Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2009, Side 2
2 þriðjudagur 18. ágúst 2009 fréttir
Magnús Kristinsson, útgerðarmaður
úr Vestmannaeyjum, hefur samið við
skilanefnd Landsbankans um að stór
hluti af tæplega 50 milljarða króna
skuldum eignarhaldsfélaga hans
verði afskrifaður, samkvæmt heim-
ildum DV. Nákvæmar upplýsing-
ar um upphæðir afskriftanna liggja
hins vegar ekki fyrir. Skilanefndin
mun ekki leysa til sín þann kvóta sem
Magnús á. Magnús var ekki í per-
sónulegum ábyrgðum fyrir langmest-
um hluta þeirra lána sem verið er að
afskrifa.
Magnús mun hins vegar þurfa að
standa skil á því sem hann er per-
sónulega ábyrgur fyrir. Ekki er vit-
að hversu háar upphæðir þetta eru.
Hugmyndin er þá væntanlega sú að
Magnús muni greiða það sem hann
er persónulega ábyrgur fyrir til baka
með hluta þess gróða sem hann fær
af rekstri sjávarútvegsfélags síns í Eyj-
um, Bergs-Hugins. Hugmynd skila-
nefndarinnar á bak við samkomulag-
ið við Magnús byggist líklega á því að
nefndin geti fengið mest upp í kröf-
ur sínar á hendur Magnúsi á þennan
hátt, frekar en að ganga að honum og
setja hann í þrot.
Stór skuld út af Toyota
Magnús, sem í grunninn er útgerð-
armaður, hefur einnig stundað ýmis
annars konar viðskipti á liðnum
árum. Hann keypti meðal annars
Toyota-umboðið á Íslandi árið 2005
og var annar af eigendum eignar-
haldsfélagsins Gnúps, ásamt Kristni
Björnssyni, sem var einn stærsti hlut-
hafinn í FL-Group og sem átti um
5 prósenta hlut í Kaupþingi. Sam-
kvæmt heimildum DV er hluti þeirra
skulda sem Magnús á útistandandi
við Landsbankann tilkominn vegna
kaupa hans á Toyota-umboðinu fyr-
ir um 7 milljarða króna. Það lán var í
erlendri mynt og má reikna með að
það hafi hækkað nokkuð eftir banka-
hrunið. Eins er líklegt að skuldir ann-
ars félags Magnúsar, Mótormax, sem
varð gjaldþrota fyrr á árinu, séu einn-
ig meðal þeirra skulda sem verða af-
skrifaðar. Skuldir Mótormax nema á
annan milljarð króna.
Hluthafi í Landsbankanum
Landsbankinn er langstærsti lánar-
drottinn eignarhaldsfélaga Magn-
úsar en hann skuldar hinum bönk-
unum um 10 milljarða króna
samkvæmt heimildum DV, aðallega
Glitni.
Eitt hið helsta sem vekur athygli
við mál Magnúsar er að persónuleg-
ar ábyrgðir hans fyrir lánunum hjá
Landsbankanum virðast hafa ver-
ið ansi litlar. „Það var bara þannig
í þessu blessaða samfélagi okkar að
það var ákveðin elíta sem gat labb-
að inn í bankana og keypt nánast
hvað sem er án þess að þurfa að taka
nokkra ábyrgð á því sjálf. Þannig
er þetta í tilfelli Magnúsar,“ segir
einn heimildarmaður DV innan úr
bankakerfinu sem ekki vill láta nafn
síns getið.
Magnús átti 2,3 prósenta hlut í
Landsbankanum í gegnum einka-
hlutafélagið Smáey auk þess sem
hann átti rúmlega 5 prósenta hlut í
Straumi-Burðarási en stærstu hlut-
hafar bankanna tveggja voru fé-
lög í eigu Björgólfsfeðga. Magnús
hefur því fengið lánaða milljarða
frá banka sem hann var hluthafi í.
Annað sem ekki liggur ljóst fyrir í
þessu samhengi er hvort Magnús
hafi fengið lán án veða frá Lands-
bankanum til að kaupa hlutabréf í
bankanum sjálfum og í Straumi en
ekki er loku fyrir það skotið.
Fall Gnúps markaði upphafið
Magnús er einna helst þekktur sem
annar af eigendum fjárfestinga-
félagsins Gnúps sem varð gjald-
þrota í árslok 2007. Fall Gnúps er
talið marka upphafið að íslenska
efnahagshruninu, félagið var fyrsta
stóra fjárfestingafélagið til að verða
gjaldþrota.
Útgerðarmaðurinn Magnús Kristinsson hefur samið við
Landsbankann um að stór hluti 50 milljarða króna skulda
hans við Landsbankann verði afskrifaður. Hann mun
þurfa að greiða þrotabúi gamla Landsbankans það litla
sem hann var persónulega ábyrgur fyrir. Hluti skuldanna
er tilkominn vegna kaupa Magnúsar á Toyota-umboðinu
fyrir fjórum árum. Magnús var hluthafi í Landsbankanum
við bankahrunið í haust.
FéLaG EiGnarHLuTur í %
TMH Iceland ehf 100%
MK-44 ehf 100%
Bergur-Huginn ehf 76%
Smáey ehf 50%
Eyrar ehf 50 %
Fjárfestingafélagið Blik ehf 20%
Eyjasýn ehf 15,12%
Heimild: Lánstraust
Eignarhlutir Magnúsar
FéLaG STaða
44 ehf. Stjórnarmaður
Arctic Trucks International ehf. Meðstjórnandi
Arctic Trucks Ísland ehf. Meðstjórnandi
Bergey eignarhaldsfélag ehf. Stjórnarmaður
Bergur-Huginn ehf. Meðstjórnandi
Bílaleiga Flugleiða ehf. Meðstjórnandi
Egilsdalur ehf. Stjórnarmaður
Ensímtækni ehf. Meðstjórnandi
Eyjasýn ehf. Meðstjórnandi
Eyrar ehf. Stjórnarmaður
Eyrún hf. Varamaður
Gísli Jónsson ehf. Stjórnarmaður
ÍM rekstur ehf. Varamaður
M. Kristinsson ehf. Stjórnarformaður
MK-44 ehf. Stjórnarmaður
Motormax ehf. Stjórnarformaður
Pizza-Pizza ehf. Meðstjórnandi
Q4 ehf. Stjórnarmaður
Q44 ehf. Stjórnarmaður
Skorri ehf. Stjórnarformaður
Smáey ehf. Stjórnarmaður
Snæís hf. Meðstjórnandi
Sólning Kópavogi ehf. Stjórnarformaður
Suðurey ehf. Stjórnarmaður
TMH Iceland ehf. Stjórnarformaður
Toyota á Íslandi hf. Stjórnarformaður
Yamaha á Íslandi ehf. Stjórnarmaður
Heimild: Lánstraust
stjórnarsEtur Magnúsar
tugMilljarÐa sKulDir
Magnúsar aFsKriFaÐar
inGi F. ViLHjáLMSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
„Þótt einhver hafi fundið það út að
þyrlan væri til sölu er ekki þar með
sagt hvað ég geri,“ segir Magnús
Kristinsson spurður um lúxusþyrl-
una sem nú er auglýst til sölu hjá
bandarískri þyrlusölu.
Magnús segir að sú staðreynd að
hann hafi lagt þyrlunni tengist ekkert
efnahagsþrengingunum heldur séu
tryggingarnar dýrar og því hafi hann
ákveðið að leggja henni um stund.
„Það eru tveir mánuðir síðan
henni var lagt og það er ekki út af nú-
verandi ástandi. Þetta er dýrt tæki og
það er dýrt að hafa þyrluna á trygg-
ingum þannig að ég ákvað að taka
hana af tryggingum fyrst og fremst,
það var megintilgangurinn.“
Áhugi erlendis
Samkvæmt heimildum DV hafa átt
sér stað einhverjar þreifingar um
sölu á þyrlunni en það er íslenska
fyrirtækið Þyrluþjónustan sem sér
um rekstur hennar en fyrirtækið er
einnig með þrjár aðrar þyrlur á sín-
um snærum.
„Það kostar mikla peninga að
tryggja þyrlu. Þeir hjá Helicopter Ex-
change fréttu af því að ég hefði lagt
þyrlunni og höfðu samband við mig.
Ég sagði þeim að þeir mættu hafa
hana á sölu og við sjáum bara hvað
út úr því kann að koma. Ég keypti
hana á ákveðinn pening og ég ætla
ekki að fara að tapa á þessu dæmi.
Það á að vera mikill markaður fyrir
þyrlur en hann hefur eitthvað dvín-
að. En hún er ekki sérstaklega á sölu
út af ástandinu. Það er búið að gera
margt annað til að spara í þessu ár-
ferði,“ segir Magnús en hann hefur
tekið rækilega til í fyrirtæki sínu en
með þeim aðgerðum hefur Magnús
sloppið við að segja upp fólki.
Í gamla daga skrúfuðu menn oft
númeraplöturnar af bílum sínum og
geymdu þá þannig yfir veturinn svo
þeir þyrftu ekki að borga tryggingar.
Það má því segja að Magnús sé að
taka „númeraplöturnar“ af þyrlunni
sinni en með því sparar hann hundr-
uð þúsunda ef ekki milljónir.
Verðmæti í fólki
„Það eru miklu meiri verðmæti í fólk-
inu heldur en maður gerir sér grein
fyrir,“ segir Magnús sem hefur farið
aðrir leiðir í niðurskurði.
„Það versta sem þú gerir er að
henda fólkinu út á götu og segja: „Ertu
tilbúinn að koma þegar mér hentar?“
Það má ekki gera það þannig. Það eru
miklu meiri verðmæti í því að gæta að
hag fólksins og leyfa því að vera hjá
okkur. Þess í stað minnkum við starfs-
hlutfall og þannig höfum við farið í
gegnum allan pakkann hjá okkur. Við
erum búin að minnka allt sem hægt
er að minnka,“ segir Magnús og bend-
ir á ferðalög og gjafir.
„Eins og sagt er, þá er hægt að
skera endalaust niður í fyrirtækjum.
Það er hægt að minnka allt sem heit-
ir risnur, ferðalög, gjafir og þess hátt-
ar en það er búið að skera allt þetta
niður verulega.“
Magnús segir erfitt að átta sig á
framtíðinni en vonar að ástandið
fari að batna enda fari þetta illa með
heimilin og fyrirtækin í landinu.
„Ég á erfitt með að átta mig á
þessu. Ég bíð svolítið eftir því að
þessir gjaldeyrissjóðspeningar komi
og önnur fyrirgreiðsla til hins opin-
bera svo maður geti farið að sjá þetta
gengi stoppa einhvers staðar. Það er
náttúrlega alveg hræðilegt að sjá það
að krónan veikist dag frá degi. Þetta
fer með allar skuldir okkar í atvinnu-
rekstri og skuldir heimilanna til and-
skotans ef þetta heldur svona áfram,“
segir Magnús áhyggjufullur.
Áhugi á lúxusþyrlu
Þyrlan hans Magnúsar er af gerðinni
Bell 430 og er ein sú allra flottasta
sinnar tegundar og án efa sú allra
veglegasta hér á landi.
Þyrlan getur náð allt að 270 kíló-
metra hraða á klukkustund og getur
tekið allt að sex til sjö farþega. Allir
innviðir þyrlunnar eru eins og í lim-
ósínu og er til að mynda „limósínu-
rúða“ á milli farþegarýmis og flug-
manna. Sú rúða er að sjálfsögðu
skyggð eins og í alvöru limósínu.
Þá er veitingageymsla um borð
í þyrlunni, hljómtæki með snerti-
takkabúnaði auk tveggja síma sem
Magnús getur notað í flugi.
Handföngin inni í þyrlunni eru
heldur ekkert slor. Þau eru gulli sleg-
in eins og sést á meðfylgjandi mynd-
um.
Hvað sjálfa innréttinguna varðar,
eru sætin ljósdrapplituð leðursæti
en gólfteppið í þyrlunni er að sjálf-
sögðu í stíl.
Samkvæmt heimildum DV er
söluverðið í kringum fimm til sjö
milljónir dollara en miðað við nú-
verandi gengi erlendis gæti þyrlan
því selst á rúman milljarð króna.
Aðspurður hvort hann sakni
þyrlunnar segir Magnús: „Nei nei,
ekkert rosalega.“
Föstudagur 7. Nóvember 20082
Fréttir
Þetta helst
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
Allt fór á fullt fyrir
hrun bankanna
til að tryggja
að bankafólk
sem keypt hafði
hlutabréf með lánum
þyrfti ekki að standa við
skuldbindingar sínar.
Stjórn Kaupþings leysti
bankamenn undan per-
sónulegum ábyrgðum
sínum á lánum vegna
hlutabréfakaupa. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, hefur ver-ið sérstaklega gagnrýndur fyrir þátttöku sína í þeim gjörningi, enda gangi hann gegn hagsmunum almennings og þar með félagsmanna í VR. Sumir bankamenn fluttu hlutabréf sín og skuldir í einkahlutafé-lög. Kristján Arason, eiginmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, segist hafa tapað ævisparnaðinum en prísar sig sælan að þau hjónin haldi húsinu.
Leyst undan skuLdumþriðjudagur 4. nóvember 20082
Fréttir
Milljarðarnir hverfaStjórnendur bankans sem eru á lista yfir tuttugu stærstu hluthafana.
FyrirgeF oss vorar skuldir
Sigurður
Einarsson
1,08%
7.992.420 hlutir.5.227 milljónir190960-2269
Hreiðar Már Sigurðsson ehf.
0,95%
7.047.240 hlutir. 4.609 milljónir 500506-1990
Ingvar
Vilhjálmsson ehf.
0,56%
4.118.900 hlutir.2.694 milljónir471008-1330
Ingólfur
Helgason
0,50%
3.724.880 hlutir. 2.436 milljónir 041067-5279
Þeir stjórnendur Kaupþings sem DV talaði við neita að skuldir þeirra hafi verið felldar niður. Flest bendir þó til þess að það hafi verið gert. Í kvöld-fréttum RÚV í gær kom fram að stjórn Kaupþings hefði látið afskrifa skuld-ir fjölda starfsmanna bankans áður en hann var þjóðnýttur. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra segir þennan gjörning hljóma einkar sér-kennilega. Heimildir DV herma að ábendingar um meint misferli inn-an Kaupþings hafi borist Fjármála-eftirlitinu fyrir nokkrum vikum. Fyrr-verandi og núverandi starfsmenn bankans sem DV hafði samband við virðast ekkert kannast við niðurfell-ingu skuldanna. Vilhjálmur Bjarna-son, aðjúnkt í hagfræði við Háskóla Íslands og formaður Félags fagfjár-festa, segir þetta vera skýlaust brot á hlutafélagalögum. DV hefur und-anfarið fjallað um mál Birnu Einars-dóttur, bankastjóra Nýja Glitnis, en það hefur vakið mikla athygli und-anfarið að bréf hennar í Glitni hurfu sökum tæknilegra mistaka að henn-ar sögn.
Björgun bankamannaÍ kvöldfréttum Ríkissjónvarps-ins í gær kom fram að stjórn Kaup-þings hefði látið afskrifa skuldir fjölda starfsmanna bankans áður en hann var þjóðnýttur. Fjármálaeftir-litið segist ekki hafa samþykkt niður-fellingu krafna eða trygginga vegna lánveitinga til starfsmanna bankans.
Kaupþing á að hafa afskrifað skuld-irnar í lok september, nokkrum vik-um áður en bankinn var þjóðnýttur. Starfsmenn bankans og stjórnendur höfðu sumir hverjir fjárfest í bank-anum með lánum sem átti að greiða af með arðgreiðslum. Þegar bankinn var þjóðnýttur urðu bréfin verðlaus en lánin stóðu eftir. Hafi skuldirn-ar verið þurrkaðar út eins og fregnir herma er líklegt að með því hafi ver-ið reynt að bjarga bankastarfsmönn-um. Samkvæmt lögum mega þeirsem hafa orðið gjaldþrota á síðustu fimm árum ekki stjórna fjármála-stofnunum.
Sömu lögmál og um önnur lánÁ meðal þeirra sem áttu stóra hluti í bankanum voru Sigurður Einarsson sem átti tæpa átta milljarða. Hreiðar Már Sigurðsson átti rúma sjö millj-arða. Ingólfur Helgason átti rúma 2,4 milljarða. Ingvar Vilhjálmsson átti 2,7 milljarða en hann segir við DV að skuldir hans hafi ekki verið felld-ar niður. Í svari Fjármálaeftirlitsins við fyrirspurn fréttastofu RÚV vegna málsins kemur fram að í ákvörð-un Fjármálaeftirlitsins um ráðstöf-un eigna og skulda nýju bankanna segi að skuldbindingar starfsmanna lúti sömu lögmálum og önnur lán sem fluttust yfir til nýju bankanna. Fjármálaeftirlitið hafi ekki samþykkt sérstaklega niðurfellingu krafna eða trygginga vegna lánveitinga til starfs-manna bankanna.
Sérkennilegur gjörningur„Þessi gjörningur hljómar mjög sérkennilega. Við munum fara ít-arlega í gegnum það hvað er rétt og
JÓN BJARKI MAGNÚSSON
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Á fundi með stjórnvöldumHreiðar már Sigurðsson ogSigurður einarsson koma í ráðherrabústaðinn 6. október vegna efnahagsástandsins.
þriðjudagur 4. nóvember 2008 3
Fréttir
Kaupþing gleypti ævisparnaðinn
Kristján Arason
Ævisparnaður Kristjáns Ara-sonar, fyrrverandi handknatt-leikshetju, og eiginkonu hans,Þorgerðar Katrínar Gunnarsdótt-ur menntamálaráðherra, fór í súg-inn þegar ríkið tók yfir Kaupþing. Kristján hafði keypt bréf í bank-anum og meðal annars notað til þess fjármuni frá því þegar hann var atvinnumaður í handbolta. Í febrúar í fyrra stofnaði hann eign-arhaldsfélagið 7 hægri ehf. og yf-irtók það félag fjárfestingarnarí bankanum í kjölfarið. Kristján starfaði sem framkvæmdastjóriviðskiptabankasviðs Kaupþings á þeim tíma. Hann segir einhver lán hafa hvílt á félaginu en þau hafi ekki verið strokuð út eins ogfregnir herma að hafi verið gert hjá sumum fyrrverandi stjórnend-um bankans.
Ævisparnaðurinn farinn„Já, ég átti hlut, eða það var á eignarhaldsfélag í minni eigu,“segir Kristján aðspurður hvort hann hafi átt hlutabréf í Kaupþingi.
Hann vill
ekki tjá sig
um hversu
háar upp-
hæðir sé
um að ræða
en ljóst er
að þær
séu þó
nokkr-
ar í
ljósi
þess að nær allt sparifé þeirra hjóna hafi farið með falli bankans. „Ævisparnaðurinn er farinn, en við eigum þó allavega húsið,“ seg-ir Kristján og bætir því við að þess-um fjármunum hafi verið ætlað að vera sparnaður til lengri tíma. „Við höfðum mikla trú á Kaup-þingi,“ segir hann og ítrekar að þarna hafi verið samankomið allt það sem þau höfðu safnað um æv-ina. Þegar Kristján er spurður út í hvort lán hans vegna hlutabréfa-kaupa hafi verið felld niður eins fregnir herma að hafi verið gertmeð aðra stjórnendur segir hann svo ekki vera. „Það hefur engin niðurfelling átt sér stað og verður bara farið með mitt eignarhalds-félag eins og önnur. Það er ekkert óheiðarlegt við neitt sem ég hef gert í þessu máli,“ segir hann.
Stóð rétt að málumBréfin í Kaupþingi voru upp-haflega á nafni Kristjáns en voru síðar sett inn í eignarhaldsfé-lag hans 7 hægri ehf. Spurður um stöðu félagsins í ljósi þess að skuldirnar falli á það svarar hann: „Ég vil ekki tjá mig um það.“ Hann segir að eftir að hlutirn-ir hafi verið settir inn í eignasölu hafi gengi hlutabréfa Kaupþings hækkað mikið en það sem síð-an gerðist hefði enginn getað séð fyrir.
Hlutabréf Kristjáns voru færð yfir í 7 hægri ehf. um mánaðamót-in febrúar, mars en félagið var stofnað í febrúar. Kristján er stjórnarformaður í 7 hægri ehf.
og Þor-
gils
Óttar Mathiesen er varamaður. Þegar Kristján er spurður hversu miklar skuldir liggi á 7 hægri ehf. vill hann ekki tjá sig um það. „Það voru einhver lán og líka eigið fé,“ segir hann. „Þetta var gert með samþykki forstjóra og regluvarð-ar Kaupþings,“ segir Kristján sem vill ítreka að rétt hafi verið staðið að málum.
Leikkerfið klikkaðiKristján er eins og alþjóð veit þekktastur fyrir mikla handknatt-leikshæfileika en hann var kosinnfjórði besti handknattleiksmað-ur í heimi árið 1989. Eftir að hann lagði boltann á hilluna varð hann umsvifamikill í fjármálalífinuhér á landi. Kristján hefur áður sagt að nafnið 7 hægri hafi ver-ið fengið beint úr handboltanum en bæði Kristján og Þorgils Óttar eru meðal bestu handknattleiks-manna Íslandssögunnar. Kristján hefur áður lýst 7 hægri sem „prív-at“ eignarhaldsfélagi. „Það veitir kannski ekki af góðum leikkerfum eins og staðan er í dag,“sagði Kristjánvið Vísi síðasta vetur, rétt eft-ir að hannhafði stofnað 7 hægri ehf.
jonbjarki@dv.is
„Ævisparnaðurinn er farinn, en við eigum þó allavega húsið.“
Eignarhaldsfélagið situr í súpunni Kristján arason stofnaðieignarhaldsfélagið 7 hægri ehf. í febrúar og það yfirtók allar fjárfestingar hans í Kaupþingi. óvíst er um framtíð félagsins.
Húsið stendur Kristján segir sigog þorgerði hafa tapað tapað miklum fjárhæðum en eftir standi húsið sem þau eigi ennþá.
Trúðu á Kaupþing Ævisparnað-ur Kristjáns arasonar og þorgerðar Katrínar varð að engu þegar ríkið tók bankann yfir.
rangt. Fjármálaeftirlitið fer nú í gegn-um allan rekstur allra bankanna fyr-ir hrunið. Þar er allt sem orkar tví-mælis skoðað sérstaklega. Ef um er að ræða óeðlilega hluti verða mögu-leikar á riftun kannaðir,“ segir Björg-vin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra. Heimildir DV herma að ábend-ingar um meint misferli innan Kaup-þings hafi borist Fjármálaeftirlitinu fyrir nokkrum vikum. Þær grun-semdir hafi orðið til þess að áherslavar lögð á að fá utanaðkomandi og óháðan bankastjóra en ekki inn-anhússmann. Þar með var Finnur Hjörleifsson ráðinn.
Skýlaust brot
Benedikt Sigurðsson, upplýs-ingafulltrúi Kaupþings, kannaðist ekki við að lán starfsmanna bank-ans hefðu verið felld niður þegar DV hafði samband við hann. Hann seg-ir einnig að honum sé alveg ókunn-ugt um að einstaklingar innan bank-ans hafi fjármagnað hlutabréfakaup með lánum. Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt í hagfræði við Háskóla Ís-lands og formaður Félags fagfjár-festa, segir þetta vera skýlaust brot á hlutafélagalögum. „Þessar bless-uðu skilanefndir eiga náttúrulega að horfa á þetta,“ segir hann en tekurfram að hann eigi eftir að kynna sér málið til hlítar.
Þögn KaupþingsFram hefur komið í fjölmiðlum að um tugi milljarða sé að ræða. Fregn-irnar eru sláandi í ljósi þess að hinn almenni borgari fær skuldir sínar ekki felldar niður. Fram hefur komið í fjölmiðlum að skuldir þjóðarbúsins séu 9.400 milljarðar króna en það eru 7,7 milljónir á hvert einasta manns-barn. Kaupþing hefur ekki gefið frá sér neina yfirlýsingu í kjölfar þessara
fregna en Landsbankinn sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfar fréttarinnar. Þar kemur fram að Landsbanki Ís-lands hf. hafi ekki veitt starfsmönn-um sínum lán fyrir hlutabréfakaup-um sem hluta af starfskjörum. Því sé ekki um neinar niðurfellingar skulda starfsmanna eða félaga þeirra að ræða hjá bankanum. Eins og fyrr segir hefur mál Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Nýja Glitnis, verið mikið í fjölmiðl-um undanfarið. Þegar Árni Tómas-son, skiptastjóri Glitnis, var spurð-ur hvort ekki væri óheppilegt að stjórnendur gömlu bankanna hefðu tekið við stjórn þeirra nýju sagð-ist hann í rauninni ekki skilja slíkan málflutning. Það væri mikil þekking sem fylgdi starfsmönnum bankanna og í raun ómögulegt að byggja nýju bankana upp á fólki af atvinnuleys-isskrá.
„Kemur engum við nema mér“Birgir Örn Arnarson, yfirmaður áhættustýringar Kaupþings, kann-aðist ekki við að skuldir hans hefðuverið afskrifaðar þegar DV náði tali af honum. „Ég veit ekki til þess að það sé búið að gera neitt í því, þær eru ennþá bara eins og þær eru,“ sagði hann. Hann vildi ekkert tjá sig um hversu miklar upphæðir væru í bréfum hans. Né heldur vildi hann segja hvort hann hefði tekið lán fyrir kaupunum á sínum tíma. „Það kem-ur engum við nema mér,“ sagði hann við blaðamann DV.Þegar Birgir var spurður hvern-ig fjárhagsstaða hans væri nú þegar hlutirnir í bankanum væru orðnir verðlausir sagðist hann ekkert vilja fara út í það. Hann ítrekaði að verið væri að rugla honum saman við ein-hvern annan, hann hefði ekki keypt bréf fyrir tvo milljarða.
„Þessi gjörningur
hljómar mjög sér-
kennilega. Við mun-
um fara ítarlega í
gegnum það hvað er
rétt og rangt.“
Glæsivilla Sigurðar Stjórnarformaður Kaupþings byggir nú tæplega 900 fermetra glæsivillu í borgarfirð-inum, með 50 fermetra vínkjallara. Hann keyptinýverið hús í Lundúnum á tvo milljarða króna.
DV greindi frá því í byrjun
vikunnar að hætta væri
á að fólk festist í skulda-
fjötrum vegna lækkandi
húsnæðisverðs og vax-
andi verðbólgu. Í gær birti
Seðlabankinn svo peningamála-
rit sitt um þróun og horfur í efna-
hagsmálum. Þar kom fram að
fasteignaverð hefur þegar lækkað
um 14 prósent að teknu tilliti til
verðbólgu og að eftir tvö ár kunni
fasteignaverð að hafa lækkað um
fjórðung í viðbót að nafnvirði.
Það þýðir, gangi spáin eftir, að
húsnæði verði helmingi ódýrara
að raunvirði en það var á síðasta
ári. Þá er bæði búið að reikna
inn í dæmið verðlækkun í krón-
um talið og verðbólgu.
aLmenningur í vanda
Vertu
Hannes
í einn
dag
heimilin
hrynja
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
dv.is
besta rannsóknarblaðamennska ársins
mánudagur 3. nóvember 2008 dagblaðið vísir 204. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295
neytendur
rændi ragnHeiði
gröndal
Hörmungar yfirvofandi Hjá Húsnæðiseigendum:
Húsnæðismarkað-
urinn „í klessu“
„Þetta er lognið
á undan storminum“
„Fólk festist í skulda-
og eignafjötrum“
Minnst 16 prósenta
hækkun fasteignalána
Fréttir
Fólk
Fréttir
sjálFstæðisFlokkurinn
í sjálFHeldu Framsókn og Vg vilja ekki fara í stjórn með flokknum
„krossleggur
bara fingur“
25-45% hrun!
lára ómarsdóttir
missti vinnuna
Fritzl læsti
MöMMu
sína inni
góðæriskvöld
í verðlaun
allt að
75%
Munur
Fólk
ódýrustu dekkjaskiptin
síbrotamaður í
þriggja ára fangelsi
listamenn
vilja ekki
konu geirs
Fréttir
Fréttir
Fréttir 2
„Fram undan
er löng leið.
Það er á bratt-
ann að sækja.
Við náum
kannski ekki á
áfangastað á einu ári,
jafnvel ekki einu kjör-
tímabili. En, Banda-
ríkjamenn, ég hef
aldrei verið eins bjart-
sýnn og í kvöld á að
við komumst þangað,“ sagði öld-
ungadeildarþingmaðurinn Barack Obama þegar hann hafði tryggt sér sigur í bandarísku forsetakosningunum. Sigur Obamas er sögu-legur. Hann er fyrsti þeldökki maðurinn sem nær kjöri til þessa æðsta embættis Bandaríkjanna. Nú liggur fyrir honum að leiða Bandaríkin og umheiminn út úr þeirri kreppu sem hefur umlukið heiminn. Jafn-framt þarf hann að takast á við að Bandaríkin standa í stríðsrekstri bæði í Írak og Afganistan, Obama hefur heitið því að fækka her-mönnum í Írak en ætlar að styrkja Bandaríkjaher í Afganistan.
Obama fagnar sigri
fimmtudagur 6. nóvember 2008
12
Fréttir
Verðandi forseti Bandaríkjanna, Bar-ack Obama, getur vænst harkalegrar stefnu frá rússneskum starfsbróður sínum, Dmitry Medvedev.Í sínu fyrsta ávarpi til rússnesku þjóðarinnar, síðan hann tók við for-setaembættinu af Vladimír Pútín, hót-aði Medvedev að sett yrði upp Iskand-er-eldflaugakerfi í Kalíningrad, sem liggur við Eystrasaltið, á milli tveggja Natóþjóða, Litháens og Póllands. Hlutverk flugskeytanna væri að mynda mótvægi við það eldflaugavarnakerfi sem Bandaríkjamenn hyggjast setja upp í Póllandi og Tékklandi.
leggja niður herdeildir á skotpallaher-stöðvum. Rússar virðast gefa lítið fyr-ir útskýringar Bandaríkamanna um að fyrirhuguð eldflaugakerfi í Póllandi og Tékklandi séu hugsuð sem vörn gegn „óútreiknanlegum“ þjóðum á borð við Íran og Norður-Kóreu.Í ávarpi sínu í gær gagnrýndi Med-vedev Bandaríkin einnig fyrir að hafa átt afgerandi þátt í því stutta stríði sem geisaði á milli Rússa og Georgíumanna í ágústmánuði, og segir ábyrgðina liggja hjá „sjálfsbirgingslegri“ banda-rískri ríkisstjórn. Medvedev sagði að Rússar myndu aldrei gefa eftir á Kák
rússlandsforseti hótar bandaríkjunum
„Ef enn fyrirfinnst einhver, sem efast um að Bandaríkin séu staður þar sem allt er mögulegt, sem enn veltir fyrir sér hvort draumur stofnenda okkar sé enn á lífi, sem enn ber brigður á styrk lýðræðis okkar, þá er kvöldið í kvöld svarið.
Það er svar ungra og aldinna, ríkra og fátækra, demókrata og repúblik-ana, þeldökkra, hvítra, spænskætt-aðra, asískra, frumbyggja, samkyn-hneigðra, gagnkynhneigðra, fatlaðra og ófatlaðra, Bandaríkjamanna sem hafa sent umheiminum þau skilaboð að við höfum aldrei verið eingöngu samsafn einstaklinga eða safn rauðra og blárra ríkja.
Við erum, og munum ávallt vera, Bandaríki Norður-Ameríku.McCain öldungadeildarþingmað-ur barðist lengi og vel í þessum slag. Og hann hefur barist lengur og bet-ur fyrir þjóðina sem hann elskar. Fórn hans fyrir Bandaríkin er meiri en flest okkar geta ímyndað sér. Sak-ir þjónustu þessa hugrakka og ósér-hlífna leiðtoga erum við betur sett. Ég óska honum til hamingju; ég óska Palin ríkisstjóra til hamingju vegna þess sem þau hafa áorkað. Og ég hlakka til að starfa með þeim á kom-andi mánuðum að því að endurnýja fyrirheit þessarar þjóðar.Barátta okkar hófst ekki í sölum Washingtonborgar. Hún hófst í bak-görðum Des Moines og stofum í Con-cord og á veröndum í Charleston.Hún byggðist á vinnandi körlum og konum sem gáfu af takmörkuðu sparifé sínu til málstaðarins, 5 og 10 og 20 [dollara].
Hún fékk styrk frá ungu fólki sem hafnaði goðsögninni um áhugaleysi kynslóðar sinnar, og yfirgaf heimili sitt og fjölskyldu vegna verkefna sem buðu upp á lág laun og lítinn svefn. Hún fékk styrk frá ekki svo ungu fólki sem bauð birginn brunagaddi og brennandi hita, við að banka á hurð-ir hjá ókunnugu fólki, og frá milljón-um Bandaríkjamanna sem buðu sig fram og skipulögðu og færðu sönnur á að eftir tvær aldir var enn að finna ríkisstjórn fólksins, skipaða af fólki og fyrir fólkið.
Sigurinn er ykkar.Og mér er vel kunnugt að tilgangurinn var ekki eingöngu að vinna kosningarnar. Og ég veit að þið gerðuð þetta ekki fyrir mig.Þið gerðuð þetta því þið skiljið umfang þess verkefnis sem framundan er. Því þrátt fyrir að við fögnum í kvöld vitum við að áskoranir morgundagsins er þær stærstu á okkar tímum – tvö stríð, pláneta í háska, versta efnahagskreppa aldarinnar.Framundan er löng leið. Það er á brattann að sækja. Við náum kannski ekki á áfangastað á einu ári, jafnvel ekki einu kjörtímabili. En, Bandaríkjamenn, ég hef aldrei verið eins bjartsýnn og í kvöld á að við komumst þangað.
Ég lofa ykkur, við sem þjóð komumst þangað.
Það verða hindranir og mistök. Margir munu ekki vera samþykkir öllum ákvörðunum sem ég tek sem forseti. Og við vitum að ríkisstjórnin getur ekki leyst öll vandamál. En ég verð ávallt ærlegur gagnvart ykkur hvað varðar þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir. Ég mun hlusta á ykkur, sérstaklega þegar okkur greinir á. Og, umfram allt, mun ég biðja ykkur að sameinast í því verki að endurbyggja þjóðina, á þann eina máta sem það hefur verið gert í 221 ár – með einum klossa í einu, einum múrsteini í einu, handlönguðum af sigggrónum höndum.Í þessu landi stöndum við eða föllum sem þjóð, sem einn. Föllum ekki í þá freistni að hverfa til gamalla flokkadrátta og smámunasemi og vanþroska sem litað hafa stjórnmál okkar í langan tíma.Gleymum ekki að það var maður úr þessu fylki sem fyrstur manna bar fána Repúblikanaflokksins í Hvíta húsið, flokks sem byggður er á gildum sjálfstrausts og frelsi einstaklingsins og einingu þjóðarinnar.Öll deilum við þessum gildum. Og þrátt fyrir að Demókrataflokkurinn hafi unnið frækinn sigur í kvöld, þá gerum við það með auðmýkt og ákveðni í að brúa það bil sem hamlað hefur árangri okkar.Eins og Lincoln sagði við þjóð sem var mun sundraðri en við, við erum ekki óvinir heldur vinir. Þó þær séu teygðar vegna ástríðna mega taugar kærleiksþels okkar ekki rofna.“
Barack Obama ræddi um þær miklu áskoranir sem þjóðin stendur frammi fyrir og mikilvægi þess að hún stæði saman aðþeim verkefnum sem fram undan eru.
„Sigurinn er ykkarKOlBeinn þOrsteinssOn
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
rússneskt flugskeyti rússar hóta að svara bandaríkjamönnum ísömu mynt.
Baracks Obama
John McCain
Tilboð á barnamyndatökum
Góð mynd er falleg jólagjöf!
Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár.
fimmtudagur 6. nóvember 2008 29
Fréttir
g mér er vel kunnugt að tilgang-urinn var ekki eingöngu að vinna garnar. Og ég veit að þið gerð-
Þið gerðuð þet a því þið skiljið umfang þes verkefnis sem framund-að við fögnum í kvöld vitum við að áskoranir morg-undagsins er þær stærstu á okkar tímum – tvö stríð, pláneta í háska, versta efnahagskreppa aldarinnar.Framundan er löng leið. Það er á brat ann að sækja. Við náum kannski ekki á áfangastað á einu ári, jafnvel ekki einu kjörtímabili. En, Banda-ríkjamenn, ég hef aldrei verið eins bjartsýnn og í kvöld á að við kom-
Ég lofa ykkur, við sem þjóð kom-
Það verða hindranir og mistök. Margir munu ekki vera samþykkir öl um ákvörðunum sem ég tek sem forseti. Og við vitum að ríkis tjórn-in getur ekki leyst öl vandamál. En ég verð ával t ærlegur gagnvart ykk-ur hvað varðar þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir. Ég mun hlusta á ykkur, sérstaklega þegar okkur greinir á. Og, umfram al t, mun ég biðja ykkur að sameinast í því verki að endurbyggja þjóðina, á þann eina máta sem það hefur verið gert í 221 ár – með einum klos a í einu, einum múrsteini í einu, handlönguðum af
Í þes u landi stöndum við eða föl um sem þjóð, sem einn. Föl um ekki í þá freistni að hverfa til gamal a flokkadrát a og smámunasemi og vanþroska sem litað hafa stjórnmál
Gleymum ekki að það var maður úr þes u fylki sem fyrstur manna bar fána Repúblikanaflokksins í Hvíta húsið, flokks sem byggður er á gild-um sjálfstrausts og frelsi einstakl-
Öl deilum við þes um gildum. Og þrát fyrir að Demókrataflokkur-inn hafi unnið frækinn sigur í kvöld, þá gerum við það með auðmýkt og ákveðni í að brúa það bil sem haml-
Eins og Lincoln sagði við þjóð sem var mun sundraðri en við, við erum ekki óvinir heldur vinir. Þó þær séu teygðar vegna ástríðna mega taugar
“
Barack Obama
Um tvö hundruð þúsund manns höfðu safnast saman í, og við, Grant-garðinn í Chicago, heimaborg Baracks Obama, og allt ætlaði um koll að keyra í fagn-aðarlátunum þegar ljóst var að hann fengi það verkefni að binda endi á tímabil Bush í Hvíta húsinu.Á miðnætti á staðartíma steig hinn
fjörutíu og sjö ára öldungadeildar-þingmaður frá Illinois, sonur ken-ísks föður og móður frá Kansas, á svið ásamt eiginkonu sinni, Michelle, og dætrum þeirra, Maliu og Söshu, und-ir taktföstu klappi og lofaði heiminum að „dögun nýrrar bandarískrar forystu væri runnin upp“.
Kynþáttamúrarnir féllu Stuðnings-menn Obama brustu í grát þegar þeir heyrðu fyrstu spár um að þeldökkur maður væri fast að því búinn að tryggja sér forsetastólinn.
Fögnuður í Frakklandi Þaðvar víðar en í bandaríkjunum sem sigri Obama var fagnað. tilfinningarnar leyna sér ekki hjá þessari konu í París.
Tilfinningaþrunginn léttireftir tuttugu og eins mánaðar óvissu eru málalyktir ljósar og sumir varpa öndinni léttar en aðrir ekki.
Í Washington DC barack Obama hefur brotið blað í sögu bandaríkj-anna. Hér fagna stuðningsmennhans í Washington úrslitum semvíða um heim voru álitin óhugsandi.
3
Atli MÁr GylfAson
blaðamaður skrifar: atli@dv.is
Magnús Kristinsson
AuðmAðurleggur þyrlu
Alvöru gripur
Þyrlan er ein sú fullkomnasta og flottasta hér á landi en það er fyrirtækið
Þyrluþjónustan sem sér um rekstur
hennar og viðhald fyrir magnús.
Gulli slegin
Handföngin og beltin í
þyrlunni eru slegin gulli.
Magnús Kristinsson
Útgerðarmaður og eigandi toyota-
umboðsins á Íslandi hefur lagt þessari glæsilegu þyrlu sem hann eitt sinn
kallaði sína eigin samgönguáætlun.
hitt málið
Einstök bók um mann
sem mætt hefur meiri
mótbyr en gengur og
gerist, en býr þó yfir
fádæma lífsgleði og
baráttuþreki og horfir
ávallt fram á veginn.
MEÐAN HJARTAÐ SLÆR
MEÐAN HJARTAÐ SLÆR-lífsreynslusaga Vilhjálms Þórs Vilhjálmssonar
-í senn hugljúf og skemmtileg bók
föstudagur 17. ágúst 200714
Helgarblað DV
„Auðvitað verða menn í rekstri að hugsa
um það að græða en þessir hlutir þurfa líka
að skapa og gefa af sér ánægju,“ segir Magn-
ús Kristinsson, útgerðarmaður í Vestmanna-
eyjum. Magnús tók á mánudag á móti þriðja
ísfisktogara sínum, Bergey VE-544. Bergey er
þriðji togarinn hjá útgerð Magnúsar, Bergur-
Huginn ehf, og önnur nýsmíðin sem félagið
tekur á móti á þessu ári.
Þrátt fyrir niðurskurð á aflaheimildum er
engan bilbug að finna á Magnúsi. „Það hefur
verið allt of mikil neikvæðni í umfjöllun um
sjávarútveginn. Menn mega til með að hugsa
um það sem vel gengur og mega ekki missa
sjónar á þeim jákvæðu áhrifum sem öflugt fyr-
irtæki hefur á samfélagið í kring,“ segir Magn-
ús. Í þessu ljósi ákvað hann að taka á móti nýja
skipinu með því að stoppa hin tvö á veiðum og
láta þau fylgja Bergeynni til hafnar með við-
höfn. „Þarna gafst tækifæri til þess að taka þátt
í gleðistund, sem er mikilvæg, ekki aðeins í lífi
útgerðarmannsins og skipverjanna, heldur
byggðarlagsins í heild.“
Keypti Toyota á Íslandi
Það vakti nokkra athygli þegar útgerðar-
maður frá Vestmannaeyjum keypti Toyota á
Íslandi af P. Samúelssyni í Kópavogi. Þar var
á ferðinni fjárfestingafélag í eigu Magnúsar.
Sjálfur vill hann ekki gera of mikið úr þessum
fjárfestingum sínum.
„Ég stofnaði mitt eigið fjárfestingafélag
árið 1994. Þá fór ég að gera tilraunir með að
kaupa eitt og eitt hlutabréf. Þetta hefur orðið
til þess að ég hef tekið þátt í margvíslegri ann-
arri atvinnustarfsemi en útgerð,“ segir Magn-
ús. Hann segir að kaupin á Toyota séu fyrst og
fremst hluti af því eðli sínu að vera atorkusam-
ur og þurfa ávallt að finna kröftum sínum út-
rás.
„Það eru margar fleiri fjárfestingar sem
þarna hanga á spýtunni. Við höfum meðal
annars fjárfest í fyrirtækjum á borð við Sóln-
ingu, Barðanum, Hertz og MotorMax.“ Hon-
um virðist þó vera útgerðin sérlega hugleik-
in, enda ólst hann upp í Vestmannaeyjum,
þar sem faðir hans rak útgerð og vinnslu, sem
reyndist upphafið að útgerð Magnúsar.
Allt gengur upp
„Ég hef aldrei látið úrtöluraddir hafa nokk-
ur einustu áhrif á mig. Ég hef unnið sem út-
gerðarmaður alla mína hunds- og kattartíð og
hef marga fjöruna sopið í þeim efnum,“ segir
Magnús.
Hann segist muna erfiða tíma í útgerðinni
þar sem hann hafi staðið fyrir framan föður
sinn og sagt að einsýnt væri að þeir þyrftu að
hætta þessu. „Til allrar hamingju kom bankinn
inn í málið og við vorum hálfpartinn skikkað-
ir til þess að fara í talsverðar hagræðingar. Það
má segja að þetta hafi orðið til þess að við náð-
um aftur tökum á okkar útgerð,“ segir Magnús
og bætir því við að hann hafi þurft að velta því
alvarlega fyrir sér hvernig hann hygðist þróa
fyrirtækið áfram. Þetta var í kringum 1990.
„Það kom að því að það blasti við mér að
hagkvæmt væri að leggja frystitogurunum og
fara út í útgerð á tveimur ferskfiskbátum með
það fyrir augum að flytja út fisk í gámum.“
Þetta varð úr.
„Ég er þannig gerður að þegar ég tekst á við
eitthvað fer ég ekki út í það nema að ég ætli
að láta það ganga upp. Ef eitthvað gengur ekki
upp vinn ég úr því þannig að niðurstaðan
verði mér viðunandi. Að því leytinu til gengur
allt upp sem ég geri.“
Tárfelli við upplifunina
„Ég fór út í samvinnu við Pólverja um að
smíða fyrir mig tvo báta. Þegar ég undirritaði
fyrri samninginn gerði ég strax ráð fyrir þeim
möguleika að leggja í kaup á öðrum báti. Þetta
þróaðist þannig að brátt höfðum við lagt inn
pöntun fyrir skip númer þrjú,“ segir Magnús.
Hann segi að nokkuð brösuglega hafi geng-
ið með Vestmannaeyna í upphafi. Ýmis ljón
hafi verið í vegi pólsku skipasmiðanna sem
tafið hafi afhendingu. „Að lokum fengum við
skipið afhent um miðjan mars síðastliðinn.
Það verður að segjast eins og er að það hefur
gengið ákaflega vel á Vestmannaeynni. Það
hefur fiskast mjög vel og aflaverðmætin hafa
verið mikil. Ég er ákaflega glaður að vera að
taka á móti nýsmíði númer tvö á sama árinu.
Ég ákvað að taka á móti Bergeynni með bra-
vör, stoppa hin skipin og gera dálítið úr þessu.
Það var gleðilegt að sjá það þegar við sigldum
inn hve margir sáu sér fært að taka á móti nýja
skipinu. Í svona byggðarlagi verður þetta svo
gaman. Þarna er að koma nýtt atvinnutæki og
það var svo gaman að finna fyrir allri jákvæðn-
inni í kringum þetta. Ég fann fyrir því að fólk
var hrifið og sátt. Það liggur við að maður tár-
felli þegar maður upplifir svona lagað,“ segir
Magnús.
Virðir fólkið í Eyjum
Magnús víkur áfram að mikilvægi góðra
fyrirtækja í samfélaginu. „Það er oft talað um
einhvern kulda og hroka í mönnum, en málið
er það að ég virði fólkið í Eyjum og ég er glað-
ur að geta verið einn af samfélagsþegnunum
þar. Þegar öllu er á botninn hvolft er ég hæsti
útsvarsgreiðandinn í Vestmannaeyjum og er
stoltur af því að vera þátttakandi í þessu sam-
félagi og leggja mitt af mörkum.“
Magnús segir útgerð sína ávallt hafa verið
nátengda sjálfri sjómennskunni. „Ég hef allt-
af gert þannig út að ég legg allt sem ég hef af
mörkum. Þetta þýðir að ef ég fæ gott verð fær
sjómaðurinn gott verð. Ef ég fæ lélegt verð fyrir
aflann gildir það sama um sjómanninn.“
Einblínt hefur verið á að landa fiski þannig
að hann komist rakleitt um borð í flutninga-
skip til Bretlands. „Þar höfum við fengið hæsta
mögulegt verð enda er þetta hágæðavara. Það
hefur tekist mjög vel til að gera þetta svona.“ Sá
afli sem ekki fer á Bretlandsmarkað er seldur
á markaði innanlands, mestmegnis til vinnsl-
unnar í Vestmannaeyjum. „Ég held að þessi
útgerð mín sé í mikilli sátt við bæjarbúa í Vest-
mannaeyjum,“ segir Magnús.
Hefur keypt tíu útgerðir
Til að reka útgerð þarf kvóta. „Ég hef nátt-
úrulega fjárfest verulega í kvóta. Fyrirtækið
ræður nú yfir um það bil sjö þúsund þorskí-
gildistonnum af kvóta sem deilist niður á skip-
in þrjú.“ Til að nálgast þennan kvóta hefur
Magnús bæði keypt af öðrum útgerðarmönn-
um og einnig hefur hann keypt báta og útgerð-
ir.
„Þetta hafa verið hlutafélög með bátum og
jafnvel fasteignum. Ég hef verið svo lánsamur
að ég hef yfirleitt náð að selja eignirnar sem
fylgdu þessum fyrirtækjum. Þannig hef ég ekki
bundist átthagafjötrum neins staðar vegna
fasteigna. Sennilega eru þetta einar tíu útgerð-
ir sem ég hef keypt í gegnum tíðina.“
Magnús bendir á að fyrirtækið hafi orðið
fyrir skerðingum. „Miðað við það sem okk-
ur var upprunalega úthlutað af kvóta og það
magn af kvóta sem ég hef keypt í gegnum tíð-
ina, myndi ég giska á að við höfum yfir að ráða
um fimmtán prósentum af upprunalegum
kvóta.“
Ósáttur við Hafró
„Ég er mjög ósáttur við síðustu kvótaskerð-
ingu og tel hana engan veginn raunhæfa.“
Magnús segist sannfærður um að meiri fisk-
ur sé í sjónum en Hafrannsóknastofnun gerir
ráð fyrir. „Kannski hef ég ekki nógu mikið vit
á þessum málum til þess að gagnrýna vinnu-
brögð Hafrannsóknastofnunar. Svo mikið veit
ég þó að hitastig sjávar er allt annað en
það var fyrir tíu til tuttugu árum,“
segir Magnús.
Hann er þess
fullviss að bæði
þorskurinn
og sandsílið
séu til stað-
ar þótt þess-
ar tegundir
séu ekki á
hefð-
bundnum slóðum. „Ég hallast að því að rann-
sóknirnar séu hreinlega ekki fullnægjandi.
Þessir blessaðir pólitíkusar og ráðherrar eru
alltaf öðru hverju að tala um að sjómennirnir
viti sínu viti. Af hverju fara þá menn ekki um
borð í skipin og ræða við sjómennina? Ég sá
sjónvarpsviðtal í vetur við skipstjóra sem sagði
hreint út að þeir hjá Hafró ættu bara að skjót-
ast í einn túr með sér. Þetta vildu þeir ekki
gera. Það er eitthvað að þarna.“
Ónýtar samgöngur
Samræðurnar berast óhjákvæmilega að
samgöngumálum Vestmannaeyinga, enda
hefur Magnús þurft að ferðast á bilinu sextíu
til áttatíu sinnum á ári á milli lands og Eyja,
þegar mest lætur. „Ég mætti á fund með pólit-
íkusunum og hlustaði á öll loforðin og hugsaði
um aumingja fólkið. Það er hvorki útlit fyrir að
jarðgöng verði grafin né að fjárfest verði í nýj-
um Herjólfi,“ segir hann.
„Nú er eitthvað verið að brölta með að talið
sé hagkvæmt að gera nýja höfn við Bakkafjöru.
Ég svara því til að engin þörf sé fyrir nýja höfn
á Íslandi og allra síst á að byggja hana á sandi.
Í minni biblíu stendur að guð hafi ekki byggt á
sandi. Við eigum ekki einu sinni að hugsa um
þetta,“ segir Magnús. Hann segir að hér þurfi
aðeins að fá öflugan nýjan Herjólf sem sigla
eigi þrisvar á dag á milli Eyja og Þorlákshafn-
ar.
Nú blasir við að gerð verði stjórnsýsluúttekt
á Vegagerðinni vegna nýrrar Grímseyjarferju.
Magnús segir alveg óhætt að fara í saumana á
störfum samgönguyfirvalda.
Keypti þyrlu
Sjálfur leysti Magnús samgöngumál sín
með því að kaupa sér þyrlu. „Samgöngumál-
in eru í ólestri og voru að verða mér fjötur um
fót. Ef það er ófært með flugi klukkan hálftíu
að morgni hefði maður þurft að taka ferjuna
klukkan átta. Þetta felur það í sér að maður
getur í fyrsta lagi farið klukkan fjögur og er ekki
kominn til Reykjavíkur fyrr en að kvöldi.“
Magnús segist hafa reynt að byggja áætl-
anir sínar í kringum þessar samgöngur, en í
hans tilviki hafi það hreinlega ekki gengið.
Þetta hafi verið komið út í dellu. „Þessi þyrla er
í raun réttri bara tilraun hjá mér. Ég tel ekki að
ég eigi eftir að tapa á henni en það verður bara
að koma í ljós. Ég sel þessa þyrlu ef hún reynist
ekki hagkvæm.“
Magnús flýgur ekki þyrlunni sjálfur. „Ég
reyni alltaf að hafa góða starfskrafta í kringum
mig. Ég er stoltur af því í útgerð minni og öðr-
um fyrirtækjum er valinn maður í hverju rúmi.
Þetta er allt saman úrvalsfólk. Ég tel ekki að
nokkur starfsmanna minna þurfi á uppsagn-
arbréfi að halda.“
Talan fjórir
„Ég veit ekki til þess að nokkur hafi dáið af
því að vera svolítill dellukarl,“ segir Magnús
þegar talið berst að tölunni 4, sem gegnt hef-
ur stóru hlutverki í viðskiptum hans. „Þetta er
komið frá langafa mínum. Hann var kafteinn
á skútu sem gerð var út frá Hafnarfirði og bar
einkennistöluna fjórir. Hann og móðurbróð-
ir minn fóru að notast við töluna 4 og 44 eftir
því sem kostur var og ef þeim áskotnaðist hún.
Fyrsta bílnúmerið hans afa var 204.“
Þegar fjölskyldan lagði út í útgerðina var
faðir Magnúsar kominn til skjalanna og bát-
arnir höfðu skrásetningarnar VE-4 og VE-44.
„Þarna var ég bara ungur maður að byrja að
míga í saltan sjó og róa með þeim. Þess vegna
hef ég aðhyllst tölurnar fjóra og 44 í gegn-
um tíðina. Ég hef reyndar gert þetta nokkuð
hraustlega og haldið þessu striki alls staðar
þar sem ég hef haft val um það.“
Þetta má auðveldlega greina á því að síma-
númer og póstföng Magnúsar einkennast flest
af tölunni 4, ásamt skrásetningu skipanna.
Hann vill ekki meina að hér sé beinlínis um
hjátrú að ræða. Miklu fremur hefð sem hann
hafi haft gaman af því að viðhalda.
Á tímum þar sem viðskipti virðast vera vís-
indagrein sem snýst fyrst og fremst um lestur
á mörkuðum og fjármögnun á hlutabréfavið-
skiptum má greinilega enn finna fólk sem gef-
ur sér tíma fyrir samfélagið sem það tilheyrir.
sigtryggur@dv.is
Magnús Kristinsson
ALLT
SEM
ÉG GERI
GENGUR
UPP
DV Helgarblað
föstudagur 17. ágúst 2007 15
X
xxxxxxxx
„Við erum að tala um
sömu samgöngu-
yfirvöld og nú sitja
uppi með risastórt
ferjuklúður í Hafn-
arfirði. Það þyrfti
kannski að fara
að hreinsa
eitthvað til í
stjórn sam-
göngu-
mála.“
Samgöngumálin Magnús segir samgöngur við
Vestmannaeyjar vera í lamasessi. Hann brá á það ráð að
bæta úr eigin samgönguvanda með því að fjárfesta í þyrlu.
Hann ferðast allt að áttatíu sinnum á ári milli lands og Eyja.
Bergeynni fagnað á mánudag tók Magnús á móti nýju
skipi í Vestmannaeyjum. Hann fagnaði ásamt fjölda
heimamanna með því að kalla hin skipin, smáey og
Vestmannaey, frá veiðum. Þau fylgdu Bergeynni til lands.
Klukkan glymur Magnús hringir skipsklukku í Bergeynni
við komuna til Vestmannaeyja á mánudag.
D
V-
m
yn
d
Si
gt
ry
gg
ur
A
ri
/ Ó
sk
ar
P.
F
rið
rik
ss
on
Útgerðarmaðurinn Magnús
Kristinsson segist alltaf þurfa að
hafa eitthvað fyrir stafni.
fjárfestingar og uppbygging
fyrirtækja séu hluti af því af
finna kröftunum útrás.
17. ágúst 2007
VElgEngnin
föstudagur 11. janúar 200810
Helgarblað DV
„Þetta hefur verið skelfilegur tími
á markaðnum, það sjá það allir,“
segir Magnús Kristinsson, útgerð-
armaður og annar aðaleigenda
fjárfestingafélagsins Gnúps. Und-
anfarna daga hefur Gnúpur selt
frá sér megnið af eignum og leitað
leiða til þess að semja um skuldir til
þess að komast frá falli á verðbréfa-
markaði.
Hinn aðaleigandi Gnúps, Krist-
inn Björnsson, hefur ávaxtað auð
fjölskyldu sinnar í gegnum fjár-
festingar Gnúps, meðal annars í
Kaupþingi og FL Group. Fjárfest-
ingar sem hafa leitt til að mikið
fé hefur tapast. Talið er að auður
Kristins og fjölskyldu hans nemi í
dag tæpum milljarði króna. Heim-
ildarmenn telja að uppgjör innan
fjölskyldunnar sé óhjákvæmi-
legt, svo miklum fjármun-
um hafi Kristinn nú tapað
með viðskiptum sínum.
Gnúpur hefur tapað
nálægt fjörutíu millj-
örðum af eigin fé á
innan við ári. Krist-
inn og fjölskylda
áttu 47,2 prósent
hlutafjár í Gnúpi
og tap þeirra er því
mikið.
Teflon-húðaður
fjárfestir
Staða Magnús-
ar Kristinsson-
ar er um
margt ólík stöðu Kristins. Magnús
er útgerðarmaður í Vestmannaeyj-
um og hefur lagt mikið upp úr því
að fjárfesta í fiskveiðikvóta. Fyrir
réttum tveimur árum keypti hann
Toyota-umboðið á Íslandi af P.
Samúelssyni. Sérfræðingar á fjár-
málamarkaði sem DV hefur rætt við
benda á að Magnús og aðrir kvóta-
og fasteignaeigendur séu nánast
eins og teflon-húðaðir, með öðrum
orðum séu þeir mun líklegri til þess
að standa af sér djúpar niðursveifl-
ur á markaði en þeir sem ekki hafa
fjárfest í slíkum eignum.
Útgerðina í Vestmannaeyjum á
Magnús áfram, alveg óháð því hvaða
hörmungar kunna að dynja yfir
fjármálamarkaðinn og innan fjöl-
skyldu hans leynist mikil sérþekk-
ing á sjávarútvegi. Hann hafði einn-
ig orð á því í viðtali við DV í ágúst að
burtséð frá öllum gróðasjónarmið-
um, þá verði viðskipti líka að grund-
vallast á bjartsýni og
ánægju. Það
ríkti hins
vegar ekki
bjartsýni
í herbúð-
um fjár-
festa og
verð-
bréfa-
miðl-
ara
síð-
ast-
lið-
inn
mið-
viku-
dag.
Illa skuldsettar fjárfestingar
„Það er hreint ómögulegt að
segja hvað gerist á markaðnum
næstu daga. Allt í einu hrynur allt
og svo á fimmtudag tók allt að rísa
á ný,“ segir Magnús um stöðu
mála. Hann segir að þetta sé
nokkuð sem allir verði að
vera tilbúnir að glíma við
sem stundi fjárfesting-
ar á hlutabréfamark-
aði. „Ég er náttúrulega
í rekstri á fjöldanum
öllum af ólíkum fyr-
irtækjum og það er
það sem getur bjarg-
að mönnum þegar
svona staða kemur
upp,“ segir hann.
Magnús var ein-
mitt einn þeirra sem
keyptu hluta af eign-
um Gnúps í Kaup-
þingi þegar félag-
ið hóf að selja frá sér
hlutina í byrjun desem-
ber. Innan bankakerfis-
ins fást þær upplýsingar
að eignir Magnúsar og Krist-
ins í Kaupþingi hafi ver-
ið keyptar á genginu
eitt þúsund og jafn-
vel þaðan af hærra.
Gengið á síðasta
ári náði mestum
hæðum í um það
bil 1.300. Í dag er
gengi þessara
bréfa í kring um
750. Fjár-
mögnun fyrir
þessum við-
skiptum var
auðfengin,
og fjárfestingafélög gátu auðveld-
lega fengið lán upp á sjötíu til níutíu
prósent af andvirði bréfanna, bæði
með bankalánum og skuldabréfum
seldum á markaði.
Forðað frá gjaldþroti
Þegar stjórnendur Gnúps tóku
til við að selja hluti í Kaupþingi
þótti líklegt að þær aðgerðir dygðu
til þess að koma félaginu í gegn um
verstu fyrirsjáanlega hremming-
ar. Það var hins vegar ófyrirséð fall
á bréfum í FL Group sem nánast
knésetti félagið.
Forsvarsmenn Gnúps, þeir
Magnús og Kristinn ásamt Þórði
Má Jóhannessyni, forstjóra félags-
ins, hafa á síðustu dögum farið
flestar færar samningaleiðir til þess
að forðast gjaldþrot. Stærstu lánar-
drottnar félagsins eru stóru bank-
arnir, Kaupþing, Glitnir og Lands-
bankinn. Viðskiptablaðið kveðst
hafa fyrir því heimildir að þess-
ir lánardrottnar þurfi að afskrifa
allt að tveimur og hálfum milljarði
króna vegna falls Gnúps. Þessar
skuldir eru að mestu leyti tryggð-
ar með veðum, sem þýðir að lánar-
drottnarnir geta að mestu leyti náð
öllu sínu til baka, út úr félaginu.
Geðhvarfasjúkur einstakl-
ingur
Þegar DV ræddi við heim-
ildarmenn í bankakerfinu
á miðvikudag mátti greina
mikla svartsýni, nánast
þannig að fólk horfði í
gaupnir sér og ætti von
á því að missa störfin. Á
fimmtudag virtist bjart-
ara yfir. Reyndur fjár-
málagreinir lýsti þess-
um aðstæðum svo,
að ástandið á fjár-
málamarkaði fari
að mestu leyti eft-
ir andlegu ástandi
þeirra sem þar vinna.
Á miðvikudag hafi öll
sund virst lokuð en
þegar botninum hafi
verið náð hafi fólk
séð að enn væru
til staðar
fjárfest-
ingar-
Kristin Björnsson
Magnús Kristinsson
SIGTryGGur ArI jóhAnnSSon
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
Varaþingmaðurinn Dögg Páls-
dóttir tapaði rúmlega fjórum millj-
ónum á dag í tæpa þrjá mánuði eft-
ir að hlutabréf fyrirtækis hennar og
sonar hennar Páls Ágústs Ólafsson-
ar í SPRON fóru á almennan mark-
að í október. Hlutinn keyptu þau
fyrir um 580 milljónir síðasta sum-
ar. Það var fjárfestingabankinn Saga
Capital sem lánaði þeim fyrir bréf-
unum. Nú hefur Saga Capital gjald-
fellt lánið en Dögg og sonur, sem
eiga fyrirtækið Insolidum, vilja ekki
borga lánið strax. Þau krefjast þess
að bankinn bíði með að innheimta
lánið í tvö ár. Tap Insolidum hefur
verið gríðarlegt en það nemur þrjú
hundruð milljónum. Eftirstand-
andi skuldir félagsins gagnvart fjár-
festingabankanum eru rúmlega 320
milljónir. Fjárfestingabankinn ger-
ir kröfu í Héraðsdómi Reykjavíkur
um að þeir fái yfirráð yfir fyrirtæki
mæðginanna.
ókyrrð starfsmanna
Hluthafar í SPRON eru ekki
þeir einu sem eru ósáttir við gengi
SPRON þessa dagana því fregnir
herma að mikil óánægja sé innan
höfuðstöðva SPRON. Þar séu menn
ósáttir við fárfestingastefnu bank-
ans en hann hefur verið ragur við
áhættufjárfestingar. Sú stefna hefur
ekki skilað bankanum sterkari inn
á fjármálamarkað. Þá vilja sérfræð-
ingar meina að bankinn hafi verið
stórlega ofmetinn þegar hann fór
á hlutabréfamarkað. Þá var hlutafé
hans andvirði 95 milljarða króna.
Núna er markaðsvirði bankans um
40 milljarðar.
Innherjaviðskiptum hafnað
„Ég mótmæli þessu alfarið,“
segir Gunnar Þór Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Sundagarða og
stjórnarmaður í SPRON. Mæð-
ginin Dögg og Páll saka hann um
innherjaviðskipti en sjálfur á hann
virkan eignahlut í SPRON í gegn-
um Sundagarða. Hann seldi bréf-
in til Saga Capital síðasta sumar
en mæðginin vilja meina að Gunn-
ar hafi átt bréfin sjálfur þegar þau
keyptu en ekki fjárfestingabankinn.
Að sögn Gunnars fóru viðskiptin
fram með leyfi regluvarðar sem sér
um að viðskipti innan fyrirtækja
séu innan löglegra marka.
Varaþingmaður í boðsferð
Rétt áður en SPRON fór á al-
mennan markað var um hundrað
vel völdum einstaklingum boðið
til Berlínar á vegum bankans. Með
í för var Dögg en hún er fyrsti vara-
þingmaður Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavíkurkjördæmi.
„Varaþingmenn, líkt og almenn-
ir þingmenn, þurfa að kunna fótum
sínum forráð hvað boðsferðir varð-
ar,“ segir Steingrímur J. Sigfússon,
formaður vinstri-grænna. Hann
segir fyrstu varaþingmenn kjör-
dæma lúta sömu lögmálum og þeir
almennu og það sé spurning hvaða
siðareglur séu þar við hæfi. Hann
vill þó ekki taka afstöðu til dóms-
máls Daggar og segir marga þing-
Dögg Pálsdóttir Páll Ágúst ólafsson
Milljónir fóru í súginn
Magnús Kristinsson Álitsgjafar eru
sammála um að viðskiptamenn á borð
við Magnús, sem fjárfest hafa í kvóta,
séu mun betur í stakk búnir til þess að
takast á við hrun á mörkuðum.
Sólveig Pétursdóttir talið er að nú blasi við
uppgjör innan fjölskyldu Kristins Björnssonar vegna
þeirra auðæfa sem nú hafa tapast. Eiginkona
Kristins, sólveig Pétursdóttir, var alþingismaður og
dómsmálaráðherra þegar olíusamráðsmálið reið yfir.
fjÖlsKYlDuAuÐ
Peningar fjármálamarkaður er háður
duttlungum þeirra sem við hann starfa. gróði
eða tap eru ekki raunverulegt fyrirbæri fyrr en
breyta þarf eignarhaldi í peningaseðla.
DV Helgarblað
föstudagur 11. janúar 2008 11
menn stunda viðskipti á hlutabréfa-
markaði utan þingheims.
Gríðarlegt tap
Alls hafa fjárfestar tapað um 55
milljörðum á hlutabréfum í SPRON.
Bréfin hafa fallið úr genginu 18,9 í 8.
Mest hefur gengið fallið í rétt rúma
sjö. Dögg ásamt syni hefur tapað
þrjú hundruð milljónum en sögur
herma að tap sumra einstaklinga
hafi verið mun meira. Sjálf hefur
Dögg ekki viljað tjá sig um málið né
heldur sonur hennar. Aðalmeðferð
í dómsmálinu er lokið og dóms að
vænta innan þriggja vikna. valur@dv.is
Dögg Pálsdóttir
tapaði fjórum milljónum á dag í tæpa
þrjá mánuði. skuldar núna fjárfestinga-
banka yfir þrjú hundruð milljónir.
Jón G. Hauks-
son
FALLA UM
200 MILLJÓNIR
Á MÍNÚTU
Íslenski hlutabréfamarkaðurinn
hrynur. Markaðurinn féll um 360
milljarða fyrstu fjóra daga ársins
þegar lækkunin nam 13,4 prósent-
um. Þetta samsvarar 200 milljóna
króna falli á hverri mínútu sem
markaðurinn var opinn.
Eftir daglegar lækkanir hækk-
aði úrvalsvísitalan um rúmt eitt
prósent í gær. Um morguninn birti
Exista jákvæðar upplýsingar um
stöðu lausafjár og fjármögnunar
hjá fyrirtækinu í árslok 2007 og
eru hækkanir raktar meðal annars
til þessa. Bréf í Exista hafa lækkað
gífurlega að undanförnu en fóru
upp á ný eftir tilkynninguna.
Úrvalsvísitalan var 5533,32 stig
í lok gærdags og hafði þá lækkað
um 12,22 prósent frá áramótum.
Ásgeir Jónsson, forstöðumað-
ur hjá greiningardeild Kaupþings,
bendir á að þróuninni megi líkja
við árið 2001 þegar bakslag var á
mörkuðum eftir mikla uppsveiflu.
Lækkunin þá var þó mun minni
en nú eða um 9,10 prósent frá jan-
úar til septembermánaðar þegar
hún fór niður í 989 stig.
Alþjóðleg lánskreppa
vandamálið
Jón G.Hauksson, ritstjóri
Frjálsrar verslunar, bendir á að
aðstæður á mörkuðum séu tals-
vert aðrar nú en fyrir ári: „Fyrir
aðeins sautján mánuðum var úr-
valsvísitalan um 5.500 stig eins og
hún er núna og þá voru allir mjög
sáttir og ánægðir. Það ríkti bjart-
sýni á meðal fjárfesta og aðgangur
bankanna að ódýru lánsfé erlend-
is var greiður. Markaðurinn hafði
rétt sig við eftir meðal annars lé-
legar einkunnir erlendra matsfyr-
irtækja. Þá varð hún sömuleiðis
fræg svarta skýrslan frá Den Dans-
ke bank sem sagði að allt væri að
fara til fjandans hér á landi. Núna
er hin alþjóðlega lánsfjárkreppa
stóra vandamálið hér á landi sem
annars staðar. Það er ekki lengur
greiður aðgangur að ódýru láns-
fé erlendis. Aðgangur venjulegs
fólks, fyrirtækja og fjárfesta að
lánsfé er orðinn miklu takmark-
aðri. Í kjölfarið hefur verð á hluta-
bréfum um allan heim fallið og
seljanleiki eigna orðinn minni.
Það er þó mjög misjafnt eftir fyrir-
tækjum, sum hafa hækkað í verði.
Tæp 40 prósenta
lækkun frá júlí
Í janúarbyrjun í fyrra stóð úr-
valsvísitalan í 6.528 stigum. Hún
hækkaði jafnt og þétt og var í lok
janúar 7.044. Hækkunin nam 7,89
prósentum.
Bjartsýni ríkti á mörkuðum
og hækkunin hélt áfram. Vísital-
an náði hámarki 18. júlí þegar
hún var 9.016 stig og hafði hækk-
að um 38,11 prósent á árinu. Eftir
það tóku við lækkanir með sveifl-
um þó. Frá október hefur stefnan
hins vegar verið algjörlega niður á
við og er úrvalsvísitalan nú orðin
lægri en hún var fyrir ári.
Janúarmánuður
Við ársbyrjun í fyrra var mik-
il bjartsýni í viðskiptalífi á heims-
vísu og verð hækkaði bæði á eign-
um og hlutabréfum. Almennt séð
er eignaverð nú að lækka í heimin-
um og sú lækkun teygir anga sína
hingað.
Botninum náð
Jón segir margt benda til þess
að lánsfé hafi í raun haldið verði
hlutabréfa og fasteigna uppi: „Fjár-
festingargetan er minni en áður,
en íslensk fyrirtæki eru samt mun
sterkari en fyrir sautján mánuð-
um sem og íslenskt atvinnulíf al-
mennt. Eigum við ekki að segja
að botninum sé náð á hlutabréfa-
markaðnum, hvað svo sem verður,
og að núna hafi myndast tækifæri
til að gera góð kaup á hlutabréfa-
markaðnum. Það hefur augljós-
lega hægt á öllu í atvinnulífinu. Það
hefur kólnað í veðri en það er ekki
komin kreppa.“
Ísland er kanarífugl
Í fjármálaheiminum er Ís-
land stundum kallað kanarífugl-
inn í kolanámunni vegna smæðar
landsins og þess hversu opið það
er. Í fyrndinni tíðkaðist að kola-
námumenn tóku kanarífugl með
sér í námurnar. Ástæðan var sú að
ef gasleki kom fram v r það fugl-
inn sem fyrst fann fyrir henni því
hann var minnstur. Ef fuglinn varð
fyrir eitrunaráhrifum drifu námu-
mennirnir sig í burtu. Sumir hafa
haldið því fram að Ísland sé eins
og þessi kanarífugl. Ef miklar svipt-
ingar verða á fjármálamörkuðum
hér sé ástæða fyrir stærri aðila að
halda að sér höndum.
ErlA HlynsDóTTir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Botninum náð jón g. Hauksson segir
allt aðrar aðstæður á mörkuðum nú en
í fyrra. Hann telur að botninum sé náð
og áhyggjur af kreppu séu óþarfar.
spáð í spilin Á Kaupþingi sem annars staðar
sitja fjármálamenn sveittir og spá fyrir um
hvort markaðir haldi áfram að falla.
„Það hefur augljóslega
hægt á öllu í atvinnulífinu.
Það hefur kólnað í veðri en
það er ekki komin kreppa.“
möguleikar í framleiðslugreinum
á borð við sjávarútvegi og stóriðju,
og því hafi fólk hafist handa að nýju.
Strax á fimmtudagsmorgni tók úr-
valsvísitalan að hækka.
Markaðnum var því lýst eins og
geðhvarfasjúkum einstaklingi. Í
rauninni sé þar lítinn meðalveg að
finna, annaðhvort sé fólk hel-
tekið af heimsendaspám
og svartsýni ellegar þá
að allt leiki í lyndi. Hið
raunverulega verð-
mat fyrirtækja á
markaði liggi svo
einhvers staðar
þarna á milli.
Það er engu
að síður mat sér-
fræðinga DV að
hættan sé hvergi
nærri liðin hjá.
Jafnvel þótt hluta-
bréfaverð taki að
rísa hægt og bít-
andi sé markað-
urinn afar við-
kvæmur og megi
til að mynda alls
ekki við því að
krónan falli í verði.
Slíkt gæti haft af-
drifaríkar afleiðing-
ar, hægst geti á öllum
framkvæmdum og sam-
dráttur á atvinnumark-
aði gæti leitt til atvinnu-
leysis.
„Það er hreint ómögu-
legt að segja hvað
gerist á markaðnum
næstu daga.“
Kristinn Björnsson Kristinn hefur séð um að
ávaxta auð fjölskyldu sinnar, sem nú hefur skroppið
saman. Kristinn var á sínum tíma forstjóri skeljungs
og stóð í miðjunni á verðsamráði olíufélaganna.
FJ LS L U U UR bReNNUR
gnúpur FEllur
11. janúar 2008 7. nóvember 2008
Þyrlunni lagt
Semur um afskriftir Magnús Kristinsson
hefur samið við skilanefnd Landsbankans
um að stór hluti 50 milljarða króna skulda
hans við Landsbankann verði afskrifaður.