Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2009, Qupperneq 11
Borist hafa fyrirspurnir um fjármál húsfélaga; hússjóð, bók-
hald, ársreikninga, endurskoðun og úrræði húsfélagsins við
vanskilum íbúðareigenda. Einnig er spurt hvernig standa
beri að húsfundum til að ákvarðanir þeirra fái staðist gagn-
vart eigendum og út á við.
Fjármál
húsFélaga
sigurður helgi guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins, svarar fyrirspurnum lesenda.
Sendið fyrirspurnir á neytendur@dv.is
neytendur 6. október 2009 þriðjudagur 11
7,16 kr.
6,36 kr.
66 kr.
68 kr.
403 kr.
37 kr.
22 kr.
Bensínlítri
Olíulítri
CarlsBerg-
kippa 0,5 l.
rauðvínsflaska 0,75 l.
smirnOff-
vOdki 1,0 l.
sígarettu-
pakki
neftóBak
Með aðild að Húseigendafélaginu
öðlast húsfélög aðgang að lögfræði-
þjónustu og húsfundaþjónustu sem
felur í sér altæka ráðgjöf og aðstoð
við húsfundi. Hún tryggir að rétt sé
að málum staðið þannig að ákvarð-
anir fundar verði ekki vefengdar. Á
húsfundum eru teknar ákvarðanir
um mikla fjárhagslega hagsmuni og
skuldbindingar. Mörg dæmi eru um
húsfélög sem hafa orðið fyrir skakka-
föllum vegna klúðurs við undirbún-
ing og framkvæmd húsfunda.
Allt á hreinu
Húsfélögum fer ört fjölgandi sem
vilja hafa allt á hreinu og nýta sér
þessa þjónustu. Lögfræðingar félags-
ins aðstoða við undirbúning funda,
fundaboðun, tillögur og fleira. Fund-
arstjóri er lögmaður, sem hefur sér-
þekkingu á þessu sviði. Fundargerðir
eru glöggar. Vandaður undirbúning-
ur og fagleg fundarstjórn tryggir mál-
efnalega, markvissa og árangursríka
fundi. Með því geta húsfélög, eigend-
ur og viðsemjendur þeirra, treyst því,
að fundur sé lögmætur og ákvarðanir
séu teknar með réttum hætti.
Hússjóður, ákvörðun gjalda
Samkvæmt fjöleignarhúsalögunum
er skylt að stofna hússjóð sé þess kraf-
ist af minnst ¼ hluta eigenda, annað-
hvort miðað við fjölda eða eignar-
hluta. Aðalfundur ákveður fjárhæð
hússjóðsgjalda á grundvelli áætlun-
ar um útgjöld og reglna um kostn-
aðarskiptingu. Hússjóður getur verið
rekstrarsjóður eða framkvæmdasjóð-
ur eða blandaður. Sé fyrst og fremst
um rekstrarsjóð að ræða eru gjöld eig-
enda því sem næst jöfn enda skiptist
rekstrarkostnaður að jöfnu. Sé sjóð-
urinn fyrst og fremst framkvæmda-
sjóður skiptast gjöldin að mestu eftir
hlutfallstölum. Þegar árið er gert upp
koma oftast í ljós einhver frávik mið-
að við álögð húsgjöld. Sé gjaldaáætl-
un vönduð og rétt kostnaðarskipting
lögð til grundvallar eru frávikin yfir-
leitt smávægileg. Þau skal jafna við
heildaruppgjör á hússjóðnum.
Hækkun gjalda
Strangt til tekið hafa almennir hús-
fundir ekki beina heimild til að
breyta ákvörðunum aðalfundar um
hússjóðsgjöld. Þó er talið að slíkir
fundir megi í vissum tilvikum endur-
ákvarða og hækka hússjóðsgjöld þeg-
ar um brýna þörf og breyttar forsend-
ur er að ræða. Komi til ófyrirséðra
og óvæntra útgjalda milli aðalfunda
verður ekki komist hjá því að veita al-
mennum húsfundi heimild til að taka
ákvörðun um nauðsynlega hækkun
hússjóðsgjalda. Stjórn húsfélags hef-
ur hins vegar ekki vald til að hækka
hússjóðsgjöld.
Vanskil
Alltaf geta komið upp atvik og að-
stæður hjá fólki sem gera því erf-
itt eða ómögulegt að standa í skil-
um. Hússjóðsgjöld eru tryggð með
lögveði í íbúðum. Lögveðið gengur
framar bæði eldri og yngri veðskuld-
um og fjárnámum. Lögveðið er vel
að merkja tímabundið og fellur nið-
ur ári eftir gjalddaga. Húsfélag getur
meðan lögveðið lifir litið fram hjá eig-
endaskiptum en þegar það fellur nið-
ur verður húsfélagið að beina kröfu
að þeim sem var þinglýstur eigandi
þegar krafan stofnaðist.
Vökul stjórn
Stjórnin má ekki leyfa hússjóðsskuld-
um að hlaðast upp né glata hinu
dýrmæta lögveði. Hún hefur ekki
heimild til að veita langa og ítrekaða
gjaldfresti þótt aðstæður séu bágar
og brjóstumkennanlegar. Í slíkum til-
vikum verða félagsmálayfirvöld eða
lánastofnanir að koma til sögunnar
en ekki hússjóðurinn. Góðmennsku
verður að stunda á eigin reikning en
ekki húsfélagsins. Við vanskil verða
aðrir eigendur óhjákvæmilega að
axla aukabyrði meðan krafan er inn-
heimt. Þess vegna þurfa húsfélög að
hafa borð fyrir báru þegar húsgjöld
eru ákveðin.
Fjármál og bókhald
Stjórn húsfélags fer með fjármál
þess. Í fjöleignarhúsum með 6 eign-
arhlutum eða færri þarf ekki sérstaka
stjórn og fara þá eigendur í samein-
ingu með verkefni hennar. Þeir skipta
með sér verkum og geta falið einum
eiganda að annast fjármálin. Stjórn
húsfélags skal halda reikninga yfir
tekjur og gjöld húsfélagsins. Skal hún
innheimta hjá eigendum hlutdeild
þeirra í sameignlegum kostnaði og
henni ber að varðveita og ávaxta fjár-
muni húsfélagsins á tryggan og ör-
uggan hátt.
Bókhaldsskylda
Stjórnin skal sjá um að bókhald hús-
félagsins sé fært og haldið á réttan og
fullnægjandi hátt. Skal færa efnahags-
og rekstrarreikninga og reikningsárið
er almanaksárið. Samkvæmt bók-
haldslögum er húsfélag bókhalds-
skylt. Allar bókhaldsfærslur verða að
byggjast á traustum og áreiðanlegum
fylgiskjölum og þær skráðar á skýr-
an, varanlegan hátt. Fylgiskjöl ber að
varðveita með rekjanlegum hætti í
númeraröð.
Ársreikningar
Ársreikningar húsfélaga skulu vera í
samræmi við bókhaldslög. Þeir eiga
að samanstanda af rekstrarreikningi,
efnahagsreikningi og skýringum. Í
rekstrarreikningi eiga að koma fram
sundurliðaðar tekjur og gjöld þannig
að hægt sé að bera saman rekstur-
inn og áætlunina um álagningu hús-
gjalda. Efnahagsreikningurinn á að
sýna eignir og skuldir í árslok. Í skýr-
ingum skal svo geta atriða sem þýð-
ingu hafa við mat á rekstri og efnahag
félagsins. Ársreikningurinn skal árit-
aður af þeim sem ábyrgð ber á bók-
haldinu og rita yfirleitt allir stjórnar-
menn undir hann. Stjórn húsfélags
ber að leggja endurskoðaða ársreikn-
inga fram á aðalfundi og skýra þá og
bera þá upp til samþykktar að lokn-
um umræðum og fyrirspurnum.
Endurskoðandi
Á aðalfundi skal húsfélag kjósa sér
endurskoðanda sem vera skal lög-
giltur sé þess krafist af minnst einum
fjórða hluta eigenda miðað við hlut-
fallstölur eða fjölda. Endurskoðandi
skal hafa aðgang að öllu bókhaldi
félagsins og stjórn er skylt að gefa
honum allar þær upplýsingar um
fjárhag, rekstur og starfsemi félags-
ins sem hann æskir. Endurskoðandi
skal ganga úr skugga um og staðfesta
að sameiginlegum kostnaði sé skipt
samkvæmt fyrirmælum laga. Hann
áritar svo ársreikningana með eða án
athugsemda.
Upplýsingaskylda
Stjórn hefur mjög ríka upplýsinga-
skyldu gagnvart eigendum. Henni
er skylt að gefa eigendum upplýs-
ingar og skýringar um hvað eina sem
snertir málefni húsfélags, rekstur
þess, viðhald og fjármál. Í fjármál-
um húsfélags mega engin leyndar-
mál búa. Allt á að vera uppi á borð-
inu, gegnsætt og aðgengilegt. Annað
býður heim hættu á tortryggni, úlfúð
og deilum.
Hússjóðsskuldir mega ekki hlaðast upp
„Góðmennsku verður að stunda á eigin reikning
en ekki húsfélagsins.“
Neglda hjólbarða má
ekki nota frá 15. apríl
og fram til 31. október
nema þörf sé á vegna
akstursaðstæðna. Snjó
hefur fest fyrir norðan og víða eru
hálkublettir eða jafnvel ófærð á erf-
iðustu heiðum. Ökumenn,
sem ætla í langferðir, ættu
því ekki að bíða boðanna
heldur huga að því að skipta
yfir á vetrardekk, jafnvel þó
formlega megi ekki setja negld dekk
undir fyrr en í nóvember.
hugið að vetrardekkjum