Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Blaðsíða 2
Öryggisfyrirtækið Terr Security varð fyrir því óláni í gær að óprúttnir aðilar settu inn auglýsingu á vefsíðu Barna- lands. Þar sagði að Terr Security leitaði að dyravörðum í svarta vinnu. Gríðarlegur fjöldi fyrirspurna og atvinnuumsókna barst frá Íslendingum sem vildu vinna svart. Róbert Örn Diego, hjá Terr Security, telur að samkeppnisaðilar reyni með þessu að koma höggi á fyrirtækið. hitt málið Þetta helst - þessar fréttir bar hæst í vikunni til valda og áhrifa Ritstjóraskipti á Morgunblaðinu eru tilraunir aðdáenda Davíðs Oddsson- ar innan Sjálfstæð- isflokksins til að skapa blaðinu nýtt pólitískt vægi. Fullyrt er að með ritstjóraskipt- um á Morgunblað- inu freisti hluthaf- ar þess að reka harða stefnu gegn ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, herða róðurinn gegn aðild að Evrópusambandinu, berjast gegn ríkisábyrgð á Icesave-skuldunum, standa vörð um óbreytt kvóta- kerfi og endurreisa orðspor Sjálfstæðisflokksins. Að þessu leyti ráða rekstrarforsendur ekki mannabreytingum í brú Morgunblaðsins held- ur væntingar um áhrifavald til að móta samfélagið eftir bankahrun og tækifæri til áhrifa á eignauppskiptinguna í efnahagslífinu í kjölfar upplausnarinnar. bruggið í rússlandi Fyrrverandi viðskiptafélagi Björgólfs- feðga í Rússlandi, Ingimar H. Ingimarsson, varaði Fjár- málaeftirlitið og einkavæð- ingarnefnd við því árið 2002 að selja Björgólfsfeðgum Landsbankann. Saga við- skipta Ingimars og Björgólfsfeðga er afar dramatísk og lyginni líkust. Þeir voru saman í viðskiptum í Pétursborg í Rússlandi á árunum 1992 til 1995 þegar þeir unnu saman að rekstri bruggverksmiðjunnar Baltic Bottling Plant. Ingimar var stór eigandi verk- smiðjunnar ásamt breskum viðskipta- félaga sínum, Bernard Lardner. Ingi- mar sagði Björgólfsfeðga hafa stolið af sér bjórverksmiðjunni í Pétursborg sem síðar var notuð til að fjármagna Landsbankakaupin. Varnaðarorð Ingimars voru hins vegar hundsuð með öllu og Fjármálaeftirlitið mat feðgana hæfa til að eiga banka. fMe stoppaði ásMund Ásmundur Stefánsson, bankastjóri Landsbankans, réð Ara Skúlason, gamlan vinnu- og baráttufélaga, vafningalaust í stöðu framkvæmdastjóra Landsvaka hf. án þess að auglýsa starfið. Fjármála- eftirlitið hefur hafnað ráðningu Ásmundar og telur Ara ekki hæfan í starfið sökum skorts á menntun í verðbréfamiðlun. Ari er því sestur á skólabekk til vors- ins til að afla sér réttinda. Nýr fram- kvæmdastjóri var ráðinn til Lands- vaka, en aðeins til vorsins þegar Ari snýr aftur í starf framkvæmdastjóra. Ari þarf þó ekki að hafa áhyggjur af tekjuleysi meðan hann er í námi því núna er hann titlaður aðstoðarframkvæmdastjóri Landsvaka. 2 3 1 F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð Viðskiptafélagi BjörgólfsfeðgaVaraði Við þeim: ÁSMUNDUR STOPPAÐUR RéÐ gAMlAN félAgA ÁN AUglýSiNgAR dv.is MiÐvikUDAgUR Og fiMMTUDAgUR 23. – 24. SEPTEMBER 2009 dagBlaðið víSiR 130. TBl. 99. áRg. – vERð kR. 347 SéRblAÐ „glÆTAN“ EKKI SELJA FEÐGUNUM BANKANN! fRéTTiR MATUR&víN ÁSDíS RÁN keMUR ekki heiM fólk lAMiN Af fÖÐUR SíNUM „ég vAR MeÐ Of Mikil lÆTi“ 119 á höfuðborg- arsvæðinu 1 á suðurlandi 12 á vesturlandi 7 á Vestfjörð- um 6 á Norður- landi 12 á Austfjörð- um 16 á suður- nesjum 10 skráð á þá sem búsettir eru erlendis fleSTiR SýkTiR Á hÖfUÐbORgAR- SvÆÐiNU fRéTTiR eRleNT gADDAfi vilDi TJAlDA í NeW YORk „ÞAUlhUgSAÐ SviNDl Og ÞJófNAÐUR“ iNgiMAR iNgiMARSSON fUllYRÐiR AÐ feÐgARNiR hAfi STOliÐ bJóRveRkSMiÐJU fJÁRMÁlAefTiRliTiÐ hUNDSAÐiviÐvÖRUNiNA Björgólfar í rússl andi SviÐSlJóS fréttir 23. september 2009 miðvikudagur 3 FME stöðvar stöðu- vEitingu ÁsMundar Ásmundur Stefánsson Ara Skúlason Ásmundur Stefánsson, bankastjóri Landsbankans, réð Ara Skúlason sem framkvæmdastjóra Landsvaka hf. síðastliðið vor án þess að aug- lýsa stöðuna. Ásmundur og Ari eru gamlir samherjar og starfsbræður hjá Alþýðusambandi Íslands þar sem Ásmundur var forseti og Ari hagfræðingur sambandsins. Fjár- málaeftirlitið hefur hafnað ráðn- ingu Ásmundar og telur Ara ekki hæfan í starfið sökum skorts á menntun í verðbréfamiðlun. Starfið bíður hans næsta vor Ari hefur nú tímabundið látið af starfi framkvæmdastjóra og gegnir starfi aðstoðarframkvæmdastjóra þar til í maí á næsta ári. Björn Þór Guðmundsson hefur tímabundið verið ráðinn framkvæmdastjóri í hans stað. Ástæðan fyrir þessum tilfær- ingum í mannahaldi Landsvaka er sú að Fjármálaeftirlitið hefur gert athugasemd við þá ráðstöfun Ás- mundar að ráða Ara og bendir á að framkvæmdastjórinn verði að hafa menntun og próf í verðbréfamiðl- un. Ari er menntaður í viðskipta- og þjóðhagfræði en fullnægir ekki skilyrðum þeim sem Fjármálaeft- irlitið setur um menntun. „Strangt til tekið er ég ekki hæfur til starf- ans og FME vildi ekki gefa und- anþágu,“ segir Ari sem sestur er á skólabekk í Háskólanum í Reykja- vík. Hann hefur undanfarin ár stýrt greiningardeild á fyrirtækjasviði innan Landsbankans og því verið í ráðningarsambandi. „Ég leit svo á að þetta væri tilflutningur í starfi innan bankans.“ Samkvæmt upplýsingum Landsbankans er að sjá sem ætl- unin sé að geyma stöðu fram- kvæmdastjórans fyrir Ara þar til í maí á næsta ári en Björn Þór er að- eins ráðinn til maíloka á næsta ári. Á skjön við góða starfshætti Landsvaki hf. er rekstrarfélag í eigu Landsbankans sem annast rekst- ur verðbréfasjóða og fjárfesting- arsjóða. Fyrirtækið sér einnig um eignastýringu og rekstur fyrir líf- eyrissjóði og eignastýringu fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga í einkabankaþjónustu. Landsbankinn er hlutafélag í eigu ríkisins og Landsvaki félag í eigu bankans. Samkvæmt því má ætla að um bankann gildi almenn lög og reglur um að auglýsa beri stöður. Í lögum og reglugerðum eru til undantekningar frá því, svo sem þegar ráðið er í hlutastarf eða þegar ráðið er tímabundið í starf. „Þetta er gersamlega á skjön við það sem kalla mætti góða starfs- hætti og drjúgar líkur á að þetta sé einnig ólöglegt,“ segir Gunn- ar Helgi Kristinsson stjórnmála- fræðiprófessor og sérfræðingur í opinberri stjórnsýslu. „Það er í raun óskiljanlegt að menn leyfi sér þetta. Almenn og fortakslaus regla er að auglýsa störf og emb- ætti hjá hinu opinbera. Þegar störf eru ekki auglýst má nánast gefa sér að eitthvað óvenjulegt og einkennilegt er á seyði.“ Kunningjaveldið Ari Skúlason er menntaður í viðskiptafræði og þjóðhag- fræði. Hann var hagfræð- ingur Alþýðusambands Íslands frá 1988 til 1992 og síðar framkvæmda- stjóri sambandsins til 2001. Ásmundur Stefáns- son bankastjóri er einnig hagfræðingur að mennt. Hann var forseti Al- þýðusambands Íslands frá 1980 til 1992. Leiðir hans og Ara lágu sam- an þegar árið 1988 þeg- ar Ásmundur réð hann sem hagfræðing ASÍ. Bankastjórastaða senn auglýst Framtíð Ásmundar hjá Lands- bankanum er enn ekki ráð- in, en ráðgert var að auglýsa bankastjórastöðuna lausa til umsóknar fyrir lok þessa mánaðar. „Efnahagsreikningur bankans er ekki tilbúinn og mínar björtustu vonir eru þær að unnt verði að halda aðal- fund bankans fyrir lok október. Ráðgert er að auglýsa stöðu bankastjóra lausa til umsókn- ar eftir fundinn,“ segir Haukur Halldórsson, formaður banka- ráðs Landsbankans, í samtali við DV. „Þetta er gersam- lega á skjön við það sem kalla mætti góða starfshætti og drjúg- ar líkur á að þetta sé einnig ólöglegt.“ JóhAnn hAuKSSon blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Réð mann án auglýsingar Ari reyndist ekki fullnægja skilyrðum Fjármálaeftirlitsins um menntun í verðbréfamiðlun eftir að Ásmundur Stefánsson bankastjóri hafði ráðið hann í stöðu framkvæmdastjóra. Ari Skúlason Ásmundur og Ari eru gamlir samherjar og starfsbræður innan Alþýðusambands Íslands. Ætlunin virðist vera að geyma framkvæmdastjórastöðuna fyrir Ara þar til hann hefur lokið prófi í verðbréfamiðlun næsta vor. Gunnar helgi Kristinsson „Þegar störf eru ekki auglýst má nánast gefa sér að eitthvað óvenjulegt og einkennilegt er á seyði.“ varaði við FEð uM sem Björgólfsfeðgar seldu til Heine- ken árið 2002, upprunalega stolin og því má segja að samkvæmt hans túlkun hafi peningarnir sem notaðir voru til að fjármagna Landsbanka- kaupin verið illa fengnir. Gróf ekki undan hæfi Samson- manna Þrátt fyrir að Ingimar hefði sent þess- ar athugasemdir til Fjármálaeftir- litsins og einkavæðingarnefndar var ekki tekið mikið tillit til þeirra þeg- ar Fjármálaeftirlitið mat hæfi Sam- son til að eiga Landsbankann. Nið- urstaða Fjármálaeftirlitsins var sú, í úrskurði stofnunarinnar um hæfi Björgólfsfeðga til að eiga banka, að ekkert í deilu Ingimars við Björg- ólfsfeðga kæmi í veg fyrir að kom- ist væri að því að þeir væru hæfir til að eiga banka. „Ekkert hefur komið fram sem gefur til kynna að þetta mál hafi áhrif á hæfi umsækjanda en fyr- ir liggur að fjármögnun og fjárhags- staða umsækjanda eru ekki bundin við úrlausn þessa ágreinings.“ Fjármálaeftirlitið mat málið því svo að orð Ingimars, sem í raun voru áfellisdómur yfir Björgólfsfeðgum, ættu ekki að koma í veg fyrir að þeir fengju að kaupa Landsbankann. Og jafnframt að þar sem ágreiningurinn hefði ekki fjárhagslegar afleiðingar fyrir feðgana skipti hann ekki máli í Landsbankasölunni. Stjórnarflokkarnir búnir að velja Samson Ein af skýringunum fyrir þessu áhugaleysi Fjármálaeftirlitsins kann að vera sú að ríkisstjórn Sjálfstæð- is- og Framsóknarflokks hafi verið búin að ákveða að Samson ætti að fá að kaupa Landsbankann. Gunn- ar Andersen, núverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, skýrði áhuga- leysi á þeim varnaðarorðum sem hann lét falla um Björgólfsfeðga árið 2002 á þann hátt í samtali við DV í apríl. Þá sagði blaðið frá því að Gunn- ar hefði varað ráðamenn á Íslandi við því að selja Björgólfi Guð- mundssyni Landsbankann út af fortíð hans. Gunnar var starfsmað- ur Landsbankans á þessum tíma en hafði áður meðal annars starfað fyr- ir eitt af dótturfélögum Hafskipa í Bandaríkjunum. Hann var auk þess eitt af vitnunum í Hafskipsmál- inu. „Þó að einn framkvæmdastjóri Landsbankans hafi verið ósammála því þá breytti það ekki þeirri stefnu [innskot blaðamanns: ríkisstjórnar- innar],“ sagði Gunnar þá. Vel kann að vera að svipaða sögu megi segja um varnaðarorð Ingimars og að slík orð hafi ekki getað breytt þeirri ákvörðun ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar að selja Samson Landsbankann. DV náði ekki tali af Páli Gunnari Pálssyni, fyrrverandi forstjóra Fjár- málaeftirlitsins, í gær þrátt fyrir ítrek- aðar tilraunir. Ætlunin var að spyrja hann út í samskipti Fjármálaeftir- litsins við Ingimar á árinu 2002 og af hverju hefði verið skautað svo fram hjá sögu hans af viðskiptunum við Björgólfsfeðga þegar meðlimir Sam- son-hópsins voru metnir hæfir til að eiga Landsbankann. Grein Halldórs Halldórsson- ar um þessa sögu í helgarblaði DV mun enn frekar varpa ljósi á hversu þetta áhugaleysi Fjármálaeftirlitsins á málinu var sérstakt. 2 Föstudagur 25. september 2009 Fréttir WWW.SVAR.IS SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 SKÓLATILBOÐ! ALLT AÐ 8 KLST RAFHLÖÐUENDING FÁST Í ÖLLUM REGNBOGANS LITUM 4 þriðjudagur 22. september 2009 fréttir Brotthvarf Ólafs Þ. Stephensen úr rit- stjórastóli Morgunblaðsins á sér póli- tískar rætur en ekki rekstrarlegar. Af öllum sólarmerkjum að dæma verð- ur Davíð Oddsson ráðinn ritstjóri að blaðinu. Þetta var fullyrt án fyrirvara á fréttavef Eyjunnar í gær. DV tókst ekki að fá þetta staðfest áður en blað- ið fór í prentun og Óskar Magnússon útgáfustjóri vill ekki tjá sig um mál- ið. „Ég get ekki átt neitt samtal um Morgunblaðið,“ sagði Óskar í samtali við DV í gær. Fyrr á árinu sagði hann aðspurður að Davíð yrði áreiðanlega góður ritstjóri. Fullyrt er að með ritstjóraskipt- um á Morgunblaðinu freisti hlut- hafar þess að reka harða stefnu gegn ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, herða róðurinn gegn aðild að Evrópusambandinu, berjast gegn ríkisábyrgð á Icesave-skuldunum, standa vörð um óbreytt kvótakerfi og endurreisa orðspor Sjálfstæðis- flokksins. Að þessu leyti ráða rekstr- arforsendur ekki mannabreytingum í brú Morgunblaðsins heldur vænt- ingar um áhrifavald til að móta sam- félagið eftir bankahrun og tækifæri til áhrifa á eignauppskiptinguna í efna- hagslífinu í kjölfar upplausnarinnar. Auk Davíðs hafa nokkrir verið nefndir sem mögulegir eftirmenn Ólafs á ritstjórastóli. Þeirra á meðal Haraldur Johannessen, ritstjóri Við- skiptablaðsins, Jónas Haraldsson, sem nú starfar fyrir fréttavef AMX, Ólafur Teitur Guðnason, Ásdís Halla Bragadóttir og Óli Björn Kárason. Loks má nefna Óskar Magnússon út- gáfustjóra sem mögulegan ritstjóra. Bilið milli blaðs og flokks minnkar Ákvörðun um ritstjóra er í hönd- um stjórnar Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins. Stjórnarformaður Árvakurs er Sigurbjörn Magnússon, lögfræðingur Guðbjargar Matthí- asdóttur, kaupsýslukonu úr Vest- mannaeyjum sem á að minnsta kosti 30 prósent í útgáfunni og þar með ráðandi hlut. Sigurbjörn er sjálfstæð- ismaður og var meðal annars fram- kvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðis- flokksins 1985 til 1990. Aðrir í stjórn Árvakurs eru Helga Steinunn Guð- mundsdóttir, Bjarni Þórður Bjarna- son, Ásdís Halla Bragadóttir og Gunnar B. Dungal. Öll eru þau tengd Sjálfstæðisflokknum. Helga Stein- unn er einn aðaleigandi Samherja og greiddi hæstu opinberu gjöldin í Reykjanesumdæmi fyrir síðasta ár, eða um 116 milljónir króna. Bjarni Í strÍð gegn rÍkisstjórninni Jóhann hauksson blaðamaður skrifar: johannh@dv.is „Þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks tekur við eftir næstu kosningar, til að hreinsa upp eftir núverandi vinstristjórn...“ Verður hann ritstjóri? Rætt var um það þegar í stjórnartíð Geirs H. Haarde að þegar Davíð léti af störfum sem seðlabankastjóri yrði hann ritstjóri Morgunblaðsins. fréttir 22. september 2009 þriðjudagur 5 Þórður er einn af eigendum Arctica Finance, ráðgjafarfyrirtækis á snær- um manna sem áður störfuðu hjá Landsbankanum gamla. Bjarni var forstöðumaður fyrirtækjasviðs bank- ans en fór frá bankanum þegar hann féll. Ásdís Halla er fyrrverandi bæjar- stjóri í Garðabæ, síðar forstjóri BYKO og var eitt sinn aðstoðarmaður Björns Bjarnasonar er hann var mennta- málaráðherra. Gunnar Dungal var einn af eigendum Pennans og einnig gildur sjálfstæðismaður. Afskipti eiganda af fráfarandi ritstjóra Samkvæmt heimildum DV hefur Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, fjárhaldsmaður Guðbjargar í Vest- mannaeyjum til margra ára, haft áhrif á ákvarðanir um framtíð Morg- unblaðsins að undanförnu. Gunn- laugur var formaður útvarpsráðs í meira en áratug í nafni Sjálfstæðis- flokksins. Þá er Einar Sigurðsson, yfirmaður í Íslandsbanka og sonur Guðbjargar aðaleiganda Morgunblaðsins, einn- ig nefndur til sögunnar. Guðbjörg keypti drjúgan hlut í DV árið 2001. Einar vann þar með ritstjóra sínum Óla Birni Kárasyni þegar blaðið varð gjaldþrota um ári eftir kaupin. Guð- björg og fjölskylda hennar töpuðu þar hlutafé sínu og Landsbankinn tapaði miklu fé á gjaldþrotinu. DV hefur heimildir fyrir því að Einar hafi gert óbeinar tilraunir til að hafa áhrif á ritstjórnarstefnu Morg- unblaðsins í ritstjórnartíð Ólafs Step- hensen. Einar hefur auk þess ritað greinar í blaðið um pólitísk málefni. Í nýju tölublaði Þjóðmála ritar Einar grein undir fyrirsögninni „Ic- esave - klúður á klúður ofan“. Undir lok greinarinnar mærir Einar Fram- sóknarflokkinn og Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann flokksins og segir svo orðrétt: „Þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks tekur við eftir næstu kosning- ar, til að hreinsa upp eftir núverandi vinstri stjórn, mun hennar fyrsta verk verða að leggja fram frumvarp til laga sem hefst á þessum orðum: „Alþingi samþykkir að fella niður ríkisábyrgð vegna svokallaðra Icesave-samn- inga.““ Að minnsta kosti þrír menn tengd- ir Guðbjörgu, Gunnlaugur Sævar, Sigurbjörn, stjórnarformaður Árvak- urs, og Einar, sonur Guðbjargar, beita sér í málefnum Morgunblaðsins og því augljóst að Óskar Magnússon er ekki einn í ráðum. Flestir þessara manna hafa verið handgengnir Dav- íð Oddssyni sem margt bendir til að setjist í ritstjórastól Morgunblaðsins á næstu dögum. Barist gegn ESB, Icesave og ríkisstjórn Af þessu má ráða að kveikjan að rit- stjóraskiptum á Morgunblaðinu er ekki fyrst og fremst rekstrarleg.Hún endurspeglar miklu fremur harðn- andi stjórnmálaátök og ríkan vilja á hægrivæng Sjálfstæðisflokksins til þess að ná vopnum eftir bankahrun- ið og auka áhrif og völd sem kostur er um leið og flokkurinn sætir færis að ná aftur stjórnartaumunum í land- inu. Augljóslega er þarna á ferðinni hópur sem harðast vinnur gegn Ic- esave-ríkisábyrgðinni, aðild að ESB og breytingum á kvótakerfinu. Fyrst og síðast þykir mest um vert að koma núverandi ríkisstjórn frá völdum, koma í veg fyrir pólitískt og hug- myndafræðilegt hámarkstjón flokksins vegna bankahruns- ins. Viðvarandi rekstrarvandi Tvennum sögum fer af fjár- hagsstöðu Árvakurs og Morgunblaðs- ins. Heimildir eru fyrir því að enn séu peningar nýju hluthafanna ekki upp- urnir, en nýtt hlutafé er skráð um sex hundruð milljónir. Eftir bæri- lega velgengni áratugum saman var svo komið að blaðið tapaði nærri 600 milljónum króna í fyrra, um 1,5 millj- ónum á dag, og átti ekki fyrir launum starfsmanna í desember síðastliðn- um. Á þeim tíma var blaðið án eig- enda því allt hlutafé Björgólfs Guð- mundssonar og annarra hluthafa var strikað út eftir bankahrunið. Útgáfa Morgunblaðsins var raunverulega í höndum Nýja Glitnis, síðar nýja Ís- landsbanka og Einars Sigurðsson- ar, framkvæmdastjóra blaðsins. Um samdist að bankinn héldi blaðinu á floti meðan leitað var kaupenda. Skuldir nálguðust 5 milljarða króna snemma ársins, þar af voru um 2 milljarðar með veði í fullkominni og afkastamikilli prentsmiðju blaðsins. Að minnsta kosti 3 milljarðar saman- lagt voru afskrifaðir í Íslandsbanka og Landsbanka til að gefa blaðinu og nýjum hluthöfum rekstrargrundvöll. Einkennilegt útboð? Þegar upp var staðið reyndist ástr- alski athafnamaðurinn Steve Cosser eiga hæsta tilboðið í Árvakur. Cosser hafði engan sérstakan áhuga á Morg- unblaðinu en þeim mun meiri áhuga á prentsmiðjunni og hugðist flytja inn verkefni fyrir hana. Samkvæmt heimildum DV var Cosser staddur í sumarbústað Einars Sigurðssonar, þáverandi framkvæmdastjóra Ár- vakurs, þegar einhver á vegum Glitn- is (Íslandsbanka) tilkynnti honum í trúnaði að hann hefði átt hæsta til- boðið. Eitthvað varð til þess að örlögin snerust gegn Cosser og áðurgreind- ur hópur undir forystu Guðbjarg- ar Matthíasdóttur, Samherja, Vísis í Grindavík og fleiri átti skyndilega hæsta tilboðið. Sá starfsmaður Ís- landsbanka sem annaðist söluna heitir Einar Örn Ólafsson, þá for- stöðumaður fyrirtækjasviðs Íslands- banka, enn einn liðsmaður úr innsta kjarna Sjálfstæðisflokksins. DV hefur greint frá því hvernig honum var vikið síðar úr bankanum vegna vafasamra afskipta hans af sölu ráðandi hlut- ar bankans í Skeljungi. Einar Örn er nú for- stjóri Skeljungs. DV hefur einnig sagt frá því að Einar Örn hýsti af ein- hverjum ástæð- um stuðnings- mannafélag Bjarna Bene- diktssonar, for- manns Sjálfstæð- isfokksins, heima hjá sér að Einimel 18 í Reykjavík. DV hefur einnig greint frá því að Einar Örn bauð Gísla Marteini Baldurssyni, flokksbróður sínum og borgarfulltrúa, í laxveiðar til Rússlands sumarið 2007. Reiður Hollendingur Athyglisverð er frásögn Gunnars Smárasonar af reiðum Hollendingi sem hann var samferða í flugvél til Kaupmannahafnar fyrr á árinu en Gunnar býr þar í borg. Á vef Eyjunnar segir hann svo frá 19. september: „Í vélinni hitti ég Hollending. Ofboðs- lega reiðan Hollending. Hann var einn af þeim sem hafði gert tilboð í Morgunblaðið og hafði fengið símtal frá Íslandsbanka seint á sunnudags- kvöldi þar sem honum var sagt að hann væri með hæsta boðið í blaðið og hann yrði að drífa sig til Íslands. Hann fer beint upp í flugvél og er kominn til landsins á mánudegin- um. Fer inn á hótel og bíður eftir að heyra meira frá bankanum, en ekkert heyrist. Á miðvikudegi er honum svo sagt að það hafi birtst í fjölmiðlum að búið væri að ganga að tilboði Óskars Magnússonar. Ástæðan fyrir bræði Hollendings- ins var ekki að hafa tapað, heldur að leikreglum hins „gegnsæja út- boðsferlis“ væri breytt þegar í ljós kom að niðurstaðan hent- aði ekki „íslenskum að- stæðum!“ Útgangspunktur Ís- landsbanka hafði verið að þeir sem voru tilbúnir til að greiða upp eða yfirtaka stærstan hluta skulda Ár- vakurs fengju hnossið. Hol- lendingurinn var tilbúinn til að greiða allar skuld- irnar upp í topp enda hans evrur töluvert verðmiklar á þessum tíma. Nú er hins vegar ljóst að Íslandsbanki þurfti að afskrifa um það bil 4 milljarða til að hægt væri að gera Óskari Magnússyni mögulegt að kaupa félagið.“ Verðmæt prentsmiðja Gunnar heldur áfram og segir að önnur ástæða fyrir því að Hollend- ingurinn var tilbúinn til að borga „uppsett verð“ hafi verið að hann var ekki að kaupa fjölmiðil. „Hann sagð- ist treysta Ólafi Stephensen til að sjá um þann hluta af rekstrinum. Það sem hann vildi kaupa var öflugasta prentsmiðja í norður Evrópu. Hún prentar Moggann á 20 mínútum og bíður svo restina af sólarhringnum! Hann vildi flytja inn prentverk og láta prentsmiðjuna snúast 24/7 og þannig fá fjárfestinguna til baka. Hollendingurinn var ekki síst reiður yfir því að hafa eytt tíma sín- um í að eiga viðskipti í svona spilltu umhverfi. Hann sagðist hafa gert ráð fyrir að Ísland væri Evrópuríki, ekki spillt bananalýðveldi. Hefði hann vit- að það hefði hann annað hvort hald- ið sig frá því að gera tilboð eða gert tilboð út frá þeim forsendum að leik- reglur væru aukaatriði!“ Stefnan tekin en hagræðingin eftir Í áætlunum sem gerðar voru snemma árs um rekstur Árvakurs var gert ráð fyrir því að unnt yrði að snúa nærri 600 milljóna króna halla í um 270 milljóna króna afgang. Slík- ur viðsnúningur virðist óraunhæfur nú. Vísast er að gripið verði til frek- ari uppsagna í hagræðingarskyni í kjölfar ritstjóraskiptanna. Bæði Ósk- ar Magnússon útgáfustjóri og Sigur- björn Magnússon, stjórnarformaður Árvakurs, sögðu í samtali við DV fyr- ir um fjórum vikum að þá stæði yfir umfangsmikil stefnumótunar- og skipulagsvinna. Ef ritstjóraskiptin eru afrakstur stefnumótunarvinnunnar er eftir að sjá hvert skipulagsvinnan hefur leitt stjórnendur útgáfunnar. Fjárhaldsmaðurinn Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson hefur um árabil verið fjárhalds- maður Guðbjargar Matthíasdóttur sem á ráðandi hlut í útgáfu Morgunblaðsins. Hann er handgenginn Davíð og var formaður útvarps- ráðs í meira en áratug. mynd SIgtRygguR ARI Ritstjórn morgunblaðsins Eins víst er að miklar mannabreytingar verði svo að segja sjálfkrafa á Morgunblaðinu setjist Davíð Oddsson í ritstjórastólinn. Útgáfustjórinn Óskar Magnússon hefur mánuðum saman unnið að stefnumótun Morgunblaðsins og endurskipulagningu. Hann er ekki einn í ráðum og innvígðir menn, sem lengi hafa unnið með Davíð Oddssyni, leggja orð í belg. BRJÁLAÐIR Í SVARTA VINNU „Allt í einu fékk ég ótal tölvupósta og hringingar frá fólki í leit að vinnu og síðan var hringt í okkur frá ríkisskatt- stjóranum,“ segir Róbert Örn Diego hjá öryggisfyrirtækinu Terr Security. Auglýsing var sett inn á spjallborð á barnaland.is og er.is í gær þar sem Terr Security er sagt leita að dyra- vörðum í svarta vinnu. Róbert segir þetta hins vegar fjarri lagi og grun- ar samkeppnisaðila um að reyna að koma höggi á Terr með birtingu aug- lýsingarinnar. Í rannsókn hjá lögreglu „Þegar ég áttaði mig á því hvað var í gangi hringdi ég á lögregluna og til- kynnti um málið. Það er nú í rann- sókn hjá lögreglu þar sem reynt verð- ur að komast að því hver setti þessa auglýsingu inn,“ segir Róbert Örn í samtali við DV. Hann segir þetta aug- ljóslega skipulagða herferð gegn fyr- irtækinu og hann grunar samkeppn- isaðila í faginu. „Þeir eru að reyna að koma höggi á okkur, það er alveg pottþétt mál. Við teljum okkur vita hverjir þetta eru. Það er það mikið af upplýsing- um þarna inni sem bendir til að viðkomandi þekki til gæslumála. Þetta er bara árás á fyrirtækið,“ seg- ir hann. Í auglýsingunni sem vakti mikla athygli í netheimum, og viðbrögð, segir að Terr Security leiti að fólki til starfa í dyravörslu og gæslustörf. Lofað er tímakaupi upp á þúsund krónur svart en það atriði hefur væntanlega vakið áhuga ríkisskatt- stjóra. Æstir í svarta vinnu Duglegu fólki er lofað að það geti þénað 350 þúsund krónur og það í formi styrktarfjármagns sem ekki hafi áhrif á atvinnuleysisbætur. Síð- an var gefið upp tölvupóstfang Terr Security og beinn sími á forsvars- mann fyrirtækisins. Og áhuginn lét ekki á sér standa. Róbert segir að hann hafi fengið gríðarlegan fjölda fyrirspurna og atvinnuumsókna út af auglýsingunni sem fyrirtæki hans kom ekki nálægt eins og áður kom fram. 40 milljarða skattsvik Í skýrslu sem fjármálaráðuneytið lét gera og kynnt var í febrúar 2005 kom fram að áætlað hefði verið að heildarumfang skattsvika væri 18–24 milljarðar á ári. Samkvæmt auglýsingum sem Samtök iðnað- arins hafa birt að undanförnu telja þeir að heildarumfang skattsvika í dag nemi um 40 milljörðum króna. Segja samtökin að fyrir 40 milljarða króna sé hægt að minnka skattaá- lögur á einstaklinga um 36 prósent. Talsverð umræða hefur verið um það upp á síðkastið að það hafi aukist að fólk vinni svart ásamt því að þiggja atvinnuleysisbætur. Hafa iðnaðar- menn þá sérstaklega verið nefndir í því samhengi. „Allt í einu fékk ég ótal tölvupósta og hring- ingar frá fólki í leit að vinnu.“ annas sigmunDsson blaðamaður skrifar: as@dv.is Fölsuð auglýsing Aðstandendur öryggisfyrir- tækisins Terr Security telja að samkeppnisaðili þeirra hafi reynt að koma höggi á þá með því að auglýsa á barnaland.is að þeir leiti að dyravörð- um í svarta vinnu. mynD Heiða HelgaDóttiR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.