Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Síða 32
32 Föstudagur 25. september 2009 helgarblað
Daníel Ágúst Haraldsson hefur ver-
ið þekkt andlit í íslenskum tónlistar-
heimi í yfir tuttugu ár. Hann sló í gegn
með félögum sínum í hljómsveitinni
Nýdönsk með laginu Hólmfríður Júlí-
usdóttir árið 1987 sem var upphaf-
ið að farsælum ferli sveitarinnar sem
enn stendur. Tveimur árum seinna
tók Daníel þátt í Eurovision-söng-
keppninni fyrir Íslands hönd þar sem
hann söng lag Valgeirs Guðjónsson-
ar, Það sem enginn sér. Lagið lenti í
neðsta sæti í lokakeppninni í Sviss þar
sem það fékk ekki eitt einasta stig. Eft-
ir að hafa starfað með Nýdönsk í um
tíu ár sagði Daníel skilið við hljóm-
sveitina og sneri sér að öðrum verk-
efnum, meðal annars tölvuvæddari
tónlistarsköpun undir merkjum Gus-
Gus. Hann tók sér einnig frí frá vinn-
unni með GusGus í nokkur ár og nýtti
tímann til að senda frá sér sólóplötu
sem hann samdi að mestu leyti í fjalla-
þorpi á Ítalíu.
Daníel hefur tekið upp þráðinn á
ný með bæði Nýdönsk og GusGus auk
þess að vera helmingur dúettsins Esja.
Í dag er hann því í þremur hljómsveit-
um auk þess að vinna að einherja-
efni. Á dögunum kom út ný GusGus-
breiðskífa, sú sjöunda í röðinni, sem
ber nafnið 24/7. Af því tilefni spjall-
aði blaðamaður við Daníel á veitinga-
staðnum Ósushi við Lækjargötu í vik-
unni.
Karlfyrirsæta sem hefur
upplifað allt
Daníel byrjar á að segja frá því hvers
konar plata 24/7 er. „Okkur langaði
að setja okkur í spor manneskju sem
er í einhverri sérstakri aðstöðu og hef-
ur upplifað eitthvað einstakt. Við sett-
um okkur því í spor karlfyrirsætu sem
er komin á aldur og er því kannski að
upplifa svolítið svipað og við strákarn-
ir í hljómveitinni, að búa til ungæð-
islega teknótónlist eins og enginn sé
morgundagurinn. Þessi fyrirsæta hef-
ur flakkað um heiminn, séð allt, upp-
lifað allt, verið í partíi með Karl Lag-
erfeld á snekkjunni hans í Feneyjum,
þekkir Mónakóprinsessurnar, hefur
borðað kvöldmat með æðstu ráða-
mönnum ýmissa þjóða, verið í öllum
flottustu partíunum í New York og svo
framvegis. Hann er heimsborgari, en
hann er karlfyrirsæta og líftími karl-
fyrirsætu er takmarkaður,“ segir Dan-
íel yfirvegaður.
Hann kallar þessa fyrirsætu Brem-
en-kúrekann vegna þess að þetta
er Ameríkani sem festist í Bremen í
Þýskalandi við gerð ókeypis auglýs-
ingabæklinga. „Einhvern veginn réðu
örlögin því að hann festist þar. En
þannig hefur hann atvinnu, þannig
lifir hann af, og hann hefur ekki kjark
eða efni á, jafnvel ekki áhuga, til að
vera einhvers staðar annars staðar en
bara þar. Stærsta ástæða þess að hann
sættir sig við þessar aðstæður sem
hann er í eru reifin sem hann fer á.
Reifin halda í honum lífinu. Þar kom-
um við inn og platan er „soundtrack“
við kvikmyndina um þennan kúreka.
Og platan er nett ferðalag. Þú ferð inn
í mismunandi aðstæður, líkamlega og
tilfinningalega.“
Daníel segir þá félaga í GusGus
ekki beinlínis samsama sig Bremen-
kúrekanum. „En þetta er eitthvað sem
okkur fannst gaman að takast á hend-
ur. Þess vegna settum við okkur í þessi
spor og ákváðum að hafa tónlistina
örlítið þroskaðri en áður. Þetta er ekki
alveg eins mikið partí og þegar Urður
[Hákonardóttir] var í bandinu. Þetta
er meira svona rólegt strákapartí.“
sýnir sitt allra
heilagasta
Urður hætti í GusGus fyrir tveimur
árum, eða um svipað leyti og Daní-
el gekk aftur til liðs við hópinn. Hóp
sem núna samanstendur reyndar ein-
ungis af þremur gaurum sem er um
fjórðungur fjöldans sem var í GusGus
í upphafi árið 1995. Auk Daníels eru
það Birgir Þórarinsson, betur þekkt-
ur sem Biggi veira, og Stephan Steph-
ensen, gjarnan kallaður President
Bongo.
Daníel segist hafa fengið góð við-
brögð við plötunni en þó ekki séð
neina dóma enn sem komið er. Mynd-
band við smáskífuna Add This Song
af 24/7 hefur líka fengið umtal, enda
feikilega flott myndband þar á ferð
auk þess sem Daníel kemur fram nak-
inn í því.
„Þetta var hugmynd leikstjórans.
Ég setti mig auðvitað inn í rulluna og
fórnaði mér fyrir listina,“ segir Daníel
og glottir. „Annars er þetta ekki mik-
il fórn því þetta myndskeið er ekki
einu sinni í fókus. Og fókusinn er ekki
á kynfærum mínum heldur því sam-
bandi sem minn karakter er í við ann-
an karakter. En það renna alls konar
hugsanir í gegnum hausinn á manni.
„Hvað ætli amma segi? Hvað ætli
dóttir mín segi og dóttir hennar?“ En
mér fannst þetta ekkert svo hrikalegt.
Fannst þetta bara eðlilegt í þessu sam-
hengi. Og ég hef fengið mjög jákvæð
viðbrögð við myndbandinu, enda er
það mjög skemmtilegt.“
nýtt myndband
sKotið í breiðholti
GusGus-liðar halda útgáfutónleika
í bakgarði Nikitaverslunarinnar á
Laugavegi á laugardaginn klukkan
níu. Lítill bakgarður og tónleikar sem
hefjast löngu fyrir miðnætti er ekki
eitthvað sem aðdáendur GusGus eiga
að venjast í tónleikamálum félaganna.
Skýringin að sögn Daníels er ein-
föld. „Okkur langaði að gefa fólki sem
nennir ekki að fara á tónleika klukkan
tvö á nóttunni tækifæri á að sjá okkur.
Í útlöndum byrjum við alltaf að spila
klukkan 22. Þar er ekki eðlilegt að fara
á tónleika klukkan tvö á nóttunni eins
og hér.“
Og það er skammt stórra högga á
milli því daginn eftir ráðast félagarnir í
gerð annars myndbands og fljúga svo
til Þýskalands á mánudaginn þar sem
fyrsti leggur tónleikatúrsins hefst. Spil-
að verður á nokkrum stöðum í Þýska-
landi og Sviss auk Vínar og Salzburgar
í Austurríki, Amsterdam í Hollandi og
Parísar. Þessa tónleikatörn endar Gus-
Gus svo þann átjánda næsta mánaðar
með því að spila á Airwaves-hátíðinni
hér á landi.
Myndbandið sem verður tekið upp
um helgina er við lagið Thin Ice og
verður skotið uppi í Breiðholti. Daníel
segir þá búna að gera aðeins harðari
útgáfu af því en er á plötunni og verði
myndbandið við þá útgáfu lagsins. Og
fötum verður ekki fækkað að þessu
sinni. „Nei, nei, við verðum alklæddir
og snyrtilegir.“
Var fljótandi Vera
Eins og kom fram í upphafi hófst tón-
listarferill Daníels með Nýdönsk árið
1987. Hljómsveitin varð til í MH þar
sem flestir stofnmeðlima stunduðu
nám, þeir Björn Jörundur Friðbjörns-
son, Valdimar Bragi Bragason, Einar
Sigurðsson og Bergur Már Bernburg,
en trommarinn Ólafur Hólm var í MS
og Daníel í MR. Bergur var skólafélagi
Daníels í grunnskóla og fékk hann til
liðs við Nýdönsk. Piltarnir voru bún-
ir að gutla aðeins við tónlistarsköp-
un og spila á litlum tónleikum hér og
þar þegar þeir duttu niður á smellinn
Hólmfríður Júlíusdóttir sem Björn og
Valdimar sömdu. Lagið varð gríðar-
lega vinsælt og hljómaði nánast linnu-
laust á öldum ljósvakans á því herrans
ári 1987.
Daníel segir það vissulega svolít-
ið undarlegt að vera táningur að gutla
við tónlist inni í bílskúr og eiga svo allt
í einu eitt vinsælasta lag landsins. „Á
þessum árum var ég eiginlega fljótandi
vera. Ég var mjög ómeðvitaður um
sjálfan mig, umhverfi mitt og framtíð
mína. Ég fann alveg fyrir hæfileikun-
um til að gera hitt og þetta en var ekki
búinn að negla niður neitt eða einsetja
mér að gera eitthvað eitt í lífinu.“
Varðstu svona fljótandi þegar
Hólmfríður Júlíusdóttir varð svona
vinsælt eða varstu það fyrir?
„Ég var það fyrir en svo varð tón-
listin til þess að ég gerði mér grein fyr-
ir að það var það sem mig langaði til
að gera. Það varð fyrsta val. Áður gat ég
alveg hugsað mér að verða félagsfræð-
ingur, leikari eða eitthvað sem hefur
með mannlega eiginleika að gera.“
Ef lagið hefði ekki orðið svona vin-
sælt, værirðu þá jafnvel félagsfræðing-
ur uppi í HÍ í dag?
„Það gæti vel verið. Eða bara bóka-
safnsfræðingur,“ segir Daníel og hlær.
Hvernig er það fyrir pilt sem er
svona ungur og svona ómótaður eins
og þú lýsir að upplifa þessa skyndilegu
frægð?
„Kosturinn við að vera svona fljót-
andi og ómeðvitaður er að þú spáir
ekkert svo mikið í það sem er að ger-
ast í kringum þig. Þú getur þá leyft
því að rúlla og þú fylgir straumnum.
Eða flýtur ofan á þessum velgengnis-
öldutoppum. Ég gerði náttúrlega mitt
til þess að taka þátt í því, var ekki það
fljótandi, en var alls ekki búinn að ein-
setja mér að gera þetta það sem eftir
var ævinnar.“
fluttur inn á sViðið í Kistu
Nýdönsk sendi frá sér sjö stúdíóplöt-
ur frá 1989 til 1994 sem innihéldu fjöl-
mörg vinsæl lög, til dæmis Nostra-
damus, Hjálpaðu mér upp, Frelsið,
Kirsuber, Deluxe, Alelda og Horfðu til
himins. Bandið var í framvarðasveit ís-
lensks popp á þessum árum og spilaði
grimmt um allt land. Valdimar, Ein-
ar og Bergur sögðu skilið við hljóm-
sveitina eftir að fyrsta platan, Ekki er á
allt kosið, kom út. Í þeirra stað komu
Jón Ólafsson og Stefán Hjörleifsson
sem eru enn í hljómsveitinni í dag auk
stofnmeðlimanna Daníels, Björns og
Ólafs.
Daníel segir þetta hafa verið mjög
skemmtilegt tímabil í lífi sínu. „Ég
var afskaplega lítill söngvari í grunn-
inn og því lögðum við mikið upp
úr sviðsframkomu. Þótt við tækjum
sköpuninni alvarlega var þetta mjög
mikið leikrit fyrir mér. Við klædd-
um okkur til dæmis stundum í bún-
inga fyrir tónleika og máluðum okkur
í framan. Á einum tónleikum vorum
við allir svartir í framan, á öðrum vor-
um við allir hvítir og alls konar svona.
Á einum tónleikum sem við héldum
einhvern tímann á Hótel Borg var einn
okkar eins og gömul kerling, einn eins
og draugur og ég var uppvakningur og
var fluttur inn á sviðið í kistu.
Það voru alls konar gjörningar í
Hann varð þjóðþekktur á einni nóttu 18 ára að aldri þegar lagið hólmfríður júlíusdóttir sló í gegn.
Tveimur árum síðar varð hann enn frægari, þá að endemum, þegar hann fékk núll stig fyrir flutning
á Eurovision-lagi Íslands í lokakeppninni í Sviss. Síðustu ár hefur hann gert garðinn frægan með
einni vinsælustu teknósveit Evrópu. daníel ágúst haraldsson varð pabbi í annað sinn á dögunum,
varð afi fyrir tveimur árum og er í þremur hljómsveitum auk þess að vinna að sólóefni. Kristján
hrafn guðmundsson fékk að heyra upp og ofan af tónlistarferli Daníels.
dauðFeginn
að fá núll stig
„Á þessum árum var ég eiginlega fljótandi vera.
Ég var mjög ómeðvitaður um sjálfan mig, um-
hverfi mitt og framtíð mína.“
gusgus Orðið karlatríó eftir að hafa verið
skipað tylft manna og kvenna í upphafi.