Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Blaðsíða 41
Gísli Sigurðsson rannsóknarprófessor við Árnastofnun 50 ára á sunnudag Ögmundur Friðriksson fyrrv. framkvæmdastjóri Gísli fæddist í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá MS 1978, stund- aði nám í miðaldabókmenntum við Háskólann í Manitoba í Winnipeg 1981-’82, lauk BA-prófi í íslensku og almennri bókmenntafræði frá HÍ 1983, M.Phil.-prófi í miðaldafræðum frá University College í Dublin 1986 og doktorsprófi frá HÍ í íslenskum bókmenntum 2002. Þá sótti hann námskeið í þýsku við Goethe-stofn- unina í München 1983 og í þjóð- fræðum í Turku í Finnlandi 1991. Gísli var grunnskólakennari í Ól- afsvík 1978-’79, stundaði rannsókn- arstörf í Kanada og á Íslandi á sviði vestur-íslensku 1982 og 1984, starf- aði við útgáfustörf hjá bókaútgáf- unni Svart á hvítu 1986 og 1987, var stundakennari við HÍ frá 1986 og við KHÍ 1988, var íslenskukennari við Fjölbrautaskólann í Ármúla 1986- ’87, stundaði rannsóknir á gelískum áhrifum á íslenska sagnahefð 1987, var gistiprófessor við íslenskudeild Háskóla Manitoba 1988, sérfræð- ingur við þjóðfræðadeild Stofnun- ar Árna Magnússonar 1990 og síðan rannsóknarprófessor þar, var gestur rannsóknarverkefnisins Übergange und Spannungsfelder zwischen Mindlichkeit und Schriftlichkeit við háskólann í Freiburg í Breisgau og gistikennari við Nordplus-háskól- ann í Nuuk á Grænlandi 1996 og við Berkley University 2009. Gísli var formaður Félags ís- lenskra fræða 1989-’95, formaður Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna frá 1996, ritdómari við DV 1987-’94 og formaður úthlut- unarnefndar Menningarverðlauna DV fyrir bókmenntir 1989-’94, sat í stjórn og fulltrúaráði Listasafns Sig- urjóns Ólafssonar frá 1990, í stjórn Launasjóðs íslenskra rithöfunda 1991-’93, í stjórn Rithöfundasjóðs Íslands 1992-’94, var varafulltrúi Ís- lands í stjórn NIF, Norrænu þjóð- fræðistofnunarinnar 1995-’97, var fulltrúi Íslands í stjórn NNF, Nor- ræna þjóðfræðisambandsins, 1997- 2000 og var formaður Félags há- skólakennara 2005-2009. Fjölskylda Eiginkona Gísla er Guðrún Hólm- geirsdóttir, f. 12.3. 1965, mennta- skólakennari. Hún er dóttir Hólm- geirs Björnssonar, f. 18.5. 1937, tölfræðings, og Jónínu Guðmunds- dóttur, f. 12.5. 1940, bókasafnsfræð- ings. Dætur Gísla og Guðrúnar eru Jónína Þorbjörg Saswati, f. 16.1. 2000; Anna Pratichi, f. 12.5. 2003. Bróðir Gísla er Baldur, f. 8.9.1952, dósent í íslensku við menntavísinda- svið HÍ. Foreldrar Gísla eru Sigurður Bald- ursson, f. 4.1. 1923, d.28.1. 2005, hrl., og Anna Gísladóttir, f. 30.12. 1924, húsmæðrakennari. Ætt Sigurður er sonur Baldurs, skóla- stjóra á Ísafirði og ritstjóra Vísis, bróður Benedikts alþingisforseta, föður Bjarna forsætisráðherra, föð- ur Björns, fyrrv. ráðherra og Val- gerðar alþm. Benedikt var einnig afi Halldórs Blöndal, fyrrv. ráðherra og Benedikts, föður Bjarna, formanns Sjálfstæðisflokksins. Baldur var son- ur Víkings, gestgjafa og söðlasmiðs á Húsavík, bróður Björns, afa Guð- mundar Benediktssonar ráðuneyt- isstjóra. Sveinn var sonur Magnúsar, snikkara á Víkingavatni Gottskálks- sonar, bróður Guðmundar, afa Jóns Trausta. Móðir Sveins var Ólöf Björnsdóttir, systir Þórarins, afa Þór- arins Björnssonar skólameistara. Móðir Baldurs var Kristjana Guð- ný Sigurðardóttir, b. á Hálsi í Kinn Kristjánssonar, umboðsmanns á Ill- ugastöðum Jónssonar. Móðir Sigurðar var Maren, systir Guðrúnar, móður Bjarna Benedikts- sonar forsætisráðherra. Maren var dóttir Péturs, útvegsb. í Engey Krist- inssonar, af Engeyjarrætt, og Ragn- hildar Ólafsdóttur. Anna er systir Erlings leikara, föður Benedikts, leikara og leik- ritahöfundar. Anna er dóttir Gísla, bakarameistara í Reykjavík, bróður Sigurjóns myndhöggvara. Gísli var sonur Ólafs, verkam. á Eyrarbakka Árnasonar, b. í Þórðarkoti Eiríksson- ar, b. á Mosastöðum Guðmunds- sonar. Móðir Árna var Sigríður, syst- ir Halldóru, langömmu Svanhildar, móður Sigurgeirs biskups, föður Pét- urs biskups. Sigríður var dóttir Ólafs, b. í Hreiðurborg Jónssonar. Móð- ir Ólafs á Eyrarbakka var Margrét Gísladóttir, b. í Hreiðurborg, Hall- dórssonar, og Guðnýjar, systur Sig- ríðar á Mosastöðum. Móðir Gísla var Guðrún Gísladóttir, b. í Stokkseyrar- seli, Andréssonar, b. í Stóru-Sandvík, Gíslasonar, og Elísabetar Kristófers- dóttur. Móðir Guðrúnar var Guðný, hálfsystir Kristínar, langömmu Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrv. utanríkisráðherra. Guðný var dótt- ir Hannesar, b. Í Tungu í Flóa, bróð- ur Þorkels, langafa Ragnars í Smára, og Guðna Jónssonar prófessors og langalangafa Karls Guðmundsson- ar leikara. Hannes var sonur Einars, spítalahaldara í Kaldaðarnesi Hann- essonar, ættföður Kaldaðarnesætt- ar Jónssonar, bróður Ólafs í Hreið- urborg. Móðir Guðnýjar var Guðný, systir Margrétar í Þórðarkoti og Sig- ríðar, langömmu Baldurs Möllers, föður Markúsar hagfræðings. Móðir Önnu er Kristín, dóttir Einars, verslunarmanns í Reykjavík Einarssonar, sjómanns á Melnum í Reykjavík Bjarnasonar, í Saltvík Ingi- mundarsonar, bróður Ólafs, lang- afa Valgerðar, ömmu Einars Bene- diktssonar sendiherra. Systir Bjarna var Helga, langamma Jakobs Möll- ers ráðherra og Frans, föður Hans G. Andersen sendiherra, föður Gunnars Andersen, forstjóra Bankaeftirlitsins. Móðir Einars á Melnum var Sigríður Einarsdóttir, b. í Stíflisdal Jónssonar. Móðir Einars var Ingveldur Jónsdótt- ir, systir Guðna, ættföður Reykjakots- ættar, langafa Halldórs, afa Halldórs Kiljan Laxness. Guðni var einn- ig langafi Guðna, langafa Vigdísar Finnbogadóttur. Móðir Einars versl- unarmanns var Kristín Gísladótt- ir, b. Í Grænuhlíð við Reykjavík Pét- urssonar. Móðir Kristínar var Anna Jónsdóttir, b. í Ártúni Jónatanssonar. Móðir Jóns var Aðalbjörg Jónsdótt- ir. Móðir Aðalbjargar var Rannveig Magnúsdóttir, pr. á Hrafnagili, þess er „settist upp á Skjóna“, Erlendsson- ar. Móðir Rannveigar var Ingibjörg Sveinsdóttir, lögm. og skálds Sölva- sonar, klausturhaldara á Munka- þverá Tómassonar, bróður Tómasar, ættföður Hvassafellsættar, langafa Jónasar Hallgrímssonar skálds. Allar vaxmeðferðir með 30% afslætti Sími 444-4085 / 662-0485 massage@dongfang.is www.dongfang.is SNYRTISTOFAN DONG FANG SALON HÓTEL LOFTLEIÐIR Opnunartími: Mán/mið/fös. 9.00-18.00 Þri/fim 9.00-21.00 Laugard 10.00-18.00 ættfræði 25. september 2009 föstudagur 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.