Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Blaðsíða 64
n Linda Pétursdóttir, fegurðar- drottning, athafnakona og stofn- andi Baðhússins, hefur ákveðið að setjast á skólabekk í Háskólanum í Reykjavík. Um er að ræða nám- skeið í rekstri og fjármálum sem Linda sækir tvö kvöld í viku fram í desember. Fyrsti tími Lindu var á fimmtudagskvöld en hún hefur verið atkvæðamikil í viðskiptalífinu og segist vilja bæta við sig þekkingu á þeim sviðum sem hún hefur nú þegar starfað við. „Mér finnst þetta frekar leiðinlegt en ég vil skerpa á því sem ég kann nú þeg- ar og geri dagsdaglega í rekstrinum,“ segir Linda. Hún útilokar þó ekki að hún muni kynnast nýjum og spennandi hliðum í náminu sem geri það að verkum að þessi hluti vinnunnar verði skemmtilegri. Var hann ekki í skóla? Fréttaskot 512 70 70 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar. „Hver veit nema Rokkland ehf. verði stórveldi. Kannski ég kaupi 365 miðla og leggi GSM-símann minn að veði. Annað eins hefur nú gerst,“ segir út- varpsmaðurinn Ólafur Páll Gunnars- son, eða Óli Palli, glaður í bragði. Út- varpsmaðurinn góðkunni stofnaði í vikunni einkahlutafélagið Rokkland ehf. Aðspurður segir hann tilgang fé- lagsins vera að halda utan um það sem hann fæst við þess á milli sem hann starfar fyrir RÚV. „Ég var verktaki að hluta til áður fyrr en svo breyttist það fyrir einhverjum árum. Ég er að breyta því aftur núna,“ segir Óli Palli sem hef- ur bardúsað við ýmislegt tengt tónlist- arheiminum undanfarin ár. „Ég hef til dæmis verið að skrifa svolítið, spila sem plötusnúður, gefa út plötur og taka myndir. Þessu félagi er bara ætlað að halda utan um þau verk sem koma upp,“ segir hann. Óli Palli hefur um árabil stýrt út- varpsþættinum Rokklandi. Ferill hans sem útvarpsmaður hófst í kjölfar þess að hann fór á Glastonbury-hátíðina á Englandi 1995. Þá hafði hann í fjög- ur ár starfað sem tæknimaður. Hann gerði tvo tveggja tíma þætti um hátíð- ina og ekki leið á löngu þar til Rokkland varð til. Hann segir nafnið Rokkland því lengi hafa fylgt sér. „Magnús Einarsson, vinur minn sem réð mig til starfa á sín- um tíma, stakk upp á þessu nafni. Það er frá honum komið,“ segir Óli Palli. Hann vísar því á bug að stofnun Rokklands ehf. megi rekja til þess að eitthvað stórt sé í pípunum. „Heimur- inn er nú samt alltaf að breytast. Hver veit hvað verður síðar meir?“ segir hann sposkur á svip. baldur@dv.is Linda P á skóLabekk Apótekið þitt í gamla Héðinshúsinu við Sel javeg 2. Frí heimsendingarþjónusta til eldri borgara og öryrkja. Reykjavíkur Apótek býður NOW vítamín og bætiefni með 20% afslætti út september. Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og hagstætt verð. Apótekið er í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2. Sel javegur 2 | S ími : 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap. is | reyap@reyap. is Óli Palli í Rokklandi stofnar samnefnt félag: stórveLdið rokkLand ehf n Athafnamaðurinn Jón Gerald Sullenberger hyggur á opnun lágvöruverslunarinnar Smartkaup innan skamms. Búist var við því að verslunin myndi opna í septem- ber en það verður víst ekki fyrr en í næsta mánuði. Jón Gerald er önn- um kafinn í undirbúningi og dvelur nú í Miami til að klára vörukaup- in fyrir verslunina. Hann kemur til landsins í næstu viku og verður spennandi að sjá hvers lags amer- ískar vörur verður að finna í Smart- kaupum. Aðspurður hverju íslenski neytandinn geti búist við þegar verslunin opnar segir Jón Gerald í samtali við DV: „Þetta verður flott hjá okkur, enda erum við að vanda okkur mikið fyrir hinn íslenska neyt- anda, við vit- um að hann er okkar yfir- maður í þessu verkefni.“ versLar í MiaMi n Ráðning Davíðs Oddssonar á Morgunblaðið hefur vakið harkaleg viðbrögð meðal bloggara, sem sum- ir hafa sagt upp áskrift. Aðrir hafa þó komið í staðinn. Þannig pönt- uðu tveir frammámenn í Sjálfstæð- isflokknum, Eyþór Arnalds og Gísli Marteinn Baldursson, áskrift eftir ráðningu formannsins fyrrverandi. Á móti kemur að hæstaréttarlög- maðurinn Sveinn Andri Sveinsson sagði upp sinni áskrift. Það mál tók undarlegan viðsnúning í Kastljósi í gærkvöldi þegar útgefandinn Óskar Magnússon lýsti því yfir að „stjörnulög- maðurinn“ hefði hreint ekki verið áskrifandi. Í sam- tali við DV árétt- aði Sveinn hins vegar að áskriftin hefði verið skráð á fyrirtæki hans. stoLtir nýir áskrifendur Rokkland ehf óli Palli hefur starfað sem útvarpsmaður frá 1995.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.