Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Síða 23
Hver er maðurinn? „Björn Bragi Arn-
arsson, nýráðinn ritstjóri Monitor.“
Hvað drífur þig áfram? „Bjössi
einkaþjálfari.“
Hvaða tvo hluti myndir þú taka
með þér á eyðieyju? „Tölvu með
interneti og hundinn minn Etnu.“
Hvar langar þig að búa ef ekki á
Íslandi? „Kaupmannahöfn.“
Með hverjum heldurðu í enska?
„Ég er gallharður stuðningsmaður
Tottenham Hotspurs.“
Kanntu á hljóðfæri? „Já, ég kann á
nokkur hljóðfæri. Ég spila aðallega
á gítar og er svona skítfær á önnur
helstu hljóðfærin. Svo er ég í dauða-
poppsveitinni Rokksonur.“
Var það erfið ákvörðun að taka við
Monitor? „Nei, það var mjög auðveld
ákvörðun um leið og ég heyrði hvað
aðstandendur blaðsins höfðu í huga.
Þetta er náttúrulega tímarit sem
ég hef alltaf haft gaman af. Þetta
er rosalega spennandi því blaðið
er mjög efnilegt. Við sjáum mikla
framtíð í því þrátt fyrir aðstæður hér
heima.“
Hvert verður þitt fyrsta verkefni
sem ritstjóri? „Það er núna að
endurskipuleggja vefinn. Við ætlum
að setja meira fútt í hann og svo
kemur fyrsta blað sem ég ritstýri út
í desember. En fyrst er bara almenn
undirbúningsvinna. Það verða
einhverjar breytingar frá því sem
hefur verið.“
Stefnirðu á að bæta við útgáfu-
dögum? „Það er stefnan, já. Það er
verið að skoða það.“
Ætlarðu að beita þér fyrir annarri
þáttaröð af sjónvarpsþættinum
Monitor? „Sjónvarpsþátturinn var
bara verkefni í sumar og það er ekk-
ert búið að ákveða meira með það.
En það er klárlega vel inni í myndinni
að gera svoleiðis aftur hvort sem
það verður í sömu mynd eða annarri.
Við verðum klárlega með eitthvert
vídóefni á vefnum áfram samt.“
Hvað gerir þú til að spara?
„Eyði ekki. Ég er sparneytinn maður.“
Finnur KriStjánSSon
18 áRA NEMi
„Ég tek ekki veskið með mér.“
GÍSli Dan
17 áRA NEMi
„Ég reyni að kaupa minna af því sem er
óþarfi eins og föt, nammi og dýrar
snyrtivörur.“
GÍGja SnorraDóttir
16 áRA NEMi
„Voðalega fátt. Ég er algjört fatafrík en
núna reyni ég að kaupa ekki eins mikið
af fötum. Ég fer heldur ekki í hár-
greiðslu heldur lita hárið sjálf.“
áSta rún E. GuðMunDSDóttir
16 áRA NEMi
Dómstóll götunnar
Björn BraGi arnarSSon
er nýráðinn ritstjóri tímaritsins
Monitor. Björn tekur við af Atla
Fannari Bjarkasyni en fyrsta tímaritið
undir hans stjórn kemur út í
desember.
Mjög auðveld
ákvörðun
„Ég borða sömu máltíðina oftar en
einu sinni.“
áSGEir FinnSSon
21 áRS NEMi
maður Dagsins
Það er erfitt að kenna einhverjum
einum um jafn fjölþætt klúður og
íslenska efnahagshrunið var. Sagn-
fræðingar gera sér það stundum
að leik að velta því fyrir sér hvern-
ig sagan hefði orðið ef einn ein-
staklingur væri fjarlægður úr henni.
Hvernig hefðu heimsmálin þróast ef
Hitler hefði dáið í fyrri heimsstyrj-
öld, ef Napóleon hefði ekki komist til
valda, ef Sesar hefði verið stunginn
nokkrum áratugum fyrr? Ímyndum
okkur að einn einstaklingur hefði
verið fjarlægður úr Íslandssögunni
undanfarna áratugi og sá einstakl-
ingur væri Davíð Oddsson. Það hefði
líklega breytt gangi sögunnar.
Davíð trompar jón ásgeir
Enginn einn útrásarvíkingur hafði
álíka áhrif. Sumir voru stórtækari en
aðrir, en líklegast er að ef við hefð-
um fjarlægt Jón Ásgeir eða Björgólf
Thor úr jöfnunni hefði einhver ann-
ar komið í þeirra stað. Þar sem verið
er að gefa peninga finnst ávallt ein-
hver til að taka við þeim. Ef ekki hefði
verið fyrir Davíð hefði frjálshyggjan
vafalaust komið hingað hvort eð er.
En ólíklegt er að nokkur annar hefði
barið hana í gegn með álíka offorsi og
Davíð gerði. Enginn annar en Davíð
hefði verið líklegur til þess að ganga
jafn algerlega gegn ráðleggingum
einkavæðingarnefndar í bankamál-
um, eða gegn skipulagsnefnd í virkj-
anamálum.
Í raun er hægt að staðsetja þessi
tímamót nokkuð vel. Ef Þorsteinn
Pálsson, og ekki Davíð Oddsson,
hefði verið kosinn formaður Sjálf-
stæðisflokksins í upphafi 10. ára-
tugarins, væri líklega talsvert öðru-
vísi umhorfs hér nú. Frjálshyggjan
hefði komið, en hún hefði tekið
þjóðina mýkra taki í höndum ábyrg-
ari leiðtoga. Undanfarin ár hafa ver-
ið einhver þau dramatískustu í sögu
landsins. Því má til sanns vegar færa
að Davíð Oddsson hafi verið einhver
óþarfasti maður í sögu landsins síð-
an Einar Herjólfsson kom hingað
með svartadauða árið 1402. Plága
Davíðs var frjálshyggjan, og hún lék
efnahag landsins álíka grátt og plága
Einars lék mannlífið.
Endalok prentmiðla?
Áhrifum Davíðs á Íslandssöguna
hvergi nærri lokið. Sumir hafa spáð
því að Ísland verði fyrsta landið til
þess að verða prentmiðlalaust þar
sem fólk sæki upplýsingar á netið
í staðinn. Líklegt er að Davíð muni
flýta þeirri þróun talsvert. Hann skil-
ur eftir flokk með fylgi í sögulegu
lágmarki og land í fjárhagslegum og
siðferðilegum molum. Ólíklegt er
að Mogganum muni farnast betur
undir stjórn hans. Í raun er það eitt
að ráða jafn áberandi stjórnmála-
mann og Davíð í ritstjórastól, jafn-
vel þó að hann hefði átt farsælli feril,
afglöp fyrir fjölmiðil. Það sem skipt-
ir fjölmiðil mestu máli er trúverðug-
leikinn, og líklega hefur hann aldrei
skipt meira máli en nú.
Sagnfræðingar telja margir að
hinar stanslausu deilur á milli kirkj-
unnar manna á miðöldum hafi ekki
sýnt fram á að kirkjan var veik held-
ur þvert á móti sýnt fram á hvað hún
var sterk. Menn gátu deilt sín á milli
án þess að nokkur færi að efast um
drottin. Þegar góðærið reis sem hæst
árið 2003-04 tókust hér á tvö
öfl. Jón Ásgeir Jóhannes-
son var í forsvari fyrir
eitt og Davíð fyr-
ir hitt. Hvort um
sig var með
sína fjölmiðla
sem boðuðu
hver sýna út-
gáfu af frjáls-
hyggjunni.
Hver gat valið sér
sitt lið, svo lengi
sem þeir efuðust
ekki um markaðs-
lögmálin. Önnur
sjónarmið heyrðust
lítið sem ekkert.
Grapevine trompar
Moggann
Líklega er það
ekki tilviljun
að eina blað
landsins sem
flytur frétt-
ir og hefur
ekki farið
á hausinn
eða skipt
um kenni-
tölu síðan
2003 er
Reykja-
vík Grapevine. Það hefur einfaldlega
ekki efni á því, því það fær hvorki rík-
isstyrki né auðmannainnspýtingu ef
illa gengur. Eina blaðið sem hefur
aldrei boðað frjálshyggju er einnig
eina blaðið sem hefur getað lifað af á
markaðnum. Vegna þess að það hef-
ur trúverðugleika.
Mogginn er ekki lengur blað allra
landsmanna. Með Davíð við stjórn-
völinn er útilokað að það verði
það aftur. Það verður málgagn
lítils hóps hörðustu
sjálfstæðismanna sem
nú heyja vonlausa
varnarbaráttu fallins
málstaðar. Davíð í
ritstjórastóli Morg-
unblaðsins mun
ekki vera upp-
hafið að enda-
lokum íslenskr-
ar siðmenningar.
En það mun
verða upphafið að
endalokum Morg-
unblaðsins.
Óþarfasti maður Íslandssögunnar
mynDin
rándýr í miðborginni Tveir vígalegir ísbirnir standa vörð um ferðamannaverslun á mótum Bankastrætis og Laugavegar. Rakel Ósk Sigurðardóttir ljósmyndari rakst þar á litla
kisu sem hafði komið sér vel fyrir við hlið annars þeirra og var í óðaönn að snyrta sig frá toppi til táar, allsendis óhrædd við uppstoppaðan ísbjörninn. MynD raKEl óSK
Mónólogían mannýga
kjallari
umræða 25. september 2009 föstudagur 23
Valur
GunnarSSon
rithöfundur skrifar
„Plága Davíðs var
frjálshyggjan.“