Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Blaðsíða 46
46 föstudagur 25. september 2009
NafN og aldur?
„Valdimar Kristjónsson, 28 ára.“
atviNNa?
„Á og rek Stúdíó Ljónshjarta, tónlistarmaður og
starfsmaður á plani hjá Rafal ehf.“
Hjúskaparstaða?
„Einhleypur.“
fjöldi barNa?
„Ekkert barn enn sem komið er.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Já, og á enn köttinn Bollu.“
Hvaða tóNleika fórst þú á síðast?
„Styrktartónleika í Háskólabíói.“
Hefur þú komist í kast við lögiN?
„Umferðarlögin.“
Hver er uppáHaldsflíkiN þíN og af Hverju?
„Það eru NY Knicks-náttbuxurnar.“
Hefur þú farið í megruN?
„Er alltaf í megrun eða á leiðinni í megrun.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmæl-
um?
„Nei.“
trúir þú á framHaldslíf?
„Já.“
Hvaða lag skammast þú þíN mest fyrir að
Hafa Haldið upp á?
„Er stoltur af mínum tónlistarsmekk þó mörgum
finnist hann ekki góður.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„How sweet it is.“
til Hvers Hlakkar þú NúNa?
„Að skella mér í Stúdíó Ljónshjarta og taka upp góð
lög.“
Hvaða myNd getur þú Horft á aftur og aft-
ur?
„White men can’t jump, af því að hún er frábær.“
afrek vikuNNar?
„Tók svaðalegan bekk á mánudaginn.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Að sjálfsögðu.“
spilar þú á Hljóðfæri?
„Já, píanó.“
viltu að íslaNd gaNgi í evrópusambaNdið?
„Já.“
Hvað er mikilvægast í lífiNu?
„Að vera maður sjálfur, heiðarlegur og einlægur.“
Hvaða ísleNska ráðamaNN muNdir þú vilja
Hella fullaN og fara á trúNó með?
„Það væri auðvelt að plata Sigmund Erni í þetta en
ég segi Þorgerði Katrínu, það væru flottheit.“
Hvaða fræga eiNstakliNg myNdir þú Helst
vilja Hitta og af Hverju?
„Teddy Sheringham til að fræðast um leyndardóma
fjærstangarinnar.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já.“
Nýlegt prakkarastrik?
„Alveg hættur að hrekkja aðra.“
Hvaða fræga eiNstakliNgi líkist þú mest?
„Það virðist vera nóg að einhver sé sköllóttur til að
mér sé líkt við hann.“
ertu með eiNHverja leyNda Hæfileika?
„Vonandi.“
á að leyfa öNNur vímuefNi eN áfeNgi?
„Ertu klikkaður?“
Hver er uppáHaldsstaðuriNN þiNN?
„Fífulindin.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður eN þú
ferð að sofa?
„Slekk á tölvunni.“
Hver er leið íslaNds út úr kreppuNNi?
„Bjartsýni, vinnusemi og samstaða.“
Valdimar Kristjónsson, betur þekktur sem Valdi píanó í hljóm-
sveitinni Jeff Who?, opnaði nýverið sitt eigið stúdíó. Stúdíó
Ljónshjarta. Fyrir utan það er hann starfsmaður á plani
hjá fyrirtækinu Rafal. Valdi er einn mesti stuðningsmaður
Manchester United og langar að hitta Teddy Sheringham til að
læra um leyndardóma fjærstangarinnar.
Hættur að
Hrekkja aðra
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
Losnið við hættulega kviðfitu og komið
maganum í lag með því að nota
náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman.
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Örugg og góð þjónusta í 25 ár.
MYND
Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
S: 565 4207 - Gsm: 893 5950
www.ljosmynd.is
Vandaðar
skólamyndatökur
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy tarm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama Oxy tarmið
Smáauglýsingasíminn er
515 5550
smaar@dv.is