Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2009, Qupperneq 11
Þriðjudagur 7. júlí 2009 11Neytendur
Í fjölbýlishúsum eru tíðir árekstrar vegna bílastæða sem eru
mörgum mikið hjartans mál.
Bílastæði í
Blíðu og stríðu
sigurður Helgi guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins, svarar fyrirspurnum lesenda.
Sendið fyrirspurnir á neytendur@dv.is
Bílaleign hefur margfaldast og ekki
bætir úr skák faraldur húsbíla, hjól-
hýsa, tjaldvagna og tjaldhýsa. Og til
að bæta gráu ofan á svart eru alls
kyns viðhengi; kerrur fyrir hesta,
snjósleða, fjórhjól og mótorhjól og
báta. Einnig geyma menn vinnubíla
á sameiginlegu bílastæði. Stundum
er um vígatrukka eða aðra stóra og
plássfreka bíla að ræða. Þegar menn
eru frekari á stæði en eðlilegt getur
talist er stutt í deilur og illindi. Mikl-
ar tilfinningar tengjast bílum og bíla-
tæðum og oft er skeggöld og skálm-
öld á bílastæðum. Bílastæðamál
verða gjarnan mjög eldfim og harð-
vítug.
Meginreglur
Þegar gæði eru minni en svo að all-
ir fái fulla nægju er óhjákvæmilegt
að setja reglur um afnotaskiptingu.
Hvað sameign fjölbýlishúsa varð-
ar, þar á meðal bílastæði, hefur lög-
gjafinn í fjöleignarhúsalögunum frá
1994 sett meginreglur og grundvall-
arsjónarmið sem varða veginn og
leggja grunninn að nánari reglum,
sem húsfélög geta sett sér eftir að-
stæðum í hverju húsi og vilja eig-
enda. Hafi húsfélag ekki sett sérstak-
ar reglur um hagnýtingu bílastæða
verður að horfa til óskráðra megin-
reglna og dómafordæma.
Sameiginleg og einkastæði
Bílastæði eru sameiginleg nema
þinglýstar heimildir kveði á um ann-
að. Bílastæði eru með tvennu móti:
Sameiginleg sem er meginreglan og
sérstæði. Eigandi hefur einkarétt á
stæði sínu og öðrum eigendum ber
að virða rétt hans. Hann hefur þó
ekki frjálsar hendur og honum ber
að virða hagsmuni annarra eigenda
og fara að settum reglum og gæta
þess að valda öðrum eigendum ekki
óþægindum og ónæði. Réttur eig-
enda til hagnýtingar óskiptra bíla-
stæða er lögum samkvæmt jafn og
óháður stærð hlutfallstölu. Allir eig-
endur hafa jafnan rétt til bílastæða
og sá sem á stærri hlut í húsinu hef-
ur ekki meiri rétt. Einstökum eigend-
um verður ekki veittur aukinn réttur
til bílastæða umfram aðra eigendur
nema allir samþykki.
Venjuleg hagnýting
Bílastæði eru, eins og nafnið ber
með sér, fyrir bíla að standa á. Bíla-
stæði eru ekki ætluð til að vera
geymsla fyrir tæki, tól og drasl. Fjöl-
eignarhúsalögin segja að óheimilt
sé að nota sameiginlega lóð til ann-
ars en hún er ætluð. Samkvæmt því
eru bílastæði helguð bílum í venju-
legri notkun. Eiganda er skylt að taka
sanngjarnt og eðlilegt tillit til ann-
arra eigenda við hagnýtingu bíla-
stæða og fara í hvívetna eftir lögum,
reglum og ákvörðunum húsfélags-
ins. Ekkert sem er til lýta og spillir
ásýnd lóðar eða er til vansa og trafala
má vera á lóðinni nema samkvæmt
leyfi stjórnar í skamman tíma og af
sérstökum ástæðum.
Óheimil hagnýting: brottnám
Eigendum er óheimilt að leggja und-
ir sig sameiginleg bílastæði. Eigandi
getur ekki eignast sérstakan eða auk-
inn rétt til sameignar á grundvelli
hefðar. Er óheimilt að geyma á bíla-
stæðum að staðaldri óskráða bíla,
vinnuvélar, tæki, bílhluta, bílhræ,
aðra hluti eða lausamuni og dót og
drasl, sem valda sjónmengun, óþrifn-
aði, slysahættu og ama. Óheimilt er
að hafa nokkuð það á stæði eða að-
keyrslu að því sem valdið getur trufl-
un á umferð og aðkomu. Óheimilt er
að láta bíla, kerrur og annað standa
út fyrir stæðamerkingar og skaga inn
á önnur næstu stæði. Er stjórn eft-
ir atvikum heimilt að fjarlægja slíka
muni á kostnað viðkomandi ef hann
sinnir ekki áskorun um að gera það
sjálfur. Er mikilvægt fyrir húsfélög að
standa rétt að málum áður en það
grípur til slíka ráðstafana ella getur
það bakað sér ábyrgð.
Sameiginleg stæði
Setja skal í húsreglum reglur um af-
not sameiginlegra bílastæða. Þær
verða að vera málefnalegar og gæta
veður fyllsta jafnræðis og að ekki
sé raskað eðlilegum og sanngjörn-
um forsendum eigenda. Það verð-
ur að túlka með hliðsjón af því að
bílastæði séu sameiginleg og óskipt
nema annað segi í þinglýstum heim-
ildum og að þeim verði ekki skipt
nema allir eigendur samþykki. Þar
er átt við formlega eignaskiptingu er
meirihluti eigenda getur sett reglur
um afnot og hagnýtingu á sameig-
inlegum bílastæðum og um afnota-
skiptingu þeirra. Slíkar reglur verða
að vera sanngjarnar í garð allra eig-
enda og gæta verður jafnræðis. Sam-
eiginlegum bílastæðum verður ekki
skipt formlega nema allir sem hlut
eiga að máli samþykki. Einnig þyrfti
samþykki borgaryfirvalda.
Einkastæði
Einkabílastæði byggjast yfirleitt á
þinglýstum heimildum en einn-
ig geta þau byggst á eðli máls. Svo
er um einkastæði fyrir framan bíl-
skúra sem teljast séreign viðkom-
andi bílskúrseiganda. Sama getur
átt við um innkeyrslur að bílskúr-
um. Þær eru þó með ýmsu móti og
verður að skoða hvert tilvik til að
meta hvort og í hvaða mæli aðr-
ir eigendur mega hagnýta sér þær.
Í öllu falli eiga bílskúrseigendur
kröfu á því að bílum sé ekki varan-
lega lagt í innkeyrsluna þannig að
hindri eða torveldi aðkomu þeirra
að bílskúrnum. Aðrir eigendur eiga
eðlilegan umferðar- og aðkomurétt
að húsinu um slíkar innkeyrslur, til
dæmis til að ferma og afferma bíla.
Reglur um einkastæði
Húsfélagið getur sett reglur um
einkastæði. Séu þær málefna-
legar og sanngjarnar og reistar á
jafnræðisgrundvelli er eigendum
skylt að fara að þeim. Eigendur
verða að hlíta því að þeim séu sett-
ar vissar skorður þótt um séreign
sé að ræða. Almennt er óheimilt
að nota einkastæði til að geyma
þar að staðaldri annað en skráð
ökutæki, svo sem dót og drasl sem
er til vansa og óprýði og/eða veld-
ur sameigendum óþægindum. En
húsfélag hefur vel að merkja mik-
ið þrengri heimildir til að setja
reglur um einkastæði en sameig-
inleg.
Plássfrekir vagnar
Hjólhýsi, tjaldvagnar og fellihýsi eru
dæmi um hluti sem geta skapað
deilur á meðal íbúa fjölbýlishúsa.
Merkt bílastæði við fjölbýli
Húsfélagið getur sett reglur um einka-
stæði. Séu þær málefnalegar og sann-
gjarnar og reistar á jafnræðisgrundvell er
eigendum skylt að fara að þeim.
www.nora.is Dalvegi 16a Kóp.
opið: má-fö. 11-18,
laugard. 11-16
Opið: má-fö. 12-18, lau.12-16
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is
Fyrir bústaðinn og heimilið
AllAr AlmennAr viðgerðir á
húsbílum og ferðAvögnum