Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2009, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2009, Page 5
fréttir 11. nóvember 2009 miðvikudagur 5 Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fundar með nemendafélögum: Unglingar mótmæla Allar líkur eru á því að lögreglan á Suðurnesjum fari fram á áfram- haldandi gæsluvarðhald yfir þeim sexmenningum, fimm Litháum og einum Íslendingi, sem nú sitja í gæsluvarðhaldi í mansalsmálinu. „Púslið er að nást saman og mynd- in er stöðugt að skýrast. Ég á von á því að við förum fram á áframhald- andi gæsluvarðhald, það er líklegra en ekki,“ segir Jóhannes Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn og yfir- maður rannsóknardeildar alvarlegri brota hjá lögreglunni á Suðurnesj- um. Sexmenningarnir eru grunaðir um stórfellda og skipulagða glæpa- starfsemi hér á landi, allt frá man- sali og vændi yfir í fíkniefnavið- skipti og þrælahald. Rannsóknin er sú viðamesta sem fram hefur farið hér á landi og er málið líklega hluti af stærra máli. Mörg lögregluemb- ætti, ásamt alþjóðadeild ríkislög- reglustjóra, koma að rannsókninni og mikil leynd hvílir yfir gangi mála. Gæsluvarðhald sexmenninganna rennur út síðdegis í dag, miðviku- dag. Aðspurður viðurkennir Jóhann- es að lögreglumenn keppist við að ljúka rannsókninni því naumur tími sé gefinn. „Okkar helsta vanda- mál er sá naumi tími sem okkur er skammtaður. Við erum enn í sama sprengnum við að klára rannsókn- ina. Vonandi förum við fljótlega að sjá fyrir endann á þessu og komast á ákærustig. Rannsóknin hefur verið að þéttast jafnt og þétt þar sem upp- lýsingar hafa verið að berast okkur og nú er púslið að fyllast hægt og bít- andi. Þannig hefur eiginlega málið allt gengið, hægt og bítandi,“ segir Jóhannes. trausti@dv.is Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds: Áfram inni Allar líkur eru á því að krafist verði áframhaldandi gæsluvarðhalds. Samsung Electronics ákvað að bjóða þessa þjónustu um leið og ljóst var, að framleiðslugalli gæti hugsanlega valdið bilun í afþýðingarkerfi viðkomandi kæliskápa. Í undantekningartilvikum geta neistar myndast innan afþýðingarkerfisins og hugsanlega valdið eldhættu og jafnvel slysahættu eða varanlegum skemmdum á kæliskápnum. Þó að afar litlar líkur séu á því að gallinn sé til staðar, hefur Samsung ákveðið að bjóða eigendum viðkomandi kæliskápa ókeypis heimsóknar- og viðgerðarþjónustu. Viðgerðarfólk okkar kemur í heimsókn, yfirfer kæliskápinn og gerir við hann á staðnum ef þess reynist þörf. Í öryggisskyni mun þjónustan einnig ná til þeirra tvöföldu kæliskápa sem eru með sambærilegt afþýðingar- kerfi. Þær gerðir sem um ræðir eru taldar upp hér að neðan. Ef þú ert eigandi að tvöföldum Samsung kæliskáp, hringdu í síma 530 2800 eða 461 5000 og fáðu nánari upplýsingar um kæliskápinn þinn. Þú getur einnig sent okkur fyrirspurn í tölvupósti á netföngin oskarh@ormson.is eða bjarni@radionaust.is. Ókeypis heimasóknar- og viðgerðarþjónusta Samsung hefst 2. nóvember n.k. Vörugæði, neytendavernd og ánægja viðskiptavina eru forgangsmál hjá Sams- ung. Við kunnum viðskiptavinum okkar bestu þakkir og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta mál kann að valda. ÁRÍÐANDI TILKYNNING SAMSUNG RS 21 TVÖFALDIR KÆLISKÁPAR Samsung Electronics á Íslandi hefur opnað heimsókn- ar– og viðgerðarþjónustu fyrir tvöfalda kæliskápa af gerðinni RS21. Þjónustan tengist viðgerð á hugsanlegum galla sem gert hefur vart við sig í einstökum kæliskápum, framleiddum á tímabilinu mars 2005 fram í júní 2006. Framleiðslu á þessari gerð kæliskápa hefur verið hætt. Eftirfarandi gerðir falla undir ókeypis heimsóknar- og viðgerðarþjónustuna okkar: RS21, RS23, RS55, RS56, RS60, RSH1, RSH3, RSE8, RSJ1, SN62, SN67 Púslið klárast Björn Leifsson, kenndur við lík- amsræktarveldið World Class, byggir nú tæplega 160 fermetra sumarbústað við Valhallarstíg í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Björn er að minnsta kosti með tvo menn í vinnu við að byggja bústaðinn og vinnan er í fullum gangi. Björn ekki á staðnum Í kvöldfréttum Stöðvar 2 á sunnu- dag lét Björn hafa eftir sér að hann hefði sjálfur lagt stóran hluta vinnunnar fram í bústaðnum. Þegar blaðamann og ljósmynd- ara DV bar að garði á Valhallarstíg fyrripart vikunnar voru þar hins vegar tveir menn að störfum í úr- hellisrigningu og hávaðaroki svo varla var stætt. Hvorugur þeirra var Björn. Þá lét hann einnig hafa eftir sér að hann liti á bústaðinn sem fjárfestingu og ætlaði sér ekki að dvelja þar sjálfur. Þegar DV hafði samband við Björn til að spyrja hver myndi þá nota bústaðinn vildi hann engu svara. Á besta stað Búið er að steypa kjallara sumar- hússins sem er alls 73,3 fermetr- ar. Eftir er að steypa hæðina sem verður 88,7 fermetrar. Bústaður- inn er á besta stað við Þingvalla- vatn og er metinn á fimmtíu millj- ónir króna í ársreikningi Lauga ehf., en bústaðurinn er skráður á félagið. Iðnaðarmaður sem DV hafði samband við telur aftur á móti að kostnaður við byggingu bústaðarins sé á milli hundrað og tvö hundruð milljónir enda er bú- staðurinn í einu dýrasta sumar- húsalandi Íslands. Dró úr einkaneyslu Í viðtali í helgarblaði DV sagð- ist Björn óttast gjaldþrot. Í kvöld- fréttum Stöðvar 2 dró hann það til baka og sagði sögur af fjárhags- erfiðleikum sínum stórlega ýktar. Hann væri ekki á leið í gjaldþrot. Björn vill lítið tjá sig um sum- arbústaðinn við blaðamann DV þar sem hann líkir umfjöllun blaðamanna við ofsóknir. Tekið skal fram að helgarviðtal DV við Björn var unnið í fullu samstarfi við hann og fékk hann að lesa það yfir og gera úrbætur eins og hann kaus. Í viðtalinu sagðist Björn hafa breytt lífsstíl sínum í ljósi erfiðara efnahagsástands. „Tilhugsunin um gjaldþrot er ekki góð. Að sjálfsögðu höfum við dregið saman í einkaneyslunni hjá okkur því við þurfum að haga seglum eftir vindi. Við erum ekki lengur að ferðast eins mikið til útlanda til dæmis og ég hef ekk- ert farið að veiða síðustu tvö ár og skíðaferðir erlendis hafa heldur ekki verið neinar.“ Björn Leifsson í World Class er að minnsta kosti með tvo menn í vinnu við bústað sinn á Þingvöllum þótt hann segist hafa lagt fram stóran hluta vinnunnar sjálfur. Bygging bústaðarins er í fullum gangi, jafnvel í úrhellisrigningu og hávaðaroki. MEÐ TVO Í VINNU „Að sjálfsögðu höf- um við dregið saman í einkaneyslunni hjá okkur því við þurfum að haga seglum eftir vindi.“ LiLja Katrín gunnarsDóttir blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is Vinna í afleitu veðri Þegar blaðamann og ljósmyndara bar að garði í vikunni voru tveir menn að vinna í bústað Björns. Veðrið var afleitt, mikið rok og rigning. mynD sigtryggur ari jóhannsson glæsileiki í fyrirrúmi Í stofunni verður arinn tengdur einangruðum reykháfi úr ryðfríu stáli og hiti í gólfum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.