Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Page 10
10 föstudagur 25. september 2009 fréttir
Óskar Magnússon, útgáfustjóri
Morgunblaðsins, hefur nú kynnt þá
ákvörðun stjórnar Árvakurs að ráða
Davíð Oddsson ritstjóra Morgun-
blaðsins ásamt Haraldi Johannes-
sen, ritstjóra Viðskiptablaðsins. Um
30 blaðamönnum var jafnframt sagt
upp störfum á blaðinu fyrir helg-
ina. Þá hefur verið ákveðið að dreifa
sunnudagsútgáfu blaðsins með laug-
ardagsblaðinu.
Aðeins eru um fimm vikur þar
til rannsóknarnefnd Alþingis skil-
ar skýrslu sinni um aðdraganda og
orsakir bankahrunsins fyrir ári síð-
an. Athyglin hefur beinst að ábyrgð
stjórnmálamanna, embættismanna
en þó fyrst og fremst að ábyrgð eig-
enda bankanna og stjórnenda þeirra.
Augljóslega gæti Davíð fengið skell
í skýrslunum, bæði sem fyrrverandi
ráðherra og sem seðlabankastjóri.
Þetta vafðist ekkert fyrir Óskari
þegar hann ákvað ásamt meirihluta
stjórnar Árvakurs að gera Davíð að
ritstjóra Morgunblaðsins aðeins fá-
einum vikum áður en skýrslan kem-
ur út.
„Má ekki allt eins spyrja hvort
það sér ekki áhyggjuefni að aðaleig-
andi eins hinna föllnu banka eigi
enn helming allra fjölmiðla í land-
inu, Fréttablaðið, Bylgjuna, Stöð 2 og
visir.is?“ segir Óskar og á bersýnilega
við Jón Ásgeir Jóhannesson.
Erfið fæðing
Mikið hefur mætt á Óskari Magn-
ússyni, undanfarna daga, vikur og
mánuði eða allar götur frá því hann
tók við stjórnartaumunum í Ár-
vakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins,
í nafni nýrra eigenda. Í ljósi gríðar-
legs rekstrarhalla undanfarin miss-
eri og skulda, sem vaxið höfðu fjár-
hag Árvakurs yfir höfuð, þótti líklegt
að hratt og örugglega yrði gripið til
róttækra ráðstafana þegar Óskar tók
við stjórnartaumunum í lok febrúar á
þessu ári.
Svo varð þó ekki. Nærri sjö mán-
uðum og nokkur hundruð milljónum
síðar, er gripið til aðgerða eftir tíma-
freka skipulags- og stefnumótunar-
vinnu. Tuttugu blaðamönnum var
sagt upp störfum fyrir helgina, þar af
nokkrum þrautreyndum en dýrum
starfsmönnum með langan starfs-
aldur. Með einföldum útreikningum
má ætla að draga megi úr rekstrar-
kostnaði um 400 milljónir króna á
ári þegar aðgerðirnar verða að fullu
farnar að skila árangri. Óvíst er hvort
það dugar til; dýr og fullkomin prent-
smiðja með ónóg verkefni gæti orðið
dragbítur í rekstrinum ef ekkert verð-
ur að gert.
Hver er Óskar Magnússon?
Hver er Óskar Magnússon? Fyrir
hvað stendur hann? Hvað segja vin-
irnir og gamlir samstarfsmenn um
hann?
Óskar fæddist 13. apríl árið 1954
á Sauðárkróki. Foreldrar hans eru
Ólína Ragnheiður Jónsdóttir hús-
móðir. Faðir Óskars var Magnús Ósk-
arsson fyrrum borgarlögmaður og
náinn samstarfsmaður Davíðs Odds-
sonar í tíð hans sem borgarstjóra.
Magnús lést árið 1999. Hann þótti
orðheppinn maður. Hann safnaði
gamansögum og spaugi og gaf út að
minnsta kosti tvær bækur um „alís-
lenska“ fyndni.
Magnús var gallharður sjálfstæð-
ismaður. Sögur eru lífseigar um að
Davíð hafi safnað gögnum um póli-
tíska andstæðinga sína sem og sam-
herja með kerfisbundinni aðstoð
Magnúsar.
En Magnús var spaugsamur eins
og sést best á tvíræðri limru sem
hann samdi við eitthvert tækifæri:
Hún vildi alls ekki hátta
og honum fannst erfitt að átta
sig á svona vanda
en sá þá í anda
samtökin 78.
Óskar og kona hans Hrafnhildur
Inga Sigurðardóttir halda heimili og
eiga raunar lögheimili á Sámstaða-
bakka í Fljótshlíð, ekki ýkja langt frá
sumarbústöðum margra þekktra Ís-
lendinga á borð við Björn Bjarna-
son fyrrverandi ráðherra. Óskar er
formaður sóknarnefndar Breiða-
bólsstaðarsóknar. „Óskar er frábær
félagi og sérstaklega gott að vinna
með honum, ekki síst að kirkjulegum
málefnum,“ segir Önundur S. Björns-
son, sóknarprestur í Breiðabólsstað-
arsókn.
Óskar á sér feril sem rithöfundur
líkt og Davíð Oddsson, nýráðinn rit-
stjóri Morgunblaðsins og vinur hans.
Í viðtali við vef Framtíðarlandsins
árið 2007 kvaðst hann vera geysilega
ánægður með viðtökur bókar sinn-
ar Borðaði ég kvöldmat í gær? „Ég
fékk mjög góða krítík, miklu betri en
ég átti von á. Það er erfitt að gefa út
bók og ég er mjög feginn að hafa ekki
orðið mér til skammar... Þetta var
skemmtilegt verkefni og mikil hvatn-
ing fyrir mig að fá þessar viðtökur.“
Um þetta segir Óskar í samtali við
DV fyrsta áfallið, sem hann kallar svo,
hafi verið þegar Páll Baldvin Bald-
vinsson á Fréttablaðinu gaf bókinni
fleiri stjörnur en hann hafði nokkru
sinni gefið bókum Ólafs Jóhanns Ól-
afssonar. „Þetta voru betri viðtökur
en ég hafði átt von á og seldi eitthvað
um þrjú þúsund eintök,“ segir Óskar.
Uppátækjasamur grallari
Einn af æskuvinum Óskars er Einar S.
Hálfdánarson, lögfræðingur og end-
urskoðandi. Leiðir þeirra lágu saman
í Vogaskóla þegar þeir voru tíu til tólf
ára. Þó svo að Einar hafi haldið námi
sínu áfram í MR og Óskar í MT héldu
þeir vináttunni alla tíð. „Það er engin
leið að hugsa sér traustari vin. Hann
er auk þess skemmtilegur og uppá-
tækjasamur. Um þetta eru til marg-
ar sögur. Óskar og Hrafnhildur héldu
lengi veislu einu sinni á ári fyrir vini
sína. Venjulega var boðað til henn-
ar með vægast sagt sérkennilegum
hætti. Eitt sinn hringdi í mig maður
UppátækjasamUr grallari
Óskari Magnússyni, útgáfustjóra Morgunblaðsins, er lýst sem traustum og afburða skemmtilegum vini,
gegnheilum og klassískum íhaldsmanni. Óskar kom úr stuðningsarmi Gunnars Thoroddsen í Sjálfstæðis-
flokknum og hefur stutt Davíð Oddsson frá því hann steig sín fyrstu spor sem stjórnmálamaður á áttunda
áratugnum. Tvennum sögum fer af honum sem útsjónarsömum manni í viðskiptum. DV gefur nærmynd af
lögfræðingnum, rithöfundinum, sjálfstæðismanninum, vininum og grallaranum Óskari útgáfustjóra.
Uppátækjasamur vinur vina sinna
„Þetta voru betri viðtökur en ég átti
von á og seldi eitthvað um þrjú þúsund
eintök,“ segir Óskar.
JÓHann HaUkssOn
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is