Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2009, Page 8
8 þriðjudagur 18. ágúst 2009 fréttir
KOMDU Í ÁSKRIFT
Hringdu í síma 515 5555
eða sendu tölvupóst á
askrift@birtingur.is eða
farðu inn á www.birtingur.is
Lán til íbúðakaupa
Lán til endurbóta og viðbygginga
Aukalán vegna sérþarfa (skert starfsorka)
Úrræði í greiðsluvanda
Að minnsta kosti þrisvar sinnum hafa
hornsteinar verið lagðir að söguleg-
um byggingum í Reykjavík á dögum
sem tengjast Davíð Oddssyni og fjöl-
skyldu hans. Þetta á með vissu við
um Ráðhús Reykjavíkur og Perluna
en einnig er nafn hans tengt opnun
Þjóðmenningarhússins eftir endur-
bætur árið 2000.
Davíð lagði hornstein að Ráðhúsi
Reykjavíkur við Reykjavíkurtjörn 28.
apríl 1991. Þetta var tveimur dögum
áður en fyrsta ríkisstjórn Davíðs, Við-
eyjarstjórnin, tók formlega við völd-
um, en nokkrum vikum áður en hann
lét af embætti borgarstjóra.
Svo vill til að hornsteininn lagði
Davíð á afmælisdegi móður sinnar,
Ingibjargar Kristínar Lúðvíksdótt-
ur, en hún fæddist 28. apríl 1922.
Bygging Ráðhússins hafði
valdið miklum deilum og reyndi
um tíma talsvert á borgarstjórn
Davíðs Oddssonar, Skóflustunga
var tekin að því 14. apríl 1988 og
skyldi lokið 14. apríl 1992 eins og
greipt er í stein í vegg ráðhússins.
Þjóðmenningarhús
20. apríl árið 2000 opnaði Davíð
Oddsson, þáverandi forsætisráðherra,
Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu
í Reykjavík formlega eftir gagnger-
ar endurbætur. Þetta atvik er greipt í
stein í húsakynnum Þjóðmenningar-
hússins eins og meðfylgjandi mynd
sýnir. Svo vill til að þetta er sama
dagsetning og dagurinn sem Davíð
Oddsson var fyrst kjörinn á þing 20.
apríl árið 1991
og aðeins 10
dögum áður
en hann varð
forsætisráð-
herra í fyrstu
ríkisstjórn
sinni.
Í skilamati
Framkvæmda-
sýslu ríkisins
kemur fram að end-
urbæturnar á Þjóð-
menningarhúsinu hafi
staðið allar götur frá árinu 1997 til
ársins 2004 og heildarkostnaður hafi
numið 415 milljónum króna.
Þótt endurbótum hafi ekki lokið
fyrr en árið 2004 opnaði Davíð Odds-
son, þá forsætisráðherra, húsið fjór-
um árum áður eins og áður segir. Á
því er engin sérstök skýring en end-
urbæturnar voru
síðast á fjárlögum
árið 2000. Þeg-
ar árið 1996 var
skipuð sérstök
stjórn til þess
að hafa umsjón
með endurbót-
unum á húsinu.
Nefndina skipuðu
Jóhannes Nordal,
fyrrverandi seðla-
bankastjóri, Salóme
Þorkelsdóttir, fyrrver-
andi forseti Alþingis, og
Ólafur Ásgeirsson, forstöðumaður
Þjóðskjalasafnsins. Til liðs við sig fékk
hússtjórnin Guðmund Magnússon,
sem varð forstöðumaður þjóðmenn-
ingarhússins frá 1996 til 2002.
Fleiri tilvik?
Davíð Oddsson og hornsteinarnir
komu til umræðu á íbúafundi sem
haldinn var 13. ágúst síðastliðinn í
Iðnó. Til fundarins var boðað af íbú-
um sem leggjast gegn byggingu nýs
hótels í Þingholtunum í andstöðu við
íbúana. Einar Árnason hagfræðingur
rakti andóf íbúa í Tjarnargötu gegn
Ráðhúsinu á sínum tíma. Hann seg-
ist í framhaldinu hafa skoðað ofan-
greindar dagsetningar í nýju ljósi.
Davíð tók ýmis önnur mann-
virki formlega í notkun, tók fyrstu
skóflustungur eða lagði hornsteina
að mannvirkjum á löngum ferli sem
borgarstjóri og forsætisráðherra.
Auk þess sem ofan er talið má nefna
hornstein sem hann lagði sem borg-
arstjóri að Borgarleikhúsinu 11. jan-
úar árið 1986. Sem forsætisráðherra
vígði hann Þjóðminjasafnið eftir
endurbætur 1. september árið 2004
og Hvalfjarðargöngin 11. júlí árið
1998.
Hornsteinar Davíðs
Dagsetningar, sem tengjast perónu Davíðs Oddssonar og fjölskyldu hans, er að finna greiptar í stein
í nokkrum sögulegum byggingum í höfuðborginni. Hornsteinar voru til dæmis lagðir að Perlunni og
Ráðhúsi Reykjavíkur á afmælisdögum foreldra hans.
Jóhann haukssOn
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Ráðhúsið Hornstein lagði
Davíð Oddsson að ráðhúsinu
á afmælisdegi móður sinnar.
Perlan Hornstein lagði
Davíð Oddsson að Perlunni
á afmælisdegi föður síns.
Þjóðmenningarhúsið
Davíð Oddsson opnaði
Þjóðmenningarhúsið eft-
ir endurbætur sama dag
og hann var kjörinn fyrsti
þingmaður Reykvíkinga
árið 1991.
Landsfundurinn Á síðasta
landsfundi Sjálfstæðiflokksins fékk
Davíð sérstakt svigrúm til þess að
tjá sig um þjóðmálin í frægri ræðu.