Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2009, Qupperneq 12
12 þriðjudagur 18. ágúst 2009 fréttir
Japan skilar
hagvexti
Hagvöxtur í Japan á apríl-júní
ársfjórðungi var 0,9 prósent í
kjölfar fjögurra ársfjórðunga
óslitins samdráttar. Japan fylgir
í kjölfar Frakklands og Þýska-
lands sem í síðustu viku urðu
fyrstu stóru Evrópuríkin til að
státa af hagvexti í kjölfar sam-
dráttar.
Slíkt hið sama hafa Hong
Kong og Singapúr gert í Asíu en
Japan er stærsta hagkerfið í sís-
tækkandi hópi ríkja sem tekist
hefur að auka hagvöxt í kjölfar
ársfjórðunga samdráttar.
Talið er að árangur Japana
megi rekja til gríðarlega hvetj-
andi aðgerða hins opinbera, en
ekki liggur ljóst fyrir hvort ár-
angurinn verði viðvarandi.
Reiði bitnar á
verksmiðju
Hundruð þorpsbúa í grennd við
borgina Baoji í Shaanxi-héraði
í Kína réðust inn í blýbræðslu
skammt frá borginni og létu
reiði sína bitna á verksmiðjunni
sem er völd að því að yfir 600
börn urðu fyrir eitrun.
Yfirvöld á svæðinu hafa við-
urkennt að verksmiðjan beri
ábyrgð á eitruninni og hafa yfir
150 börn verið lögð inn á sjúkra-
hús.
Reiði þorpsbúa braust út
í kjölfar niðurstaðna læknis-
skoðana sem sýndu að hjá yfir
600 börnum undir 14 ára aldri
mældist blýmagn í blóði óhóf-
lega mikið.
Obama „villtur” í
geimnum
„Obama forseti er villtur í
Andromeda-sólkerfinu, hann
hefur tapað áttum, hann skilur
þetta ekki,“ sagði Hugo Chavez,
leiðtogi Venesúela, á sunnudag-
inn og krafðist þess að banda-
rískum herstöðvum yrði lokað.
Ástæða ummælanna er
meint skilningsleysi Baracks
Obama á málefnum Suður-Am-
eríku og afskiptum Bandaríkja-
manna af máli Manuels Zelaya,
brottræks forseta Hondúras.
Chavez sagði að þjóðir Suð-
ur-Ameríku væru ekki að biðja
Bandaríkin að blanda sér í það
mál, heldur þvert á móti að
„biðja „veldið“ að sleppa tökum
á Hondúras og fjarlægja klærnar
frá Suður-Ameríku“.
Samkvæmt samtökunum Human
Rights Watch hafa hundruð samkyn-
hneigðra karlmanna sætt pynting-
um og verið drepin í Írak undan-
farna mánuði og einhver þeirra fyrir
hendi öryggissveita landsins.
Í skýrslu samtakanna segir að
viðtöl við þarlenda lækna beri þess
vitni að fjöldi fórnarlambanna
hlaupi á hundruðum, en erfitt sé
um vik að nefna nákvæman fjölda
vegna þeirrar smánar sem tengist
samkynhneigð í landinu.
Í skýrslunni segir enn fremur að
ætlast sé til þess að leiðtogar lands-
ins verji alla ríkisborgara en fram-
selji þá ekki í hendur „vopnaðra full-
trúa haturs“.
Að horfa fram hjá pyntingum
og morðum ógnar rétti og lífi allra
Íraka,“ segir í skýrslu Human Rights
Watch.
Írakskir embættismenn hafa við-
urkennt stigmagnandi fordóma í
garð samkynhneigðar en þvertek-
ur fyrir að ríkisstjórn landsins leggi
blessun sína yfir árásir á samkyn-
hneigt fólk og sagði Ali al-Dabbagh,
talsmaður ríkisstjórnarinnar, að yf-
irvöldum væri um megn að veita
samkynhneigðum sérstaka vörn.
Samkvæmt samtökunum er ráð-
ist á fólk á götum úti og á heimilum
og er það yfirheyrt og neytt til að
gefa upp nöfn karlmanna sem grun-
aðir eru um samkynhneigð. Fjöldi
manna endar annaðhvort á sjúkra-
húsi eða í líkhúsinu.
Human Rights Watch segja enn
fremur að karlmönnum hafi verið
hótað „heiðursmorði“ af ættingjum
sem óttast að „ókarlmannleg hegð-
un“ þeirra leggi orðspor fjölskyld-
unnar í rúst.
Samkynhneigðir karlmenn í Írak sæta miklum ofsóknum í heimalandi sínu:
Pyntaðir og myrtir í stórum stíl
Írakskir karlmenn á markaði Samkynhneigðir karlmenn í Írak geta ekki um frjálst
höfuð strokið.
Mynd: AFP
Samkvæmt opinberum tölum fædd-
ust fleiri stúlkur en drengir í Delí á
Indlandi á síðasta ári í fyrsta skipti
svo áratugum skiptir. Fjölgunin kem-
ur í kjölfar ákvörðunar borgaryfir-
valda Delí um að greiða foreldrum
sem nemur um 26 þúsundum króna
í bónus fyrir hverja nýja dóttur. Til-
gangur bónusgreiðslunnar er að berj-
ast gegn morðum á meybörnum.
Embættismenn telja að niður-
stöðurnar séu til merkis um að Ind-
land sé loks að hafa sigur í stríðinu
gegn eyðingu meyfóstra og morð-
um á stúlkubörnum, en hjá UNICEF,
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, er
talið að allt að fimmtíu milljónir ind-
verskra kvenna hafi „horfið“ vegna
þessa.
Of ör breyting
Ekki leggja allir sama skilning í þess-
ar tölur hins opinbera á Indlandi og
sérfræðingar segja umbreytinguna
vera of snögga til að vera trúanlega.
Þeir telja líklegra að tölurnar séu til-
komnar vegna þess að fjölskyldur
skrái frekar stúlkubörnin til að fá fé-
bæturnar, en að um raunverulega
fjölgun fæddra stúlkna sé að ræða.
Árið 2008 fæddust í höfuðborg
Indlands 1.004 stúlkubörn á móti
hverjum 1.000 drengjum samkvæmt
skrásetningarskrifstofu fæðinga og
dauðsfalla.
Samkvæmt tölunum var um
áberandi stökk að ræða í fæðingum
stúlkna gagnvart drengjum á svæði
sem hefur hvað versta orðsporið á
sér með tilliti til barnsmorða. Á ár-
unum frá 2005 til 2007 fæddust ein-
ungis að meðaltali 871 stúlka í Delí á
móti hverjum 1.000 drengjum.
Þvert á náttúrulögmálið
Nesim Tumkaya hjá UNPF, Mann-
fjöldasjóði Sameinuðu þjóðanna,
sagði í viðtali við vefmiðil The Times
að hann vildi óska þess að síðustu
tölur indverskra yfirvalda um fjölda
fæddra stúlkna gagnvart fæddum
drengjum ættu við rök að styðjast.
Tumkaya sagði að gögn sem sýndu
að fleiri stúlkur en drengir fæddust
bryti í bága við náttúrulögmálið, sem
styddi hið gagnstæða.
„Þessar tölur geta ekki staðist“,
sagði Tumkaya. Lýðfræðingar telja
„eðlilegt“ fæðingahlutfall vera um
960 stúlkubörn á móti 1.000 svein-
börnum, en sem fyrr segir var hlut-
fallið á Indlandi árin 2005 til 2007
871 stúlka á móti 1.000 drengjum.
Morð og fóstureyðingar
Sérfræðingar segja að lágt hlutfall
meybarna gagnvart sveinbörnum á
Indlandi megi rekja til milljóna ólög-
legra eyðinga á meyfóstrum og út-
breiddum morðum á stúlkubörnum.
Samkvæmt könnun Mannfjölda-
sjóðs Sameinuðu þjóðanna eru fóst-
ureyðingar sérstaklega algengar hjá
auðugu fólki sem hefur efni á sónar-
skoðun til að komast að kyni barns-
ins, en þrátt fyrir að yfirvöld hafi
bannað sónarskoðun í þeim tilgangi
eru slíkar skoðanir enn tíðkaðar.
Stúlkum er fórnað á altari heim-
anmundarkerfis landsins og erfða-
réttar sem er karlmönnum hliðholl-
ur. Ólöglegar ómskoðanir eru gjarna
auglýstar með grípandi slagorðum á
borð við „eyddu 600 rúpíum núna og
sparaðu 50.000 rúpíur seinna“.
Styrkur til menntunar eða
heimanmundar
Auk þess sem borgaryfirvöld í Delí
greiða 5.000 rúpíur, um 26.000 krón-
ur, þeim foreldrum sem eignast
stúlkubörn er foreldrunum einn-
ig heitið 25.000 rúpíum, um 80.000
krónum, að auki á bernskuárum við-
komandu stúlku, svo fremi sem hún
gengur í skóla. Þá upphæð má einnig
nota til frekari menntunar eða vegna
giftingarútgjalda þegar þar að kem-
ur.
Hvort sem nýjustu tölur eiga við
rök að styðjast eða ekki hefur þeim
verið fagnað af yfirvöldum í Delí sem
byltingu í baráttunni fyrir að fjölga
fæðingum stúlkubarna, og einungis
fylkið Kerala sem getur státað af fleiri
fæðingum stúlkubarna á Indlandi.
KOlbeinn ÞOrSteinSSOn
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Samkvæmt opinberum tölum frá Delí á Indlandi hafa í fyrsta skipti svo áratugum
skiptir fæðst fleiri stúlkur en drengir. Borgaryfirvöld hafa gripið til þess ráðs að greiða
foreldrum bónus fyrir hverja nýja dóttur og telja fjölgun fæðinga stúlkna til merkis
um að átakið hafi borið ávöxt. Ekki eru allir sammála þeirri túlkun.
FleiRi stúlkuR Fæðast
Stúlkum er fórnað á alt-
ari heimanmundskerfis
landsins og erfðarétt-
ar sem er karlmönnum
hliðhollur.