Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2009, Qupperneq 17
Þriðjudagur 7. júlí 2009 17Sport
Átta liða úrslitin í kvöld Átta liða úrslit ViSa-bikars kvenna fara fram
í dag en allir leikirnir klárast í kvöld. Stórleikinn má finna á Kópavogsvelli þar sem
Breiðablik tekur á móti Þór/Ka en akureyrarstúlkur gerðu sér lítið fyrir og lögðu
Blikana, 2-0, í síðustu umferð Pepsi-deildarinnar. í garðabænum mætir Stjarnan liði
Kr en Stjarnan fór illa með Kr þegar liðin mættust fyrir skömmu á Kr-vellinum. úr-
valsdeildarbanarnir í íBV heimsækja Fylki í Árbæinn á meðan annað 1. deildar lið,
Völsungur, fær meistara síðustu þriggja ára, Val, í heimsókn til Húsavíkur. dregið
verður svo í undanúrslitin samhliða karladrættinum í átta liða úrslit á morgun.
Yossi framlengir
ísraelsmaðurinn Yossi Benayoun
hefur framlengt samning sinn við
liverpool um tvö ár og hefur þannig
bundið enda á orðróm þess efnis að
hann sé á förum frá félaginu.
Samningur Benayouns átti að renna
út árið 2011 en nú er hann
samningsbundinn liverpool til
2013.
Þessi tíðindi ættu að gleðja
stuðningsmenn liverpool enda var
Benayoun öflugur á síðustu leiktíð,
þrátt fyrir að hafa oft þurft að sætta
sig við að vera á varamannabekkn-
um. „Ég er mjög ánægður með
samninginn. að vera hjá svona félagi
er frábært og nú get ég einbeitt mér
að því að spila enn betur.“
xxx
xxx
xxx
xxx
umSjón: tómaS Þór ÞórðarSon, tomas@dv.is
Svisslendingurinn Roger Federer er aftur orðinn efstur á heimslistanum í tennis. Sæti
sem hann missti í ágúst á síðasta ári. Hann vann Bandaríkjamanninn Andy Roddick
í ótrúlegum úrslitaleik á Wimbledon-mótinu og bætti um leið met Petes Sampras. Fed-
erer hefur nú unnið fimmtán risatitla, fleiri en nokkur annar tennisleikari.
Fyrir ári síðan tapaði Roger Federer,
þá stigahæsti og óumdeilanlega besti
tennisleikari heims, fyrir erkifjanda
sínum, Spánverjanum Rafael Nadal, í
úrslitaleik Wimbledon-mótsins í tenn-
is. Federer hafði unnið Wimbledon-
mótið fimm ár í röð þar á undan. Mán-
uði síðar, í ágúst á síðasta ári, gerðist
svo það sem engan hefði órað fyrir að
gæti gerst. Federer missti toppsætið
á heimslistanum til Nadals en Sviss-
lendingurinn hafði þá verið þar sam-
fleytt í 237 vikur.
Nadal hefur síðustu mánuði ver-
ið manna bestur og unnið hvert mót-
ið á fætur öðru á meðan Federer hefur
gengið í gegnum öldudal. Meðan Na-
dal hefur verið meiddur hefur Federer
hins vegar gengið á lagið, unnið bæði
opna franska í fyrsta skiptið á ferlin-
um og nú Wimbledon-mótið á sunnu-
daginn eftir ótrúlegan úrslitaleik gegn
Andy Roddick frá Bandaríkjunum.
Þegar heimslistinn var svo gefinn út í
gær var hann kominn aftur á toppinn.
Metið bætt
Bandaríkjamaðurinn Pete Sampras var
á sínum tíma besti tenniskappi heims,
um það var ekki deilt. Hann vann á
sínum ferli fjórtán risamót, ótrúlegur
árangur. Fyrr í sumar jafnaði Federer
þann árangur með sigri á opna franska
meistaramótinu. Það mót er leikið á
leir sem hefur verið óvinur Federers
á ferli hans. Þetta var í fyrsta skiptið
sem hann vann það mót og brast hann
í grát eins og svo oft áður þegar hann
vinnur risatitla enda Federer tilfinn-
ingaríkur sigurvegari. Eftir fjögurra
tíma og sextán mínútna úrslitaleik, þar
af lengsta lokasett í sögu Wimbledon-
mótsins, hampaði Federer sigri þar í
sjötta skiptið á sjö árum í viðurvist Pet-
es Sampras og um leið tók hann aftur
efsta sætið á heimslistanum.
Gamla goðsögnin John McEnroe
hældi Federer á sinn einstaka hátt og
sagði árangur hans betri en golfarans
Tigers Woods. „Federer hefur afrekað
meira en Tiger. Federer þarf að hlaupa
og spila á mismunandi undirlagi.
Spilar Tiger ekki bara á grasi?“ spurði
McEnroe.
Auðveldara að halda sætinu en
ná því
„Þetta er stórkostlegt, sérstaklega því
að þegar þú missir efsta sætið veistu
ekkert hvort þú getur endurheimt það,“
sagði Federer um árangurinn í gær
þegar hann hafði náð sér niður. Hann
hafði verið efstur á heimslistanum síð-
an í febrúar 2004 fram til ágústmán-
aðar 2008. „Ég hef alltaf sagt að það er
auðveldara að halda efsta sætinu en að
ná því. Þegar ég náði fyrsta efsta sæt-
inu small allt saman hjá mér og allt
varð auðvelt. Ég vann alla tíu efstu á
listanum, vann hvern einasta úrslita-
leik sem ég komst í og ég vona að þetta
verði eins núna. Ég vil aftur bera höf-
uð og herðar yfir keppinauta mína og
byggja á því. En ég er ánægður maður í
dag,“ sagði Roger Federer.
Federer er sá besti
Bandaríkjamaðurinn Pete Sampras
var ekki á staðnum í Frakklandi í síð-
asta mánuði þegar Federer jafnaði met
hans, sem var fjórtán risatitlar. Hann
sat aftur á móti og glotti í heiðursstúk-
unni á aðalvellinum á Wimbledon-
mótinu í fyrradag þar sem hann horfði
á Federer leika gegn landa sínum,
Andy Roddick. Hann varð svo vitni
að því þegar Federer kláraði leikinn í
bráðabana, 16-14, og tók fram úr hon-
um með fimmtán risatitla.
Sampras var þó auðmjúkur í orð-
um þegar hann var spurður hver væri
sá besti núna. „Það er Federer,“ svar-
aði Sampras. „Einhverjir vilja kannski
telja það til að Rod Laver og Rafael Na-
dal hafi unnið hann nokkrum sinum á
stórmótum. En hann hefur unnið öll
stórmótin, fimmtán talsins núna, og á
eftir að vinna fleiri. Í mínum bókum er
hann sá besti,“ segir Sampras.
Fimmtándi titillinn roger Federer hefur nú unnið fimmtán risatitla.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
federer
aftur
Á toppinn
Gleði Federer er tilfinninga-
vera og fagnar jafnan mikið
og grætur oft.