Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Page 14
14 Föstudagur 25. september 2009 Fréttir
Seint í októbermánuði árið 1995 var
starfsmanni Baltic Bottling Plant
(BBP), gosdrykkjaverksmiðju í eigu
breska kaupsýslumannsins Bern-
ard J. Lardner og íslenska arkitekts-
ins lngimars H.lngimarssonar, mein-
aður aðgangur að skrifstofu sinni í
verksmiðjunni í Sankti Pétursborg í
Rússlandi. Nýráðinn framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, Björgólfur Thor
Björgólfsson, kom þeim boðum til
öryggisvarða sinna að hleypa fjár-
málastjóranum, Þór Kristjánssyni,
ekki inn í húsakynni BBP. Þór fékk
þá skýringu að vinnuveitendur hans
ættu verksmiðjuna ekki lengur og
að nýir eigendur væru teknir við. Þá
átti Björgólfur einungis örfáa mán-
uði eftir af ráðningarsamningi sín-
um við BBP. Um mitt ár 1994 hafði
Magnús Þorsteinsson, sem þá var
framkvæmdastjóri, látið af störfum
og Björgólfur Thor verið ráðinn í
staðinn - hann átti að láta af störfum
í árslok 1995.
Örlög Magnúsar og einkum
Björgólfs Thors urðu vendipunktur
átakamikils samstarfs Ingimars H.
Ingimarssonar og Björgólfs Guð-
mundssonar, sem fékk það verk-
efni hjá eigendum Gosan-verk-
smiðjunnar á Akureyri árið 1992
að selja framleiðsluvélarnar til Pét-
ursborgar. Björgólfi reyndist erf-
itt að standa við samninga og fékk
hann með reglulegu millibili ámæli
frá BGL, eignarhaldsfélagi Ingi-
mars og Lardners, fyrir vanefndir á
samningum.
Vorið 1995 höfðu eigendurnir
komist að því að bókhald fyrirtæk-
isins var í molum og leitaði Ingimar
ráðgjafar Guðlaugs Guðmundsson-
ar hjá endurskoðunarskrifstofunni
Löggiltir endurskoðendur í mars til
að rannsaka og meta bókhaldskerfi
BBP með hliðsjón af reynslu hans
af bókhaldsfyrirkomulagi Ölgerð-
ar Egils Skallagrímssonar. Þá höfðu
vaknað grunsemdir hjá Ingimar og
félögum um að fjárdráttur ætti sér
stað innan fyrirtækisins sem næmi
hundruðum þúsunda dollara. Til
að koma í veg fyrir slíkt var Þór
Kristjánsson, viðskiptafræðingur,
meðal annars fenginn til að velja
og kaupa tölvukeyrt bókhaldskerfi,
stjórna því og ráða og þjálfa starfs-
menn til að vinna í bókhaldsdeild
BBP.
halldór halldórsson
blaðamaður skrifar halldorjr@centrum.is
Mikil leynd hefur hvílt yfir Rússlandsævintýri Björgólfsfeðga frá því þeir komu frá
landinu með fullar hendur fjár og keyptu Landsbankann árið 2002. Meðal annars
hafa menn spurt sig hvernig þeir eignuðust Bravo-bjórverksmiðjuna í Pétursborg og sluppu heilir á húfi með
hundruð milljónir dollara frá þessari miklu mafíuborg. halldór halldórsson segir hér þessa dramatísku sögu
þar sem nýju ljósi er varpað á sögu Björgólfsfeðga og viðskipti þeirra við viðskiptafélaga sinn, Ingimar Ingi-
marsson, sem löngum hefur haldið því fram að feðgarnir hafi stolið verksmiðjunni í Pétursborg af sér.
BJÖRGÓLFSFEÐGAR,
BJÓRINN OG MAFÍAN
úttekt