Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2009, Side 17
Beckham sá rautt David Beckham fékk í annað skipt-
ið rautt spjald á ferlinum í leik Los Angeles Galaxy og Seattle
Sounders aðfaranótt sunnudags. Beckham tæklaði Peter Vag-
enas mjög harkalega. Beckham var ósammála dómaranum sem
gaf honum beint rautt eftir tæklinguna en Bruce Arena, þjálfari Gal-
axy, sagði þetta augljóslega verðskulda rautt spjald.
UmSjón: tómAS þór þórðArSon, tomas@dv.is
sport 18. ágúst 2009 þriðjudagur 17
WWW.SVAR.IS
SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000
SKÓLATILBOÐ!
ALLT AÐ 8 KLST
RAFHLÖÐUENDING
FÁST Í ÖLLUM
REGNBOGANS LITUM
Nýr kostur í DV eru þjónustuauglýsingar.
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR
Hringdu í síma 515 5550
og byrjaðu strax í dag!
smaar@dv.is
Sprettharðasti maður heims, Usa-
in Bolt, skráði sig enn á ný, skjalfesti
og stimplaði á spjöld sögunnar þeg-
ar hann bætti eigið heimsmet í 100
metra spretthlaupi um 1,1 sekúndu
á Heimsmeistaramótinu í Berlín á
sunnudag. Bolt hljóp á 9,58 sekúnd-
um og hefur því sett heimsmet þrí-
vegis á rétt rúmu ári.
Fyrsta metið setti hann 31. maí
árið 2008 þegar hann hljóp á 9,72 og
bætti met landa síns Asafa Powell um
tvö sekúndubrot. Meðvindur mæld-
ist þá upp á 1,7 metra á sekúndu. Á
Ólympíuleikunum í Pekíng það sama
ár bætti Bolt met sitt á nýjan leik þeg-
ar hann hljóp á 9,69 sekúndum en þá
var meðvindurinn enginn.
Þrátt fyrir að hafa bætt eigið
heimsmet verulega hljóp Bolt ekki á
fullum hraða allt hlaupið heldur tók
sér tíma í að fagna síðustu tíu metr-
ana. Samkvæmt útreikningum sem
gerðir hafa verið af nokkrum virtum
stofnunum út frá tíma Bolt fyrstu 60
metrana er talið að hann hefði getað
klárað hlaupið á 9,52-55 hefði hann
hlaupið af fullum krafti allan tíman.
Það var því aðeins tímaspursmál hve-
nær þessi ótrúlegi hlaupari myndi slá
metið að nýju og ef útreikningarnir
frá Ólympíuleikunum reynast réttir
er enn svigrúm til að bæta metið.
BBC-fréttastofan hefur tekið sam-
an ýmsa tölfræði um hlaupið á sunnu-
daginn þar sem meðal annars kemur fram að Bolt hljóp vegalengdina milli
60 og 80 metra á 1,61 sekúndu. Sem
sagt 20 metra á 1,61 sekúndu. Með-
al hraði hans í hlaupinu var 37,57
kílómetrar á klukkustund en hraðast
hljóp Bolt á 44,72 kílómetra hraða.
Aðeins tveimur tímum eftir hlaup-
ið var Bolt mættur aftur út á brautina
til þess að fara yfir það í huganum.
Var þá undirbúningur hans hafinn
fyrir úrslit í 200 metra hlaupi sem
fara fram á fimmtudag. Bolt sló eft-
irminnilega 15 ára gamalt met Mi-
chaels Johnson í greininni þegar
hann hljóp á 19,30 sekúndum á Ól-
ympíuleikunum. Hann ætlar sér að
bæta metið á fimmutdag en hann er
eini maðurinn síðan rafrænar mæl-
ingar hófust til þess að eiga heimsmet
í báðum greinum á sama tíma.
Usain Bolt bætti sitt eigið heimsmet í 100 metra spretthlaupi á
ótrúlegan hátt á sunnudaginn. Úr 9,69 sekúndum í 9,58. Þetta var
í annað skipti sem Bolt bætir sitt eigið heimsmet en í hlaupinu
hljóp hann á milli 60 og 80 metra á 1,61 sekúndum.
-meðalhraði: 37,57 kílómetra hraði á
klukkustund
-topphraði: 44,72 kílómetra hraði á
klukkustund
-Bolt hefur lækkað heimsmetið í 100
sprtetthlaupi um 1,64% á síðustu
tveimur árum.
-það jafngildir því að bæta 42,47 sek-
úndna heimsmet michaels johnsons
frá árinu 1999 í 400 metra hlaupi um
0,71 sekúndubrot og koma í mark
6,58 metra á undan honum.
-það jafngildir því að bæta heimsmet
Hicham El Guerrouj í mílu hlaupi um
3,66 sekúndubrot eða úr 3:43.13 í
3:39.49.
-það jafngildir því að bæta heimsmet
Haile Gebrselassie í maraþoni um
2,02 mínútur.
-Enginn hefur sett jafn mörg
heimsmet í 100 spretthlaupi.
-Enginn hefur bætt eigið met jafnoft.
-Bolt segist geta hlaupið 100 metra á
9,4 sekúndum.
ÁSGEIR JÓNSSON
blaðamaður skrifar asgeir@dv.is
DON LIppINcOtt Bandaríkin 10,6 sek, 1912
chaRLIE paDDOck Bandaríkin 10,4 sek, 1921
pERcy WILLIamS Kanada 10,3 sek, 1930
JESSE OWENS Bandaríkin 10,2 sek 1936
WILLIE WILLIamS Bandaríkin 10,1 sek, 1956
aRmIN haRy V-þýskaland 10,0 sek, 1960
JIm hINES Bandaríkin 9,95 sek, 1968
caLvIN SmIth Bandaríkin 9,93 sek, 1983
caRL LEWIS Bandaríkin 9,92 sek, 1988
LEROy BURRELL Bandaríkin 9,90 sek, 1991
caRL LEWIS Bandaríkin 9,86 sek, 1991
LEROy BURRELL Bandaríkin 9,85 sek, 1994
DONOvaN BaILEy Kanada 9,84 sek, 1996
maURIcE GREENE Bandaríkin 9,79 sek, 1999
aSafa pOWELL jamaíka 9,77 sek, 2005
aSafa pOWELL jamaíka 9,74 sek, 2007
USaIN BOLt jamaíka 9,72 sek, 2008
USaIN BOLt jamaíka 9,69 sek, 2008
USaIN BOLt jamaíka 9,58 sek, 2009
Heimsmet í 100 sprettHlaupi frá uppHafi
Hljóp á 45 kíló-
metra Hraða
staðreyndir um
Heimsmet Bolt
Usain Bolt Sprettharð-
asti maður allra tíma.