Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Qupperneq 41
Gísli Sigurðsson
rannsóknarprófessor við Árnastofnun
50 ára á sunnudag
Ögmundur Friðriksson
fyrrv. framkvæmdastjóri
Gísli fæddist í Reykjavík. Hann lauk
stúdentsprófi frá MS 1978, stund-
aði nám í miðaldabókmenntum við
Háskólann í Manitoba í Winnipeg
1981-’82, lauk BA-prófi í íslensku og
almennri bókmenntafræði frá HÍ
1983, M.Phil.-prófi í miðaldafræðum
frá University College í Dublin 1986
og doktorsprófi frá HÍ í íslenskum
bókmenntum 2002. Þá sótti hann
námskeið í þýsku við Goethe-stofn-
unina í München 1983 og í þjóð-
fræðum í Turku í Finnlandi 1991.
Gísli var grunnskólakennari í Ól-
afsvík 1978-’79, stundaði rannsókn-
arstörf í Kanada og á Íslandi á sviði
vestur-íslensku 1982 og 1984, starf-
aði við útgáfustörf hjá bókaútgáf-
unni Svart á hvítu 1986 og 1987, var
stundakennari við HÍ frá 1986 og við
KHÍ 1988, var íslenskukennari við
Fjölbrautaskólann í Ármúla 1986-
’87, stundaði rannsóknir á gelískum
áhrifum á íslenska sagnahefð 1987,
var gistiprófessor við íslenskudeild
Háskóla Manitoba 1988, sérfræð-
ingur við þjóðfræðadeild Stofnun-
ar Árna Magnússonar 1990 og síðan
rannsóknarprófessor þar, var gestur
rannsóknarverkefnisins Übergange
und Spannungsfelder zwischen
Mindlichkeit und Schriftlichkeit við
háskólann í Freiburg í Breisgau og
gistikennari við Nordplus-háskól-
ann í Nuuk á Grænlandi 1996 og við
Berkley University 2009.
Gísli var formaður Félags ís-
lenskra fræða 1989-’95, formaður
Hagþenkis, félags höfunda fræðirita
og kennslugagna frá 1996, ritdómari
við DV 1987-’94 og formaður úthlut-
unarnefndar Menningarverðlauna
DV fyrir bókmenntir 1989-’94, sat í
stjórn og fulltrúaráði Listasafns Sig-
urjóns Ólafssonar frá 1990, í stjórn
Launasjóðs íslenskra rithöfunda
1991-’93, í stjórn Rithöfundasjóðs
Íslands 1992-’94, var varafulltrúi Ís-
lands í stjórn NIF, Norrænu þjóð-
fræðistofnunarinnar 1995-’97, var
fulltrúi Íslands í stjórn NNF, Nor-
ræna þjóðfræðisambandsins, 1997-
2000 og var formaður Félags há-
skólakennara 2005-2009.
Fjölskylda
Eiginkona Gísla er Guðrún Hólm-
geirsdóttir, f. 12.3. 1965, mennta-
skólakennari. Hún er dóttir Hólm-
geirs Björnssonar, f. 18.5. 1937,
tölfræðings, og Jónínu Guðmunds-
dóttur, f. 12.5. 1940, bókasafnsfræð-
ings.
Dætur Gísla og Guðrúnar eru
Jónína Þorbjörg Saswati, f. 16.1.
2000; Anna Pratichi, f. 12.5. 2003.
Bróðir Gísla er Baldur, f. 8.9.1952,
dósent í íslensku við menntavísinda-
svið HÍ.
Foreldrar Gísla eru Sigurður Bald-
ursson, f. 4.1. 1923, d.28.1. 2005, hrl.,
og Anna Gísladóttir, f. 30.12. 1924,
húsmæðrakennari.
Ætt
Sigurður er sonur Baldurs, skóla-
stjóra á Ísafirði og ritstjóra Vísis,
bróður Benedikts alþingisforseta,
föður Bjarna forsætisráðherra, föð-
ur Björns, fyrrv. ráðherra og Val-
gerðar alþm. Benedikt var einnig afi
Halldórs Blöndal, fyrrv. ráðherra og
Benedikts, föður Bjarna, formanns
Sjálfstæðisflokksins. Baldur var son-
ur Víkings, gestgjafa og söðlasmiðs
á Húsavík, bróður Björns, afa Guð-
mundar Benediktssonar ráðuneyt-
isstjóra. Sveinn var sonur Magnúsar,
snikkara á Víkingavatni Gottskálks-
sonar, bróður Guðmundar, afa
Jóns Trausta. Móðir Sveins var Ólöf
Björnsdóttir, systir Þórarins, afa Þór-
arins Björnssonar skólameistara.
Móðir Baldurs var Kristjana Guð-
ný Sigurðardóttir, b. á Hálsi í Kinn
Kristjánssonar, umboðsmanns á Ill-
ugastöðum Jónssonar.
Móðir Sigurðar var Maren, systir
Guðrúnar, móður Bjarna Benedikts-
sonar forsætisráðherra. Maren var
dóttir Péturs, útvegsb. í Engey Krist-
inssonar, af Engeyjarrætt, og Ragn-
hildar Ólafsdóttur.
Anna er systir Erlings leikara,
föður Benedikts, leikara og leik-
ritahöfundar. Anna er dóttir Gísla,
bakarameistara í Reykjavík, bróður
Sigurjóns myndhöggvara. Gísli var
sonur Ólafs, verkam. á Eyrarbakka
Árnasonar, b. í Þórðarkoti Eiríksson-
ar, b. á Mosastöðum Guðmunds-
sonar. Móðir Árna var Sigríður, syst-
ir Halldóru, langömmu Svanhildar,
móður Sigurgeirs biskups, föður Pét-
urs biskups. Sigríður var dóttir Ólafs,
b. í Hreiðurborg Jónssonar. Móð-
ir Ólafs á Eyrarbakka var Margrét
Gísladóttir, b. í Hreiðurborg, Hall-
dórssonar, og Guðnýjar, systur Sig-
ríðar á Mosastöðum. Móðir Gísla var
Guðrún Gísladóttir, b. í Stokkseyrar-
seli, Andréssonar, b. í Stóru-Sandvík,
Gíslasonar, og Elísabetar Kristófers-
dóttur. Móðir Guðrúnar var Guðný,
hálfsystir Kristínar, langömmu Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrv.
utanríkisráðherra. Guðný var dótt-
ir Hannesar, b. Í Tungu í Flóa, bróð-
ur Þorkels, langafa Ragnars í Smára,
og Guðna Jónssonar prófessors og
langalangafa Karls Guðmundsson-
ar leikara. Hannes var sonur Einars,
spítalahaldara í Kaldaðarnesi Hann-
essonar, ættföður Kaldaðarnesætt-
ar Jónssonar, bróður Ólafs í Hreið-
urborg. Móðir Guðnýjar var Guðný,
systir Margrétar í Þórðarkoti og Sig-
ríðar, langömmu Baldurs Möllers,
föður Markúsar hagfræðings.
Móðir Önnu er Kristín, dóttir
Einars, verslunarmanns í Reykjavík
Einarssonar, sjómanns á Melnum í
Reykjavík Bjarnasonar, í Saltvík Ingi-
mundarsonar, bróður Ólafs, lang-
afa Valgerðar, ömmu Einars Bene-
diktssonar sendiherra. Systir Bjarna
var Helga, langamma Jakobs Möll-
ers ráðherra og Frans, föður Hans G.
Andersen sendiherra, föður Gunnars
Andersen, forstjóra Bankaeftirlitsins.
Móðir Einars á Melnum var Sigríður
Einarsdóttir, b. í Stíflisdal Jónssonar.
Móðir Einars var Ingveldur Jónsdótt-
ir, systir Guðna, ættföður Reykjakots-
ættar, langafa Halldórs, afa Halldórs
Kiljan Laxness. Guðni var einn-
ig langafi Guðna, langafa Vigdísar
Finnbogadóttur. Móðir Einars versl-
unarmanns var Kristín Gísladótt-
ir, b. Í Grænuhlíð við Reykjavík Pét-
urssonar. Móðir Kristínar var Anna
Jónsdóttir, b. í Ártúni Jónatanssonar.
Móðir Jóns var Aðalbjörg Jónsdótt-
ir. Móðir Aðalbjargar var Rannveig
Magnúsdóttir, pr. á Hrafnagili, þess
er „settist upp á Skjóna“, Erlendsson-
ar. Móðir Rannveigar var Ingibjörg
Sveinsdóttir, lögm. og skálds Sölva-
sonar, klausturhaldara á Munka-
þverá Tómassonar, bróður Tómasar,
ættföður Hvassafellsættar, langafa
Jónasar Hallgrímssonar skálds.
Allar vaxmeðferðir
með 30% afslætti
Sími 444-4085 / 662-0485
massage@dongfang.is
www.dongfang.is
SNYRTISTOFAN
DONG FANG SALON
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Opnunartími:
Mán/mið/fös. 9.00-18.00
Þri/fim 9.00-21.00
Laugard 10.00-18.00
ættfræði 25. september 2009 föstudagur 41