Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2009, Síða 15
Hver er konan? „23 ára Eyjastelpa.“
Heldurðu að búsetan í Eyjum hafi
eitthvað með það að gera hversu
langt þú hefur náð í boltanum?
„Það held ég já. Maður var alltaf úti á
velli eða inni í íþróttahúsi, í fótbolta,
handbolta eða einhverjum boltaleik.
Maður gat gengið inn í íþróttahúsið
þegar maður vildi og það lá við að
bestu vinir manns væru húsverðirnir í
íþróttahúsunum. Þannig að án
nokkurs vafa hjálpaði þetta til.“
Á íslenska þjóðin að borga
Icesave-skuldina? „Ég verð að
viðurkenna að ég er ótrúlega lítið
póltísk. Svo bý ég í Svíþjóð og því lítið
inni í þessu þannig að ég segi pass við
þessari.“
Ertu búin að sjá myndina
Stelpurnar okkar? „Að sjálfsögðu.
Okkur var boðið á forsýninguna og
mér fannst hún frábær. Þær stöllur,
Þóra [Tómasdóttir] og Hrafnhildur
[Gunnarsdóttir], eiga hrós skilið fyrir
frábært framlag og þetta er án efa
glæsileg minning fyrir okkur stelpurnar
líka.“
Hvernig tilfinning er það að skora
fjögur mörk í landsleik fyrir
framan þúsundir áhorfenda á
Laugardalsvelli? „Það er náttúrlega
frábært. Það er langt síðan ég skoraði
fjögur mörk í landsleik og þessi
tilfinning er ógleymanleg.“
Varstu orðin eitthvað áhyggjufull
yfir markaþurrðinni í landsleikj-
unum það sem af var árinu? „Nei,
ekkert sérstaklega. Við höfum spilað
vel á árinu og fengið góð úrslit. Það er
það sem fyrst og fremst skiptir máli.“
Ertu núna í besta formi sem þú
hefur verið í hingað til á ferlinum?
„Það er erfitt að svara því. En ég er búin
að leggja hart að mér og er nokkuð
sátt við mitt stand. Ég vona að ég sé að
toppa á réttum tíma.“
Hvað árangur myndir þú vera sátt
við á EM? „Það er erfitt að svara því.
Persónulega vil ég fara í alla leiki til að
vinna og ef maður nær því ætti maður
að enda í efsta sæti. En við verðum líka
að líta raunhæft á stöðuna og okkar
markmið núna er að komast upp úr
riðlinum. Ef það tekst setjumst við
niður og setjum okkur ný markmið.“
Er raunhæft að stefna að því að
spila úrslitaleikinn? „Að sjálfsögðu.
Við komumst á EM eins og hinar
þjóðirnar ellefu og hljótum því að vera
samkeppnishæfar.“
Ertu sátt/ur við icEsavE-samninginn mEð fyrirvörum fjárlaganEfndar?
„Já, miklu betur.“
JóHanna PÁLSdóttIr,
38 árA MArkAðSSTJóri.
„Ég hef ekki kynnt mér þá nógu vel en var
aldrei sáttur við samninginn frá byrjun og
býst ekki við að það hafi breyst.“
óLafur torfaSon,
25 árA EiNkAÞJálfAri.
„Ég er ekki sáttur við neitt af þessu,.“
róbErt SIndrI SkúLaSon,
19 árA NEMi.
„Ég fylgist ekkert með þessu. Ég nenni
ekki að hafa áhyggjur af þessu.“
EVErt VígLundSSon,
36 árA EiNkAÞJálfAri.
Dómstóll götunnar
Margrét LÁra VIðarSdóttIr
skoraði fjögur marka íslenska
kvennalandsliðsins í sigurleik gegn
Serbum síðastliðinn laugardag. Hún
hafði einungis skorað eitt mark í
þeim sjö landsleikjum sem fram
höfðu farið á árinu fram að því. Næst
á dagskrá er EM.
Húsverðirnir nán-
ast bestu vinirnir
„fyrir mér er þetta mál ekki fyrir
venjulegan mann að skilja og ég vil fá
betri útskýringar.“
Hörður HEIðar guðbJörnSSon,
37 árA frAMkVæMdASTJóri.
maður Dagsins
Ályktanir um erlendar lántökur
eru mjög misvísandi. Formaður
samtaka atvinnulífsins telur lán-
in nauðsynleg til að treysta gjald-
eyrisvarasjóð íslendinga, auka
lánshæfismat og tiltrú á erlendri
grund. Virtir hagfræðingar segja
lánin hinsvegar óþörf. Nú hafa
útvegsmenn lýst yfir hagstæðum
kjörum á fiskmörkuðum og mikilli
fisksölu, lágt gengi krónunnar hafi
sitt að segja og auki samkeppnis-
hæfni útflutningsatvinnugreina.
Með ólíkindum að forsvarsmað-
ur atvinnulífsins skuli ekki grípa
þennan kost á lofti og berjast fyrir
auknum veiðum. Að nýta þennan
gengisbyr og sækja gjaldeyri með
atvinnusköpun hér heima hlýt-
ur að vera nærtækasti kosturinn.
Ennfremur ættu menn, sem um-
hugað er um gjaldeyrisforðann,
að styðja skattlagningu jöklabréfa.
Orðspor okkar á erlendri grund
hlýtur að markast af sjálfsbjargar-
viðleitni, ekki lántökum.
Frjálsar handfæraveiðar í at-
vinnuskyni hafa viðgengist í sum-
ar. Höfundar þessarar nýbreytni
lofsama líf í höfnum og nýjan at-
vinnugrundvöll á meðan varð-
hundar gamla kvótakerfisins segja
þetta óhagkvæmt og dæmt til
að mistakast. Vart trúi ég því að
stjórnvöld nenni að hlusta á þessar
úrtölur heldur gangi skrefi lengra
og tífaldi veiðipottinn fyrir næsta
ár. Gæta þess samhliða að sjávar-
byggðirnar njóti góðs af með hóf-
legum afnotagjöldum sem tækju
mið af aflamagni.
Komið hefur fram í fréttum að
líf ríkisstjórnarinnar sé háð sam-
þykki Icesave-samningsins. Ljóst
er að væntingar forsætis- og fjár-
málaráðherra til þingsins gengu
ekki eftir og fyrirvaralaust verður
plaggið ekki samþykkt. Sem þýð-
ir að samninganefndin hefur ekki
gætt okkar hagsmuna nægjanlega.
Ábyrgðin er auðvitað fyrrgreindra
ráðamanna og eðlilega mun dóm-
greind þeirra vera dregin í efa.
Aðstæður eru hinsvegar þannig
að engin önnur stjórn kemur til
greina þar sem Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur enn ekki gengið í gegn-
um nauðsynlega afeitrun. Því
verða Jóhanna og Steingrímur að
sætta sig við niðurstöðu þingsins.
Hvort það þýði nýtt samningaferli
kemur í ljós.
Svarið við hinni sígildu spurn-
ingu: „How do you like Iceland?“,
hræðir orðið marga og flestir hætt-
ir að hafa hana eftir. Ferðamanna-
straumurinn talar þó sínu máli og
ber megnið landi og þjóð vel sög-
una. Í samantekt held ég að flestir
sýni Íslendingum samúð og skiln-
ing fremur en fyrirlitningu. Alla-
vegana hef ég ekki orðið var við
neitt Íslendingahatur. Samt furða
margir sig á sinnuleysi valdhafa
gagnvart þeim öflum sem kafsigldu
okkur svona gersamlega. Ekki bara
þeir gangi lausir heldur sumir farn-
ir að hasla sér völl í viðskiptalífinu
á ný. Hæpið er þó að stjórnarskipti
myndu ýta við þessum hlutum og
því illskárra að stjórnarsamstarf-
ið hangi, að minnsta kosti enn um
sinn. Og hafi Samfylkingarfólk
áhyggjur af viðbrögðum alþjóða-
samfélagsins vegna Icesave er það
óþarft, Evrópubandalagið mun
aldrei hafna jafnfeitum bita og Ís-
landi, eini möguleikinn er sá að
við höfnum Evrópubandalaginu.
Ódrepandi ríkisstjórn
kjallari
1 britney bomba í bleiku bikiní -
myndir
Poppgyðjan Britney Spears sýndi
fagurlimaðan líkamann í skærbleiku bikiníi
- hún hefur tekið á því í ræktinni.
2 brast í grát á sviðinu - myndir
Breska söngkonan lily Allen sló
áhorfendur sína út af laginu þegar hún
brast í grát á sviðinu á miðjum tónleikum.
3 Mannskæð hefnd fyrrverandi
eiginkonu
fyrrverandi eiginkona kúveisks brúðguma
bar eld að tjaldi sem brúðkaupsveislan fór
fram í. fórust 43 konur og börn í
eldsvoðanum
4 Hrottafengið nauðgunarmál
fyrir dóm
réttarhöld hefjast yfir tveimur
táningspiltum. Þeir eru grunaður um aðild
að hópnauðgun á móður og tólf ára syni
hennar.
5 glamúrfyrirsæta sökuð um
fíkniefnasölu
fyrrverandi kærasta knattspyrnukappans
rio ferdinand, Holly McGuire, hefur verið
ákærð í stórfelldu fíkniefnamáli.
6 35 fullnægingar á einum degi
katherine Heigl finnst mikið álag að þurfa
að feika fullnægingu í nýjustu mynd sinni,
The Ugly Truth.
7 reyndi að kæra misheppnuð
dópviðskipti
Maður sem stóð uppi tómhentur eftir að
hafa ætlað að kaupa fíkniefni fór á
lögreglustöðina til að kvarta.
mest lesið á dV.is
LÝður ÁrnaSon
heilbrigðisstarfsmaður
skrifar
Evrópubandalagið
mun aldrei hafna jafn-
feitum bita og Íslandi,
eini möguleikinn er
sá að við höfnum
Evrópubandalaginu.
umræða 18. ágúst 2009 þriðjudagur 15
mynDin
Spegill, spegill... Gljáandi yfirborð Perlunnar var svo skínandi hreint í veðurblíðunni í gær að virtist hreinlega sem þar mætti sjá
beinustu leið í gegn. kristinn Magnússon ljósmyndari notaði tækifærið og smellti af þar sem áhugasamir ferðamenn spegluðust á
ytra byrðinu þar sem þeir virtu útsýnið fyrir sér. Mynd: krIStInn MagnúSSon