Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2009, Blaðsíða 13
fréttir 18. ágúst 2009 þriðjudagur 13
Hyggjast opna
landamæri að nýju
Samkvæmt frétt á Reuters hyggj-
ast stjórnvöld Norður-Kóreu opna
að nýju landamærin að Suður-Kór-
eu og binda enda á níu mánaða lok-
un, sem þau ákváðu sjálf. Ástæðan
er talin vera illa staddur efnahagur
vegna hertra þvingana af hálfu Sam-
einuðu þjóðanna, en Suður-Kórea
er mikilvæg uppspretta fjármagns
til handa norðurkóreskum stjórn-
völdum.
Fyrirætlanir Norður-Kóreu eru
síðasta skref þarlendra stjórnvalda
til að binda enda á nánast algjöra
einangrun vegna herskárra aðgerða
þarlendra yfirvalda.
Þýdd slagorð
leyfileg
Slagorð nasista sem bönnuð eru í
Þýskalandi geta verið lögleg ef þau
eru þýdd úr þýsku á ensku. Hæsti-
réttur landsins úrskurðaði að sektar-
dómi yfir manni sem dæmdur var til
4.200 evra sektar fyrir að hafa haft í
fórum sínum 100 boli með slagorð-
inu „Blood & Honor“ (Blóð og heið-
ur) skyldi hnekkt.
„Blood & Honor“ er þýðing á
„Blut und Ehre“, slagorði Hitlersæsk-
unnar. Reyndar kann að fara svo að
viðkomandi verði dæmdur engu að
síður því „Blood & Honor“ er nafn
ólöglegra samtaka í Þýskalandi.
Allt önnur Sydney
Sydney er ekki það sama og Sydney.
Það fengu Hollendingurinn Joannes
Rutten og barnabarn hans Nick að
reyna fyrir rúmri viku.
Í Amsterdam fóru þeir um borð í
flugvél á leið til Sydney og hugðust
njóta sumarhlýjunnar í bæ suður af
Sydney í Ástralíu.
Mikil var undrun þeirra þeg-
ar þeir stigu út úr vélinni í Sydney í
Nova Scotia í Kanada, 17.000 kíló-
metrum frá upphaflegum áfanga-
stað.
Þess ber að geta að ferðalangarn-
ir komust til Sydney í Ástralíu á mið-
vikudaginn.
Sölumaður reynir frumlega aðferð í kreppunni:
Dráttarvél og vélbyssa
Þegar kreppir að eru góð ráð dýr og
mikilvægara en oft áður að leggja
höfuðið í bleyti og finna bjargráð.
Carolina Tractor and Marine, drátt-
arvélasala ein í Suður-Karólínu í
Bandaríkjunum dó ekki ráðalaus í
viðleitni sinni til að selja drátt-
arvélar og brá á það
ráð að bjóða
hverjum
þeim
sem keypti
dráttarvél
ókeypis AK-47-vélbyssu í kaupbæti.
Að mati Henrys Jordan hjá söl-
unni á hver maður að eiga bát til að
veiða í, pallbíl og dráttarvél, og, án
nokkurs vafa, gott vopn til að verja
sig og fjöl- skyldu sína. Að
sögn Jordans
gildir tilboðið
á öllum sölusvæðum
dráttarvélasölunnar.
Lögreglustjórinn á svæðinu
ku ekki sjá neitt athugavert við
tilboð Carolina Tractor and Mar-
ine, en samkvæmt lögum frá 2004
er einkaaðilum heimilt að eiga
Ak-47-vélbyssur.
Söluaðferð Henrys Jordan er
reyndar ekki alveg ný af nálinni í
Bandaríkjunum og meðal annarra
sem tekið hafa upp viðlíka tilboð
má nefna bílasala að nafni Mark
Muller. Muller seldi bíla sína und-
ir slagorðinu: „Guð, vopn, hugrekki
og bandarískir pallbílar“, og bauð
öllum sínum viðskiptavinum vopn
í kaupbæti.
Tilraun Mullers hlaut reyndar
ekki góðan hljómgrunn og þrátt fyr-
ir að slagorðið hafi fengið að halda
sér þurfti Muller að draga tilboð sitt
til baka í kjölfarið á mótmælaöldu í
gjörvöllum Bandaríkjunum.
Ak-47-vélbyssa Ómiss-
andi öllum mönnum, auk
pallbíls, traktors og báts.
Ný útgáfa umdeildra fjölskyldulaga samþykkt í Afganistan:
„NAuðguNArlög“
geNgiN í gildi
Hamid Karzai, forseti Afganistan,
hefur samþykkt lög sem að mati
gagnrýnenda leggja blessun sína
yfir nauðgun innan vébanda hjóna-
bandsins. Lagafrumvarp að um-
ræddum lögum olli miklum deilum
fyrr á þessu ári og hefur nú tekið ein-
hverjum breytingum. Engu að síður
eru lögin talin hafa mikla nauðung í
för með sér gagnvart konum, en lög-
in taka til fjölskyldulífs á meðal sjía-
múslíma landsins.
Í upphaflegri útgáfu laganna var
sjía-konum gert að hafa kynmök við
eiginmann sinn fjórum sinnum í viku
hið fæsta og heimilaði í raun nauðg-
un því fellt var úr gildi ákvæði sem
kvað fyrir um nauðsyn samþykkis á
kynlífi í hjónabandi.
Eftir breytingar heimila lögin að
eiginmaður svelti konu sína ef hún
neitar honum um kynlíf. Einnig er
forráðaréttur gagnvart börnum ein-
ungis í höndum föður og afa og eig-
inkonur þurfa leyfi eiginmanns til að
stunda vinnu. Samkvæmt samtök-
unum Human Right Watch gera lög-
in nauðgurum einnig kleift að sleppa
við málshöfðun gegn því að greiða
„blóðpeninga“.
Það hefur vakið athygli að lít-
ið hefur heyrst frá stjórnvöldum
Bandaríkjanna og Bretlands vegna
laganna og telja stjórnmálaskýrend-
ur að ástæðuna megi rekja til forseta-
kosninga sem fram fara í Afganistan
á fimmtudaginn. Talið er að Banda-
ríkjamenn og Bretar vilji sem minnst
gera sem gæti haft truflandi áhrif á
kosningarnar og því hafi minna far-
ið fyrir gildistöku nýju útgáfunnar en
ella.
Gagnrýnedndur nýju laganna
saka Hamid Karzai um að kasta fyrir
róða hagsmunum afganskra kvenna
í von um stuðning íhaldssamra sjía-
múslima í forsetakosningunum.
Sjía-múslimar eru um fimmtán
prósent þjóðarinnar sem telur um
þrjátíu milljónir
Búrkaklæddar konur
í Afganistan Ný lög
beinast að fjölskyldu-
málum sjía-múslíma.
Mynd: AFP
2 dálkar = 9,9 *10
Fyrir bústaðinn og heimilið
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Smáauglýsingasíminn er
515 5550
smaar@dv.is