Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2009, Side 16
Þriðjudagur 7. júlí 200916 Ættfræði
Þröstur Sigtryggsson
fyrrv. skipherra
Þröstur fæddist að Núpi í Dýrafirði
og ólst þar upp. Hann lauk lands-
prófi frá Núpi 1948, skipstjóraprófi
farmanna frá Stýrimannaskóla Ís-
lands 1954, skipstjóraprófi á varð-
skipum ríkisins 1955 og sótti nám-
skeið í sundköfun hjá kafaraskóla
bandaríska flotans í Key West á
Flórída 1962.
Þröstur var sjómaður á ýms-
um skipum 1947-53, stýrimaður á
varðskipum Landhelgisgæslunnar
1954-59 og skipherra hjá Landhelg-
isgæslunni 1960-90, m.a. í þremur
þorskastríðum. Hann var skólastjóri
Grunnskóla Mýrahrepps vetur-
inn 1982-83 og stundakennari við
Grunnskóla Þingeyrar 1990-92. Þá
reri hann á eigin trillu, Palla krata,
frá Þingeyri sumrin 1993 og 1994.
Þröstur var fulltrúi Landhelgis-
gæslunnar við undirbúning árlegra
sameiginlegra æfinga Norður-Evr-
ópuþjóða við leit og björgun 1986-
90, var fulltrúi Landhelgisgæslunn-
ar á alþjóðlegri ráðstefnu um leit og
björgun í Norður-Atlantshafi í Hali-
fax í Kanada 1987 og formaður sams
konar ráðstefnu í Reykjavík 1989.
Þröstur sat í stjórn Skipstjóra-
félags Íslands, var frumkvöðull að
stofnun Golfklúbbsins Glámu 1991,
en hann hannaði merki Skipstjóra-
félags Íslands og Golfklúbbsins
Glámu árið 1991.
Þröstur hefur samið fjölda dæg-
urlaga en fimm dægurlög komu út
eftir hann á Lagasafninu 7 sumar-
ið 1999 auk þess sem tíu frumsam-
in lög hans komu út á diskinum
Hafblik árið 2004, sungin af Ragn-
ari Bjarnasyni, Einari Júlíussyni,
Ara Jónssyni og Maríu Björk Sverr-
isdóttur. Hann sigraði í sjómanna-
lagakeppni Hátíðar hafsins og Rásar
2 árið 2008 með laginu Faðmurinn,
sungið af Ragnari Bjarnasyni með
texta eftir Kristján Hreinsson.
Endurminningabók Þrastar,
Spaugsami spörfuglinn, skráð af Sig-
urdóri Sigurdórssyni blaðamanni,
kom út 1987. Þröstur var sæmdur
riddarakrossi hinnar íslensku fálka-
orðu 1976.
Fjölskylda
Þröstur kvæntist 1954 Guðrúnu
Pálsdóttur, f. 23.9. 1933, sjúkraliða.
Hún er dóttir Páls Þorbjörnsson-
ar, f. 7.10. 1906, d. 20.2. 1975, skip-
stjóra og kaupmanns, og Bjarnheið-
ar J. Guðmundsdóttur, f. 7.9. 1910, d.
10.8. 1976, húsfreyju.
Börn Þrastar og Guðrúnar eru
Margrét Hrönn, f. 18.8. 1953, versl-
unarmaður í Kópavogi en maður
hennar er Sigurður Hauksson, bryti
á togurum, og á hún einn son; Bjarn-
heiður Dröfn, f. 20.6. 1955, kennari í
Reykjavík en maður hennar er Sigur-
jón Árnason öryggisfulltrúi og eiga
þau saman þrjú börn auk þess sem
hún á son frá því áður; Sigtryggur
Hjalti, f. 7.2. 1957, fyrrv. skipstjóri og
starfrækir nú veitingastaðinn Lund-
ann í Vestmannaeyjum, var kvæntur
Guðríði Guðjónsdóttur sem er látin
og á hann þrjú börn.
Dóttir Þrastar og Láru Árnadótt-
ur er Kolbrún Sigríður, f. 23.10. 1950,
starfsmaður Fjarðabyggðar en mað-
ur hennar er Magnús Pétursson raf-
veitustjóri og eiga þau fjóra syni.
Bróðir Þrastar var Hlynur Sig-
tryggsson, f. 5.11. 1921, d. 14.7. 2005,
veðurstofustjóri, var kvæntur Jakob-
ínu Bjarnadóttur.
Foreldrar Þrastar voru Sigtrygg-
ur Guðlaugsson, f. 27.9. 1862, d. 3.8.
1959, prófastur og skólastjóri á Núpi
í Dýrafirði, og k.h., Hjaltlína Margrét
Guðjónsdóttir, f. 4.7. 1890, d. 30.1.
1981, kennari.
Ætt
Föðurbróðir Þrastar var Kristinn, afi
Kristins Sigtryggssonar, fyrrv. for-
stjóra Arnarflugs. Föðursystir Þrast-
ar var Friðdóra, móðir Finns Sig-
mundssonar landsbókavarðar, afa
Hallgríms Geirssonar, fyrrv. stjórn-
arformanns Árvakurs. Sigtryggur var
sonur Guðlaugs, b. á Þremi í Garðs-
árdal, bróður Bjarna, fræðimanns á
Sellandi. Guðlaugur var sonur Jó-
hannesar, b. á Þremi Bjarnasonar,
Péturssonar, b. á Reykjum í Fnjóska-
dal Jónssonar, ættföður Reykjaætt-
ar í Fnjóskadal. Móðir Sigtryggs var
Guðný Jónasdóttir, b. á Veturliða-
stöðum í Fnjóskadal Bjarnasonar.
Hjaltlína var dóttir Guðjóns, b. á
Brekku á Ingjaldssandi Arnórssonar,
b. á Höfðaströnd Hannessonar, pr.
og skálds á Stað í Grunnavík, bróð-
ur Sigríðar, ömmu Hannibals Valdi-
marssonar, föður Jóns Baldvins,
fyrrv. utanríkisráðherra. Hannes var
sonur Arnórs, prófasts í Vatnsfirði
Jónssonar, bróður Auðuns, langafa
Jóns, föður Auðar Auðuns, fyrrv. ráð-
herra. Móðir Arnórs í Vatnsfirði var
Sigríður Arnórsdóttir, sýslumanns
í Belgsholti Jónssonar. Móðir Arn-
órs á Höfðaströnd var Þórunn, syst-
ir Þorleifs, langafa Hákonar Bjarna-
sonar skógræktarstjóra. Þórunn
var dóttir Jóns, prófasts í Hvammi í
Hvammssveit Gíslasonar og Hall-
gerðar Magnúsdóttur, pr. á Kvenna-
brekku Einarssonar. Móðir Guð-
jóns var Elísabet Kristjánsdóttir, b.
á Sandeyri Helgasonar og Kristínar
Árnadóttur, umboðsmanns í Æðey
Jónssonar, sýslumanns í Reykja-
firði Arnórssonar, bróður Sigríðar.
Móðir Kristínar var Elísabet Guð-
mundsdóttir, b. í Arnardal Bárð-
arsonar, b. í Arnardal Illugason-
ar, ættföður Arnardalsættar. Móðir
Hjaltlínu var Rakel Sigurðardóttir,
b. á Hrafnsfjarðareyri Sigurðsson-
ar. Móðir Sigurðar var Sigríður Sig-
urðardóttir, b. á Horni Pálssonar, b.
í Reykjarfirði Björnssonar, ættföður
Pálsættarinnar.
Eydís fæddist á Akureyri en ólst
upp að Hlébergi í Eyjafjarðarsveit.
Hún var í Hrafnagilsskóla, stund-
aði nám við Verkmenntaskólann
á Akureyri og lauk þaðan stúd-
entsprófi af handíða- og mynd-
menntabraut árið 1999 og stund-
ar nú nám við Myndlistarskólann
á Akureyri.
Eydís starfaði við Gróðrarstöð-
ina Kjarna í nokkur ár en sinnir nú
heimilisstörfum og barnauppeldi.
Auk mikils áhuga á myndlist
hefur Eydís áhuga á skógrækt og
hefur stundað skógrækt á eigin
vegum.
Fjölskylda
Eiginmaður Eydísar er Óli Þór
Jónsson, f. 6.10. 1979, verkfræð-
ingur og sérfræðingur hjá Saga –
Capital á Akureyri.
Börn Eydísar og Óla Þórs eru
Oliver Ísak, f. 12.10. 2002; Iðunn
María, f. 27.11. 2005: Ása Þórey, f.
21.4. 2008.
Systkini Eydísar eru Hjörleifur
Ólafsson, f. 6.5. 1973, rafmagns-
iðnfræðingur, búsettur á Akureyri;
Berghildur Ása Ólafsdóttir, f. 25.1.
1975, skrifstofumaður hjá Norður-
orku á Akureyri.
Foreldrar Eydísar eru Vigdís
Hreiðarsdóttir, f. 18.12. 1946, hús-
móðir í Eyjafjarðarsveit, og Ólaf-
ur Vagnsson, f. 16.6. 1943, héraðs-
ráðunautur.
Hermann fæddist í Reykjavík en
ólst upp í Grundafirði. Hann var í
Grunnskóla Eyrarsveitar, stundaði
nám við FV á Akranesi og lauk það-
an prófum á húsasmiðabraut 2001.
Hermann stundaði fiskvinnslu á
unglingsárunum í Grundarfirði, var
til sjós á árunum 1995-98, vann við
pitsubakstur á Hótel Barbro á Akra-
nesi með skóla og vann við húsa-
smíðar með húsasmíðanáminu.
Hann hefur verið húsasmiður frá
2001.
Hermann hefur leikið knatt-
spyrnu með meistaraflokki Víkings,
HK og ÍA frá 2002.
Fjölskylda
Kona Hermanns er Freydís Bjarna-
dóttir, f. 21.1. 1982, viðskiptafræð-
ingur.
Synir Hermanns og Freydísar
eru Breki Þór Hermannsson, f. 20.3.
2003; Gabríel Ómar Hermannsson,
f. 26.8. 2004.
Alsystur Hermanns eru Guðný
Jóna Þórsdóttir, f. 27.3. 1976, leik-
skólakennari í Kópavogi; Þóra Lind
Þórsdóttir, f. 2.2. 1984, nemi við HÍ.
Hálfsystir Hermanns er Ásthild-
ur Dóra Þórsdóttir, f. 13.1. 1974,
enduskoðandi í Kópavogi.
Foreldrar Hermanns eru Þór
Geirsson, f. 3.9. 1952, sjómaður í
Grundarfirði, og Dagbjört Berglind
Hermannsdóttir, f. 16.9. 1955, mat-
ráðskona við frystihúsið í Grundar-
firði.
Eydís H. Ólafsdóttir
myndlistarnemi á akureyri
Hermann G. Þórsson
húsasmiður í Grundarfirði
30 ára í gær 30 ára í gær
30 ára
n Renata Cabaj Frostafold 157, Reykjavík
n Hermann Geir Þórsson Fagurhóli 2, Grundarfirði
n Ellen Sæbjörg Erlingsdóttir Seljahlíð 11f,
Akureyri
n Eydís Harpa Ólafsdóttir Suðurbyggð 9, Akureyri
n Hildur Ísdal Þorgeirsdóttir Vesturgötu 21,
Reykjavík
n Ragnar Unnarsson Skúlaskeiði 12, Hafnarfirði
n Gunnar Oddur Halldórsson Andrésbrunni 16,
Reykjavík
n Tinna Elín Knútsdóttir Barmahlíð 50, Reykjavík
n Ragnar Pétursson Hverfisgötu 38, Hafnarfirði
n Benedikt Sævarsson Skarðsbraut 13, Akranesi
n Þórður Matthíasson Lækjasmára 82, Kópavogi
n Helga Rósa Másdóttir Grandavegi 7, Reykjavík
n Guðrún Ágústa Eyjólfsdóttir Markarflöt 14,
Garðabæ
n Helga Birna Pétursdóttir Vífilsgötu 9, Reykjavík
n Anna Heiða Bjarnadóttir Högnastíg 4, Flúðum
n Rebekka Guðmundsdóttir Ólafsgeisla 28,
Reykjavík
n María Kristinsdóttir Andrésbrunni 8, Reykjavík
n Yamir E. Jimenez Perez Ljósvallagötu 24,
Reykjavík
40 ára
n Constantin Bors Hafnartúni 12, Siglufirði
n Sumittra Kaewsai Steinholti 8, Vopnafirði
n Bergur Ólafsson Kjalarlandi 6, Reykjavík
n Óskar Ingi Ingason Sunnubraut 25, Búðardal
n Gunnar Stefán Ingason Grjótási 12, Garðabæ
n Árni Salómonsson Tjarnarmýri 37, Seltjarnarnesi
n Sigrún Jóna Sigurðardóttir Miðengi 8, Selfossi
n Jón Helgi Sigurðsson Viðarási 99, Reykjavík
n Dagný Hrönn Bjarnadóttir Ólafsgeisla 47,
Reykjavík
n Heiðar Reynisson Logafold 151, Reykjavík
n Friðrik Ingólfur Helgason Dýrfinnustöðum,
Varmahlíð
n Kristín Þorbjörg Tryggvadóttir Kirkjustétt 19,
Reykjavík
n Guðlaug Gísladóttir Hafralækjarskóla, Húsavík
50 ára
n Þóra Ösp Magnúsdóttir Skeljatanga 22,
Mosfellsbæ
n Þórdís M Sumarliðadóttir Svínabökkum,
Vopnafirði
n Wieslaw Stefan Walendzik Silfurtúni 12, Garði
n Krzysztof Miroslaw Dymek Bakkagerði 7,
Reyðarfirði
n Þorsteinn Briem Sörlaskjóli 68, Reykjavík
n Þórður Einar Leifsson Mánatúni 4, Reykjavík
n Ólafur Þorkell Stefánsson Ásbúð 8, Garðabæ
n Hilmar Elís Árnason Hamarshjáleigu, Selfossi
n Pétur Hafsteinn Pálsson Efstahrauni 32, Grindavík
n Ragnar Karlsson Aflagranda 30, Reykjavík
n Margrét Sumarliðadóttir Langholti 5,
Reykjanesbæ
n Sigrún Sumarliðadóttir Melteigi 4, Reykjanesbæ
n Helga Halldórsdóttir Vanabyggð 8c, Akureyri
n Ísleifur Erlingsson Dúfnahólum 2, Reykjavík
60 ára
n Kjartan B Guðmundsson Bakkastöðum 105,
Reykjavík
n Jóna Ósk Gunnarsdóttir Stapavegi 5,
Vestmannaeyjum
n Elín Sigurðardóttir Neðri-Vindheimum, Akureyri
n Stefán Friðrik Ingólfsson Kleifargerði 2, Akureyri
n Gunnar S Guðmundsson Akurholti 17, Mosfellsbæ
70 ára
n Þóra Þórðardóttir Aðalgötu 51, Suðureyri
n Kristján Jónsson Hringbraut 54, Reykjanesbæ
n Pétur Valberg Helgason Heiðarhvammi 4e,
Reykjanesbæ
n Ólafur Árnason Þóreyjarnúpi, Hvammstanga
n Erna Sigurbjörg Hartmannsdóttir Rjúpnasölum
10, Kópavogi
n Bjarni Hinrik Jónasson Hátúni 10a, Reykjavík
75 ára
n Hanna Jóhannesdóttir Akri, Akureyri
n Hreinn Bergsveinsson Funalind 13, Kópavogi
n Kristín Jóna Stefánsdóttir Áshamri 57,
Vestmannaeyjum
n Guðrún Þ Hafliðadóttir Selvogsgrunni 7, Reykjavík
n Guðrún Hildur Friðjónsdóttir Langholtsvegi 86,
Reykjavík
n Valgeir Jón Emilsson Háaleitisbraut 41, Reykjavík
n Hilmar Guðmundsson Egilsbraut 9, Þorlákshöfn
n Guðrún Sigríður Guðlaugsdóttir Dúfnahólum
2, Reykjavík
n Kolbrún Haraldsdóttir Garðatorgi 7, Garðabæ
80 ára
n Hreinn Hreinsson Strandvegi 7, Garðabæ
n Jónína Guðmundsdóttir Sóltúni 43, Selfossi
n Baldur Ásgeirsson Laugalæk 1, Reykjavík
85 ára
n Sigríður Helgadóttir Mýrarvegi 113, Akureyri
n Svavar Þ Þórhallsson Hraunbæ 107, Reykjavík
Til
hamingju
með
afmælið!
80 ára í dag