Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2009, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2009, Page 22
„Hér slær hjartað, hér þarf maður hvorki fréttir né aðra upplýsingamiðla því hér fær maður alla flóruna hjá trillukörlunum,“ segir Pálmi Gestsson Spaugstofumaður og hafnarvörður í Bolungarvík. Pálmi starfar nú annað sumarið í röð í afleysingum sem hafn- arvörður en hann er fæddur og upp- alinn í Bolungarvík. „Heimsmálin eru krufin og lands- málin rædd frá fleiri en einum sjón- arhóli,“ heldur Pálmi áfram um þá fjölbreyttu gesti sem hann fær til sín í vigtunarskúrinn. „Það er kannski ekki allt fallegt sem sagt er en þannig á það líka að vera. Menn segja það sem þeim finnst.“ Pálmi segir gestagang- inn ekki bara skemmtilegan heldur einnig lærdómsríkan. „Hér eru margir skemmtilegir karakterar og sem leik- ari hef ég gott af því að kynnast svona fjölbreyttu fólki. Góður leikari nýtir sér lífið og samferðafólkið. Hér hleður maður hugmyndabankann, hugsun- ina og batteríin, allt á einu bretti.“ Pálmi leys- ir bróður sinn af í starfi hafnar- varðar og segist hann þakklátur fyrir það tækifæri. „Hér er frábært að vera og ekki sjálfgefið að fá tækifæri til þess, en þegar hringt var í mig í fyrra til að biðja mig um að leysa af hér á höfninni þurfti ég ekki að hugsa það neitt lengi.“ Pálmi á hús í Bolung- arvík sem hann hefur eytt undan- förnu árum í að gera upp. „Þetta er húsið sem ég fæddist í og þetta starf gefur mér enn betra tækifæri til þess að vinna í því og njóta þess. Ég er stoltur af húsinu og því að hafa endurnýjað kynni mín af húsasmíði sem ég hef ekki komið nálægt síðan ég var að læra trésmíðina hérna hjá Jóni Frið- geiri í gamla daga.“ Hús Pálma er það elsta í plássinu og var það ekki gert upp bara hvern- ig sem er. „Það var gert upp í upp- runalega mynd. Þetta var gríðarlega mikil vinna. Við vorum dag og nótt í þessu en nú þegar þetta er búið finnst manni einhvern veginn að þetta hafi alls ekki verið neitt mikið, undarlegt. Mér hefur alltaf þótt mikið koma til handverks og ber mikla virðingu fyrir vel gerðum hlutum,“ segir Pálmi sem er greinilega fleira til lista lagt en að kitla hláturtaugar landsmanna. Guðmundur Sigurðsson Fyrirsætan Tinna Bergsdóttir lauk nýverið við að leika í mynd- bandi fyrir íslensku rafsveitina GusGus. Myndbandið var tekið upp á gamla hersjúkrahúsinu í Keflavík. Í viðtali á vefsíðunni pressan.is segir Tinna mynd- bandið hafa verið meira eins og stuttmynd en tónlistarmynd- band. Tinna fer með hlutverk hjúkrunarkonu í myndbandinu og að hennar sögn var afar drungalegt að vera á sjúkrahús- inu að næturlagi. Tinna er búsett í London þar sem hún starfar sem fyrirsæta og nýtur mikillar velgengni þar í landi. Stjörnurnar láta ekki bágt efnahagsástand stöðva sig í að ganga inn kirkjugólfið. Margir þekktir hafa látið pússa sig saman í sumar og eiga örugglega fleiri pör eftir að ganga í það heilaga á næstunni. Manuela Ósk Steinsson gekk að eiga Grétar Rafn Steins- son í annað sinn í Dómkirkjunni á dögunum. Hjónin vöktu mikla athygli er þau gengu inn og út úr kirkjunni og þá sér- staklega vegna þess að öryggisverðir héldu uppi regnhlífum svo að ljósmyndarar næðu ekki myndum af parinu. Veislan fór fram í Turninum og komu hjónin keyrandi í sérútbúnum Audi-jepplingi í veisluna. Handboltakappinn Róbert Gunn- arsson gekk að eiga unnustu sína Svölu sama dag. Það brúð- kaup var mun afslappaðra og tóku brúðhjónin heljarinnar rokkabillí-dans fyrir gestina. Leikarinn Björgvin Franz gekk í heilagt hjónaband með Berglindi Ólafsdóttur í Fríkirkjunni í Hafnarfirði og var mikið um dýrðir í þeirri veislu. Ekki vant- aði upp á glamúrinn í giftingu Bergljótar Arnalds og Páls Ás- geirs Davíðssonar sem fór fram í Dómkirkjunni. Gestirnir gengu síðan yfir í Hallargarðinn þar sem kampavín var sötr- að og ástinni fagnað. Brúðkaupsveislan sjálf var haldin á Hótel Búðum á Snæfellsnesinu. Stjörnubrúðkaup í kreppunni í GuSGuS- mynbandi ÞjóðÞekktir Íslendingar ganga Í Það heilaga: Pálmi Gestsson: Egill „Þykki“ Einarsson var heldur betur með yfirlýsingarn- ar í DV fyrir helgi, en kappinn var á leið á Landsmót Ung- mennasambands Íslands sem fram fór á Akureyri fyrir helgi. Kappinn ætlaði meðal annars að keppa í fótbolta og pönnu- kökubakstri. Með í för var stór- vinur Gillz, Hjörvar Hafliðason einnig þekktur sem Hjöbbi K, og kepptu þeir fyrir hönd Ung- mennafélags Kjalarnesþings. Gillz tók ekki gullið eins og hann hafði áætlað en átti þó að keppa um þriðja sætið. Strákarnir kom- ust þá að þeirri niðurstöðu að spila ekki um sæti heldur gefa leikinn frá sér. Sagan segir að norðlenska skemmtanalífið hafi heillað örlítið meira en bronsið. djammið heillaði 22 þriðjudaGur 14. júlí 2009 fólkið Pálmi Gestsson úr spaugstofunni nýtur lífsins sem hafnarvörður í Bolungarvík. hann segir trillukarlana eina upplýsingamiðilinn sem hann þarfnast og að málefni líðandi stundar séu rædd af hreinskilni í vigtunarskúrnum. Þó ekki sé allt fallegt sem þar er sagt. Sumarbrúð- kaupin vinsæl Björgvin Franz gifti sig með stæl. Vita allt trillukarlar Pálmi Gestsson Nýtur þess að vinna sem hafnarvörður. Hafnarvörðurinn Pálmi er fæddur og uppalinn í Bolungarvík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.