Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2009, Qupperneq 14
Bítlarnir eru einhverjir djúp-vitrustu heimspekingar 20. aldarinnar. Hjartahlýir, glöggir og næmir á hin hár-
fínni blæbrigði tilverunnar sálgreindu
þeir okkur Vesturlandabúa í ódauð-
legum söngtextum. Snilld Bítlanna
var slík að flest lögin þeirra eru sígild
en það þýðir að þau eru heimild um
horfna fortíð en um leið varpa þau
ljósi á nútíðina og ókomna framtíð
þannig að í þeim má alltaf finna skír-
skotun til atburða líðandi stundar og
þar fyrir utan ætti hverjum sem er að
vera í lófa lagið að finna í þeim hug-
læga samsvörun tilfinninga og hug-
mynda á hvaða tíma sem er, hvar sem
þeir eru staddir í veröldinni.
Eftir að Ísland fór lóðbeint á hausinn með þeim afleiðing-um að smánuð þjóðin veit ekki sitt rjúkandi ráð hefur
Svarthöfði leitað í smiðju Bítlanna
eftir þeirri innri ró sem er hverjum
Íslendingi lífsnauðsynleg á þessum
allra síðustu og langverstu tímum.
Svarthöfði hefur staldrað sérstaklega
við lagið When I‘m sixty four og hann
raular það nú laglaus og falskur eins
og íslenskur stjórnmálamaður dagana
langa.
Það vill nefnilega svo ein-kennilega til að íslenska lýð-veldið var sextíu og fjögurra ára þegar það dó 6. október
árið 2008. Svarthöfði man það eins og
gerst hafi í gær þegar hann skundaði
á Þingvöll 17. júní 1944 og fylgdist,
andaktugur en þó
nokkuð kvíðinn,
með lýðveld-
ishátíð-
inni.
Þrátt
fyrir
gleð-
ina og
bjartsýnina sem var alltumlykjandi
læddist nefnilega þá strax sá ónotalegi
grunur að Svarthöfða að hin íslenska
þjóð væri of lítil og vanþroska til þess
að kunna fótum sínum forráð.
Því miður reyndist grunur Svarthöfða á rökum reistur. Þó má segja þjóðinni til varn-ar að þar sem Svarthöfði stóð
í grasinu, sem vaskir forfeður hans
höfðu fótum troðið á þingfundum for-
tíðarinnar, hélt hann að þjóðin þyrfti
ekki nema svona þrjátíu til fjörutíu ár
til þess að steypa sér í glötun.
En það tók okkur sem sagt heil sextíu og fjögur ár að binda enda á glæsta sögu lítillar en bráðefnilegrar þjóðar með
því að kjósa reglulega yfir okkur hjörð
getulausra sérhagsmunapotara sem
sigldu á fullu stími að feigðarósi. Ekki
sofandi, heldur bara slétt sama um
afdrif heildarinnar svo lengi sem þeir
og flokksbræður þeirra gátu makað
krókinn og ornað sér við ylinn frá kjöt-
kötlunum.
Stjórnmálastéttin hefur forherst gríðarlega á þessum sextíu og fjórum árum og hún heldur meira að segja áfram að bítast
um plássið í kringum kulnaða kjöt-
katlana án þess að skeyta um afkomu
þeirra sem hafa mátt puða nótt sem
nýtan dag úti í kuldanum. Heildar-
summa þessara sextíu og fjögurra ára
er því átakanlega léleg og lofar engu í
framhaldinu öðru en áframhaldandi
niðurlægingu og hörmungum.
Sextíu og fjögur ár þykja ekki hár aldur nú til dags en fyrir íslenska þjóð
marka þau
endalokin.
Bítlarnir vissu
þó alltaf að í
þessum ára-
fjölda er falið
ákveðið skapadægur og í raun sýndu
Paul og John ótrúlega spádómsgáfu
þegar þeir sungu um hremmingarnar
sem fylgja því að ná þessum aldri og
fönguðu þær aðstæður sem Íslend-
ingar búa nú við þegar þeir reyna að
biðla til Evrópu og umheimsins alls:
Will you still need me, will you still feed
me, when I´m sixty four.
Því miður virðist enginn þarfn-ast okkar lengur og enn síður eru þjóðir heimsins tilbúnar að fóðra okkur eftir að við
mergsugum Hollendinga og Breta í
þeim vafasama tilgangi einum að vera
ríkust og flottust á sjötugsaldri.
Nú nennir enginn að tala við okkur lengur nema með hót-unum og skætingi þótt við séum komin á hnén og biðj-
um um skilning: Send me a postcard,
drop me a line, stating point of view.
Indicate precisely what you mean to
say. Yours sincerely, Wasting away,
söng Árni Mathiesen til Alastairs Dar-
ling en tungumálaörðugleikar urðu til
þess að Árni fattaði ekkert hvað Dar-
ling sagði í póstkortinu sínu og vont
ástand varð verra. Eftir það klúður
fékk bakraddasöngvarinn Steingrím-
ur J. sviðið og reytir nú skegg sitt yfir
afglöpum forverans þegar hann gólar
yfir Atlantshafið: Give me your answer,
fill in a form. Mine for evermore. Will
you still need me, will you still feed me.
When I’m sixty-four?
Hjálp! Bara einhver. Hjálp! Við erum gömul, gigtveik, sköllótt og gjaldþrota!
Þriðjudagur 7. júlí 200914 Umræða
When I‘m sIxty four
Spurningin
„Nei, ég gæti aldrei
sofið hjá krata,“ segir
Bjarni Harðarson
veitingamaður,
bóksali og
fyrrverandi
alþingismaður.
Bjarni greindi frá því
á bloggsíðu sinni að
ungur maður, sem dreifði kynningar-
riti um gay Pride, hafi litið svo á að
þeir Bjarni og Ólafur arnarson,
höfundur bókarinnar Sofandi að
feigðarósi, væru hjón, þegar þeir
stóðu hlið við hlið á austurvelli á
dögunum. Maðurinn rétti Bjarna og
öðrum viðstöddum kynningarritið,
en Ólafur fékk ekkert fyrr en
misskilningurinn var leiðréttur.
Líturðu ÓLaf
hýru auga?
Sandkorn
n Fréttastofa ríkisins tók strax
viðbragð þegar drottningarvið-
tal við Davíð Oddsson eftir-
launaþega í Mogganum varð
opinbert. Í samræmi við góða
frétta-
mennsku
benti frétta-
stofan kurt-
eislega á að
Davíð sam-
þykkti skrif-
lega skyld-
una til að
greiða Ice-
save, nokkru eftir að hann sendi
Geir H. Haarde, þáverandi
forsætisráðherra, minnisblað
með upphrópun um það hvort
stjórnvöld ætluðu virkilega að
samþykkja að borga.
n Það hefði einhvern tímann
þótt saga til næsta bæjar að Rík-
isútvarpið
setti með
þessum
hætti ofan
í við Davíð
Oddsson.
Á sínum
tíma missti
Davíð stjórn
á sér undir
spurningum Ara Sigvaldasonar
fyrir framan suðandi tökuvél.
Niðurstaða þeirra sem þá réðu
á fréttastofunni var sú að birta
ekki myndskeiðið með fokreið-
um Davíð. Nú er öldin önnur
og Davíð á ekkert skjól hjá rík-
inu. Aftur á móti á Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, fyrrver-
andi menntamálaráðherra, ör-
uggt skjól í Kastljósi vinar síns,
Þórhalls Gunnarssonar sem
forðast í lengstu lög að fjalla um
kúlulánaklandur hennar.
n Mikið álag er nú á ráðherrum
ríkisstjórnarinnar sem leggja
nótt við dag til að tryggja að
Icesave-samningur ríkisstjórn-
arinnar fari í gegnum þingið
og í framhaldinu umsóknin
að ESB. Í góðviðri helgarinn-
ar gaf Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra sér þó tíma til
að grilla. Á milli sneiða svaraði
hann ávirðingum Davíðs Odds-
sonar af gamalkunnum krafti.
Össur Skarphéðinsson utanrík-
isráðherra notaði blíðuna til að
bregða sér norður á Strandir til
að vera viðstaddur þegar Hrafn
Jökulsson skírði yngasta barn
sitt.
n Írskir dagar á Akranesi, sem
haldnir voru um helgina, voru
að vanda eldfjörugir. Það var
sjálfur bæjarstjórinn Gísli S.
Einarsson
sem opnaði
hátíðina. Af
því tilefni
steig hann
á svið og
flutti nokkra
tölu með
tilheyrandi
látbragði.
Meðal áheyrenda var hópur
leikskólabarna sem bæjarstjór-
inn hreif með málflutningi sín-
um. Eitt leikskólabarnanna kom
heim eftir atburðinn og lýsti
setningunni sem stórviðburði:
„Jólasveinninn kom og hélt
ræðu,“ sagði barnið.
lynghálS 5, 110 reykjavík
Útgáfufélag: útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn loftsson
framkvæmdaStjóri: elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dv.iS
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Án þess að ég hljómi of
góður með mig erum við
langbestir á Íslandi.“
n Tölvuleikjaspilarinn Andri Örn Gunnarsson fer
með Counter-Strike liði sínu, Seven, á stórt mót á
Spáni. – Morgunblaðið
„Ég vona bara að
svona lagað
endurtaki sig
aldrei aftur, það
væri best fyrir alla
aðila.“
n Svali Björgvinsson, fyrrverandi starfsmanna-
stjóri Kaupþings, um kúlulánin. – DV
„Þetta voru klárlega
dómaramistök þegar
Keflvíkingar skoruðu
markið.“
n Atli Már Rúnarsson, markvörður Þórs, fékk
rautt spjald í bikarleik Keflavíkur og Þórs sem
norðanliðið tapaði, 2-1. – Morgunblaðið
„Ég sá Jurassic Park og
hugsaði, hey, mig langar
að gera svona.“
n Heiðrún Tinna Haraldsdóttir lærir
tæknibrellur í San Francisco. – Fréttablaðið
„Þetta er vonandi sjokk
fyrir þjóðina. Þetta er ekki
sjokk fyrir þau okkar sem
vinna í þessu dags dag-
lega.“
n Halldóra Halldórsdóttir, starfskona
Stígamóta, um nýja rannsókn sem sýnir að
fjórðungur kvenna hefur orðið fyrir kynferðislegu,
líkamlegu eða andlegu ofbeldi af hálfu
sambýlismanns. – visir.is
Og Ísland brennur
Leiðari
Alþingi Íslendinga vinn-ur þannig þessa dag-ana að öllum almenn-ingi er ofboðið. Engum
Íslendingi blandast um það hug-
ur að allt gangverk samfélagsins
er í lamasessi eftir hrunið síðasta
haust. Fyrirtæki og fólk eru að
verða gjaldþrota á hverjum degi.
Undir þessum kringumstæðum
er hlutverk stjórnmálamanna að
lágmarka tjón og tryggja að fólki
blæði ekki í óþarfa. En sá skilning-
ur nær ekki inn í þingsali þar sem
menn rífast dagana langa og telja
það vera hlutverk sitt að halda úti
leikhúsi fáránleikans.
Margir þeirra stjórnmála-
manna sem nú sitja á þingi bera fulla ábyrgð
á því hvernig fór fyrir Íslandi. Það er eng-
in afsökun að hafa setið í stjórnarandstöðu
þótt sökin sé minni en hjá þeim sem fóru
með stjórnina. Hlutverk minnihlutans var
að standa vaktina og benda á glapræðið sem
varð landinu að falli. Það gerði hann ekki. Og
nú þegar nýtt þing hefur verið kosið er sami
fíflagangurinn við lýði en nýir leikarar fara
með hefðbundnar flokksrullur sína á svið-
inu.
Í næstum 10 mánuði hefur verið farin sú
leið að semja um Icesave við nágrannaþjóðir.
Nú vilja einhverjir að samningum
verði hætt og farin dómstólaleið.
Á meðan á þessu ströggli stendur
er ekki verið að finna leiðir til að
bjarga fólki og fyrirtækjum. Allt
rekur á reiðanum meðan þingið
er í hávaðarifrildi. Sú krafa hlýtur
að vera eðlileg að pattstaðan verði
rofin með því að mynda þjóðstjórn
allra flokka. Þjóðin þarf ekki á því
að halda að ræðukeppnir, hlaðnar
hundalógik, séu það eina sem lagt
er til málanna þegar Ísland brenn-
ur og björgunaraðgerðir eiga að
vera í hámarki. Kyrrstaða eymd-
ar og froðusnakks ríkir á Íslandi.
Forseti Íslands verður að koma að
málum og rjúfa þetta ástand. Það
ætti að vera sjálfsögð krafa allra Íslendinga
að þingmenn fari af heilindum að vinna sína
vinnu. Þjóðin verður að fá sannfæringu fyrir
því að stjórnmálamenn séu af heilindum að
greiða úr flækjunni. Það gerist líklega ekki
nema með þjóðstjórn.
reynIr traustason rItstjÓrI skrIfar: Kyrrstaða eymdar og froðusnakks ríkir á Íslandi.
bókStafLega