Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Qupperneq 43
Sport 25. september 2009 föStudagur 43
Árás á nætur-
klúbbi
Bellamy var í New-
castle og þótti mik-
ill vandræðagemsi.
20002 fór hann út
að skemmta sér og
réðst á konu fyrir
utan skemmtistað.
Konan kærði Bell-
amy sem slapp með
áminningu, bæði frá
lögreglunni og New-
castle.
Réðst aftur á
konur
2006 var Bellamy
leikmaður Liverpool.
Eftir landsleik með
Wales fór landsliðið
út að skemmta sér í
Cardiff og lenti Bella-
my í orðaskaki við
tvær konur og réðst
að lokum á þær. Hann
var síðar hreinsaður
af öllum sökum eftir
fimm daga réttarhöld
sökum skorts á sönn-
unargögnum.
Ósáttur við þjálfarann
Newcastle gekk ágætlega með
Bellamy innanborðs og tók þátt í
Evrópukeppnum. Einu sinni þegar
liðið var á leiðinni frá borginni með
flugvél lenti Bellamy í miklu rifrildi
við aðstoðarþjálfarann John Carver.
Engin högg fuku en þess í stað henti
Bellamy þungum stól í áttina að Car-
ver. Hann var sektaður fyrir atvikið.
Gerði sér upp meiðsli
Bellamy leikur vanalega í stöðu fram-
herja og tók því afar illa þegar Graeme
Souness þáverandi stjóri Newcastle
bað hann um að
leika á hægri vængn-
um. Þóttist Bella-
my vera meiddur og
lék ekki næsta leik.
Læknar fundu ekk-
ert að og Souness
fór með það í blöð-
in. Bellamy kallaði
hann lygara og
fékk 80 þúsund
punda sekt fyr-
ir vikið.
Sendi goðinu
SMS
Bellamy var
seldur til Glas-
gow Celtic frá
Newcastle en
hann hélt áfram
að pönkast í
sínu gamla félagi. Eft-
ir 4-1 tap Newcastle
gegn Manchester Un-
ited sendi Bellamy
vinsælasta leikmanni
Newcastle fyrr og síð-
ar Alan Shearer SMS
þar sem stóð; Your
legs are gone. You’re
too old. You’re too
slow.
Golfsveiflan sem heyrðist um
allan heim
Bellamy gekk í raðir Liverpool og var
áfram að lenda í veseni innan vall-
ar sem utan. Hans frægasta „móm-
ent“ gerðist einmitt með Liverpool
árið 2007 þegar liðið var við æfing-
ar í Algarve. Framherjinn skapheiti
varð brjálaður þegar John Arne Riise
neitaði að syngja í karókí og lét Norð-
manninn heyra nokkur vel valin orð.
Liðsmenn Liverpool skildu þá að en
Bellamy var ekki
hættur. Hann fann
golfkylfu, elti Ri-
ise og reyndi að slá
hann með sjöunni.
Fyrsti leikur -
fyrsta rifrildið
Bellamy gekk í
raðir Íslendinga-
liðsins West Ham fyrir tímabilið
2007-2008. Fyrsti leikur hans með
liðinu var gegn Manchester City
sem tapaðist. Bellamy var brjálað-
ur eftir leikinn og jós svívirðingun-
um yfir Alan Curbishley stjóra West
Ham. Hans samband við stjórann
var aldrei gott eftir það.
Stuðningsmenn fá sinn skerf
Bellamy lék í upphafi síns ferils
með Norwich - erkióvini Ipswich
Town. Þegar Bellamy var í æfingar-
leik með West Ham gegn Ipswich
var baulað á hann allan tímann.
Eftir leikinn lenti hann í rifrildi við
nokkra stuðningsmenn og lét skoð-
un sína á Ipswich umbúðalaust í
ljós og sagði að þar væru aðeins
vændiskonur ráfandi um göturnar.
Bellamy fékk sekt frá enska knatt-
spyrnusambandinu.
Mætti ekki í landsleik
Það þarf ekki mikið að gerast í
kringum Bellamy til að hann fái
forsíðufrétt í enskum miðlum. Þeg-
ar hann mætti ekki í landsleik Wal-
es gegn Svartfjallalandi í sumar var
því slegið upp á forsíðu. Bellamy
er mikill þjóðernissinni og er með
risahúðflúr af Owain Glyndwr, vel-
skri þjóðhetju. Hann gerði sér lít-
ið fyrir og mætti á skrifstofu blaðs-
ins og hellti sér yfir blaðamanninn.
Ástæðan fyrir fjarveru hans var
meiðsli.
Craig Bellamy, leikmaður Manchester City,
slapp með áminningu fyrir að hafa slegið
stuðningsmann Manchester United. Bell-
amy er ekki óvanur umdeildum atvikum
og hefur oft farið yfir strikið – innan vall-
ar sem utan.
Brjálaður Bellamy
NaFN: Craig Douglas Bellamy
FÆDDur: 13. júlí, 1979
FÆðINGarSTaður: Cardiff, Wales
HÆð: 1.72 m
FÉlaG: Manchester City
NÚmer: 39
Rio Ferdinand, varnarjaxlinn í liðið
Manchester United ætlar að opna
veitingastaðinn Rosso í byrjun nóv-
ember. Veitingastaðurinn verður
með ítölsku ívafi og verður til húsa
þar sem áður var banki.
„Þetta verður ekki óhemjudýr
matur. Þetta verður góður matur
á góðu verði,“ segir Rio en hann er
með mikið lið verkamanna til að
endurgera staðinn frá a-ö. Rio er
með tveimur félögum sínum í verk-
efninu en þetta er fyrsti veitinga-
staðurinn sem hann opnar. Hann
ætlar að nota sín sambönd til að
vera með alvöru VIP-partí á staðn-
um þegar hann opnar og gera hann
að heitasta veitingastað Manchest-
er-borgar. Veitingastaðurinn Rosso
verður við King stræti en þar fyrir er
San Carlo vinsælasti ítalski staður-
inn í Manchester-borg. „Þetta verð-
ur 150 manna staður með stórum
bar. Staður þar sem bæði er hægt að
koma eftir vinnu og líka til að líða
vel,“ segir stjarnan.
Rio er að nota auð sinn ágætlega
en hann er með tímarit á netinu,
hann gefur út plötur og er með vin-
sæla tónlistarkeppni í Manchester
ár hvert.
Á nýjar slóðir Rio Ferdinand ætlar að
opna veitingastaðinn Rosso í miðborg
Manchester.
Stjarnan í vörn Manchester United, Rio Ferdinand
Opnar veitingastað
uMSjÓn Benedikt BÓaS
FerIll: leIKIr mÖrK
Norwich 1996–2000 84 32
Coventry 2000–2001 34 6
Newcastle 2001–2005 93 28
Celtic 2005-2005 12 7
Blackburn 2005–2006 27 13
Liverpool 2006–2007 27 7
West Ham 2007–2009 21 7
Manchester City 2009-? 10 6
57 landsleikir - 16 mörk