Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2009, Page 22
Þriðjudagur 7. júlí 200922 Fólkið
Fótboltavefsíðan fotbolti.net
fær á hverjum mánudegi þjóð-
þekktan einstakling til þess
að rifja upp sinn fótboltaferil,
hversu viðburðasnauður eða
skammvinnur sem hann var. Í
gær birtist í liðnum sem heitir
„Fótboltinn minn“ viðtal við
alþingismanninn Sigmund Erni
Rúnarsson, sem starfaði lengi
á Stöð 2. Þegar hann var beð-
inn um að rifja upp skemmti-
lega sögu tengda fótbolta sagði
hann frá því þegar hann ákvað
að taka þátt í firmamóti í fót-
bolta, daginn áður en hann
átti að halda í þriggja vikna
ferð í kringum landið með
konu sinni. „Við lékum á móti
Hjólbarðahöllinni og það voru
ekkert nema 120 kílóa menn í
þeirra liði. Ég var í marki, einn
þeirra lenti ofan á mér og ég
margbraut á mér hnéð þannig
að ég fór í gifsi í ferðina kring-
um landið, konunni minni til
lítillar gleði,“ segir Sigmundur
Ernir Rúnarsson.
á ásdísi
„Þar sem þessi mikli meistari er
fallinn frá ætlum við að vera með
minningartónleika á NASA um
helgina,“ segir Páll Óskar Hjálm-
týsson sem ætlar að halda tónleika
ásamt fleirum til að heiðra minn-
ingu poppgoðsins Michaels Jack-
son. „Nasa var laust núna á laugar-
daginn þannig að við ákváðum að
slá til,“ heldur Palli áfram en Jack-
son verður jarðsunginn í dag en
hann lést fimmtudaginn 25. júlí.
Palli mun syngja gömul Jack-
son-lög ásamt söngvurunum Seth
Sharp og Alan Jones sem gerði það
gott í X-Factor á sínum tíma. „Við
munu taka nokkra af helstu slög-
urunum hans en Jagúar sér svo um
undirspilið.“ Einnig mun Yesmine
Olsson koma fram ásamt döns-
urum og dansa í hinum einstaka
Jackson-stíl.
„Allir sem koma fram á tónleik-
unum gefa vinnu sína,“ heldur Palli
áfram en ágóði af miðasölu rennur
óskiptur til Barnaspítala Hringsins.
Miðaverð er 2.000 krónur en Palli
mun þeyta skífum langt fram á nótt
þar sem lög eftir Jackson og sam-
ferðamenn hans fá að hljóma. For-
sala miða fer fram á NASA á föstu-
daginn milli klukkan 13 og 17.
asgeir@dv.is
Heiðra minningu jacksons
Fékk 120 kíló
oFan á sig
Páll Óskar heldur minningartÓnleika til styrktar BarnasPítala hringsins:
Ásdís RÁn:
Þorkell Máni, útvarpsmaður á
X-inu, fann sig knúinn til þess
að tjá sig um helgarviðtal Morg-
unblaðsins við Davíð Oddsson
sem vakið hefur talsverða at-
hygli. Máni skrifar meðal ann-
ars: „Merkilegt viðtal við Davíð
Oddsson í Mogganum. Kemur
ekki á óvart að Davíð noti tæki-
færið að setja út á samning sem
gerður var 1262. Í þeim samn-
ing stóð einmitt að Ísland ætti
að vera friðelskandi þjóð og
aldrei lýsa yfir stríði á hend-
ur annarri þjóð. Davíð var ekki
hrifinn af því og gaf leyfi fyrir
hönd þjóðarinnar til þess að
sprengja upp hendurnar á sak-
lausum börnum í Írak.“ Hann
endar bloggfærslu sína á að
þakka Davíð sérstaklega fyrir.
dissar
davíð
Páll Óskar
Býður landsmönnum að heiðra
minningu jacksons og styrkja gott
málefni um leið.
Ásdís Rán Gunnarsdóttir hefur not-
ið mikillar velgengni í starfi eftir að
hún flutti til Búlgaríu fyrir rúmi ári og
fyrir nokkrum dögum fékk Ásdís það
staðfest hversu skært stjarna henn-
ar skín þar í landi er ókunnug hjón
spurðu hana hvort þau mættu skíra
dóttur sína í höfuðið á henni. „Þau
spurðu mig einnig hvort ég væri til í
að halda á dóttur þeirra í skírninni,“
útskýrir Ásdís sem var heldur betur
upp með sér.
Ásdís segir stjörnudýrkunina í
Búlgaríu og nágrannalöndunum allt
aðra en þekkist á Íslandi. „Heima er
fólk ekkert að sleikja upp fræga fólk-
ið. En auðvitað finnst mér þetta al-
veg frábært að einhver hjón hérna
úti vilja skíra barn sitt eftir mér. Mér
brá vissulega svolítið en þetta sýnir
auðvitað hvað maður er orðinn
frægur hérna úti.“
Hún tekur það
þó fram að
þetta sé að sjálfsögðu mikill heiður.
Ásdís hefur ekki enn ákveðið hvort
hún muni taka þátt í skírninni en
viðurkennir þó að þetta sé svolítið
spennandi.
„Ég er viss um að það sé mikil
upplifun að taka þátt í skírn hérna
í Búlgaríu og geta sagt frá því,“ segir
Ásdís og tekur það fram að kirkjurnar
þarlendis séu sérstaklega fallegar en
Búlgarar tilheyra upp til hópa rétt-
trúnaðarkirkjunni.
Garðar Gunnlaugsson, eiginmað-
ur Ásdísar, skýrði frá því í Morgun-
blaðinu um daginn að lið í Úsbek-
istan hefðu áhuga á honum. „Þetta
á allt eftir að koma í ljós og er ver-
ið að skoða nokkur lönd þar á með-
al Úsbekistan,“ segir Ásdís sem segir
það þó ekki öruggt að hún flytji með
eiginmanni sínum. „Ætli ég flakki
ekki eitthvað á milli og skoði hvern-
ig aðstæður eru í því landi. En þetta
verður örugglega stuttur samningur,
eitt ár eða svo.“ Ásdís hefur þó spurst
fyrir um Úsbekistan og heyrt góða
hluti. „Já, ég hef heyrt að þetta sé
frábært land og að það sé geggjað
að vera þarna og svo ólíkt því sem
maður þekkir sjálfur.“
Ásdís segist vera óhrædd að
kanna nýjar slóðir. „Ég er mikil æv-
intýramanneskja og ég tel það mik-
il forréttindi að fá að upplifa önnur
lönd, hvort sem það er Úsbekistan,
Búlgaría eða Bretland.“
hanna@dv.is
ný Ásdís Rán er fædd í Búlgaríu. Ókunnug hjón fengu
leyfi hjá ásdísi til að skíra dóttur sína í höfuðið á henni
og spurðu hana einnig hvort hún myndi sýna þeim þann
heiður að halda á nöfnu sinni í skírninni.
skírt í HöFuðið
Á leið til Úsbekistan?
Ásdís er opin fyrir öllu.
Ásdís Rán Súperstjarna
í Búlgaríu. Ókunnug
hjón hafa nefnt dóttur
sína Ásdísi rán.