrir börn á forskólaaldri.
Á Suðurnesjum eru tvær af ódýrustu sundlaugum landsins. Í Vatnaveröld í Reykja-
nesbæ greiðir fimm manna fjölskylda aðeins 500 krónur í sund en í Grindavík kostar
aðeins 600 krónur. Verðmunur á dýrustu og ódýrustu lauginni er 138 prósent.
Ódýrast í sund
í reykjanesbæ
Algengast er að fjöl-
skyldan greiði á bil-
inu 700 til 1.000 krón-
ur fyrir ferðina en taka
ber fram að þjónusta
og gæði sundlauga eru
auðvitað misjöfn.
aðgangur í sundlaugar á íslandi fyrir 5 manna fjölskyldu:
Paradís í Reykjanesbæ
ódýrasta sundlaug könnunarinn-
ar reyndist vera í reykjanesbæ.
Þar er sannkölluð vatnaparadís