Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Side 48
Býr til eigin maska Heidi Klum finnst gott að búa til sína eigin andlits-
maska. Þá blandar hún saman einni matskeið af fíngerðu haframjöli, annarri
matskeið af hreinni lífrænni jógúrt og nokkrum dropum af hunangi sem hún
hitar lítillega með því að hella því í skeið sem hún hitar undir heitu vatni í smá
stund. Svo skellir hún þessu á andlitið og slakar á í um tíu mínútur. Þessi heima-
tilbúni maski er talinn hreinsa og mýkja húðina til muna.
Gabrielle „Coco“ Chanel fæddist í fátækt og
ólst að mestu upp á kaþólsku munaðarleys-
ingjahæli þar sem nunnur kenndu henni að
sauma. Síðar varð hún ein af áhrifamestu
hönnuðum samtímans. Líkami konunnar
fékk að vera frjálsari, þökk sé ungfrú Chan-
el, sem losaði konuna úr viðjum óþægilegra
korsiletta og blúndna.
n Coco fékk hugmyndina að nafni sínu úr
laginu „Qui qu’a vu Coco“ sem hún söng þeg-
ar hún vann fyrir sér sem söngkona á börum
Parísarborgar.
n Hún byrjaði að hanna hatta í frítíma sínum
sem urðu svo gríðarlega vinsælir meðal ríkra
kvenna í París.
n Sólböð og brúnt hörund urðu ekki vinsæl
að ástæðulausu. Coco brann í siglingu á leið
sinni til Cannes árið 1923. Eftir það var talið
móðins að vera „brúnn og sællegur“.
n Coco vissi að frægar leikkonur gætu komið
vörumerki hennar á framfæri og fékk því oft
heitustu leikkonurnar til að klæðast hönn-
un sinni. Síðan þá hafa fjölmargar leikkonur
verið andlit Chanel-tískuhússins.
n Vasar voru í miklu uppáhaldi hjá Coco og
voru þeir miðpunktur töskuhönnunar henn-
ar, sem er alger klassík í dag.
n Ritz-hótelið í París var heimili Coco Chanel
í yfir þrjátíu ár.
n Chanel nr. 5 kom á markað 1921 og var
fyrsta ilmvatnið með hennar nafni. Talið er
að það hafi fengið nafngiftina vegna þess að
þetta hafi verið fimmta glasið sem hún lykt-
aði og hreifst af.
n Árið 1926 kynnti hún til sögunnar „litla
svarta kjólinn“ og gerði hann að því sem allar
konu vildu eiga í fataskápnum. Ekki nóg með
það, heldur var hönnunin mjög fjölbreytt
eftir því með hvernig fylgihutum hann var
skreyttur. Árið 1923 kom hin víðfræga Chan-
el-dragt á markað og breytti heldur betur því
hvernig konur klæðast.
UmSjón: Helga KriStjánSdóttir
Umdeildir
lokkar
Söngkonan Rihanna hefur litað
toppinn ljósan og hefur breyting-
in vakið nokkra athygli. Fjölmiðl-
ar vestra hafa verið duglegir við
að fjalla um málið og eru nokkuð
skiptar skoðanir um það hvort
nýja útlitið fari Rihönnu eða ekki.
Rihanna hefur verið dugleg við
að fara sínar eigin leiðir í tísku og
lítil hætta á að það muni breytast
eitthvað í bráð.
Sexí
í gegnSæjU
Ingibjörg Ragnheiður Egilsdóttir vakti mikla athygli fyrr á árinu þegar hún komst í topp
15 í Miss Universe. Hún segir Donald Trump, eiganda keppninnar, hafa góðan húmor.
48 föstudagur 25. september 2009 lífsstíll
Saga Chanel Coco Chanel Var margt til lista lagt.
Um efnahaginn
Til hamingju með frábær-
an árangur í Miss Universe.
Hvernig var þessi upplifun?
„Takk kærlega fyrir það. Þetta
var alveg meiri háttar ævintýri
og mikil lífsreynsla. Ég kynntist
heilmörgu fólki og frábærum
stelpum hvaðanæva úr heim-
inum. Eftir að ég kom heim hef
ég talað daglega við þær sem
ég kynntist hvað mest. Þenn-
an mánuð sem við vorum á
Bahamaeyjum fengum við að
ferðast um eyjarnar og kynnast
svolítið innfæddum. Við synt-
um með höfrungum, sýndum á
tískusýningum, mættum í gala-
kvöldverðaboð og VIP-partí,
tókum þátt í uppboði fyrir góð-
gerðarsamtök og fórum í kaffi
til ríkisstjórans svo eitthvað sé
nefnt.“
Hvernig er Donald Trump?
Er það satt að hann hafi haft
áhrif á úrslitin?
„Já, ég hitti Donald Trump.
Hann virkar á mig sem mjög
almennilegur og góður mað-
ur með góðan húmor. Að sjálf-
sögðu spjölluðum við saman
um efnahaginn og þau mál.
Varðandi úrslitin, þá ræð-
ur hann hvaða sex stúlkur af
fimmtán komast í topp fimmt-
án manna úrslitin.“
Hvert er þitt helsta „style
icon“?
„Madonna. Hún er alger töff-
ari.“
Hvaða persónu líturðu helst
upp til og hvers vegna?
„Ég er ekki með neina eina
ákveðna fyrirmynd sem ég lít
upp til. Heldur lít ég upp til
ákveðinna kosta í fari fólks og
tek mér þá til fyrirmyndar. Ég
er mjög sjálfstæð og fer mín-
ar eigin leiðir og hef jákvæðn-
ina og góðmennsku að leiðar-
ljósi.“
Hvaða snyrtivörum gætirðu
ekki verið án?
„Það er klárlega öll hárvöru-
línan sem fæst á Beautybarn-
um hjá honum Karli Bernd-
sen.“
Hvernig heldurðu þér í
svona fantaformi?
„Ég hef alltaf haft gaman af
líkamsrækt og hreyfingu. Ég
borða holla og fjölbreytta
fæðu og tek lýsi á hverjum
degi. Ég held að aðalatriðið sé
að hafa gaman af því að hreyfa
sig og hugsa um heilsuna.“
Hvaða stelpa hélst þú að
myndi vinna keppnina og
komu úrslitin þér á óvart?
„Keppnin í ár var sögð mjög
jöfn og mjög margar stelp-
ur taldar geta sigrað. Úrslitin
komu mér ekkert á óvart. Stef-
anía frá Venesúela er gullfal-
leg og indæl stelpa og átti sig-
urinn svo sannarlega skilinn.“
Hver er uppáhalds íslenska
fegurðardrottningin þín?
„Ætli ég verði ekki að segja
amma mín, hún Esther Garð-
arsdóttir, sem var ungfrú
Reykjavík 1959.“
Hvað tekur svo við hjá þér,
fékkstu einhver tækifæri út
á keppnina?
„Framtíðin er óráðin, en mig
langar mjög mikið til þess
að halda áfram í þessum
bransa.“
Spjallaði við Trump
Ingibjörg Ragnheiður Komst í topp
15 í miss Universe. MynD ARnolD BjöRnsson
Leikkonan Hayden Panettiere
sem leikur í Heroes klæddist
þessum gegnsæja og kynþokka-
fulla kjól þegar hún heimsótti
David Letterman fyrir nokkru.
Madonna fór svo að fordæmi
Hayden þegar hún var íklædd
kjólnum á tískuviku Marc Jacobs.
Hin tvítuga Hayden bar kjólinn
vel og sömu sögu er hægt að
segja um Madonnu sem er þó 31
ári eldri en Hayden.