Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Síða 42
42 föstudagur 25. september 2009 sport
Ronnie o’BRien
Middlesbrough til Juventus frítt.
Það eru til mörg skrýtin félagaskipti í fótboltaheiminum og svo
er til Ronnie O´Brien. Írskur unglingaliðsmaður sem átti bjarta
framtíð og sló í gegn með Damien Duff og Robbie Keane. Hann
samdi við Middlesbrough 1997 en komst aldrei á bekkinn hjá
aðalliðinu. Hann fékk því nóg, réð sér frægan umboðsmann
og viti minn. Fékk fimm ára samning við Juventus! „Draumur
minn hefur ræst,“ sagði O´Brien þegar búið var að skrifa undir
samninginn. Engum kom á óvart að hann var lánaður hingað
og þangað um Evrópu og var aðeins tvö ár hjá ítölsku risunum.
Hann náði samt að halda í treyju númer átta allan samningstím-
ann. O´Brien komst ekki að hjá neinu ensku liðið og spilar í dag
með FC Dallas í bandarísku MLS-deildinni.
CaRlos Tevez /
JavieR MasCheRano
Corinthians til West Ham frítt
Þegar félagaskiptaglugginn var að lokast
í ágúst 2006 bárust einhver óvæntustu
tíðindi fótboltasögunar. Stjörnur argent-
ínska landsliðsins Carlos Tevez og Javier
Mascherano gengu í raðir West Ham!
Flestir höfðu spáð því að parið myndu
ganga í raðir einhverra risa í fótboltanum
en maðurinn sem átti þá vildi kaupa West
Ham og setti parið þangað. Báðir áttu
martraðartímabil í byrjun og Mascherano
datt fljótlega út úr myndinni. Tevez hins
vegar bjargaði andlitinu og félaginu með
því að bjarga liðinu frá falli. Hann er enn í
guðatölu á Upton Park
Jean-alain BouMsong
Newcastle til Juventus fyrir þrjár milljónir punda
Boumsong kom til Newcastle frá Glasgow Rangers fyrir
átta milljónir punda og átti að vera svarið við hriplekri
vörn Newcastle. Hann hafði ekki getu í það og átti frekar
slakt tímabil með liðinu. Boumsong var frekar litinn
sem aukasóknarmaður fyrir andstæðinganna heldur en
varnarmaður Newcastle. Það kom því eins og þruma úr
heiðskýru lofti þegar ítölsku risarnir í Juventus ákváðu
að kaupa hann. „Sáu þeir hann spila,“ var spurt á BBC eða
var þetta síðasta refsing Juventus fyrir að hafa hagrætt
leikjum.
DaviD Bellion
Sunderland til Man Utd fyrir tvær milljónir punda.
Alex Ferguson hefur ekki átt mörg flopp í að-
keyptum mönnum. Vissulega var Kleberson flopp
en það var ekkert skrýtið við þau félagaskipti.
Hins vegar kom gríðarlega á óvart hvað Ferguson
vildi mikið fá David Bellion frá Sunderland. Bellion
komst ekki í liðið hjá Sunderland sem féll og náði
Bob Murray stjóri Sunderland að fá tvær milljónir
punda fyrir Bellion. Eins og flestir bjuggust við þá
floppaði Bellion og hefur nafn hans gleymst hægt
og bítandi.
FaBRizio Ravanelli
Juventus til Middlesborough fyrir sjö milljónir punda.
Í maí 1996 var hvíta fjöðurinn, Fabrizio Ravanelli, heitasta
nafn fótboltabransans. Hann hafði skorað í úrslitaleik
Meistaradeildarinnar og var með mjög gott orðspor í
markaskorun. Það kom því eins og þruma úr algjörlega
heiðskýru lofti að hann hafi samið við Middlesbrough
í Englandi. Bryan Robson stjóri Boro var þá nýbúinn að
punga út 15 milljónum punda fyrir Nick Barmby, Juninho
og Emerson og Ravanelli var síðasta púslið. Hann fékk
líka einn besta samning í Evrópu á þeim tíma. Ravanelli
skoraði 16 mörk sem dugði ekki til að bjarga Boro frá falli.
ThoMas gRavesen
Everton til Real Madrid fyrir
tvær milljónir punda.
Án orða.
FRíTT Til gaRFoRTh Town
Knattspyrnuheimurinn stóð á öndinni þegar fyrirliði
Brasilíu 1982, Socrates, samdi við utandeildarliðið
Garforth Town í Englandi. Socrates hafði spilað
með Flamengo, Botafogo og Fiorentina og hafði
leikið 63 landsleiki með Brasilíu. Reyndar var hann
fertugur en samt. 1300 manns mættu á fyrsta
heimaleikinn þar sem Socrates byrjaði á bekknum.
Athygli vakti að hann reykti á meðan hann beið
eftir skiptingunni. Hann spilaði 12 mínútur en
sagði eftir leikinn; „Þetta var gaman. Svolítið kalt en
gaman.“ Socrates spilaði ekki meir fyrir Garforth.
FuRðuleg
FélagaskipTi
Enski varnarmaðurinn Gary Cahill hjá Bolton er nú orðaður við
ítölsku risana Juventus og AC Milan. Bolton hefur skellt 20 milljóna
punda verðmiða á Cahill. Ef Cahill gengur í raðir AC Milan myndi
það teljast ákaflega furðuleg félagaskipti. Ekki þau fyrstu og klár-
lega ekki þau síðustu eins og sagan hefur sýnt.
luTheR BlisseTT
Watford til AC Milan fyrir eina milljón punda.
Útsendarar AC Milan fóru til Englands 1983 til að finna
framherja. Þeir dásömuðu Luther Blissett og Milan liðið keypti
hann á eina milljón punda, sem í þá daga gat tryggt félögum
hvaða leikmann sem er. Blissett skoraði fimm mörk í 30
leikjum fyrir Milan og var sendur til baka til Watford. Skömmu
síðar kom í ljós að útsendararnir höfðu ruglast á mönnum og
Milan hafi ekki neitt ætlað að kaupa grey manninn.
ali Dia
Frítt til Southampton.
Ali Dia er talinn vera versti leikmaðurinn í sögu
Úrvalsdeildarinnar. Hann mætti einn daginn
á æfingu hjá Southampton, laug því að hann
ætti 13 landsleiki fyrir Senegal og hann væri
frændi George Weah. Graeme Souness beit á
agnið. Skrifaði undir reynslusamning og setti
upp æfingarleik. Honum var hins vegar frestað
og því fékk Dia sæti á bekknum gegn Leeds
1996. Þegar Matt LeTissier meiddist fékk Dia
kallið. Hann var á leiðinni inná. Dia spilaði 50
ógleymanlegar mínútur fyrir alla þá sem hafa
gaman að góðu gríni. Ljóst var að hann kunni
ekkert í fótbolta og Souness rifti samningum,
að sögn í búningsherberginu.
umsjón benedikt bóas