Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Blaðsíða 40
Umsjón: Kjartan GUnnar Kjartansson, kgk@dv.is
Bjartmar Þórðarson
leikhúslistamaður í reykjavík
Bjartmar fæddist á Akureyri
og ólst þar upp fyrstu sjö árin
en síðan í Reykjavík. Hann
var í Barnaskóla Akureyrar,
Hlíðarskóla og Langholts-
skóla, lauk verslunar- og síðar
stúdentsprófi frá VÍ, stundaði
nám í bókmenntafræði við
HÍ, stundaði síðan nám við Webb-
er Douglas Academy í London og
lauk þaðan prófum í leiklist 2004 og
lauk MA-prófi í leikstjórn frá Rose
Bruford College í London 2008. Þá
stundaði hann söngnám við Tón-
listarskólann í Kópavogi um árabil.
Bjartmar hefur unnið við upp-
setningu fjölda leiksýninga við Þjóð-
leikhúsið, Borgarleikhúsið, Loftkast-
alann og fleiri leikhús. Hann leikur
nú einleikinn Skepnu í Leikhúsbatt-
eríinu í Hafnarstræti 1 í Reykjavík.
Bjartmar situr í stjórn Útlaga,
félags leikara sem eru
menntaðir erlendis.
Fjölskylda
Sambýlismaður Bjartmars
er Þorkell Snorri Sigurðar-
son, f. 27.3. 1978.
Dóttir Þorkels og stjúp-
dóttir Bjartmars er Karitas Þorkels-
dóttir, f. 15.10. 2003.
Systkini Bjartmars eru Þórunn
Þórðardóttir, f. 8.11. 1966, löggiltur
fasteignasali í Reykjavík; Hólmfríð-
ur Þórðardóttir, f. 8.11. 1966, hjúkr-
unarfræðingur í Reykjavík; Jónas
Þórðarson, f. 24.1. 1970, viðskipta-
fræðingur í Reykjavík.
Foreldrar Bjartmars: Þórður Jón-
asson, f. 19.5. 1944, vélfræðingur
í Reykjavík, og Hjördís Bjartmars-
dóttir, f. 1.5. 1941, d. 13.4. 2002,
vefnaðarkennari.
30 ára á föstudag 70 ára á laugardag
Gunnar fæddist í Efstadal í Laugar-
dalshreppi í Árnessýslu og ólst upp
í Gýgjarhólskoti í Biskupstungum.
Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Laugarvatni 1961, kand-
ídatsprófi í íslenskum fræðum með
sögu sem kjörsviðsgrein við HÍ 1970,
doktorsprófi frá heimspekideild HÍ
1978, lauk hluta náms í bókasafns-
fræði við HÍ 1965, stundaði nám í
sagnfræði við Oslóarháskóla 1966-
’67 og við Kaupmannahafnarháskóla
1972.
Gunnar var bókavörður við Há-
skólabókasafnið 1970, var stunda-
kennari í sagnfræði við HÍ 1970-’71
og 1973-’74, styrkþegi með kennslu-
skyldu í Norðurlandasögu við
University College í London 1974-’76,
lektor í sagnfræði við HÍ 1976-’80 og
hefur verið prófessor í sagnfræði við
HÍ frá 1980.
Gunnar sat í stjórn Sagnfræðinga-
félags íslands 1973-’74 og 1976-’78 og
var formaður félagsins 1988-’90, sat í
stjórn Sögufélags 1978-’82, var forseti
heimspekideildar HÍ 1981-’83 og á
haustmisseri 1991 og sat í Forsknings-
politisk Råd á vegum norrænu ráð-
herranefndarinnar 1989-’91.
Gunnar er höfundur fjölda náms-
bóka í Íslandssögu og fræðirita í sagn-
fræði.
Fjölskylda
Gunnar kvæntist 29.7. 1967 Silju Aðal-
steinsdóttur, f. 3.10. 1943, bókmennta-
fræðingi og rithöfundi. Foreldrar Silju
voru Aðalsteinn Gunnarsson, f. 20.10.
1909, d. 21.6. 1988, verkamaður og
Valgerður Stefánsdóttir, f. 1.2. 1919, d.
26.5. 1994, húsmóðir.
Dætur Gunnars og Silju eru Sif,
f. 25.5. 1965, forstöðumaður Höfuð-
borgarstofu, maki Ómar Sigurbergs-
son innanhússarkitekt; Sigþrúður, f.
8.6. 1971, ritstjóri, maki Jón Yngvi Jó-
hannsson bókmenntafræðingur.
Dóttir Gunnars og Ragnheið-
ar Þorláksdóttur er Elísabet, f. 21.12.
1982, félagsráðgjafi, maki Sighvatur
Arnmundsson stjórnmálafræðingur.
Systkini Gunnars eru Helga Karls-
dóttir, f. 9.7. 1928, d. 15.6. 1997, hús-
freyja á Gýgjarhóli; Jón Karlsson, f.
8.10. 1929, áður bóndi í Gýgjarhól-
skoti; Guðrún Karlsdóttir, f. 10.1.
1931, áður húsfreyja í Miðdalskoti;
Ingimar Karlsson, f. 1.6. 1932, d. 8.5.
1987, rafvirki og deildarstjóri í Reykja-
vík; Guðni Karlsson, f. 2.10. 1933,
fyrrv. forstöðumaður og deildarstjóri í
dómsmálaráðuneytinu; Arnór Karls-
son, f. 9.7. 1935, d. 25.2. 2009, bóndi
í Arnarholti í Biskupstungum; Mar-
grét Karlsdóttir, f. 10.11. 1936, d. 22.8.
2006, húsfreyja að Skipholti í Hruna-
mannahreppi; Ólöf Karlsdóttir, f. 17.6.
1943, skrifstofumaður á Selfossi.
Foreldrar Gunnars voru Karl Jóns-
son, f. 1.7. 1904, d. 4.6. 1979, bóndi í
Efstadal og í Gýgjarhólskoti, og k.h.,
Sigþrúður Guðnadóttir, f. 8.10. 1896,
d. 29.4. 1967, húsfreyja.
Ætt
Karl var sonur Jóns, b. á Ketilvöllum
og í Efstadal Grímssonar, b. í Laugar-
dalshólum Jónssonar. Móðir Gríms
var Valdís Grímsdóttir, stúdents í Skip-
holti, bróður Einars, langafa Oddleifs,
afa Helga leikstjóra og Ólafs biskups
Skúlasona. Einar var einnig langafi
Gríms, afa Ármanns Kr. Einarssonar
rithöfundar. Grímur var sonur Jóns,
b. í Skipholti Jónssonar, hálfbróður
Fjalla-Eyvindar.
Móðir Karls var Guðný, systir Ein-
ars Arnórssonar ráðherra, afa Einars
Laxness. Guðný var dóttir Arnórs, b. á
Minna-Mosfelli Jónssonar, b. á Neðra-
Apavatni Jónssonar. Móðir Guðnýjar
var Guðrún Þorgilsdóttir, b. á Stóru-
borg í Grímsnesi Ólafssonar.
Sigþrúður var dóttir Guðna, b. á
Gýgjarhóli Diðrikssonar, vinnumanns
í Flóa Diðrikssonar, b. í Laugarási,
bróður Þorsteins, langafa Sigurðar,
föður Eggerts Haukdal, fyrrv. alþm.
Diðrik var sonur Stefáns, b. í Neðra-
dal Þorsteinssonar. Móðir Stefáns var
Guðríður Guðmundsdóttir, ættföður
Kópsvatnsættarinnar Þorsteinssonar.
Móðir Diðriks í Laugarási var Vigdís
Diðriksdóttir, b. á Önundarstöðum
Jónssonar og Guðrúnar, systur Böðv-
ars, pr. í Holtaþingum, afa Þuríðar,
langömmu Vigdísar Finnbogadóttur.
Guðrún var dóttir Presta-Högna Sig-
urðssonar.
Móðir Sigþrúðar var Helga, systir
Guðlaugar, móður Ásgríms Jónsson-
ar listmálara. Helga var dóttir Gísla,
hreppstjóra í Vatnsholti í Flóa Helga-
sonar, b. á Grafarbakka Einarssonar.
Móðir Gísla var Marín Guðmunds-
dóttir, ættföður Kópsvatnsættarinn-
ar Þorsteinssonar. Móðir Helgu var
Guðlaug, systir Guðrúnar, langömmu
Einars Jónssonar myndhöggvara.
Guðlaug var dóttir Snorra, b. í Vatns-
holti Halldórssonar, ættföður Jötuætt-
ar Jónssonar.
Ögmundur fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann
lauk landsprófi frá Héraðsskólanum
að Skógum og prófi frá Samvinnu-
skólanum að Bifröst 1969.
Ögmundur hóf störf að námi
loknu við fyrirtæki föður síns, Frið-
riks A. Jónssonar. Hann tók við fyr-
irtækinu er faðir hans lést, 1974, og
starfrækti það til 2007, er fyrirtækið
var selt.
Fjölskylda
Börn Ögmundar og Lindu Michel-
sen eru Georg, f. 6.10. 1974, öryggis-
fulltrúi hjá ALCOA, búsettur á Reyð-
arfirði; Sara, f. 15.10. 1976, MA-nemi
í viðskiptafræði í Bergen; Halldóra,
f. 18.10. 1984, nemi í læknisfræði í
Ungverjalandi.
Uppeldisdóttir Ögmundar er
Rósa, f. 6.12. 1966, grunnskólakenn-
ari í Vestmannaeyjum.
Sonur Ögmundar er Hilmar, f.
30.5. 1969, starfsmaður við heima-
stjórnina í Grænlandi.
Dóttir Ögmundar er Guðrún, f.
3.10. 1969, skólaliði í Hafnarfirði.
Ögmundur átti þrjú systkini en
tvær systur hans eru látnar. Bróð-
ir Ögmundar er Jón Friðriksson, f.
12.12. 1944, læknir í Noregi.
Foreldrar Ögmundar voru Frið-
rik A. Jónsson, f. 25.5. 1908, d. 13.6.
1974, stórkaupmaður í Reykjavík, og
k.h., Guðrún Ögmundsdóttir, f. 6.11.
1909, d. 6.12. 1977, húsmóðir.
ristjánsdóttir.
Kjartan Gunnar Kjartansson rekur
ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
60 ára á föstudag
Ögmundur Friðriksson
fyrrv. framkvæmdastjóri
Gunnar Páll Kristjánsson
smiður í vestmannaeyjum
Gunnar Páll fæddist á
Sauðárkróki og ólst þar upp.
Hann var í Barnaskóla Sauð-
árkróks og Gagnfræðaskóla
Sauðárkróks.
Gunnar starfaði í Loð-
skinni á Sauðárkróki á ungl-
ingsárunum, stundaði smíð-
ar í Reykjavík um skeið, var
síðan við innréttingasmíðar á Sauð-
árkróki en flutti til Vestmannaeyja
um aldamótin og síðan til Kanada
þar sem hann vann við pípulagn-
ir og smíðar á árunum 2000-2001.
Hann var síðan búsettur í Keflavík
í tvö ár en hefur stundað smíðar í
Vestmannaeyjum frá árs-
byrjun 2004.
Fjölskylda
Dóttir Gunnars Páls og
Elvu Daggar Björnsdóttur
er Amelía Nótt Gunnars-
dóttir, f. 7.1. 2004.
Dóttir Gunnars Páls og
Laufeyjar Rósar Andersen er Tinna
Katrín Gunnarsdóttir, f. 16.7. 2007.
Bræður Gunnars Páls eru Jóhann
Þór Kristjánsson, f. 1.11. 1974, sölu-
maður hjá Húsasmiðjunni, búsettur
í Reykjavík; Sigurður Línberg, f. 9.3.
1981, listamaður í Reykjavík.
30 ára á sunnudag
40 föstudagur 25. september 2009 ættfræði
föstudagur 25. september
30 ára
n Michal Zygmunt Ostolski Hjallabraut 17, Hafnarfirði
n Kristin Leigh Meehan Grabowski Ljósheimum 4, Reykjavík
n Dariusz Kruczynski Laugarnesvegi 94, Reykjavík
n Sigurbjörn Jón Árnason Svölutjörn 12, Reykjanesbæ
n Arinbjörn Sigurðsson Hálsaseli 2, Reykjavík
40 ára
n Mikkjal Pauli Österö Kleppsvegi 72, Reykjavík
n Kevin Forrest Perrin Drápuhlíð 7, Reykjavík
n Fanney Björnsdóttir Suðurgötu 71, Akranesi
n Margrét Kristjánsdóttir Mánagötu 7, Grindavík
n Svavar Jóhannesson Logasölum 3, Kópavogi
50 ára
n Einar Kristleifsson Fjóluhlíð 2, Hafnarfirði
n Magnús Helgi Árnason Marargötu 7, Reykjavík
n Guðfinna Bogadóttir Suðurvör 3, Grindavík
n Þórður Eiríksson Bakkastöðum 79a, Reykjavík
n Valgerður Halldórsdóttir Vesturbergi 72, Reykjavík
60 ára
n Þorbjörn Guðmundsson Básbryggju 1, Reykjavík
n Stefán Eiríksson Bakkastöðum 1, Reykjavík
n Magnús S Magnússon Orrahólum 5, Reykjavík
70 ára
n Jón T Karlsson Skipholti 36, Reykjavík
n Hanna Zoega Sveinsdóttir Ásakór 5, Kópavogi
n Ómar H Harðarson Vattarási 1, Garðabæ
n Huajue Chen Fannafold 111, Reykjavík
75 ára
n Sofia Jaronova Flúðaseli 94, Reykjavík
n Ingimar Kristjánsson Sléttahrauni 30, Hafnarfirði
n Sigþóra Karlsdóttir Vallarbraut 1, Akranesi
n Skúli Magnússon Miðtúni 30, Reykjavík
n Gyða Björnsdóttir Grænumörk 2, Selfossi
n Þórunn Alice Gestsdóttir Starmýri 3, Djúpavogi
n Elísabet Dóris Eiríksdóttir Engjadal 2, Reykjanesbæ
80 ára
n Snjólaug Aradóttir Víðilundi 20, Akureyri
n Jón Óttarr Ólafsson Vesturbergi 55, Reykjavík
n Sigurður Stefánsson Miðteigi 9, Akureyri
85 ára
n Kristján Gunnar Óskarsson Fossvöllum 6, Húsavík
n Ástríður Hallgrímsdóttir Hlíðarhúsum 7, Reykjavík
n Sigurður Þorsteinsson Heiði, Selfossi
Jóhanna Halldórsdóttir Hlíðarhúsum 5, Reykjavík
90 ára
n Inger Þórðarson Grandavegi 1, Reykjavík
n Sigurlaug Jónsdóttir Frostafold 14, Reykjavík
95 ára
n María Jóhannesdóttir Víðilundi 11, Akureyri
föstudagur 27. september
30 ára
n Kristina Pielmeier Bollastöðum, Selfossi
n Cherie Quimada Resgonia Hraunbæ 94, Reykjavík
n Anna Radyszkiewicz Réttarseli 7, Reykjavík
n Valgerður Einarsdóttir Grettisgötu 83, Reykjavík
40 ára
n Hörður S Kristjánsson Dvergaborgum 8, Reykjavík
n Arndís Björnsdóttir Bergstaðastræti 36, Reykjavík
n Heimir Ásgeirsson Miðvangi 131, Hafnarfirði
50 ára
n Sólveig Ebba Ólafsdóttir Langagerði 100, Reykjavík
n Trausti Hvannberg Ólafsson Holtagerði 32, Kópavogi
n Carlos Duarte Louro Ferreira Vesturbergi 21, Reykjavík
n Lárus Finnbogason Brekkubæ 35, Reykjavík
60 ára
n Ari Guðmundsson Hnoðravöllum 26, Hafnarfirði
n Anna Björgmundsdóttir Holtabrún 6, Bolungarvík
n Edda Valborg Sigurðardóttir Auðarstræti 9, Reykjavík
70 ára
n Guðrún Kristín Magnúsdóttir Álfaheiði 8e, Kópavogi
n Dagný Björnsdóttir Kaplaskjólsvegi 89, Reykjavík
75 ára
n Þórarinn Þorvaldsson Goðalandi 8, Reykjavík
n Sigurvin Ólafsson Sandgerði 6, Stokkseyri
80 ára
n Þorvaldur Hannesson Dalbraut 14, Reykjavík
n Birna Ögmundsdóttir Gullsmára 7, Kópavogi
n Sæmundur KjartanssonHæðargarði 29, Reykjavík
n Guðrún Guðfinna Árnadóttir Strikinu 8, Garðabæ
n Sigurjóna Kristinsdóttir Mýrarvegi 113, Akureyri
85 ára
n Jón Tómasson Bólstaðarhlíð 31, Reykjavík
til hamingju með daginn
Gunnar Karlsson
prófessor í sagnfræði við hí